Morgunblaðið - 17.08.1979, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1979
Viðurkenningar Umhverfismálaráðs:
Fegursta gatan, besti að-
búnaður barna og besti
aðbúnaður á vinnustað
MORGUNBLAÐIÐ hefur fengið
eftirfarandi upplýsingar frá Um-
hverfismálaráði Reykjavfkur
vegna viðurkenninga á snyrtilegu
umhverfi og góðum aðbúnaði á
vinnustöðum og einnig fyrir góða
aðstöðu fyrir börn á fbúðarhúsa-
lóðum:
Umhverfismálaráð Reykjavíkur-
borgar hefur að venju undirbúið
afhendingu sérstakra viðurkenn-
inga fyrir snyrtilegt umhverfi á
afmælisdegi Reykjavíkur, laugar-
daginn 18. ágúst.
Verða viðurkenningarnar af-
hentar sem liður í dagskrá Reykja-
víkurvikunnar á Kjarvalsstöðum
kl. 15 á laugardag og hafa frétta-
menn og ljósmyndarar verið boðn-
ir þangað.
Að þessu sinni var ákveðið að
breyta nokkuð út af vananum
varðandi þessar viðurkenningar og
í stað þess að veita viðurkenningu
fyrir snyrtilegt umhverfi stofnun-
ar og fagurt hús, var nú leitað að
íbúðarhúsalóð í borginni þar sem
segja mætti með réttu að væri
bestur aðbúnaður barna og enn-
fremur að fyrirtæki sem býður
starfsmönnum sínum hvað bestan
aðbúnað á vinnustað. Einnig var
valin fegursta gáta Reykjavfkur,
svo sem verið hefur. Að tilnefning-
um þessum unnu sérstakar þriggja
manna nefndir á vegum ráðsins og
kembdu þær borgina. Féllst um-
hverfismálaráð á tillögur þeirra
s.l. miðvikudag.
Bestan aðbúnað barna á fbúðar-
húsalóð tilnefndu Einar E. Sæ-
mundsen (frá barnaársnefnd Arki-
tektafélags íslands) Kristín G.
Jónsdóttir (frá Fóstrufélaginu) og
Anna Kristbjörnsdóttir (frá leik-
vallanefnd Reykjavíkurborgar).
Fyrir valinu varð leiksvæði og
garður við fjölbýlishúsin 62—100
við Hraunbæ. í greinargerð segir
að lóðin sé dregin fram sem full-
trúi flestra lóðanna við Hraunbæ
og Rofabæ, en þar hafa íbúarnir af
mikilli framsýni og dugnaði látið
útbúa lóðirnar á fjölbreytilegan og
þroskandi hátt fyrir börnin í
hverfinu. Lóðin er ætluð til leiks og
útivistar allan ársins hring. Þess
sjást og greinileg merki, að lóðin er
mikið notuð. Efnisval er að mati
nefndarinnar heppilegt, jarðvegur
hefur verið mótaður og mishæðir
nýttar til fjölbreyttra leikja jafnt
á vetrum og sumrum. Gras er á
allri lóðinni nema þar sem meira
slit er svo sem á boltavelli sem er
malbikaður og á stígum. Trjágróð-
ur er einnig á lóðinni. Leiktækjum
er í hóf stillt en form landsins
þeim mun betur nýtt en þau búa
yfir margvíslegum leikkostum.
Lóðin er snyrtileg og viðhald gott.
Skipulag lóðar var unnið af Reyni
Vilhjálmssyni landslagsarkitekt
1970 en framkvæmdir annaðist Þór
Snorrason skrúðgarðyrkjumeist-
ari. Ibúar annast viðhald lóðarinn-
ar sjálfir.
Hið nýja frystihús (sbjarnarins
í Örfirisey varð fyrir valinu sem
Bestur aðbúnaður á vinnustað er að mati Umhverfismálaráðs f frystihúsi
(sbjarnarins.
Sæviðarsund. Fegursta gata höfuðborgarinnar að mati Umhverfismálaráðs
Reykjavíkurborgar. Ljósm. Mbl. Ólafur K. Mag.
það fyrirtæki sem býður starfs-
mönnum sínum bestan aðbúnað á
vinnustað. Að tilnefningu unnu
Guðjón Jónsson, formaður nefndar
um aðbúnað á vinnustöðum, Magn-
ús L. Sveinsson, borgarfulltrúi,
varaformaður VR, og Gísli
Kristjánsson, starfsmaður borgar-
verkfræðings.
í greinargerð segir að hjá fisk-
verkunar- og útgerðarfyrirtækinu
ísbirninum sé alit til slíkrar fyrir-
myndar varðandi umhverfi starfs-
fólks að sjálfsagt sé að vekja þar
athygli á með því að veita fyrir-
tækinu viðurkenningu.
Fyrir valinu sem fegursta gata
Reykjavíkur 1979 varð
Sæviðarsund og segir í greinar-
gerð að garðar séu þar snyrtilegir
og nokkuð gróskumiklir og heildar
yfirbragð götunnar sé mjög sam-
stætt og gott. Við Sæviðarsund er
eingöngu íbúðabyggð, einbýlishús,
raðhús og fjölbýlishús en einnig
íþróttasvæði. Að tilnefningu unnu
Hafliði Jónsson, garðyrkjustjóri,
Gunnar Helgason forstöðumaður
Ráðningarstofunnar og Pétur
Hannesson, deildarstjóri hreinsun-
ardeildar.
Viðurkenning fyrir góðan aðbúnaö barna á fbúðarhúsalóð féll f skaut fbúanna
við Hraunbæ 62 til 100.
GRUNDIG
20"4632
Loekkun kr.91.500.
Núd kr.569.700.
Vildarkjör Nesco
% Útborgun: Mánaðargr.:
20% kr. 115.000 2 X kr. 228.000
30% kr. 170.000 3 X kr. 133.000
40% kr. 228.000 4 X kr. 86.000
50% kr. 285.000 5 X kr. 57.000
60% kr. 342.000 Frjálst innan árs
100% kr. 541.200 (5% staðgr.afsl.)
VEXTIR OG KOSTNAÐUR EKKI INNIFALIÐ.
• Línumyndlampi. („Black-stripe inline“).
• Einingaverk.
• AFCog AGC (sjá 4613).
• Kalt kerfi. (Aukin ending).
• Framvísandi hátalari. (Betri hljómburður).
• Tónstillir fyrir bassa og diskant.
• Þráðlaus fjarstýring. (Innrauður geisli).
• Sjálfvirk miðstilling. Tölva sem stillir liti,
birtu og hljóð eins og best verður á kosið,
strax við gangsetningu.
• Tölvubúinn, sjálfvirkur stöðvaveljari
með minni.
• Valhnotukassi eða silfur og svart.
Stærð 57 X 42 X 45 cm.
0PNA ÖLLUM MÖGIILEIKA.
■MaiKMI GIUM FYRIR UUK NESCO VÖRUR ADHRMUEn
Nesco
YFIR KR.100.000.
/