Morgunblaðið - 05.12.1979, Page 4
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1979
Veikindi
Kosygins
staðfest
Ó»ló, 3. desemlwr. AP.
ALEXEI Kosytíin forsætisráft-
herra Sovétríkjanna er alvarlcga
veikur, en dóttir hans Ludmilla
Gwishiani gerir sér vonir um að
hann braggist von bráðar og
verði þess megnugur að hefja
störf á ný.
Frú Gwishiani sagði Randi
Bratteli fréttamanni Verdens
Gang og eiginkonu Trygve Bratt-
eli fyrrum forsætisráðherra Nor-
egs af veikindum föður síns er hún
sótti fund bókasafnsfræðinga í
Ósló í fyrri viku. Var það í fyrsta
skipti sem fjölskyldumeðlimur
skýrir frá veikindum Kosygins.
Sovézk yfirvöld hafa ekki skýrt
frá veikindum hans.
Áreiðanlegar heimildir í
Moskvu herma að Kosygin sé það
alvarlega veikur að hann geti
aldrei hafið störf á ný. Ekki
skýrðu þessar heimildir frá hvers
eðlis veikindi ráðherrans eru, en
sögusagnir hafa verið á kreiki um
að hann hafi fengið hjartaslag.
Kosygin er 75 ára.
Hinir pólitísku
„sjúklingar“
Sovétkerfisins
Sovétmenn halda uppteknum
hætti við að loka andófsmenn
inni á geðsjúkrahúsum og
þröngva þeim til iyfjatöku,
þrátt fyrir mótmæli frá Vestur-
löndum. Embættismönnum er
það feimnismál, enda fer and-
spyrna almennings vaxandi.
Fórnarlömbin eru ekki alltaf
þekkt utan Sovétríkjanna eins
og var fyrir nokkrum árum, en
þjáningar þeirra eru jafn mikl-
ar engu að síður.
Þessar ályktanir má draga af
síðustu tveim fréttatilkynning-
um frá nefnd andófsmanna í
Moskvu, sem rannsaka beitingu
„geðlækna" i stjórnmálatil-
gangi. í tilkynningum, sem ný-
lega bárust til Vesturlanda, er
greint frá örlögum sextíu karla
og kvenna i Sovétrikjunum.
Sumir hafa verið lokaðir inni,
aðrir látnir lausir eða fluttir til,
^og enn öðrum hefur verið hótað
innilokun á geðsjúkrahúsi. Upp-
lýsingar um fórnarlömbin koma
frá ættingjum og vinum eða
þeim sjálfum og — sem mesta
athygli vekur — frá starfsfólki
sjúkrastofnana, sem á laun hef-
ur samúð með hinum ofsóttu.
Nefnd þessi og velunnarar
hennar hafa orðið fyrir sífellt
meiri þrýstingi frá yfirvöldum.
Til dæmis hefur lækninum Leon-
ard Ternovsky verið hótað
stöðumissi og sími hans verið
tekinn úr sambandi.
Annar af nefndarmönnunum
Vyacheslav Bakhmin tölvufræð-
ingur hefur, orðið að sæta enn
harkalegri meðferð. Hann var
rekinn úr starfi sínu í júlí
síðastliðnum og honum hefur
verið meinað að fá vinnu annars
staðar. Ef hann er atvinnulaus í
meira en fjóra mánuði, á hann á
Nýjar
upp-
ljóstranir
hættu málsókn fyrir að vera
„sníkjudýr."
í nefndarskýrslunni um mál
þeirra, er hafa verið lokuð inni,
vekur athygli frásögnin- um
fimmtuga, grísk-kaþólska
nunnu, Valeríu Makeyevu að
nafni. Hún var tekin föst í fyrra
og kærð fyrir að búa til talna-
bönd og selja. Serbsky-stofnunin
í Moskvu, sem kannaði geðheilsu
hennar, úrskurðaði, að hún væri
„geðsjúk með áberandi persónu-
leikabreytingum." Ættingjar
hennar telja hana hins vegar
andlega heilbrigða.
Valeríu var meinað að vera
viðstödd réttarhöld í eigin máli,
en þau fóru fram í apríl sl., og
mótmælum verjanda hennar var
ekki svarað. Hún var síðan send
um ótiltekinn tíma á fengelsis-
geðveikrahælið í Kazan. Þar
voru henni gefin inn sterk lyf
með þeim afleiðingum, að hún
hefur örkumlast á hægra hand-
legg. Þegar ættingi hennar
heimsótti hana nýverið, vitist
hún ekki þekkja hann.
