Morgunblaðið - 05.12.1979, Qupperneq 1
Miðvikudagur
5. desember
Bls. 33—56
cn
í fyrra fórst sovézk
Badger könnunar-
flugvél, sem ekki
hefði átt að vera á
flugi yfir Sval-
barða. Brátt
fyrir ísmeygilegar
tilraunir Rússa neit-
uðu yfirvöld í Osló að
afhenda svarta kass-
ann úr flugvélinni
fyrr en norskir
vísindamenn höfðu at-
hugað hann.
Á undanförnum
fjórum árum hafa
Rússar. algjörlega í
trássi við norskar
reglugerðir. byggt
bækistöð fyrir þyrl-
ur á Svalbarða. sem
gerði þeim kleift. að
mati flestra Norð-
manna, sem fylgst
hafa með framvindu
málsins, að ná á sitt
vald svæðinu á
hættustund ....
Svæðið milli Sval-
barða og Noregs er
nyrsta hliðið, sem sovéski
flotinn á Kola-skaga
verður að sækja út um,
þegar hann siglir út á
heimshöfin. Næsta hlið er
milli Jan Mayen og Nor-
egs og það syðsta milli
Grænlands, íslands og
Skotlands. Það er lega
íslands í miðju syðsta
hliðsins, sem gerir
landið jafn herðnaðar-
lega mikilvægt og raun
ber vitni.
Herfræðingar eru á
einu máli um það, að
framrás Sovétmanna
fram hjá Svalbarða eða
suður fyrir Jan Mayen
verði ekki stöðvuð, ef til
átaka kynni að koma.
Hins vegar er það
lífsnauðsynlegt, að
varnarlínan frá Græn-
landi um ísland til Skot-
lands haldi.
I grein þeirri, sem
hér birtist eftir frétta-
mann Observer, William
Fendt, er því lýst,
hvernig Sovétmenn
hafa stöðugt fært sig
upp á skaftið á Sval-
barða, þar sem þeir
stunda námuvinnslu.
Taka Svalbarða
gæti hugsanlega
skoðazt sem ófriðar-
ástæða, en það er
lítið sem NATO
gæti gert í fyrstu
lotu til að koma í veg
fyrir hana. Vegna
vopnlausrar stöðu
svæðisins hefur Nor-
egur enga hermenn
þar. Næstu bæki-
stöðvar norskra
hermanna eru í
Norður-Noregi um
það bil 800 km sunn-
ar ....
Eyjan Svalbarði er
hrjóstrugt land. hul-
ið grjóti og skriðjökl-
um, miðja vegu milli
Nord Kap á Noregi
og Norðurheim-
skautsins og er hluti
hins afarstóra
Svalbarða-eyja-
klasa....
/ sambýli við sov-
éska björninn
Noregur, eitt aðildarríkja
NATO, er í þeirri fáránlegu að-
stöðu að umbera ólöglegan og
jafnvel hættulegan viðbúnað
Rússa, á Svalbarða, sem er eitt af
afskekktum en hernaðarlega mik-
ijyaemim tandsvæðum Noregs
norðan heimskautsbaugs.
^Á undanförnum fjórum árum
hafa Rússar, algjörlega í trássi við
norskar reglugerðir, byggt bæki-
stöð fyrir þyrlur á Svalbarða, sem
gerði þeim kleift, að mati flestra
Norðmanna, sem fylgst hafa með
framvindu málsins, að ná á sitt
vald svæðinu á hættustund. Þrátt
fyrir afdráttarlausan stuðning við
bandalag vestrænna þjóða eru
yfirvöld í Osló í 5000 km fjarlægð
ófær um að grípa í taumana.
