Morgunblaðið - 26.08.1979, Síða 32
Miöatöö fastcigna
viöskiptanna
FlfíNAVER
fSuöurlandsbraut 20,
tímar 82455—82330.
m
SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 1979
Mikill fjöldi erlendra ferðamanna hefur sótt ísland heim í sumar. E.t.v. er þessi mynd táknræn um að nú er
sumri tekið að halla og ferðamennirnir halda til síns heima. (Ljósm. Mbl. Emilía).
Svavar Gestsson viðskiptaráðherra um vaxtastefnuna:
Komin í algjðrt óefni
gagnvart almenningi
500 þúsund krónu vaxtakostnaður á mánuði af 2ja herbergja kjallaraíbúð
RÍKISSTJÓRNIN hafði eins og kunnugt er samþykkt 5,5 prósentu-
stiga hækkun verðbótaþáttar vaxta áður en bankastjórn Seðlabank-
ans lagði málið fyrir bankaráð sitt. í ríkisstjórninni voru uppi þrenn
sjónarmið um hver hækkunin skyldi vera. Alþýðuflokkurinn vildi að
farið yrði að Ólafslögum, Framsóknarflokkurinn vildi hækka vextina
um 4,1 prósentustig en Alþýðubandalagið vildi hclzt enga hækkun og
lýsti stuðningi við framsóknarmenn og kvaðst myndi aðstoða þá við
að ná hækkuninni eins langt niður og frekast væri kostur.
Morgunblaðið ræddi í gær við
Svavar Gestsson og spurði hann,
hver hefði verið afstaða flokks
hans í þessu vaxiamáli í ríkis-
stjórninni. Svavar sagði að Al-
þýðubandalagið teldi hér vera um
of stórt stökk í vaxtamálum að
ræða, sem stigið hafi verið eða
gert hefði verið ráð fyrir að stíga,
ef beitt hefði verið sömu reikn-
ingsaðgerðum og notaðar voru 1.
júní. Hefðu þá vextir átt að hækka
um 10 prósentustig. „Það sáu
menn hins vegar sem betur fer að
var ekki leyft og þess vegna er
farið í lægri tölu,“ sagði Svavar og
kvað Seðlabankinn telja sig
byggja á lögunum frá í vor.
Svavar Gestsson var spurður,
hvort Alþýðubandalagið hefði ver-
ið andvígt hækkun nú. Hann
svaraði: „Vextir hér eru nú komnir
það hátt, að það er mikið álitamál,
hve lengi á að halda þessu áfram.
Hefðu þessir vextir kannski ein-
hvern tíma verið kallaðir okur-
vextir. Þegar það er orðið svo að
vaxtakostnaður er kannski 500
þúsund krónur á mánuði af 2ja
herbergja kjallaraíbúð í Reykja-
vík þá sér hver maður að þetta er
komið í algjört óefni gagnvart
alrí’í'” ningi, sem verður að kaupa
" núsnæði með því að taka lán.
á að ríkja áfram, að koma með
tillögur um það hvernig verður 1
bætt úr þessum vanda húsbyggj- I
enda. Þetta hefur einnig áhrif á
atvinnuvegina og er verðbólgu- i
aukandi einnig. Það, sem ég legg
aðaláherzlu á í þessu sambandi er
að hér eru menn að reikna út
vaxtastig eftir Rotterdamvísitöl-
unni. Morgunblaðið hefur mikið
gagnrýnt það að Rússar bæti,
tekjur sínar á olíu hingað til lands
með þessari sömu viðmiðun. Nú er
það komið svo að bankakerfið
ákveður vexti með hliðsjón af
Rotterdamvísitölunni, vegna þess
að hún veldur miklu um þá verð-
bólgu, sem hér hefur verið. Síðan
eru vextir framreiknaðir sam-
kvæmt því. Okkur finnst skjóta
nokkuð skökku við, þegar þeir
menn, sem þykjast í öðru orðinu
berjast gegn sjálfvirkni í efna-
hagskerfinu, skuli í hinu orðinu
heimta þessa algjöru sjálfvirkni."
Svavar kvaðst telja að hlutur
sparifjáreigenda hefði verið í all-
góðu lagi fyrir þessa breytingu.
Nú kvað hann 5,5% hækkun í raun
vera lækkun raunvaxta. Kvað
hann það hæpinn útreikning, þeg-
ar síðastliðið 'k ár væri tekið, en á
því hefðu orðið rosalegar olíu-
hækkanir. Hann kvaðst líta svo á
að þessi hækkun hefði verið knúin
fram með þeim þingmeirihluta,
sem stundum hafi skapast, Fram-
sóknarflokks, Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks. Því kvaðst hann
ætla að þeir bæru verulega ábyrgð
að sínu mati. Að lokum sagöi
Svavar: „Ég fagna því hins vegar,
að Alþýðuflokkurinn, Framsókn-
arflokkurinn og raunar Seðla-
bankinn skuli slá af ítrustu kröf-
um í þessum efnum og koma
þannig til móts við skynsemina, þó
að þeir þyrftu helzt að ganga
lengra, ef vel ætti að vera.“
Hækkar benzmið um
rúm 248% á einu ári?
