Morgunblaðið - 26.08.1979, Side 29

Morgunblaðið - 26.08.1979, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1979 29 Við sjóndeildarhringinn suður aí Bonn„. Þannig hugsar skopteiknari þýzka blaðsins Franíurter Allgemeine komu Strauss til Bonn til að taka við aí Schmidt. félagarnir Strauss og Schmidt komu fram í sjónvarpsþætti stuttu eftir að ljóst var hvert stefndi og var það mál manna að Strauss hefði þar haft algera yfirburði, enda ekki svo skrýtið því að Strauss hefur í gegnum árin verið kallaður „mesti" ræðu- stjórnmálamaður Vestur-Þýzka- lands. Laug að þinginu, en slapp samt Stjórnmálafræðingar telja, að það muni koma Strauss mjög til góða í kosningabaráttunni, hversu gífurlega mikla reynslu hann hef- ur af stjórnmálum. Segja má að hann hafi verið í eldlínunni í rúm 30 ár. Hann varð ráðherra í stjórn Konrad Adenauers á fyrri hluta fimmta áratugarins og aftur varð Strauss ráðherra á fyrri hluta sjötta áratugarins og þá ráðherra varnarmála. í seinni ráðherratíð sinni sem varnarmálaráðherra varð Strauss fyrir fyrsta megin- áfallinu sem stjórnmálamaður. — Þýzka vikuritið Der Spiegel birti upplýsingar, sem taldar voru varða þjóðaröryggi, Strauss neit- aði að bera nokkra ábyrgð á skrifum þessum í fyrirspurn á þinginu, en varð síðar að draga í land og viðurkenna að hafa logið að þingheimi. Það var því ekki um nema eitt að gera, — segja af sér. Hann var að vísu tekinn í sátt aftur og sneri aftur í ráðuneytið, en Þjóðverjum líkaði ekki fram- koma hans gagnvart þinginu, þannig að hann naut aldrei eftir þetta þess trausts sem hann naut áður. Grunsemdir almennings vökn- uðu svo aftur árið 1975, þegar Der Spiegel birti kafla úr ræðu og samtali sem Strauss átti við flokksbræður sína hvatti Strauss þá eindregið til þess að grafa sem mest undan efnahagsstefnu sósíaldemókrata, sem þá héldu um stjórnvölinn í landinu, í kjölfar olíukreppunnar miklu 1973—1974. Strauss taldi þetta rétt í þeirri telur viðeigandi, eða hvort það er í anda þeirra siðareglna sem aðrir stjórnmálamenn þykjast fara eft- ir.“ Nýtur fádæma vinsælda í heimaríki sínu, Bayern í kjölfar hneykslismálsins 1975 var framkvæmd skoðanakönnun víða um landið, þar sem kom í ljós að um helmingur þjóðarinnar hafði mjög illan bifur á Strauss, aðeins um 30% þeirra sem spurðir krata, telja að með því að stilla Strauss upp á móti Schmidt nú- verandi kanslara, sem nýtur geysilegra vinsælda afgreiði þeir Strauss fyrir fullt og allt, hann hljóti að tapa kosningunum. í skoðanakönnunum sem gerðar voru í maí s.l. um vinsældir Strauss annars vegar og Schmidt3 hins vegar kom í ijós að 64% þjóðarinnar studdu Schmidt, en aðeins 19% studdu Strauss og jafnvel í röðum kristilegra demó- krata hafði Schmidt vinninginn. Þar studdu 38% þeirra Schmidt en 36% vildu Strauss. Þá gætti nokk- urrar andstöðu við Strauss í röð- um fylgismanna Kristilega sósíal- kanslaraefni, er eflaust sú að þeir þurftu nauðsynlega á því að halda, að fá sterkari frambjóðanda held- ur en Helmut Kohl. Kohl stóð sig að vísu mjög vel í kosningunum 1976 þegar hársbreidd munaði að Kristilegu flokkarnir næðu hrein- um meirihluta á þingi, en síðan þá hefur mjög dregið af honum ein- hverra hluta vegna og kristilegir demókratar telja hann einfaldlega ekki frambærilegan leiðtoga leng- ur. Albrecht hins vegar er ungur og'hefur engan veginn næga reynslu til þessa valdamikla emb- ættis og stjórnmálafræðingar telja að hann hafi hlaupið á sig með því að gefa kost á sér í kosningunum út á einhvern fífla- hátt,“ er haft eftir dálkahöfundi í Der YKPIEGEL. Lítur á sig sem bjargvætt þjóðarinnar Strauss hefur alltaf litið á sig sem eins konar bjargvætt, sem þjóðin muni snúa sér til þegar harðna tekur á dalnum og Strauss hefur einmitt lafið hafa eftir sér fyrir skömmu, að nú væri svo illa kcmið fyrir efnahagsmálum Vestur-Þýzkalands, að nauðsyn- legt væri að hann kæmi þar til bjargar. Hagvöxtur hefur hægt á sér undanfarin ár úr 6% niður í 