Morgunblaðið - 17.08.1979, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1979 31
—SSM———•MWWIWÍif: St-
KR nýtti færin
KR BÆTTI tveimur stig-
um í sarpinn í gærkvöldi,
með því að vinna 2—0
sigur á Víkingi í 1. deild
íslandsmótsins í knatt-
spyrnu. Tvö mörk þeirra
Sverris Herbertssonar og
Jóns Oddssonar í fyrri
hálfleik reyndust meira en
til þurfti, en munurinn á
liðunum fólst þó öðru
fremur í því að KR-ingar
nýttu betur færi sín.
Jourie Ilichew, þjálfari
Víkinga, mælti einhvern
tíma í sumar þá óumdeil-
anlegu speki, að lið sem
nýtir ekki færin, hlýtur að
tapa leiknum. Það er neyð-
arlegt, þegar orð þjálfar-
ans sannast á hans eigin
liði, en þannig var það í
gærkvöldi, Víkingar fóru
ömurlega með nokkur góð
marktækifæri. Nú geta
KR-ingar haldið ótrauðir
áfram, vonað að Val fatist
flugið, en alla vega jafnvel
hreppt Evrópusætið eftir-
sóknarverða ef heppnin
verður með. Væri það frá-
bær árangur hjá liði sem
lék í 2. deild á síðasta
keppnistímabili.
Oft brá fyrir góöum leikköflum
úti á vellinum, hjá báðum liðum,
oftar þó hjá Víkingi framan af. En
uppi við markið vandaðist málið,
lexíurnar höfðu þar greinilega
verið erfiðar og Víkingarnir réðu
illa við þær. KR-ingar voru heppn-
ir að Arnþór Óskarsson sá ekki
áberandi hendi á Sigurð Indriða-
son á 4. mínútu á markteignum, en
að öðru leyti voru færi Víkinga
einkum fólgin í skotum Helga
Helgasonar í hliðarnetið á 14.
mínútu og Sigurláss Þorleifssonar
rétt yfir á 16. mínútu. KR-ingar
voru heldur minna með knöttinn,
en þeim mun markvissari í sókn-
araðgerðum sínum.
Sverrir Herbertsson átti tvö
skot rétt yfir á 21. og 26. mínútu,
en á 36. mínútu gekk allt loks upp
hjá honum. Það var Sæbjörn
Guðmundsson, heilinn í KR-lið-
inu, sem hóf sóknina við annan
hornfánann á eigin vallarhelm-
ingi. Hann lék þar snyrtilega á
Jóhannes Bárðarson, sendi fram á
Jón Oddsson á miðjum vellinum.
Jón óð upp, dró að sér varnarmenn
og renndi knettinum síðan til
Sverris sem skaut frá vítateig,
þrumuskoti sem sigldi rakleiðis í
netið, 1—0.
KR
Víkingur
2:0
^^
IIDróHirl
Víkingarnir fengu sín bestu
færi á næstu mínútunum, Hreiðar
markvörður varði þá tvívegis
meistaralega frá Hinrik Þórhalls-
syni og Óskar Þorsteinsson komst
einn í gegn, en brenndi illa af.
KR-ingar ráku Víkingum því
eitraðan löðrung þegar þeir skor-
uðu sitt annað mark á síðustu
mínútu fyrri hálfleiks. Jón Odds-
son átti allan veg og vanda af
markinu, hóf sóknina með fallegri
sendingu út á vinstri kantinn til
Elíasar Guðmundssonar. Elías lék
upp og sendi vel fyrir markið,
Sverrir Herbertson var í dauða-
færi, en sparkaði í loftið, knöttur-
inn barst því til Jóns sem hafði
komið sér fyrir á líklegum stað við
markteiginn og hann þurfti aðeins
að snerta knöttinn til að skora,
2-0 fyrir KR.
Síðari hálfleikur æxlaðist svo-
lítið furðulega. Víkingar voru
meira með knöttinn og léku oft
laglega saman úti á vellinum,
KR-ingar hins vegar náðu hár-
beittum sóknarlotum öðru hvoru
og áttu stórgóða spretti, þar sem
þeir léku hörkugóða knattspyrnu.
Snemma í hálfleiknum varði Dið-
rik vel frá Erni Guðmundssyni og
Birgi Guðjónssyni. Víkingar hlutu
að fá færi og þá er helst að geta
þegar Hreiðar markvörður KR fór
í berjamó út í vítateiginn, ætlaði
að spyrna frá fyrir utan línuna, en
hitti ekki knöttinn sem barst inn
fyrir hann, en hættunni var af-
stýrt. Það var á 78. mínútu og 2
mínútum síðar skaut Sigurlás
utan á vinkilinn úr aukaspyrnu,
gott skot. Leiknum fór þó ört
hrakandi þegar nær leikslokum
dró og hefur rigningardemban
haft sitt að segja þar, en svo brá
við að varla stytti upp meðan
leikurinn stóð yfir. Jón Oddsson
átti síðasta færi leiksins, en Dið-
rik varði vel skalla hans af stuttu
færi.
KR-liðið hefur vaxið mjög að
undanförnu, ekki er vafi á því.
Framan af voru heppnisstimplar á
nokkrum af stigum þeim sem liðið
hlaut en nú leikur liðið knatt-
spyrnu sem hlýtur að teljast góð á
okkar mælikvarða. Þeir Jón Odds,
Elías og Sverrir voru allir hættu-
legir í sókninni, Sæbjörn kvikur á
miðjunni, ómælt efni þar, Ottó og
Börkur voru og sterkir í vörninni
og Hreiðar í markinu.
