Morgunblaðið - 26.08.1979, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1979
Alfons Björgvinsson
fráKlöpp — Minning
Fæddur 7. febrúar 1928
Dáinn 15. ágúst 1979
Þó lesa megi í skýrslum að óvíða
sé meðalaldur manna hærri en hér
á landi er það allt of stór hópur
manna og kvenna sem kveðja
þennan heim á besta aldri. Mið-
vikudaginn 15. ágúst s.l. bættist í
þennan hóp frændi minn Alfons
Halldór Björgvinsson frá Klöpp í
Vestmannaeyjum, sem lést í
Brompton-sjúkrahúsinu í London
51 árs að aldri. Andlát hans kom
þeim sem til þekktu að vísu ekki á
óvart þó allir hafi alið þá von í
brjósti að hann myndi fá bót
meina sinna í þessari ferð á fund
lækna í framandi landi.
Alfons eða Alli í Klöpp eins og
hann var ávallt kallaður í Eyjum
var fæddur þar 7. febrúar 1928,
sonur Sigríðar Sigurðardóttur,
sem nú er látin og Björgvins
Magnússonar sem nú býr í Vest-
mannaeyjum. Sigríður var dóttir
hjónanna Sigurðar Sigurðssonar
bátasmiðs og Hildar Eiríksdóttur
konu hans. Sigríður var alin upp í
Klöpp hjá afa mínum og ömmu,
Kristjáni Ingimundarsyni fiski-
matsmanni og Sigurbjörgu Sig-
urðardóttur, en hún var föðursyst-
ir Sigríðar. Eftir að amma dó árið
1931 tók Sigríður við búsforráðum
í Klöpp og ólst Alli þar upp hjá
móður sinni og afa mínum. Strax
um fermingu fór hann að stunda
alla algenga vinnu, lengst hjá
ísfélagi Vestmannaeyja h.f. enda
var sá vinnustaður hinum megin
við Strandveginn, andspænis við
íbúðarhúsið í Klöpp. Snemma kom
í ljós að Alli var sérlega laginn að
fást við vélar og allt sem að þeim
laut og tók hann brátt &ð vinna við
þau verkefni hjá Isfélaginu. For-
ráðamenn fyrirtækisins sáu fljótt
hvað í honum bjó og fyrir hvatn-
ingu þeirra hóf hann nám í
vélvirkjun hjá Véismiðjunni
Magna h.f. í Vestmannaeyjum.
Munu þeir hafa haft hug á að
tryggja sér starfskrafta hans að
námi loknu en lærifeður hans í
Magna vildu ekki láta hann fara
frá sér er þeir höfðu kynnst
+
Útför eiginkonu minnar, móöur og ömmu,
MAGNFRÍÐAR ÞORLEIFSDÓTTUR
fer fram frá Dómkirkjunnl, þriöjudaginn 28. ágúst kl. 3.00.
Gunnar V. Gíslason
Þórir J. Bjarnason Sigurlaug Björnsdóttír
Elsa Þorkelsdóttir Halldór Asgeirsson
og barnabörn.
+
Eginmaöur minn og faöir okkar
EGGERT GUÐMUNDSSON
Bjargi, Borgarnesi
verður jarösunginn frá Borgarneskirkju miövikudaginn 29. ágúst
kl. 2.
Aöalheiöur Jónsdóttir
og börn.
+
Alúöarþakkir til allra þeirra sem auösýndu okkur samúö og
vinarhug við andlát og útför konu minnar
SIGRUNAR BJARNADÓTTUR,
Haukadal.
Siguröur Greipsson
og fjölskylda.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og
jaröarför móöur okkar, tengdamóður og ömmu,
SIGRUNAR S. BJARNAR.
Dóra Bjarnar Vilhjálmur Bjarnar
Elfa Thoroddsen Þorsteinn Bjarnar
Síguröur H. Egilsson Sigríður Bjarnar
og barnabörn
hæfileikum hans og sýnir þetta
best hve góður og eftirsóttur
verkamaður hann var. Vann Alli
því áfram í Magna í nokkur ár að
loknu námi eða þar til hann
fluttist burt frá Eyjum.
