Morgunblaðið - 02.12.1979, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.12.1979, Blaðsíða 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1979 ÚrEyrarannál: ... Maður, Bjarni Böðvars- son, vinnumaður í Reykjavík, átti barn við þeirri konu, Geirnýju Guðmundsdóttur, sem hans bróðir, Arnór Böðvarsson, hafði í ektaskap átta, en var nú andaður barnlaus. Þessi Bjarni andaðist áður hans mál undir dóm kom, en kvinnunni, Geirnýju, dæmdist tylftareið- ur með nefndarvottum, að sinn maður, Arnór, hefði óduganlegur verið til hjónabands verknaða eða sam- ræðisverknaða, hvern eið hún sór í vor 1699 á Hesteyrarþingi, hvaðan þetta mál var sent til alþingis. Á þessu sama ári, 1698, var strýktur á alþingi Jón Guðmundsson á Klúku fyrir slæmt orðbragð og bréfaskrift um sinn sóknarprest, séra Halldór Pálsson; hafði fengið yfir 100 slög, svo mjög hrumur var, og eftir næturreið af alþingi eftir lest Ara Þorkelssonar, með hverri hann átti heimleiðis að fylgjast, náði aldrei lestinni, og hefur aldrei sést síðan, hvorki lifandi né dauður. Margt hefur talað verið um þess manns dauða og þá miklu refsing á hann var lögð. Ekki eru f jandanum allir vegir færir Karl einn vestur á Fjörðum hafði á yngri árum sínum verið afar lengi vinnumaður á sama heimili. Bóndinn, sem hann var hjá, var í hreppsnefnd, og sagðist karli svo frá, að fáir hefðu verið jafningjar húsbónda síns í allri meðferð hreppsmála. En lítið þótti karli koma til yngri mannanna og þeirra aðgerða, eins og oft vill verða hjá eldra fólki. Eitt sinn var það, að menn voru að ræða um störf hreppsnefndarinn- ar og framkvæmdir í hreppnum. Var karl þarna viðstaddur, en lagði i fyrstu ekkert til mála. Svo kemur þar, að einn þeirra, sem tóku þátt í samtalinu segir við karlinn: „Hvað lízt þér nú um þetta? Oft er það gott, sem gamlir kveða." Þykist þá karl ekki geta þagað: „Ja, þær eru nú fljóttaldar, framkvæmdirnar, sem hreppurinn hefur ráðizt í síðan húsbóndinn sálaði dó. Það er þessi vegarspotti hérna á mýrunum, sem er svoleiðis, að þó að andskotinn stæði á öðrum endanum, en fortöpuð sál á hinum, þá mundi hann alls ekki vinna það til að sækja hana.“ (Gríma hin nýja). „Kannski nautið ætli að bjóða sig fram til þings?“ Einu sinni ekki alls fyrir löngu var nafnkunnur stjórnmálamaður á framboðsferð sem oftar í Strandasýslu. Kom hann seint að kveldi á bæ einn afskekktan og baðst gistingar. Heimilaði bóndi honum gistingu og fylgdi honum til baðstofu. Var þar fyrir dóttir bónda gjafvaxta, og fær frambjóðandinn að vita, að ekki sé fleira fólk á heimilinu. Tvö rúm voru og í baðstofunni. Er frambjóðandanum veittur góður beini, en þegar háttatími er kominn, segir bóndi, að eins og hann sjái, þá séu nú aðeins tvö rúm í baðstofunni, rúmið sitt og rúmið hennar dóttur sinnar. Hann ætli að biðja frambjóðandann að gera sér það að góðu að sofa í rúminu sínu, en sjálfur kvaðst hann ætla að búa um sig úti í fjósi. Frambjóðandinn færðist undan að taka boði bónda; sagðist hann vera, eins og bóndi vissi, í framboðsferð, en margar væru skæðar tungur, er myndu fúsar að útbreiða sögu um það, að hann hefði sofið heila nótt með bóndadóttur einni í baðstofu, en hann vildi ógjarnan gera nokkuð það, sem spillt gæti fyrir því að hann næði kosningu til Alþingis, og bað hann bónda að lofa sér heldur að sofa í fjósinu. Eftir nokkurt þref varð það úr, að bóndi lét að vilja frambjóðandans og bjó um hann eftir beztu föngum í fjósinu; þar svaf frambjóðandi um nóttina, og ekkert sögulegt gerðist við veru hans þar. Og kosningu náði hann. Nokkuð löngu seinna þurfti bóndi sá, er hér hefur verið talað um að framan, að sækja naut handa kú sinni. Þegar nautið kom, vildi það ekki líta við kúnni. Bóndadóttir var þar nærstödd og varð henni þá að orði: „Kannski andskotans nautið ætli að bjóða sig fram til þings." (Gríma hin nýja). Úr Njáls sögu Gunnar vó Otkel í Kirkjubæ, en siðar Þorgeir, son hans, og fleiri menn. Til eftirmáls voru Geir goði og Gizur hvíti. Varð sú sætt, að þeir bræður, Gunnar