Morgunblaðið - 06.12.1979, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.12.1979, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1979 4 SPECK Lensi-, slor-, skolp-, sjó-, vatns- og holræsa-dælur. Útvegum einnig dælusett meö raf-, bensín- og diesel vélum. ■L^L SÖMiíteMgjtLOir -JJ<?5)in)í@®©ini c§2 C6(o) Vesturgötu 1 6, sími 1 3280 KIPAÚTGCRB RIKISINS m/s Coaster Emmy fer frá Reykjavík þriöjudaginn 11. þ.m. vestur um land til Húsavíkur og tekur vörur á eftirtaldar hafnir: Þingeyri, ísa- fjörð, (Flateyri, Súgandafjörö og Bolungarvík um ísafjörð), Akur- eyri, Húsavík, Siglufjörð og Sauöárkrók. Vörumóttaka alla virka daga til 10. þ.m. SKIPAÚTGCRB RÍKISIN m/s Baldur fer frá Reykjavík þriðjudaginn 11. þ.m. og tekur vörur á eftirtaldar hafnir: Patreksfjörð, (Bíldudal og Tálknafjörð um Patreksfjörö) og Breiðafjarð- arhafnir. Vörumóttaka alla virka daga til 10. þ.m. ÞÚ AUGLÝSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐINU Leikrit í kvöld: í kvöld, fimmtudags- kvöld kl. 21.15, verður flutt leikritið „Gleðileg jól, monsieur Maigret" eftir Georges Simenon. Þýðandi er Óskar Ingi- marsson, en leikstjóri Baldvin Halldórsson leikstjóri. Jón Sigurbjörnsson Helga Valtýsdóttir. Gleðileg jól, monsjör Maigret Baldvin Halldórsson. Með stærstu hlutverkin fara Jón Sigurbjörnsson og Helga Valtýsdóttir. Leik- ritið var áður flutt í janúar 1966 og er klukku- stundarlangt. Lítil stúlka, Colette Martin, sem liggur fót- brotin í rúminu, segir fósturmóður sinni að hún hafi séð jólasvein með vasaljós í herbergi sínu á jóladagsnóttina. Maigret fulltrúi fer að rannsaka málið, en það virðist flóknara en sýndist í fyrstu. Þó tekst Maigret með sinni alkunnu þrák- elkni að leysa hnútinn, og hann og kona hans fá jólagjöf sem þau hafði ekki órað fyrir. Georges Simenon er fæddur í Liege í Belgíu árið 1903. Hann var fyrst blaðamaður í heimaborg sinni, en fluttist til Paríar 1922. Hann er nú búsettur í Sviss. Skáldsögur Sim- enons eru orðnar milli 2 ian mci3i n og 300. Einkum eru það sakamálasögurnar sem hafa gert hann frægan, og Maigret lögreglufulltrúi er álíka þekktur meðal lesenda slíkra sagna og Poirot hjá Agöthu Christie. Snjallar um- hverfislýsingar gefa sög- um Simenons aukið gildi. Útvarpið hefur áður flutt leikritin „Bláa her- bergið“ 1970 og „Söku- nauta“ 1976. Útvarp Reykjavik FIM41TUDKGUR 6. desember MORGUNNINN 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar. 7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn. 7.25 Morgunpósturinn. (8.00 Fréttir). 8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.) Dagskrá. Tón- leikar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: Þorgerður Sigurðardóttir byrjar að lesa þýðingu sína á sögunni „Söru“ eftir Kerstin Thorvall. 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Vcður- fregnir. 10.25 Morguntónleikar Wuhrer-kammersveitin í Hamborg leikur Serenöðu í C-dúr fyrir strengjasveit op. 48 eftir Tsjaíkovský; Fried- rich Wiihrer stj. (Hljóðritun frá tónlistarhátíðinni i Björgvin). 11.00 Verzlun og viðskipti. Um- sjón: Ingvi Hrafn Jónsson. 