Morgunblaðið - 06.12.1979, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 06.12.1979, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1979 AYATOLLAH Khomeini, trúarleiðtogi írana, greiðir atkvæði um hina nýju stjórnarskrá landsins — samkvæmt henni er honum veitt alræðisvald til líístíðar. Hann lýsti því yíir, að það væri heilög skylda múhameðstrúarmanna að greiða hinni nýju stjórnarskrá atkvæði. Þó að 99,6% haíi sagt já var kjörsókn dræm og þykir það benda til andstöðu við hina nýju stjórnarskrá. Skærur Indver ja og Bangladesh Dakka, 5. desember. AP. Reuter. BANGLADESH hefur lagt til við Indverja að komið verði á fundum háttsettra manna ríkjanna tveggja til að koma í veg fyrir átök á landamærum ríkjanna. Síðustu sex vikur hafa orðið þar smáskærur. Stjórnin í Dakka hef- ur ásakað Indverja um að hafa með valdi ræktað korn á landi Bangladesh. Fréttir frá Dakka sögðu að Indverjar hefðu komið upp virkjum en horfið yfir landa- mærin til Indlands þegar þeir mættu andstöðu. Dagblað stjórnarinnar í Bangla- desh, Dainik Bangla, sagði í dag, að Indverjar hefðu flutt hermenn, studda stórskotaliði til Belonia- héraðs í Bangladesh. Leyniskjöl á glámbekk Lundúnum, 5. desember. Reuter. BREZKA varnarmálaráðu- neytið vinnur nú ötullega að að upplýsa hvernig leyni- skjöl, sem fundust í gær inni i limgerði í garði í Ipswich, hafi komist þangað. John nokkur Hayward keypti sér nýlega hús í Ipswich og þegar hann var að taka til hendinni fann hann leyniskjölin úti í garði. Þessi fundur hans olli miklu fjaðrafoki og í einu dagblaðanna í gær var sagt að í leyniskjölunum hefðu verið upplýsingar um alla starfsmenn leyniþjónustunnar, kjarnorkuleyndarmál og upplýs- ingar um kynferðismál ýmissa einstaklinga. Ráðuneytið hefur vísað þessu á bug sem algjöru bulli og sagt að innihald skjalanna hafi enga hernaðarþýðingu. Sjúkrahúsdvöl keisarans dýr Washington. New York, 5. desember. AP. Reuter. Sjúkrahúsreikningur Reza Pahlevi , fyrrum íranskeisara, hljóðaði upp á rétt tæpar 40 millj- ónir króna að því er dagblað í New York skýrði frá í dag. Keisar- inn dvaldist tæpan hálf- an mánuð á Cornell sjúkrahúsinu. David Rockefeller, forseti Chase Manhattanbank- ans skrifaði undir reikn- inginn og ábyrgðist greiðslu en blaðið hafði eftir starfsmönnum sjúkrahússins að aðeins helmingur upphæðarinn- ar hefði verið greiddur. Bandaríkin leita nú að landi, sem vildi taka við Reza Pahlevi, fyrrum íranskeisara, til bráða- birgða, að því er haft var eftir bandarískum embættismönnum í Washington. Mexíkó hefur meinað keisaranum að snúa aft- ur til landsins, þar sem það væri ekki í samræmi við hagsmuni landsins, eins og forseti Mexíkó orðaði það fyrir skömmu. Keis- arinn fyrrverandi dvelst nú á sjúkrahúsi í San Antonio í Tex- as. Þar hafa Ku Klux Klan samtökin farið fram á að fá að fara í kröfugöngu ef írönskum stúdentum verður heimilað slíkt. Beiðni samtakanna hefur valdið Borgarsíjóranum sleppt í Israel Jerúsalem, 5. desember. AP. ÍSRAELSK stjórnvöld slepptu í dag úr fangelsi arabíska borgar- stjóranum Bassam Al-Shaka. Honum var heimilað að snúa til starfa á ný. Þessari ákvörðun var fagnað víða í ísrael en Al-Shaka var handtekinn eftir að hafa lýst yfir stuðningi við PLO. Hann var ásakaður að styðja morð Palest- Hundrað hermenn kvaddir Wittenberg, Austur-Þýzkalandi, 5. desember. AP. Reuter. MÁLAMYNDALIÐ 100 rússneskra hermanna og 20 skriðdreka fór heimleiðis frá setuliðsbænum Witt- enberg í Austur-Þýzkalandi