Benzínlítrinn kostaði 145 krónur á sama tíma í fyrra
EF hækkunarbeiðni olíufélag-
anna nær fram að ganga og
benzínverðið hækkar á næstunni
úr 312 í 360 krónur lítrinn, hefur
benzínlftrinn hækkað á einu ári
um 215 krónur eða um rúm 248%:
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Mbl aflaði sér í gær var
benzínverðið um mánaðamótin
ágúst / september í fyrra 145
krónur lítrinn, en það verð tók
gildi 22. júlí 1978. Þar áður hafði
verðið verið 119 krónur. Næsta
hækkun varð 20. september 1978
en þá hækkaði benzínið í 167
krónur lítrinn. Það verð gilti í
tæpa þrjá mánuði og 13. desember
tók nýtt verð gildi og var það 181
króna. Næsta hækkun varð 23.
febrúar á þessu ári og þá fór
benzínlítrinn í fyrsta skipti yfir
200 krónur eða í 205 krónur. Enn
liðu rúmir tveir mánuðir og 5. maí
var benzínið hækkað næst og fór
þá í 256 krónur hver lítri. Aftur
liðu rúmir tveir mánuðir í næstu
hækkun en hún varð 13. júlí s.l. en
þá hækkaði benzínlítrinn í fyrsta
skipti yfir 300 króna markið og fór
í 312 krónur. Þetta verð gildir enn í
dag en a næstu dögum fer í sölu
nýr og dýr farmur af Rússlands-
benzíni, eins og fram kom í blaðinu
í gær, og hafa olíufélögin farið
fram á 48 króna hækkun á benzín-
lítranum bæði vegna hækkunar á
innkaupsverði og gengisfalls
íslenzku krónunnar á undanförn-
um vikum.
A.m.k. verða menn, ef þessi stefna
Truflaðir á
nýjan leik?
HVALUR 7 var síðdegis í gær
væntanlegur til Hvalfjarðar með
tvo búrhvali. Skipið átti að halda
strax á miðin á nýjan leik í gær og
kann því svo að fara að það verði
næsta bráð Rainbow Warriors,
sem hélt frá Reykjavík í gær til
þess að trufla veiðar hvalbátanna.
Eins og lesendum er eflaust í
fersku minni tók landhelgisgæzl-
an Rainbow Warrior á dögunum
og færði til hafnar vegna ítrek-
aðra truflana á veiðum Hvals 7.
Rainbow W arrior
farinn á miðin:
Ovístum
aðgerðir
gœzlunnar
UPP úr hádegi í gær lagði skip
Greenpeace-samtakanna, Rainbow
Warrior, upp frá Reykjavík álciðis
á hvalamiðin. Mun áhöfnin reyna
að hindra hvalveiðar íslensku
hvalbátanna að því er segir í
fréttatiikynningu frá áhöfn Rain-
bow Warriors.
Ahöfnin telur að hún muni geta
tafið hvalveiðarnar, þótt Land-
helgisgæzlan hafi tekið í sína vörzlu
stóran hraðbát samtakanna og tvo
minni gúmbáta. Áður hefur komið
frám í fréttum að um borð í
Rainbow Warrior eru tveir gúmbát-
ar. Ákvörðunin um að halda á
miðin var tekin á fundi áhafnarinn-
ar á föstudagskvöld og í samráði við
forystumenn Greenpeace-samtak-
anna í Evrópu. Blaðamönnum, ljós-
myndurum og kvikmyndatöku-
mönnum, íslenskum og erlendum,
var boðið að fara með skipinu út á
hvalamiðin.
Að sögn áhafnar Rainbow
Warrior var saksóknara ríkisins
tilkynnt bréflega um þá ákvörðun
þeirra að halda á ný á hvalamiðin.
Þröstur Sigtryggsson skipherra
hjá Landhelgisgæzlunni sagði í gær
að Gæzlan hefði tekið Green-
peace-menn fyrir meintar ólögmæt-
ar aðgerðir gegn islenskum ríkis-
borgurum á íslensku yfirráðasvæði
og fært þá til hafnar á þeirri
forsendu að þeir hefðu verið að
brjóta íslensk lög, „Fari
Greenpeace-menn til sömu starfa
aftur, höfum við engan úrskurð
fengið um hvort þessar athafnir
þeirra eru ólögmætar eða ekki. Það
mál er enn til meðferðar hjá dóm-
stólunum og við verðum bara að
bíða eftir ákvörðun dómstólanna
um hvort við gerum eitthvað frekar
í málinu," sagði Þröstur.