Tryggan lífsförunaut og félaga
eignaðist hann þegar hann kvænt-
ist eftirlifandi konu sinni Svövu
Hjálmarsdóttur, sem einnig er
ættuð úr Eyjum. Þau eignuðust
þrjú börn, Ágúst útvarpsvirkja,
Sigurbjörgu nemanda, en þau eru
uppkomin, svo og Unnstein sem nú
er 10 ára gamall.
Alli og Svava hófu búskap í
Vestmannaeyjum en árið 1965
fluttust þau að Hellu á Rangár-
völlum þar sem Alli starfaði um
skeið hjá Kaupfélaginu Þór.
Nokkrum árum seinna fluttust
þau til Reykjavíkur og gerðist Alli
starfsmaður hjá Sindrastáli h.f.
þar sem hann vann meðan kraftar
leyfðu. Er mér kunnugt um það að
þar sem annars staðar þótti hann
frábær starfskraftur.
Árið 1975 kenndi Alli lasleika
og var af þeim sökum frá vinnu
um nokkurt skeið en snemma árs
1978 varð hann alvarlega veikur
og varð óvinnufær eftir það.
Dvaldi hann síðan oft á sjúkra-
húsum, einkum þó á Borgarspítal-
anum og er læknum og öðru
starfsfólki sjúkrahússins færðar
þakkir fyrir sérstaka hlýju og
umönnun er hann naut þar.
í byrjun þessa mánaðar fór
hann til Englands og gekkst þar
undir læknisaðgerð. Var þetta
hans fyrsta og síðasta utanlands-
ferð. Honum var ljóst að brugðið
gat til beggja vona með árangur
en kaus að hætti fornkappa að
láta sverfa til stáls. Þegar til
Lundúna kom þurfti Alli að bíða í
tvo daga þar til hann færi á
sjúkrahúsið. Meðalmaðurinn hefði
þá dregið sængina upp fyrir höfuð
meðan hann beið örlaga sinna, en
það var ekki að skapi Alla. Þessa
tvo daga skyldi nota til fróðleiks
og skoða heimsborgina. Fór hann
m.a. á British Museum og voru
Ellen Mjöll Jóns-
dóttir — Minning
Fædd 7. september 1958
Dáin 8. júlí 1979
Með þessum fáu línum viljum
við kveðja systur okkar Lellu, sem
svo snögglega var tekin frá okkur.
I huga okkar spyrjum við ennþá
hvers vegna fengum við ekki að
njóta hennar lengur. Okkur fannst
þetta stutt, en samt þegar við
lítum til baka, sjáum við að við
eigum eftir dýrmætar minningar
og við þökkum Guði fyrir þá miklu
gjöf að hafa gefið okkur Lellu.
Ellen Mjöll Jónsdóttir var fædd
í Willington Delaver 7. september
1958. Hún var dóttir hjónanna
Margrétar Viðar og Jóns Hannes-
sonar læknis. Hún var þriðja í
röðinni af fimm alsystkinum og
tveim yngri hálfsystkinum. Þegar
Ellen var aðeins tveggja mánaða
missti hún bróður sinn Gunnar af
slysförum. Honum fékk hún ekki
að kynnast hér svo mikið en nú
vitum við hvaða gleði það hlýtur
að vera fyrir þau að geta hist. Árið
1961 fluttist hún heim til íslands.
En aftur varð Ellen fyrir miklum
missi. Það var þegar hún missti
móður sína og þá var hún aðeins
fjögra ára.
Ellen gekk í skóla í Garðabæn-
um og var svo í heimavistarskól-
anum á Eiðum og á Reykjanesi.
Eftir það hóf hún störf við Lands-
banka íslands og síðast á Matsölu-
staðnum Árbergi.
Ellen lætur eftir sig dótturina
Ernu Rut. Biðjum við Guð að
vernda og styrkja elsku litlu
móðurlausu frænku okkar. Einnig
biðjum við guð að styrkja föður
hennar, Elvar, sem nú tekst á við
móður- og föðurhlutverkið.
Pabba og ömmu okkar og alla
þá sem að henni stóðu biðjum við
Guð að styrkja í þessari bæn:
Guð gefi mér æðruleysi
til að seetta mlg vlð það sem ég fæ ekkl
breytt
kjark til að breyta þvf sem ég get breytt
og vit til að grelna þar í milli.
Við kveðjum elsku systur okkar
að sinni. Við vitum að nú er hún
hjá mömmu og Gunna bróður.
