Morgunblaðið - 02.12.1979, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.12.1979, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1979 64 BÆKUR FYRIR FULLORÐNA DÓMSDAGUR Ný skáldsaga eftir Guðmund Daníelsson. Aðalpersóna þessarar bókar er Sigurður Guð- brandsson, fæddur á Lækjarbotnum 1806. Hann var tvíkvæntur og átti að minnsta kosti tvær hjákonur. Sigurður eignaðist 23 börn. Höfundur Dómsdags hefur einkum stuðst við heimildir í Þjóðskjalasafni íslands. Úr þeim efni- við hefur hann skrifað áhrifamikið bókmennta- verk. Þetta er harmsaga langafa hans, — saga, sem í ótrúlegri harðneskju sinni glitrar þó öðrum þræði af léttum gáska og vongleði. Læknirí þremlöndum Létt kímni, heitt skap og hreinskilni einkenna endurminningar Friðriks Einarssonar læknis. Hann hefur frá mörgu að segja, og segir vel frá. Þetta er bók um merkilegt ævistarf og minnis- stæðan persónuleika. Gylfi Gröndal hefur áður skrifað vinsælar minningabækur, til dæmis um dr. Kristin Guðmundsson og Helgu M. Níels- dóttur Ijósmóður. Bókin „Læknir í þrem löndum" er um 200 blaðslður með mörgum myndum. < Guðnr GuV > »v SETBERG LIV ULLMANN 0G INGMAR BERGMAN Hér er sagt frá lífi og starfi tveggja stórbrotinna listamanna. Hvernig Liv þroskaðist sem leik- kona undir handleiðslu Ingmars Bergmans og varð ástfangin af leikstjóranum fræga. Tveir skapstórir listamenn áttu sitt ástarævintýri, en varð ofviða að lifa saman í hversdags- leikanum. Þau bjuggu saman í fimm ár í óvígðri sambúð og eignuðust dótturina Linn, en slitu samvistum. í bókinni eru 60 myndir, þar af margar heilsíðumyndir. Guðrún Guðmundsdóttir þýddi. Töframaóurinn frá Lúblin „Töframaðurinn frá Lúblín“ gerist í Póllandi seint á nítjándu öld. Jasia Mazúr virtist flest til lista lagt. Hann átti góða konu og gott heimili og á sýningarferðalögum sinum naut hann vax- andi frægðar og fór ekki varhluta af hylli kvenna. Dag einn verður honum Ijóst að líf hans er komið í hnút og úr vöndu að ráða. Margir telja Isaac Bashevis Singer, höfund þessarar bókar, eitt snjallasta sagnaskáld sem nú er uþpi. Honum voru veitt bókmenntaverð- laun Nóbels 1978. Hjörtur Pálsson þýddi. Hlaut bókmenntaverölaun Nóbels 1978 Isaac Bashevis Singer Töframaóurinn frá Lúblín _ ^'0 //#/ y XtUÍlSwJ ► í GunnarM.Magnúss Siqurðar Dók 4 1 Þóiðarsonar Hér sogir á emteagan og híspurstewsan háít fráttogstarfíþessa emstæða fisfamanns Settserg Sigurðar bók Þóröarsonar Hér segir á einlægan og hispurslausan hátt frá lífi og starfi þessa einstæða listamanns, svo og trúarlífi Sigurðar og lífsskoðunum hans. Og í seinasta kaflanum „Samfylgdin" segir Áslaug Sveinsdóttir, kona Sigurðar frá starfi, heimilislífi, gleði og andstreymi. Gunnar M. Magnúss hefur skrifað endurminningar t. d. um Sigvalda Kaldalóns og Guðrúnu Á. Símonar. „Sigurðar bók Þórðarsonar“ er prýdd fjölda mynda. LANDNÁMIÐ FYRIR LANDNÁM „Með móðurmjólkinni drakk ég í mig hina rót- grónu sögu um landnám íslands. Engum kom til hugar að véfengja þessa sögu. Svo liðu árin og 1000 ára afmæli Alþingis var haldið hátíðlegt 1930. Þá vaknaði tortryggni mín á að allt væri með felldu um landnámssöguna." í bókinni svarar Árni Óla þessum efasemdum. Árni Óla var mikilvirkur blaðaxaður og rit- höfundur. Bækur hans urðu 37 talsins. Árni Óla lést á síðastliðnu sumri. Hann hafði þá nýlokið frágangi þessarar bókar. » Höfundur þessarar ástarsögu er þekktur hér á landi fyrir bækur eins og „Stella", „Tvífarinn“, „Cymbilina hin fagra“ og „Hann unni henni“. „Úrskurður hjartans“ er því ein af gömlu, góðu skáldsögunum, sem enn eru ungar og ferskar. Þakrennan syngur Ljóðabókin „Þakrennan syngur“ ereftir Norðmanninn Jul Haganæs. Þýðinguna gerði Guðmundur Daníelsson rithöfundur. Nú eru Ijóðabækur Jul Haganæs orðnar átta, en þetta er fyrsta Ijóðabók hans sem þýdd er á íslensku. SETBERG , , Jul Haganæs Þakrennan syngur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.