Morgunblaðið - 06.12.1979, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 06.12.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1979 19 Ohira í Peking — Ræddi við Hua Kuo-Feng Pcking, 5. desember. AP. Reuter. MASAYOSHI Ohira, forsætisráft- herra Japans, er nú i opinberri heimsókn í Kína. Hann kom til Peking í dag í fimm daga opin- bera heimsókn. Hann ræddi við Hua Kua-feng, forseta. Hua sagði við Ohira að Kínverjar mundu taka upp harða afstöðu til að sporna við útþenslustefnu Víet- nama í SA-Asíu og Kínverjar myndu gera allt til að koma i veg fyrir innrás Víetnama inn í Thailand. Leiðtogarnir ræddu um sam- skipti landanna og var ákveðið að Hua færi í heimsókn til Japans í maí á næsta ári. Þeir skiptust á yfirlýsingum. Hua sagði að vegna útþenslustefnu Sovétmanna væri ástand alþjóðamála mjög ótryggt. Hann sagði Sovétmenn bera ábyrgð á öngþveitinu í Mið- Austurlöndum. Bætt sambúð Japana og Sovét- manna hefur verið Kínverjum nokkur þyrnir í augum. Ohira lýsti því yfir, að sambúð þessara tveggja ríkja, Sovétríkjanna og Japans, færi batnandi og sagði að aðeins herzlumuninn vantaði nú að Japanir og Sovétmenn hefðu afhent Japan fjórar eyjar, sem Sovétmenn tóku herskildi í lok síðari heimsstyrjaldarinnar. Ohira sagði í veizlu að bætt sambúð Kínverja og Japana væri nauðsynleg til að tryggja öryggi í Asíu. Satúrnus séður irá Pioneer í einnar og hálfrar milljón mílna fjarlægð. Litla tunglið fyrir neðan reikistjörnuna er Títan. Þetta er bezta mynd, sem náðst hefur af reikistjörnunni. 1972 — Apollo 17 skotið frá Kennedyhöfða (síðasta Apollo- tunglskotið). ‘ 1971 — Styrjöld Indverja og Pakistana brýzt út. 1966 — Bretar hvetja til refsiað- gerða SÞ gegn Rhódesíu. 1961 — Harðir bardagar liðsafla SÞ og Katangamanna. 1941 — Roose'velt forseti sendir Hirohito keisara friðaráskorun, einum degi fyrir árásina á Pearl Harbour. 1938 — Frakkar og Þjóðverjar semja um órjúfanleg landamæri þjóðanna. 1929 — Konur fá kosningarétt í Tyrklandi. 1925 — Samkomulag ítala og Egypta um landamæri Líbýu undirritað. 1921 — írska fríríkið stofnað með friðarsamningi Breta og íra. 1917 — Finnar lýsa yfir sjálf- stæði og stofnun lýðveldis — 1.600 fórust í árekstri belgísks og fransks skotfæraskips í Halifax, Nova Scotia. 1916 — Þjóðverjar taka Búka- rest herskildi. 1907 — Landamæri Uganda og Þýzku Austur-Afríku ákveðin. 1897 — Konstantínópel-friður- inn undirritaður. 1857 — Orrustan um Cawnpore (Kanpur) á Indlandi: Bretar ná aftur borginni. 1492 — Kólumbus finnur Haiti. Almæli. Warren Hastings, landstjóri á Indlandi (1732— 1818) — J.L. Guy-Lussac, franskur efnafræðingur (1778— 1850) — Agnes Moorehead, bandarísk leikkona (1906—1974). Andlát. Anthony Trollope, rit- höfundur, 1882 — Jefferson Dav- is, stjórnmálaleiðtogi, 1889 — Ernst von Siemens, uppfinninga- maður, 1892. Innlent. f. Herra Kristján Eld- járn forseti 1916 — Viðræðum um brottför varnarliðsins frestað 1956 - f. Einar H. Kvaran 1859 — d. Magnús Björnsson lögmaður 1724 — Þriðja ráðuneyti Ólafs Thors skipað 1949 — Hrun stórs hluta Eldeyjar uppgötvað 1950 — Þrír Frakkar stíga fyrstir manna á land í Surtsey 1963 — Laugar- dalshöll opnuð 1965 — „Þór“ og „Ægir“ halaklippa tvo brezka togara 1975 — Handtökumálið 1976 — f. dr. Þorkell Jóhannes- son 1895. Orð dagsins. Sá sem vill stjórna öðrum ætti fyrst að geta haft stjórn á sjálfum sér — Philip Massinger, enskt leikrítaskáld (1583-1640). FJARLÆGÐUR Öryggisvörður þrífur í mann sem heldur á poka með ösku á fundi sem Carter forseti hélt í Hvíta húsinu fyrir nokkrum dögum. Fundurinn var haldinn til að kynna leiðtogum bæjar- og sveitarstjórna Salt II, samninginn um takmörkun kjarnorkuvígbúnaðar. Maðurinn, sem var fjarlægður, var frá Iowa. í þessari bók er hann á ferð' með Agnari Kofoed-Hansen um grónar aevislóöir hans, þar sem skuggi gestsins meö Ijáinn er aldrei langt undan. Gerö eru skil ættmennum Agnars báöum megin Atlantsála og birtu brugöið á bernsku hans undir súö á Hverfisgötunni, þar sem hann í langvinnum veikindum dreymir um aö jljúga. Rakiö er stórfuröulegt framtak hans og þrautseigja i danska flughernum og flugferill hans í þjónustu erlendra flugfélaga, þegar stundum kvað svo rammt aö í náttmyrkri og þoku, að lóða varö á jörö meö blýlóði. Heimkominn hefur hann forgöngu um stofnun flugfélags — og hefst þá brautryöjandaflug hans, upphaf samfellds flugs á íslandi, oft á tíðum svo tvísýnt flug að nánast var flogið á faðirvorinu. En Jóhannesi Helga nægir ekki aö rekja þessa sögu. Hann lýsir af Á brattann; minningar og til inn í hugarheim Agnars, Agnars Kofoed-Hansen utan viö tíma sögunnar, og er saga um undraveröa 9efur henni Þanni9 óvænta þrautseigju og þrek- Vl d' raunir meö léttu og bráöfyndnu ívafi. Höfundurinn er Jó- hannes Helgi, einn af snillingum okkar í ævi- sagnaritun meö meiru. Svo er hugkvæmni hans fyrir aö þakka aö tækni hans er alltaf ný meö hverri bók. (É Almenna bókafélagið Austurstræti 18 sími 19707 Skemmuvegi 36 simi 73055 /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.