Útför móöur minnar
RAGNHEIÐAR GÍSLADÓTTUR,
Bragagötu 16
fer fram frá Hallgrímskirkju í Reykjavík miövikudaginn 29. ágúst kl.
13.30.
Þeir, sem heiöra vilja minningu hennar, eru beönir aö láta
Hallgrímskirkju njóta þess.
Fyrir hönd systkinanna
Ragnheiöur Hermannsdóttir
+
Þökkum innilega auðsýnda samúö við andlát
ELLERTSÞ. ÞÓROARSONAR
Barónstíg 20 A,
Halldóra Lárusdóttír og fjölskylda.
+
Útför fööur míns, afa, bróöur okkar og frænda
ÞORKELLS ÓSKARS ARNASONAR
frá Ferdal ( Aöalvfk
er andaöist sunnudaginn 19. ágúst, fer fram frá Fossvogskirkju
þriöjudaginn 28. ágúst kl. 13.30 eftir hádegi.
Magnús Óskarsson
Jón Óakar Magnússon
Guörún Vilhjálmsdóttir
Valgeröur Árnadóttir
Ingibjörg Árnadóttir
Pálmi Árnason.
+
Þökkum auösýnda hluttekningu og samúö viö andlát og útför
JÓNÍNU SIGRÍÐAR SIGURJÓNSDÓTTUR
Drápuhlíð 11
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á deild 2A
Landakotsspítala.
Guðrún Sigurjónsdóttir
+
Þökkum hjartanlega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför mannsins míns, fööur, tengdafööur og afa
PÁLS KOLBEINS,
Túngötu 31, Reykjavík.
Laufey Kolbeins
Kriatjón Kolbeins Ingíbjörg Sig. Kolbeins
Margrét Kolbeins Gunnar J. Hákonarson
Eyjólfur P. Kolbeins
og barnabörn
þessir tveir dagar honum til mik-
illar ánægju og uppörvunar. Lýsir
þetta best skapferli hans og spegl-
ar þá karlmennsku sem hann
sýndi ávallt í veikindum sínum.
Hann var að eðlisfari dulur og
hlédrægur og flíkaði ekki tilfinn-
ingum sínum og aldrei vildi hann
troða nokkrum manni um tær.
Hann var góður heimilisfaðir og
hafði nýlega búið fjölskyldu sinni
fallegt heimii að Unufelli 25 hér í
borg þegar kallið kom.
Miklar og margvíslegar breyt-
ingar hafa átt sér stað í Vest-
mannaeyjum síðan við Alli ólumst
hér upp. Auk þess sem gosið
breytti umhverfinu og öllu mann-
lífi hefur tímans tönn verið þar
einnig að verki eins og annars
staðar. Klöpp er horfin, búið að
rífa pallana og gamia íshúsið, og
uppfylling komin þar sem áður
voru þangfjörur. Þarna lékum við
Alli okkur ýmist í Tangafjörunni,
pöllunum eða þá í kartöflukjallar-
anum í Klöpp þegar veður var
vont. Þótt þessi umgjörð um
bernskuminningarnar sé nú horf-
in stendur óhögguð hugljúf minn-
ing um góðan dreng sem nú heldur
til bjartari og betri heima.
Við kveðjum Alla með söknuði
og þökkum allar samverustund-
irnar. Eiginkonu hans og öðrum
ástvinum sendum við innilegustu
samúðarkveðjur og biðjum þeim
blessunar guðs.
Theódór S. Georgsson
Guð blessi hana og veri með henni
um alla eilífð.
Systkinin
Ég þakka fyrir tímann sem hún
gaf mér, minningarnar munu
ávallt lifa í huga mér. En nú er við
komum að leiðarlokum langar mig
til að segja:
Við höfum átt okkar drauma
saman, og einnig tekið þátt í sorg
og gleði hvers annars. Einnig fann
ég tilgang með lífi mínu með
henni. Ef ég ætti að lifa líf mitt
upp aftur myndi hver stund vera
með henni. Af öllu hjarta mínu
mun ég varðveita minninguna um
okkar stundir saman.
Ég er ekki nógu fróður til að
vita hvað verður um okkur þegar
við kveðjum þennan heim, en ég er
viss um að einungis gott getur
komið til hennar, því hún var
alltaf svo góð við alla.
Ég þakka fyrir allt. Ég mun
aldrei gleyma henni.
Joey.