4% og verðbólgan er nú um 4%, svo að það er varla hægt að taka undir þá fullyrðingu Strauss, að Þjóðverjar séu í nauðum. Þess ber þó að gæta, að með áframhaldandi hækkun á oliúverði lítur dæmið öllu verr út á næsta ári. Afstaða gegn Rússum honum til góða? Allar líkur eru svo á því að stefnan í samskiptum Vesturveld- anna og kommúnistaríkjanna verði nokkuð breytt þegar til kosninga kemur á næsta ári. I dag nýtur hörð stefna Strauss gegn öllum samskiptum við komm- únistarikin ekki mikilla vinsælda, en ráðamenn í Vestur-Evrópu eru þó að vakna við þann vonda draum að þeir eru hreinlega á eftir í vígbúnaði samanborið við Sovét- menn. — Því er það ekki ólíklegt að hörð stefna Strauss í þessum málum komi til með að vinna honum mikið fylgi, sem hann fengi ekki ell.i, Strauss ásamt Albrecht, meðantalin voru atkvæði í kosningu þeirra í millum á Helmut Schmidt: „Strauss er hreinlegasta framboð sem sameiginlegum fundi kristilegra demókrata og kristilega sósíalistasambandsins. ég gat fengið af hálfu stjórnarandstöðunnar. “ von að aukin verðbólga og stór- aukið atvinnuleysi myndi ganga af stjórninni dauðri, þannig að Kristilegu flokkarnir gætu komist til valda á nýjan leik. — Almenn- ingur í Vestur-Þýzkalandi kunni alls ekki við svona hugsunarhátt í anda Machiavelli og álitið á Strauss féll niður úr öllu valdi, jafnvel í Bayern, heimabyggð hans. Strauss varð ekki að ósk sinni og sósíal-demókrötum tókst að yfirstíga aðsteðjandi erfiðleika og halda velli í næstu kosningum. Vegna þess máls var síðar haft eftir Strauss: „Ég beiti þeim aðferðum í stjórnmálunum sem ég tel vænlegastar til árangurs, alveg burt séð frá því sem almenningur i voru töldu Strauss vera duglegan og vinna sitt verk vel. í heima- byggð sinni naut Strauss hins vegar um 80% persónufylgis, sem glögglega endurspeglaðist tveimur árum síðar er kosið var til ríkis- þingsins í Bayern. Þá fékk flokkur Strauss, Kristilega sósíalista- bandalagið, um 70% greiddra at- kvæða og Strauss því sjálfkjörinn forsætisráðherra og því embætti gegnir hann enn í dag. Stjórnmálafræðingar telja tvær ástæður vega þyngst í því að Strauss náði kjöri sem kanslara- efni kristilegu flokkanna. Aðal- ástæðuna telja þeir vera þá, að andstæðingar hans, sem eru fjöl- margir meðal kristilegra demó- istabandalagsins, flokks hans sjálfs þegar skoðanakönnun var framkvæmd þar í júní s.l. — Aðeins um 80% þeirra vildu Strauss frekar en Schmidt. Strauss verður orðinn 65 ára gamall þegar gengið verður til kosninga á næsta ári og því segja andstæðingar hans: Hví ekki að láta kjósendur um að binda enda á feril hans í stjórnmálum. Vinsælasti kanslari frá stríðslokum Hin ástæðan fyrir því að kristi- legu flokkarnir völdu Strauss sem leiðtogastöðu flokksins, telja að hann hefði átt að bíða í a.m.k. eitt kjörtímabil ennþá. Schmidt kansl- ari sem átti fremur erfitt upp- dráttar eftir slæma útkomu sósíaldemódemókrata hafa lýst þeirri skoðun sinni að Strauss hafi enga möguleika gegn Schmidt, einfaldlega vegna þess að honum sé það einkar lagið að fá fólk upp á móti sér með þvergirðingshætti og frekju. Stjórnmálafræðingar hafa hins vegar varað við því að af- greiða Strauss á þennan hátt. Þeir telja alveg auðsætt að Strauss muni breyta framkomu sinni á þessu ári sem er þangað til að kosið verður. — „Hann er ails ekki svo skyni skroppinn, að hann tapi Hörðustu andstæðingar Strauss úr röðum kristilegra demókrata, hafa sagt að með hann á oddinum sé eins vist að sósíaldemókratar hljóti í fyrsta sinn hreinan meiri- hluta á þingi. — Strauss sé ekki sá maður sem sameinað geti alla fylgismsnn kristilegu flokkanna. Sérstaklega er talin hætta á því að hinir frjálslyndari í flokknum geti ekki sætti sig við mjög harða hægri stefnu Strauss, en fyrir hana er hann einmitt frægastur. Vörumerki Strauss er: Hörð hægri stefna, — geysileg mat- græðgi og bjórdrykkja að hætti Suður-Þjóðverja. — sb.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.