í dag í samræmi við tilkynningu Leonid Brezhnevs forseta um brottflutning sovézkra hermanna frá Austur- Þýzkalandi. Mikið var um dýrðir í bænum þegar þessi fyrsti liður áætlunarinn- ar hófst og þúsundir verkamanna og skólanemenda mætti til að kveðja hermennina. Brezhnev tilkynnti 7. október í Austur-Berlín að Rússar mundu kalla heim um 20.000 hermenn og 1.000 skriðdreka frá Austur-Þýzka- landi á næstu mánuðum. Austur- Þjóðverjar vilja ekki segja hvenær hinn hluti liðsins fer. I Brússel sagði framkvæmdastjóri NATO, Joseph Luns, að Rússar hefðu tekið í notkun stöðvar eða hafið smíð á stöðvum handa rúmlega 200 meðal- drægum flaugum af gerðinni SS-20, sem hver um sig bæri þrjá kjarna- odda. Hann fagnaði því að Rússar hefðu hafið brottflutning 20.000 hermanna og 1.000 skriðdreka frá Austur- Þýzkalandi en sagði að þegar honum lyki hefði aðeins lítið brot af gífur- legum herafla Rússa verið flutt í burtu. ínuaraba í Israel. Stjórnvöld ætl- uðu að vísa Al-Shaka úr landi en mikil mótmælaalda refs meðal íbúa á vesturbakka Jórdanár. Veður víða um heim Akureyri -10 skýjað Amsterdam 12 rigning Aþena 19 heióskírt Barcelona 15 mistur Berlín 13 skýjaó BrUssel 14 skýjaó Chicago 6 skýjaó Feneyjar 11 lóttskýjað Frankfurt 12 heióskírt Genf 8 heiöskírt Helsinki 6 skýjaó Jerúsalem 15 lóttskýjað Jóhannesarborg 25 heidskírt Kaupmannahöfn 8 rigning Lae Palmas 23 léttskýjaó Lissabon 16 heióskírt London 13 skýjaó Los Angeles 33 lóttskýjaó Madríd 18 heióskírt Malaga 15 mistur Mallorca 16 léttskýjaó Miami 23 skýjaó Moskva 6 skýjaó New York 9 heióskírt Ósló 5 heióskírt Paríe 14 skýjaó Reykjavík +4 snjóél Rio de Janeiro 35 skýjaö Rómaborg 18 heiöskfrt Stokkhólmur 8 skýjað Tel Aviv 20 léttskýjaó Tókýó 19 skýjaó Vancouver 6 skýjað Vínarborg 16 téttskýjaó Um 130 féllu í um- sátrinu um moskuna Mohammed Reza Pahlevi fyrrverandi Iranskeisari ræðir við bandarisku sjónvarpskonuna Barbara Walters í sjúkrahúsher- bergi sínu í New York. Talsmaður keisarans tók myndina með ljósmyndavél Walters en hún hafði viðtal við hann. embættismönnum í borginni við að borgaryfirvöld banni allar áhyggjum um að til blóðugra fjöldagöngur á meðan keisarinn átaka kunni að koma. Búist er dvelst á sjúkrahúsinu. Jeddah. 5. desember. AP. Reuter. YFIRVÖLD í Saudi-Arabíu tilkynntu í dag formlega að blóðbaðinu í moskunni helgu í Mekka væri lokið og að um 70 uppreisnarmanna, sem tóku moskuna, hefðu fallið og 60 hermenn. Leiðtogi uppreisnarmanna var meðal fallinna. Hann hét Mohammed Bin Adbulla Qahtani og var 27 ára gamall. Lík hans fannst í kjallara moskunnar. Qahtani var lýst sem ofstækisfullum ofsatrúarmanni. Hann hafði lýst því, að hann væri „Mahdi“, sá sem kemur Islam til bjargar. Hermenn stjórnarinnar í að baki uppreisnar- Riyadh tóku um 170 gísla og um 200 stjórnarher- menn særðust. Yfirvöld í Saudi-Arabíu sögðu í dag að ekkert ríki hefði staðið mönnum, þó meðal þeirra hefðu verið Egyptar, Yem- enar, Pakistanar og Ku- waitar. Yfirvöld sögðu að ætlun uppreisnarmanna hefði verið að taka mosk- una og halda síðan til Medina, þar sem gröf spámannsins Múhammeðs er og taka borgina. Sagt var að hreyfingin hefði einungis verið trúarleg — stjórnmálaleg barátta hefði ekki verið meðal markmiða þeirra. Þeir sem voru teknir höndum eiga yfir höfði sér réttarhöld og búist er við að þeir verði látnir gjalda verka sinna með lífi sínu. Umsátrið um moskuna helgu í Mekka stóð í 15 daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.