11.15 Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tónleikasyrpa. Léttklassísk tónlist. dans- og dægurlög og lög leikin á ýmis hljóðfæri. 14.45 Til umhugsunar Gylfi Ásmundsson og Þuríð- SÍDDEGID______________________ ur S. Jónsdóttir flytja þátt- inn. 15.00 Popp. Páll Pálsson kynn- ir. 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Tónleikar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Tónlistartími barnanna. Egill Friðleifsson sér um timann. 16.40 Útvarpssaga barnanna: „Elídor“ eftir Allan Carner Margrét Örnólfsdóttir les þýðingu sína (4). 17.00 Síðdegistónleikar Sinfóníuhljómsveit íslands leikur „Hlými“, hljómsveit- arverk eftir Atla Heimi Sveinsson; höfundurinn stj./ Fílharmoníusveitin í New York leikur Slavneskan mars op. 31 eftir Tsjaí- kovský; Leonard Bernstein stj. 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. KVÖLDIÐ 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.50 Daglegt mál Árni Böðvarsson flytur þátt- inn. SKJANUM FÖSTUDAGUR 7. desember 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dag- skrá 20.45 Prúðu leikararnir Gestur í þessum þætti er leikarinn Sylvester Stal- lone. Þýðandi Þándur Thor- oddsen. 21.15 Kastljós Þáttur um innlend málefni. IJmsjónarmaður Helgi E. Helgason fréttamaður. Stjórn upptöku Valdimar Leifsson. 22.25 „Sníkjudýrið“ Ný, bresk sjónvarpskvik- mynd. Handrit Jim Allen. Leikstjóri Roland Joffe. Aðalhlutverk Christine Hargreaves. Árið 1977 hafði Elisabet drottning setið að völdum í 25 ár og var þcss minnst í Bretlandi með margvísleg- um hætti. En Pauline er ekki í hátíðaskapi. Eigin- maður hennar er farinn frá henni og börnum þeirra fjórum. Hún er bláfátæk en getur ekki unnið utan heimilisins. Hún leitar ásjár opinberra stofnana en fær alls staðar synjun. Smám saman kemmst Paul- ine að þeirri niðurstöðu að hún og börn hcnnar séu öllum til óþurftar, og hún sér aðeins eina leið út úr ógöngunum. Þýðandi Kristmann Eiðs- son. Myndin er ekki við hæfi barna. 00.05 Dagskrárlok 19.55 íslenzkir einsöngvarar og kórar syngja 20.30 Otvarp frá Háskólabíói: Tónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands Stjórnandi: Reinhard Schwarz Einleikari: Jörg Demus, — báðir frá Austurríki Fyrri hluti efnisskrár: -a. Notes eftir Karólínu Eiríksdóttur. b. Píanókonsert nr. 20 í d-moll (K466) eftir Wolf- gang Amadeus Mozart. — Jón Múli Árnason kynnir. 21.15 Leikrit: „Gleðileg jól, monsieur Maigret“ eftir Georges Simenon Þýðandi: Óskar Ingimars- son. Áður útv. í janúar 1966. Leikstjóri: Baldvin Hall- dórsson. Persónur og leik- endur: Maigret lögreglu- íulltrúi/ Jón Sigurbjörns- son, Frú Maigret/ Sigríður llagalín, Ungfrú Doncoeu/ Guðrún Stephensen, Frú Loraine Martin/ Helga Valtýsdóttir, Paul Martin/ Gísli Alfreðsson, Lucas yfirlögregluþjónn/ Ævar Kvaran, Torrence lögreglu- þjónn/ Guðmundur Pálsson, Colette (7 ára)/ Inga Lára Baldvinsdóttir. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.30 Með opin augu Hrafnhildur Schram talar við Rafn Hafnfjörð um ljósmyndir, þ.á m. mynda- röð, sem hann tók í vinnu- stofu Jóhannesar Kjarvals. 23.00 Kvöldstund með Sveini Einarssyni. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.