Morgunblaðið - 08.01.1980, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1980
29
Björgvin Guðmundsson
SÍKurjón Pétursson
Kristján Benodiktsson
Guðrún ÁKÚstsdóttir
Fjárhagsstaða
borgarinnar erf ið
— segir Björgvin Guðmundsson
Á FUNDI borgarstjórnar. sem
haldinn var fyrir nokkru var
rætt um íjárhagsáætlun borgar-
innar fyrir árið 1980 og var það
fyrri umræða. í upphafi rakti
borífarstjóri fjármál horgarinn-
ar ok skýrði út hina nýfram-
komnu áætiun. en að máli hans
ioknu tók til máls Birgir ísi.
Gunnarsson. borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisfiokksins, og útdráttur úr
ræðu Birgis birtist i blaðinu sl.
laugardag.
Að ræðu Birgist lokinni tók til
máls Björgvin Guðmundsson (A).
um það, sem Birgir sagði um
sundurliðun á fjárveitingum til
einstakra framkvæmda, sagði
Björgvin að sá fundur þar sem
afhenda ætti þessi gögn, hefði
verið mun styttri en reiknað hefði
verið með. Hefði því ekki gefist
tími til að afhenda umrædd gögn á
þeim fundi. Þá gerði Björgvin
athugasemd við þau orð Birgis að
allt logaði í illdeilum innan meiri-
hlutans. Björgvin sagði þar engan
ágreining ríkja og þar væri allt í
sátt og samlyndi.
Þessu næst vék hann máli sínu
að framkomnum tillögum borgar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sem
Birgir hefði lýst í ræðu sinni.
Frá
borgar-
stjórn
Björgvin tald að næðu þessar
tillögur fram að ganga, myndu
þær skerða tekjur borgarinnar um
rúma 2.5 milljarða. Þá benti hann
á, að Birgir hefði ekki bent á neina
möguleika til niðurskurðar til að
mæta þessum minnkuðu tekjum.
Nær hefði verið fyrir fulltrúa
Sjálfstæðisflokksins, að áliti
Björgvins, að benda á einhverjar
leiðir til að mæta launahækkun-
um sem kæmu til framkvæmda á
næsta ári, en nú væri ekki ljóst á
hvaða hátt ætti að mæta þeim
kostnaði. Jafnframt gat Björgvin
þess, að fjárhagsstaða borgarinn-
ar væri erfið, hún væri í fjárhags-
ógöngum, en þau mál væru von-
andi að leysast. Þá gat hann þess
að sig undraði það að fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins kæmu fram
með skattalækkunartillögur þegar
fjárhagsstaðn væri slík. Nær væri
að meiri- og minnihluti tækju
höndum saman og byggju tyil
áætlun sem gæti staðist.
Leiftursókn
í borgarstjórn
Er Björgvin hafði lokið máli
sínu, tók til máls Sigurjón Pét-
ursson (Abl). Hann lýsti áliti sínu
á skattalækkunartillögum sjálf-
stæðismanna og taldi að þegar
leiftursóknin hefði brugðist hefði
hún verið flutt inn í borgarstjórn,
en þar fengi hún væntanlega sömu
afgreiðslu og annars staðar. Hann
sagði að borginni veitti ekki af
þessum 2.5 milljörðum og taldi
upp ýmsan kostnað, sem borgin
þyrfti að mæta, máli sínu til
stuðnings. Síðan spurði hann
hvernig mæta ætti þessum niður-
skurði á fjárhagsáætlun, sem
sjáflstæðismenn legðu til, og benti
á að peninga vantaði til að mæta
auknum launakostnaði á næsta
ári.
Að máli Sigurjóns loknu tók til
máls Guðrún Ágústsdóttir (Abl).
Hún sagði það skoðun sína, að það
væri ekki óeðlilegt að strætisvagn-
arnir væru reknir með halla og að
borgin greiddi með þeim. Þá sagði
hún, að það væri ekki tímabært að
ræða um sælgætissöluna á
Hlemmi þar sem endanlegar tölur
lægju ekki fyrir. Hún sagði að
meirhlutinn hefði ekkert að fela í
sambandi við sælgætissöluna. Ef
sú yrði raunin á, að fyrirtækið
myndi ekki bera sig, þá væri
sjálfsagt að hætta þeim rekstri.
Tillögurnar
ábyrgðarlausar
Næstur kom í pontu Kristján
Benediktsson (F). Hann ræddi um
skattalækkunartillögur sjálfstæð-
ismanna, sem og aðrir forkólfar
meirihlutans. Hann sagði að þess-
ar tillögur væru ákaflega ábyrgð-
arlausar og geysileg sýndar-
mennska, og að hann væri and-
vígur þessum tillögum. Þá tók
hann undir orð Guðrúnar og sagði
að ekki væri tímabært að fella
endanlegan dóm yfir sælgætissöl-
una á Hlemmi. Hvað varðaði
tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins um skatt á skrifstofu- og
verslunarhúsnæði, sagði Kristján,
að eðlilegt væri að samþykkja
þessa tillögu, því að þarna væri
ríkið að seilast inn á annað
tekjuöflunarsvið en því bæri. Ef
svo væri, að þeir, sem bera ættu
þessi gjöld, gætu það, þá væri það
sveitarfélagánna að leggja þau á.