Mál Iosyps Terelya, þrjátíu og
sjö ára gamals trésmiðs, er
einnig eftirtektarvert. Hann hef-
ur verið í haldi í meira en áratug
fyrir að vera virkur kaþólikki og
þjóðernissinni í Úkraínu. Síðast
var hann handtekinn árið 1977
fyrir skrif um eigin reynslu þar
sem hann afhjúpar í smáatrið-
um starfsemi Sychyovka-sér-
sjúkrahússins fyrir geðsjúka, og
nú er honum haldið á sams
konar stofnun í Dnepropetrovsk.
Áður en hann var handtekinn,
hafði hann verið úrskurðaður
hæfur til að vinna og gegna
herþjónustu. Kona hans, sem er
læknir, greindi svo frá, að bréf
hans séu strjál og virðist skrifuð
undir áhrifum lyfja.
Hin konunglega brezka geð-
læknafélag lagði fyrir skömmu
fram formlega kvörtun við Al-
þjóðlega geðlæknasambandið
þess efnis, að misbeiting geð-
lækninga í stjórnmálalegum til-
gangi virtist eiga sér stað í máli
Terelya.
Alþjóðlega geðlæknasamband-
ið hefur ennfremur fengið til
meðferðar mál þriðja fangans,
Nikolai Demanov, frá fyrr-
greindri rannsóknanefnd í
Moskvu. Demyanov, sem er þrjá-
tíu og níu ára að aldri, var
tekinn fastur 1971 og sakaður
um „andsovéskan áróður" og að
hafa sprengiefni í fórum sínum.
Hann var lýstur óábyrgur gerða
sinna og eyddi sjö árum ævinnar
í fangelsissjúkrahúsi, þar til
hann var fluttur í fyrra á
venjulegt geðsjúkrahús í Perm,
en það er hinn venjulegi aðdrag-
andi þess, að fangi sé látinn laus.
Á spítalanum var hann
ávítaður fyrir að hafa sent bréf
án vitundar læknanna (en í einu
þeirra hafði hann farið hörðum
orðum um aðbúnað á sjúkrahús-
inu) og fyrir að neita að sam-
þykkja staðhæfingar þeirra um,
að hann hefði þjáðst af geðveiki
undanfarin ár. Er hann þráaðist
við, gáfu læknarnir honum sterk
lyf og drógu enga dul á, að það
væri gert í hegningarskyni fyrir
þrjósku hans. í júlímánuði var
hann fluttur aftur í fangels-
isspítala í Tashkent til frekari
refsingar.
Andófsnefndin í Moskvu fer
þess á leit við Alþjóðlega geð-
læknasambandið að það skerist í
leikinn fyrir hönd Demanovs,
þar eð mál hans „sýnir, að það er
ekki geðheilsa sjúklings, heldur
öllu fremur óþægilegt hátterni,
sem oft liggur að baki aukinni
lyfjameðferð og innilokun hans
á sérstökum geðsjúkrahúsum
um ótiltekinn tíma.“
Nefndin greinir einnig frá
geðrannsókn, sem fram fór í
New York á sovéskum hershöfð-
ingja Pyotr Grigorenko, andófs-
manni, sem haldið var á rúss-
neskum geðveikrahælum í sex ár
vegna „ofsóknaræðis" að það átti
að heita. Rannsóknin leiddi hins-
vegar í ljós, að Grigorenko bar
engin merki þess að vera geð-
veikur né hafa verið það fyrr á
ævinni.
þessum niðurstöðum var fagn-
að af rannsóknarnefndinni í
Moskvu og aðstandendum henn-
ar, sem er eftirlitshópur þar í
borg um framkvæmd Helsinki-
sáttmálans, en þessi hópur héfur
fordæmt beitingu geðlækninga í
stjórnmálum „í því skyni að
brjóta á bak aftur hundruð
andófsmanna og þá, sem trúa á
Guð.“
Ennfremur segir Helsinki-
hópurinn: „Enda þótt dregið hafi
nokkuð úr beitingu þessara
refsiaðgerða vegna framtaks
manna eins og Bukovskys,
Glúzmans og Podrabinkes og
vegna víðtækra mótmælaað-
gerða á Vesturlöndum, er hún
samt enn við lýði.“
eftir PETER REDDAWAY
•Sfc THE OBSERVER
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK
tP
Þl A( (.I.VSIR l M M.l.T
|,A\|) ÞKI.AK Þl M <1
I.VSIK I MOKl.l Mil. M)IM