og Kolskeggur, skyldu vera utan þrjá vetur, en verða ann- ars sekir. Gunnar lætur flytja vöru þeirra bræðra til skips. Og þá er öll föng Gunnars voru komin og skip var mjög búið, þá ríður Gunnar til Bergþórshvols og á aðra bæi að finna menn og þakkaði liðveizlu öllum þeim, er honum höfðu lið veitt. Annan dag eftir býr hann snemmendis ferð sína til skips og sagði þá öllu liði, að hann myndi ríða í braut alfari, og þótti mönnum það mikið, en væntu þó tilkomu hans síðar. Gunnar hverfur til allra manna, Utsýni frá Gunnarshólma. Gunnar snýr aftur er hann var búinn, og gengu menn út með honum allir. Hann stingur niður atgeirinum og stiklar í söðulinn, og ríða þeir Kolskeggur í braut. Þeir ríða fram að Markarfljóti. Þá drap hestur Gunnars fæti, og stökk hann úr söðlinum. Honum varð litið upp til hlíðarinnar og bæj- arins að Hlíðarenda og mælti: „Fögur er hlíðin, svo að mér hefur hún aldrei jafn fögur sýnzt, bleikir akrar og slegin tún, og mun ég ríða aftur og fara hvergi.“ „Ger þú eigi þann óvina fagnað," segir Kolskeggur, „að þú rjúfir sætt þína því að þér myndi enginn maður það ætla. Og máttu það hugsa, að svo mun allt fara sem Njáll hefir sagt.“ „Hvergi mun ég fara,“ segir Gunnar, „og svo vildi ég að þú gerðir." „Eigi skal það,“ segir Kolskeggur. „Hvorki skal ég á þessu níðast og engu öðru, því er mér er til trúað, og mun sá einn hlutur vera, að skilja mun með okkur, en seg þú það frændum mínum og móður minni, að ég ætla mér ekki að sjá ísland, því að ég mun spyrja þig látinn, frændi, og heldur mig þá ekki til útferðar." Skilur þar með þeim, og ríður Gunnar heim til Hlíðar- enda, en Kolskeggur til skips og fer utan. Hallgerður varð fegin Gunn- ari, er hann kom heim, en móðir hans lagði fátt til. Gunnar situr nú heima þetta haust og vetur- inn og hafði ekki margt manna um sig. Líður nú vetur úr garði. Fróm spurning í fyrndinni, meðan enn tíðkað- ist að rífa hris til eldsneytis, bar það við, að piltur og stúlka voru send tvö ein á hrismó. Segir ekki af dvöl þeirra þar. En um kvöld- ið, er þau voru komin heim af mónum, tók heimafólk eftir því, að stúlkan var venju fremur fálát og hugsandi. Er liðið var nokkuð á vökuna segir hún loks upp úr eins manns rómi: „Ilvenær á sú kýr að bera, sem fékk á hrismó i dag?“ (Gríma hin nýja). * Islenzkir málshættir Háð er heimskra gaman. Lítið gagnar göngumanni göfug ætt. Oft er þras á þingum. Munnur á mismæli, en maður leiðrétting orða sinna. Með lögum skal land vort byggja, en með ólögum eyða. Hart á móti hörðu, sagði kerling, hún settist á stein. Gunnarshaugur. Á Glœsivöllum í kvæðinu Á Glæsivöllum sækir Grímur Thomsen yrkisefnið til Þorsteins þáttar bæjarmagns í Fornald- arsögum Norðurlanda, en er raunar að lýsa reynslu sinni af utanríkisþjónustunni eins og hún gerðist um hans daga en Grímur starfaði að henni um skeið í þágu Danaveldis. Við lestur kvæðisins koma þó líklega flestum aðrir atburðir í hug og nýlegri og er óþarfi að fjölyrða um það frekar. Hjá Goðmundi á Glæsivöllum gleði er í höll, glymja hlátra sköll, og trúðar og leikarar leika þar um völl, en lítt er af setningi slegið. Áfengt er mungátið, og mjöðurinn er forn, mögnuð drykkjarhorn, en óminnishegri og illra hóta norn undir niðri’ í stiklunum þruma. Á Grimi’ hinum góða af gulli höfuð skín, gamalt ber hann vín. En horns yfir öldu eiturormur gín, og enginn þolir drykkinn nema jötnar. Goðmundur kóngur er kurteis og hýr, yfir köldu býr. Fránar eru sjónir, en fölur er hans hlýr, og feiknstafir svigna í brosi. Á Glæsivöllum aldrei með ýtum er fátt, allt er kátt og dátt. En bróðernið er flátt mjög, og gamanið er grátt. I góðsemi vegur þar hver annan. Horn skella’ á nösum, og hnútur fljúga um borð, hógvær fylgja orð. En þegar brotna hausar og blóðið litar storð, brosir þá Goðmundur kóngur. Náköld er Hemra, því Niflheimi frá nöpur sprettur á. En kaldara und rifjum er konungsmönnum hjá. Kalinn á hjarta þaðan slapp ég. Grímur Thomsen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.