Morgunblaðið - 08.01.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1980
Grænlensk list í
Norræna húsinu
SÝNING á grænlenskri list i
sögnum og daglegu lifi verður
opnuð í Norræna húsinu á morg-
un miðvikudaginn 9. janúar kl.
18. Verður sýningin opin daglega
kl. 14—19 til 28. janúar.
í tengslum við sýninguna mun
danski listmálarinn Bodil Kaalund
halda erindi um grænlenska list.
Bodil Kaalund nam við Listahá-
skólann í Kaupmannahöfn. Er hún
mjög fróð um grænlenska list og
menningu og hefur m.a. ferðast
mikið um Grænland. Árið 1969
setti hún upp grænlenska sýningu
í Louisiana-safninu í Danmörku og
er hún aðalhvatamaður að þeirri
farandsýningu, sem nú verður sett
upp í Norræna húsinu.
Fyrirlestur Bodil Kaalund verð-
ur laugardaginn 12. janúar kl. 15
og sýnir hún litskyggnur með
fyrirlestrinum. Síðan mun hún og
grænlenska listakonan Aka Höegh
leiðbeina sýningargestum.
Norska stjórn-
in fær tveggja
vikna frest til
að koma vitinu
f yrir Islendinga
Osló, 7. janúar. Frá fréttaritara Mbl. Jan
Erik Lauré.
SVO virðist sem lokun norskra
hafna til að þrýsta á norsku
stjórnina til að lýsa yfir 200 milna
efnahagslögsögu við Jan Mayen
hafi verið slegið á frest, en í
undirbúningi eru einhverjar aðr-
ar aðgerðir meðan tveggja vikna
frestur ríkisstjórnarinnar líður.
Norskir sjómenn eru mjög bitrir
vegna afstöðu norsku stjórnarinn-
ar og formaður norska bátaút-
gerðarfélagsins, Per A. Sævik
sagði eftir ársfund félagsins um
helgina, að íslendingar hefðu ráð
fiskifræðinga að engu og viidu
greinilega ráða ferðinni einir.
„Okkur finnst við hafa verið
gabbaðir svo um munar“, sagði
Sævik, „en engu að siður viljum
við sýna þá þolinmæði að gefa
norskum stjórnvöldum tveggja
vikna frest til að koma vitinu
fyrir íslendinga“.
Loðnuveiðar íslendinga í vetur
og Jan Mayen svæðið hafa á nýjan
leik orðið efni heitra umræðna í
Noregi. Nprskir sjómenn halda því
fram að Islendingar ofveiði loðn-
una og telja sig svikna af norskum
stjórnvöldum meðan þau lýsa ekki
einhliða yfir 200 mílna efnahags-
lögsögu við Jan Mayen.
Á ársfundi norska bátaútgerð-
arfélagsins, sem haldinn var í
Haugasundi um helgina, gagnrýndi
norski sjávarútvegsráðherrann Ey-
vind Bolle loðnuveiðar Islendinga
og kvaðst hann mundu ræða málið
Leiðrétting
Þegar birt var hér í blaðinu 5.
þ.m. bréf til Útvarpsráðs frá 20.
maí sl., féllu niður í prentun nöfn
þeirra fjögurra manna, sem rituðu
undir orðsendingu þá til blaðsins,
sem bréfinu fylgdi. En þeir voru:
Broddi Jóhannesson, Helgi Hálf-
danarson, Jón úr Vör og Matthías
Jónasson. Þeir óska þess, að þetta
sé leiðrétt, þar eð einn þeirra fimm
manna, sem bréfið höfðu sent til
Útvarpsráðs á sínum tíma, Jóhann
Gunnar Ólafsson hæstaréttarlög-
maður, er nú látinn.
við íslenzk stjórnvöld á næstunni.
Bolle sagði að það hefði verið erfitt
norskum stjórnvöldum að fram-
fylgja veiðibanni á norska loðnu-
sjómenn eftir 20. ágúst í fyrra. „
Við gerðum það í trú á, að
veiðibannið myndi auðvelda samn-
inga við íslendinga um Jan
Mayen", sagði Bolle. „Við höfum
síðan fylgzt áhyggjufullir með
veiðum Islendinganna". Bolle sagði
að að vísu byggðust auknar loðnu-
veiðar Islendinga á niðurstöðum
nýrra rannsókna fiskifræðinga.
„Hinar miklu loðnuveiðar íslend-
inga og auknar veiðar annarra
þjóða á öðrum fisktegundum á Jan
Mayen svæðinu sýna að það er
nauðsynlegt að ná samkomulagi
um Jan Mayen hið fyrsta", sagði
Bolle.
Bolle sagði, að íslendingar hefðu
veitt 440.000 tonn af loðnu á
haustvertíðinni af þeim 650.000,
sem mælt var með veiðum á frá
sumri 1979 og fram á vor 1980.
„Okkur hefur nú verið tilkynnt að
Islendingar muni jafnvel leyfa
veiðar á 275.000 tonnum á vetrar-
vertíðinni í ár, sem þýðir að
loðnuafli Islendinga einna yrði þá
um 715.000 tonn. Við þau bætast
norski kvótinn upp á 124.000 tonn
og minni háttar kvóti Færeyinga,
þannig að heildarloðnuveiðin yrði
nálægt 850.000 tonnum", sagði
Bolle.