Margir Víkingar lögðu til góða
hluti t leiknum, en einhvern neista
vantaði þó. Sóknin hafði ekki úr
nógu að moða, og fór ekki nógu vel
með það litla sem hún hafði.
Vörnin galopnaðist nokkrum sinn-
um. Óskar Þorsteinsson var frísk-
ur framan af, Sigurlás átti spretti,
Hinrik barðist vel og Diðrik átti
góðan leik í markinu, varla hægt
að saka hann um mörkin.
1 stuttu máli:
Laugardalsvöllur 1. deild KR —
Víkingur 2—0 (2—0)
Mörk KR: Sverrir Herbertsson
(36. mín.), Jón Oddsson (45. mín.).
Spjöld: Sæbjörn Guðmundsson
KR
Áhorfendur: 865
Dómari: Arnþór Óskarsson.
- KK.
Utimót í
körfuum
helgina
ÚTIMÓT í körfuknattleik
verður haldið í Njarðvík
um helgina, en þar keppa
m.a. 3 lið úr úrvalsdeildinni
og tvö úr 1. deild.
6 lið keppa í tveimur
riðlum.
í A-riðli leika Njarðvík,
Grindavík og Ármann en í
B-riðli leika Valur, KR og
B-lið Njarðvíkur.
Njarðvíkingar sjá um
mótshald þetta.
__ 0 i^
ji ««C WmSmmm
Úrslitakeppnin í 3. og 4. aldursflokkunum f knattspyrnu hófst f kvöld.
Keppnin í 3. flokki fer fram í Kópavogi, en 4. flokkurinn keppir á
Akureyri.
Úrslit fyrstu leikjanna í gærkvöldi urðu þau, að í 3. flokki vann KR
Þrótt frá Norðfirði með 5 mörkum gegn einu og Valur vann Þór frá
Akureyri 3—1.
í 4. flokki á Akureyri vann Valur Gróttu 5—2 og Víkingur og ÍA
gerðu jafntefli, 2—2. Meðfylgjandi mynd tók RAX af viðureign KR og
Þróttar í 3. flokki.
Aðeins KR boðaði þátttöku
í úrvaisdeðdinni f körfu!
FYRIR nokkru rann út
frestur sá, sem körfu-
knattleiksliðin íslensku
höfðu til þess að boða
þátttöku sína í komandi
Islandsmóti. Það er
athyglisvert, að aðeins eitt
lið úr úrvalsdeild tilkynnti
þátttöku, 2 í 1. deild og 2 í
2. deild!
Það var KR sem til-
kynnti þátttöku sína eins
og vera bar, en hinum lið-
unum verður að öllum lík-
indum gefin nýr frestur,
ellegar verður íslandsmótið
varla spennandi, KR gegn
KR, gaman gaman. Það
væri hægt að keyra mótið í
gegn á einni helgi, eða
jafnvel á einni kvöldstund.
• óskar Þorsteinsson sækir að Hreiðari Sigtryggssyni markverði
KR, en hafði ekki ermdi sem erfiði. Ljósm.: rax
VÍKINGUR: Diðrik ólafsson 3, Gunnar Gunnarsson 1, Magnús
Þorvaldsson 2. Róbert Agnarsson 2, Jóhannes Bárðarson 2, Heimir
Karlsson 1, Hinrik Þórhallsson 3, Helgi Helgason 2, Ómar Torfason 2,
Sigurlás Þorleifsson 2, óskar Þorsteinsson 2.
KR: Hreiðar Sigtryggsson 3, Sigurður Pétursson 2. Sigurður
Indriðason 2, Ottó Guðmundsson 3, Börkur Ingvarsson 3. Sæbjörn
Guðmundsson 3, Birgir Guðjónsson 2, Stefán Örn Sigurðsson 1. Elías
Guðmundsson 3, Jón Oddsson 3, Sverrir Herbertsson 3, Örn
Guðmundsson (vm) 1.
DÓMARI: Arnþór óskarsson 3.
Arfgeng hola í höggi
KNÚTUR Björnsson, GS,
fór holu í höggi á 3. braut
Leiruvallarins fyrir
skömmu, en þá var haldin
keppni milli GS og GK.
Sonur Knúts, Sæmundur.
fór einnig holu í höggi fyrir
skömmu og var það á 7.
braut á Ilvaleyrarholtsvelli.
Hefur pabbi ekki viljað vera
lakari og lék því afrekið
eftir stráknum.
Þess má geta, að GS vann
keppni þessa við GK með
1943 höggum gegn 2037, en
keppendur voru samtals 64.
I beinu framhaldi má geta
þess, að hin opna Smyrn-
off-golfkeppni sem er öld-
ungakeppni, verður haldin á
Leiruvelli á morgun og hefst
hún klukkan 13.30. Leiknar
verða 18 holur með og án
forgjafar. Á sunnudaginn
klukkan 9.30 hefst síðan opin
unglingakeppni, 21 árs og
allt þar fyrir neðan. Keppt
verður í 5 manna sveitum um
hinn svonefnda Flugfélags-
bikar og 27 holur verða
leiknar.
FIRMAKEPPNI I
KNATTSPYRNU
Knattspyrnudeild Hauka gengst fyrir firmakeppni í
knattspyrnu á Hvaleyrarholtsvelli, dagana 1. og 2.
sept. ’79.
Leiktími veröur 2x30 mínútur, 11 manna lið og
frjálsar innáskiptingar. Þátttökugjald kr. 30.000.-
Þátttaka tilkynnist í síma 50893, fyrir 25. ágúst ’79.