Morgunblaðið - 06.12.1979, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.12.1979, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1979 17 BSRB leggur fram launakröfur: Kröf urnar eru um hækkanir á bilinu 17,6 í 39% BANDALAG starfsmanna ríkis og bæja hefur lagt fram launakröfur sínar, en í júlímánuði síðastliðnum lagði bandalagið fram aðrar kröfur, þar á meðal kröfu um að verðbætur á laun yrðu greiddar samkvæmt framfærslu- vísitölu. Samkvæmt upplýsingum Kristjáns Thorlacius er krafizt 39% hækkunar í 5 neðstu flokkum launatöflu BSRB, en síðan er krafizt 13 þúsund króna launabils milli hvers flokks frá 6. flokki og upp í efsta flokk, sem er 32. flokkur launatöflunnar. krafan í 10. flokki, efsta þrep, vaeri 417 þúsund krónur, 37% hækkun, 15. flokkur, efsta þrep, ber kröf- una 782 þúsund krónur, hækkun 32%, 20. flokkur, efsta þrep, ber kröfuna 547 þúsund krónur, hækk- un 29%, 25. flokkur, efsta þrep, ber kröfuna 612 þúsund krónur, hækkun 23% og efsti flokkurinn, 32., efsta þrep, ber kröfuna 703 þúsund krónur eins og áður sagði, en þar er hækkunin 17,6%. „Þetta þýðir ef við reiknum þetta út eins og við erum vanir,“ sagöi Kristján Thorlacius, „að bilið milli efsta þreps í 1. flokki og efsta þreps í 32. flokki er 2,25. Er þá tölunni í 1. flokki deilt upp í töluna í 32. flokki. Núverandi bil milli þessara flokka er 2,67. Kristján Thorlacius kvað for- ystu BSRB hafa átt viðræður við núverandi fjármálaráðherra. Hann kvaðst ekki geta hafið samningaviðræður við BSRB, þar sem ríkisstjórnin sæti aðeins til bráðabirgða. Kristján kvað for- ystu BSRB því þurfa að bíða eftir nýrri ríkisstjórn áður en samn- ingaviðræður gætu hafizt. Samkvæmt kröfunum eru laun í lægsta flokki BSRB 302 þúsund krónur og í 3. þrepi 1. flokks er krafan 312 þúsund krónur. Sam- kvæmt kröfunni eiga menn að fara á 5 árum upp í hæsta þrep hvers flokks, en nú fara menn þetta á 6 árum. Þeir, sem eru 32ja ára eða eldri við ráðningu fara strax í efsta þrep. Hæsta þrep í 5. flokki er nú samkvæmt kröfunum 357 þúsund krónur. Hámarkskrafan, efsta þrep í 32. flokki er 703 þúsund krónur. Til þess að sýna þróun launastigans nefndi Kristján Thorlacius, að MYNDAMÓT HF. PRENTMYNDAGERÐ AÐALSTRÆTI f -SÍMAR: 17152-17355 \ 1 Vf Frá afmælishófi Stefnis FUS í Hafnarfirði á laugardaginn. Ljósm: Kristján Einarsson. Stefnir FUS fimmtugur ÞESS var minnst á laugardaginn, þann 1. desember, að fimmtíu ár eru liðin frá stofnun Stefnis, félags ungra sjálfstæð- ismanna í Hafnarfirði. Af því tilefni var sjálfstæðismönnum í Hafnarfirði og víðar boðið til hádegis- verðar. Meðal gesta þar voru formaður Sjálfstæðisflokksins, Geir Hallgrímsson, Jón Magnússon, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, frammámenn Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði og fleiri. Stefnir F.U.S. hefur lengst af verið eitt stærsta og öflugasta félagið innan Sambands ungra sjálfstæð- ismanna og er svo enn. Fyrsti formaður Stefnis var Gunnar Sigurjónsson loftskeytamaður, en núver- andi formaður er Sigurður Þorleifsson trésmiður. Hí'''c ........W'''v HARÖLD SHERMAN SKUGGSJÁ Þetta er ómetanleg bók, — og hverjum manni hollt að kynna sér efni hennar. — Þad er mannlegt að hafa áhyggjur, mörgum finnst það jafn eðli- legt og að draga andann, — en láttu ekki stjórnast af ótta! Taktu sjálfur við stjórn á sjálf- um þér, notfærðu þér þá hug- rænu aðferð, sem hérerkennd, — og gerðu óttann útlægan úr lífi þínu. Rétt hugarástand mun létta mikilli byrði af líkama þín- um og sál, þú munt njóta lífs- ins betur, ef þú slakar á spennu og varpar af þér streitu, með þvi að hrinda af þér áhyggju- farginu, sem þjakar þig. Farðu að ráðum Harold Sherman og einnig þú munt komast að raun um, að unnt er AÐ SIGRA ÓTT- ANN! ,AÐ SIGRA ariANN . OG FINNA LYKIL UFSHAMING|UNNAR „Loksins bók, byggð á nútíma- rannsóknaraðferðum, sem fjallar um dauðann og það að deyja.“ Hvaö vitum við um dauðann? Hver eru tengsl líkama og sá/ar? Hvað sér fólk á dauðastundinni? Sýnir á dánarbeði svarar þess- um spurningum og ótal mörg- um öðrum og hún segir okkur einnig, að „sýnir hinna deyj- andi virðast ekki vera ofsjónir, heldur augnabliksinnsýnir í gegnum glugga eilifðarinnar“. Þessi einstæða bók gefur þér hugsanlega svar við hinni áleitnu grundvallarspurningu ... ER LÍF EFTIR ÞETTA LÍF? SKUCGSI* Þessi bók hefur að geyma frá- sagnir af Unu Guðmundsdótt- ur í Sjólyst í Garði, fágætri konu, sem búin var flestum þeim kostum, sem mönnum eru beztir gefnir. Una segir frá sérstæðum draumum og dul- sýnum, svipum og vitrunum, dulheyrn og ýmsum öðrum fyr- irbærum, m.a. því, er hún sá í gegnum síma. Lífsviðhorf Unu og dulargáfur og ekki síður mikilvægt hjálp- arstarf hennar, unnið af trú og fórnfýsi, gleymist engum, sem kynni hafði af henni. Allir sóttu til hennar andlegan styrk og aukið þrek.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.