Morgunblaðið - 26.08.1979, Qupperneq 1
64S1ÐUR
193. tbl. 66. árg.
SUNNUDAGUR 26. ÁGtST 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Augstein
sleppt úr
fangelsi
Olbia, Sardinía 25. á|(. Reuter.
AUGSTEIN, útgefandi þýzka
vikuritsins der Spiegel, var lát-
inn laus í dag úr fangelsi og fær
að halda til Vestur-Þýzkalands
síðdegis í dag, en rannsókn
málsins mun halda áfram. Lög-
maður Augsteins skýrði frá
þessu og sagði að réttarhöld
yrðu líkast til eftir nokkra
mánuði.
Lögmaðurinn sagði að verði
sannað að útgefandinn hafi ætlað
eiturlyfin sjálfum sér, muni hann
sleppa með vægan dóm, þvi að,
samkvæmt ítölskum lögum er
ekki tekið mjög hart á því þótt
menn hafi ögn af eiturlyfjum til
eigin nota í fórum sínum. Einn
ritstjóri Spiegels sagði í gær að
tilhæfulaust væri að Augstein
neytti eiturlyfja.
Gömul þjóðtrú er að þegar mikið er um fífu á flóum og mýrlendi verði veturinn harður... Myndin var tekin á Snæfellsnesi á dögunum.
Teng fagnaði
Mondale
Peking 25. ág. AP.
TENG varaforsætisráðherra Kína
og Ifuang utanríkisráðherra fögn-
uðu Walter Mondale varaforsætis-
ráðherra Bandaríkjanna er hann
kom tii Peking aðfaranótt laugar-'
dags.
Mondale er hæstsettasti Banda-
ríkjamaður sem heimsækir Kína
síðan ríkin tvö tóku upp stjórnmála-
samband í janúarmánuði síðastliðn-
um.
Vél ballettfólksins
enn í banni síðdegis
New York 25. ágást
ÞEGAR Mbl. fór í prentun var
Aeroflotvélin með Bolshoi ballett-
dansarana enn á Kennedyflugvelli
og hafði ekki fengið flugtaksheim-
ild.
Sovézkur blaðamaður sem fékk að
fara í vélina til að ræða við Ludmilu
Vlasova, konu Godonovs sem hefur
fengið hæli í Bandaríkjunum sagði
að Ludmila væri mjög skelfd. Hún
hefði endurtekið margsinnis að hún
vildi fara og hún óttaðist að hún yrði
tekin af vélinni. „Þetta er eins og
flugrán" sagði sovézki blaðamaður-
inn. Vélinni er haldið skv. grein í
stjórnarskránni, þar sem bandarísk
stjórnvöld áskilja sér rétt til að ræða
við þann sem komast vill úr landi, ef
þau telja sig hafa rökstudda ástæðu
til að ætla að ekki sé allt með felldu.
Um borð í vélinni eru yfir eitt
hundrað farþegar, þar af um
fimmtíu Bandaríkjamenn.
Hungursneyð vof-
ir yfir Kambodiu
Bantckok 25. Ag Reuter.
VEGNA uppskerubrests á hrís-
grjónum vofir nú hungursneyð yfir
fbúum höfuðborgar Kambodiu,
Phnom Penh, og margt fólk sveltur
nú þegar hálfu hungri.
Þá eykur á örðugleikana að þrjú
sjúkrahús borgarinnar geta varla
sinnt störfum sínum vegna þess að
öll lyf og hjúkrunargögn eru gengin
til þurrðar og er ekki hægt að veita
þar einföldustu læknishjálp að því er
segir í skýrslu alþjóðlegrar nefndar
sem var að koma frá Kambodiu og
kveðst munu óska eftir því við
Alkirkjuráðið að þegar verði gerðar
umfangsmiklar ráðstafanir til að
bjarga milljónum manna frá hung-
urdauða í Kambodiu. Verði leitað
eftir því að Rauði kross Kambodiu
fái að minnsta kosti tvær milljónir
dollara strax til að bæta úr allra
brýnustu þörfina.
Enn geisa bar-
dagar í Saqqez
Saqqez. Teheran, 25. ágúst. AP-Rueter.
SKÆRULIÐAR Kúrda lýstu því yfir í morgun að borgin Saqqez í vesturhluta íran væri enn á þeirra valdi, en
haft var eftir foringjum hersveita íransstjórnar í gærkvöldi að stjórnarherinn hefði náð borginni á sitt vald
eftir mikla bardaga í gær. Samkvæmt fregnum voru miklir bardagar í borginni í morgun og hertu skæruliðar
umsátur sitt um bækistöðvar hersins eftir að 200 manna liði stjórnarhersins hafði tekist að brjóta sér leið ti!
bækistöðvanna með birgðir vopna og matvæla.