„Okkur er það óskiljanlegt, að
norski sjávarútvegsráðherrann
skuli harma þróun loðnuveiða
Islendinga í haust og vetur", sagði
Kjartan Jóhannsson sjávarútvegs-
ráðherra Islands í samtali við
norska blaðið Aftenposten. „Við
ákveðum veiðarnar með hliðsjón af
stöðugum rannsóknum á loðnu-
stofninum og nýjustu tölur bera
það með sér að loðnustofninn er
mun stærri, en við álitum í fyrra-
haust".
Kjartan Jóhannsson sagði, að
loðnuveiðarnar í janúar yrðu tak-
markaðar við 100.000 lestir og að
um mánaðamótin janúar/febrúar
yrði tekin ákvörðun um leyfilegt
veiðimagn síðar á vetrarvertíðinni.
3 menn hætt komnir
á Mývatnsöræfum
Mývatnssveit. 7. janúar 1980.
1 GÆR fóru þrír menn héöan úr
Mývatnssveit austur í Grafarland og
Herðubreiðarlindir. Farið var á snjóbíl
og var aðaltilgangurinn með þessari
ferð, að leita að kindum. Þeir sem fóru
voru Jón Árni Sigfússon, Gunnar
Rúnar Pétursson og Hermann Krist-
jánsson.
Færð var allgóð fyrir snjóbílinn.
Stillt og bjart veður var, og frost tólf
til fimmtán stig. Gekk allt vel, þar til
leitarmenn voru komnir í svonefnd
Fell, nokkuð langt suður frá Jökulsá.
Verða þeir þá varir við einhverja
Þeir héldu nú áfram eftir
að vera búnir að jafna sig að
nokkru. Urðu þeir að hafa
bílinn opinn, og ekki var
unnt að hafa miðstöðina í
gangi. Köld varð því vistin í
bílnum, enda frost allhart
eins og áður sagði. Þeir fóru
alla leið inn í Herðubreiðar-
lindir, en fundu aðeins eitt
lamb sem flutt var til
byggða. Ljóst var á heimleið-
inni að óráðlegt var að fara á
snjóbílnum alla leið heim,
við þær aðstæður sem þarna
voru. Höfðu þeir samt getað
ónotakennd, og skiptir engum togum
að Gunnar Rúnar missir meðvitund og
hinir urðu einnig hætt komnir, en tókst
þó að komast út með Gunnar. Var hann
í dái í um það bil fimmtán mínútur, og
var dasaður alllengi á eftir.
Fóru þeir nú að athuga hvað valdið
hefði þessu ástandi og kom í ljós að
brotnað hafði útblástursrör á bílnum
og af þeim sökum komist eitraður
kolsýringur inn í býlinn. En bíllinn er
loftkældur, og miðstöðin fær heitt loft
frá kælingu vélarinnar. Er rörið fór í
sundur náði miðstöðin að blása inn í
bílinn útblásturslofti vélarinnar.
Herðubreiðarlindir. Það
sýndi sig í þessari ferð, og
raunar í mörgum slíkum
ferðum, að nauðsynlegt er að
hafa gott talstöðvarsam-
band.
Rétt er og skylt að færa
Grímsstaðamönnum sér-
stakt þakklæti fyrir aðstoð-
ina. I þessari ferð hefðu
getað gerst alvarlegri at-
burðir en urðu, fjarri
mannabyggðum, uppi á ör-
æfum um hávetur.
— Kristján.
komist á snjóbílnum norður
á þjóðveg. Höfðu þeir síðan
talstöðvarsamband við
Grímsstaði á Fjöllum, og
óskuðu eftir að þeir yrðu
sóttir austur. En vegna síma-
bilana reyndist erfitt fyrir
fólk á Grímsstöðum að ná
símasambandi við Mývatns-
sveit. Tókst það þó að lokum.
Farið var á jeppa austur í
gærkvöldi, og gekk sú ferð
sæmilega. Þó voru allmargir
skaflar á leiðinni. Snjóbíll-
inn var hins vegar skilinn
eftir við vegamótin inn í
Eigum
til af-
greiðslu
með stutt
um fyrirvara fáeina
DODGE ASPEN og
PLYMOUTH VOLARE, 2ja
og 4ra dyra, árgerö 1979 á sérstöku afsláttarveröi, sem er allt að
KR. 1.200.000 TIL 1.500.000 LÆGRA VERÐ
en á 1980 órgerðinni. Bílarnir eru aliir í deluxe útgáfu, sjálfskiptir, meö
vökvastýri og aflhemlum.
Látið ekki happ úr hendi sleppa. Nýtiö þetta einstaka tækifæri til að
eignast óvenju glæstan og hagkvæman vagn á verði, sem nánast
vonlaust er að endurtaka og verið á undan næstu efnahagsaögerðum.
Taliö við okkur strax í dag,
á morgun kann þaö aö vera of seint.
SÖLUMENN í CHRYSLER-SAL
Símar 83330 og 83454.
Sýningarbíll á staðnum
O Ifökull hf.
Umboðsmenn:
Sniöill h.f. Akureyri — Bílasala
Hinriks Akranesi — Friörik Ósk-
arsson Vestmannaeyjum og
Óskar Jónsson Neskaupstaö.