Eyjan Svalbarði er hrjóstrugt
land, hulið grjóti og skriðjöklum,
miðja vegu milli Nord Kap á
Noregi og Norðurheimskautsins
og er hluti hins afarstóra Sval-
barða-eyjaklasa. Þrátt fyrir að
svæðið sé norskt, þá er tekið
sérstaklega fram í samningnum
frá 1920, sem kveður á um stöðu
þess, að öll 40 aðildarríki sam-
— noröan
heim-
skautsr
baugs
ningsins, þar á meðal Bretland,
Bandaríkin, Japán, Rússland og
Noregur, eigi rétt á að nýta
auðlindir eyjaklasans.
Síðan á fjórða áratug aldarinn-
ar hafa einungis Norðmenn og
Sovétmenn haldið þar uppi fastri
búsetu. Bæði ríkin nema kol úr
jörðu. Rússnesku íbúarnir, 2.300
að tölu, eru tvöfalt fleiri en þeir
norsku.
Þrátt fyrir bann við hernaðar-
umsvifum á Svalbarða, sem fölgið
er í samningnum frá 1920, er
áhugi Sovétmanna á svæðinu
ótvírætt hernaðarlegur.
,Annar
hliðarstólpinn“
Svo vitnað sé til orða Sir Peter
Whitely, sem þar til í ágúst
síðastliðnum æðsti yfirmaður
norðursvæðis NATO: „Svalbarði
er annar hliðstólpinn, sem ver
siglingaleiðina frá Kólaskaga"
(hinn er Norður-Noregur). Múr-
mansk, aðalhafnarborg Kólaskag-
ans, er eina íslausa höfnin í
Rússlandi, þaðan sem er bein, opin
siglingaleið út á Atlantshaf, og
þar er bækistöð fyrir stærsta og
mikilvægasta flota landsins,
Norðurflotann, en í honum eru
m.a. 70 stór skip og 170 kafbátar,
þar af 100 kjarnorkuknúnir.
Hliðið milli Svalbarða og Nor-
egs (sem þrengist að vetrarlagi,
þegar rekíslínan færist suður),
hefði lykilhlutverki að gegna á
ófriðartímum. Sovézkar flota-
deildir múndu sigla í gegnum það
til að ráðast á Norður-Noreg og
setja þar á land herlið, hindra
birgðaflutninga Bandaríkjamanna
til Evrópu og til að skjóta eld-
flaugum að bandarískum borgum
og herstöðvum.
Kafbátar frá NATO mundu
reyna að sigla í gegnum hliðið í
gagnstæða átt: bæði árásarkafbát-
ar í leit að um það bil 30 kafbátum
af Delta gerð, sem leynast mundu
á botni Barentshafs (en þaðan
geta eldflaugar frá þeim náð til
skotmarka í Bandaríkjunum) og
einnig kafbátar af Los Angeles
gerð, sem þyrftu að komast mjög
nálægt Kólanskaga til að beita
stýriflaugum sínum.
Á friðartímum felast hagsmun-
ir Sovétmanna á Svalbarða eink-
um í aðstöðu til eftirlits. Rússar
vilja gjarnan vita hvað allir eru að
hafast að. Þeir eru fáir, sem efast
til dæmis um, að a.m.k. sumir
hinna sex fulltrúa Aeroflot á
norska flugvellinum í Longyearbæ
séu njósnarar. Rússar staðhæfa að
eina starfa fulltrúanna sé að
afgreiða mánaðarlegt flug á veg-
um Aeroflot frá Múrmansk (öll
flugumferð milli rússnesku byggð-
anna á Svalbarða og Múrmansk
fer um flugvöllinn í Longyearbæ).
En samkvæmt nýlegri grein í
Neue Ztircher Zeitung þá var einn
af þessum fulltrúum Aeroflot á
síðasta ári Alexei Gonchar, sem er
einn úr hópi um það bil 100 KGB
njósnara, sem brezka stjórnin
vísaði úr landi árið 1971. Að auki
leggja Aeroflot fulltrúarnir það í
vana sinn að ljósmynda alla sem
koma til flugvallarins, eins og ég
varð fyrir sjálfur.
eftir WILLIAM FENDT
Sjá næstu síðu