Hermdu fregnir að skæruliðar
hefðu fellt og sært stjórnarher-
menn og unnið tjón á skriðdrekum
og öðrum vígvélum, en engar fregn-
ir fóru af mannfalli í röðum skæru-
liða. Orrustuþotur stjórnarhersins
vörpuðu sprengjum á stöðvar
Kúrda í nótt og var svört nóttin
sem bjartur dagur vegna glæring-
anna frá sprengjunum. Mannvirki
hafa verið illa leikin í átökunum
síðustu daga og hefur stór hluti
borgarinnar nánast verið lagður í
rúst.
Talsmenn skæruliða Kúrda sögðu
í /norgun að þeir afléttu ekki
umsátri sínu um bækistöðvar hers-
ins fyrr en stjórnarhermennirnir
væru allir á brott úr borginni.
Væru skæruliðar undirbúnir fyrir,
hörð og langvarandi átök og myndu
þeir ekki láta deigan síga fyrr en
stjórnvöld hefðu fallizt á að veita
Kúrdum sjálfforræði og lýðræði
yrði komið á i öllu landinu. I þessu
sambandi yrðu átökin ekki tak-
mörkuð við Saqqez, heldur yrði
stjórnarhernum veitt mótstaða um
allt Kúrdistan. Talið er að um 700
hermenn séu í bækistöð stjórnar-
hersins í Saqqez.
Kref jast sjálfstæðis Lett-
lands, Litháen og Eistlands
Moekvu — 25. ágúet — AP
HREYFING 45 fbúa í Lettlandi,
Litháen og Eistlandi lýstu þvf yfir f
dag að sovéskir ráðamenn hefðu
innlimað löndin þrjú f Sovétrfkin f
kjöifar leynilegra samninga við
Hitler. Kröfðust 45-menningarnir
þess að löndin þrjú fengju á ný
sjálfstæði og fóru þess m.a. á leit
við Sameinuðu þjóðirnar f yfirlýs-
ingu sinni, að stofnunin léti málið
til sfn taka þar sem hún hefði
skyldum að gegna gagnvart lönd-
unum þar eð þau hefðu á sfnum
tfma átt aðild að þjóðabandaiag-
inu.
í yfirlýsingu 45-menninganna
sagði að Lettland, Litháen og Eist-
land hefðu færst inn á áhrifasvæði
Sovétstjórnarinnar er utanríkisráð-
herrar Hítlers og Stalíns, Molotov
og von Ribbentrop, undirrituðu
sáttmála harðstjóranna tveggja um
að hvorugur færi með ófriði á
hendur hinum, en 40 ár voru á
fimmtudag liðin frá undirritun
sáttmálans. Sáttmálin hafi verið
hreint samsæri við heimsfriðinn og
mannkynið, og í raun og veru verið
upphafið að seinni heimsstyrjöld-
inni. Orðalag sáttmálans hafi aldrei
verið birt að fullu og í framhaldi af
makkinu hafi Moskva árið 1940
innlimað Lettland, Litháen og Eist-
land í Sovétríkin.
Þess var krafizt í yfirlýsingunni,
sem Andrei Sakharov og aðrir
andófsmenn í Moskvu hafa lýst
stuðningi við, að stjórnir Austur- og
Vestur-Þýzkalands, svo og ráða-
menn í Kreml, lýstu sáttmálann
ógildan.
Fleiri með hvítblœði
Hamborg. 25. igúst, Reuter.
PRÓFESSOR Rudolf Gross við
læknadeild Kölnarháskóla sagði f
dag að þeim færi f jöigandi er ættu
við hvftblæði að strfða, og leiddi
Gross, sem er einn helzti
kunnáttumaður á sviði
krabbameins f Vestur-Þýzkalandi,
að því lfkum, að samband væri á
miili framleiðslu ýmiss iðnvarn-
ings og þessarar tegundar blóð-
krabba.
Gross sagði að tíðni hvítblæðis
hefði á síðustu árum aukist mikið
á þéttbyggðum iðnaðarsvæðum í
Bandaríkjunum og Bretlandi,
miðað við dreifbýli. Hann sagði þó
að ekki hefðu verið færðar á það
sönnur að tengsl væru hér á milli,
en nefndi að margur iðnvarningur
og efnasambönd kynnu að valda
hvítblæði.
'41