Er Kristján hafði lokið máli
sínu kom upp Guðrún,Ágústsdótt-
ir (Abl). Hún kvaðst vilja leggja
til að framkominni tillögu sjálf-
stæðismanna um að S.V.R. hætti
sælgætissölu á Hlemmi yrði vísað
til stjórnar Strætisvagnanna.
Birgir ísl. Gunnarsson
Tilbúinn að aðstoða
við niðurskurðinn
Þá kom í ræðustól Birgir Isl.
Gunnarsson (S). Hann sagði að
minnihluti Sjálfstæðisflokksins
væri sammála þeirri málsmeðferð
sem Guðrún legði til. Um orð
þeirra meirihlutamanna um
skattalækkunartillögur sjálfstæð-
ismanna sagði Birgir, að það væri
ekki hægt að flytja tillögu um
niðurskurð vegna þess, að enn
hefði minnihlutinn ekki fengið að
sjá hvernig skipta ætti fé í
málaflokka og því væri ómögulegt
að gera tillögu um það mál. Hins
vegar lýsti Birgir sig tilbúinn til
að setjast niður með meirihlutan-
um og aðstoða hann við niður-
skurðinn. Þá sagðist hann telja að
margir tekjustofnar borgarinnar
væru vanáætlaðir og því geti
borgin átt von á meiri tekjum en
fram kæmi í áætluninni.
Er borgarfulltrúar höfðu lokið
máli sínu og lýst áliti sínu á
fjárhagsáætlun voru tillögur
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins bornar undir atkvæði. Tillögur
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins voru
allar felldar, að tillögunni um
skatt á skrifstofu- og verslunar-
húsnæði undanskilinni, en hún var
samþykkt. Þá var samþykkt að
vísa tillögunni um sælgætissöluna
til stjórnar S.V.R.
Tæpir 10 milljarðíir til
mannræningja á Italíu
Mílanó. 1. janúar. AP.
Á/ETLAÐ er að mannræningjar
á Ítalíu haíi haft tæpa 10 millj-
arða króna í lausnarfé fyrir gísla
sína á nýliðnu ári. Alda mann-
rána gekk yfir Ítalíu og þrátt
fyrir gífurlegar upphæðir sem
voru reiddar af hendi til mann-
ræningja þá er sú upphæð álitin
aðeins brot að þeim kostnaði. sem
auðugri stéttir Ítalíu eyða í að
verjast mannránum. Það voru
ekki bara iðjuhöldar og kaup-
menn. sem urðu fyrir barðinu á
mannræningjum — mikið var um
mannrán á læknum og lögfræð-
ingum.
Álitið er að nú þegar greiði
ítalskir auðmenn milljarða króna
í tryggingarfé til erlendra trygg-
ingafyrirtækja en trygging við
mannráni er bönnuð á Italíu. Þá
eru reiddar fram stórupphæðir
fyrir lífverði, sérstaka bíla ætlaða
að verjast árás, ýmis tæki til að
verjast mannræningjum, og þjálf-
un hunda. Segja má áð stóriðn-
aður hafi myndast til varnar
mannránum. Þá er nú algengt að
börn auðmanna á Ítalíu séu send
utan til náms, þá einkum til Sviss.
Afleiðingarnar eru margvíslegar
en Sardiníubúar hafa orðið illa
fyrir barðinu á þessum nýja „iðn-
aði“. Sardinía hefur um áratuga
skeið verið nokkurs konar leikvöll-
ur ríkja víðs vegar að úr Evrópu.
Fjöldi fólks, sem hefur verið betur
settur í hinum ýmsu löndum
Evrópu hefur átt þar land og
sumarbústað. Nú er-u margir þess-
ara bústaða til sölu í kjölfar
margra mannrána — og Sardiníu-
búar missa þar spón úr aski
sínum.
Á nýliðnu ári var 61 rænt á
Ítalíu. Það er lægra en árið 1977
en þá var 72 rænt. Hins vegar var
um mikla aukningu frá 1978 en þá
var 43 rænt. Sextán eru enn í
höndum mannræningja. Konum
og börnum var í auknum mæli
rænt og í sumum tilvikum virtist
engu líkara en hernaðaraðgerðir
væru á ferðinni þegar rán fór
fram — allt þaulskipulagt og
heilar sveitir að verki.
smáauglýslngar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Keflavík
Til sölu ný og ónotuö 2ja herb.
íbúö. Laus strax. Mjög góður
staöur. Höfum fjársterka kaup-
endur af öllum geröum fast-
eigna.
Sandgerði
Til sölu 3ja herb. góö risíbúö.
Laus strax.
Góö efri hæö í tvíbýlishúsi. Allt
sér.
Stórt einbýlishús meö bílskúr.
Æskileg skipti á íbúö í Keflavík.
Eigna- og veröbréfasalan,
Hringbraut 90, Keflavík,
sími 92-3222.
Til sölu
2ja herb. ibúð í 1. fl. Bygginga-
félags alþýöu. Umsókn sendist á
skrifstofu félagsins fyrir 20. jan.
1980, Bræöraborgarstíg 47.
Stjórnin.
Þjónusta
Lögg. skjalaþýö., danska, Bodil
Sahn, Lækjargötu 10, s. 10245.
Hilmar Foss
Lögg. skjalaþýö., dómt. Hafnar-
stræti 11, sími 14824, Freyju-
götu 37, sími 12105.
Vefnaðarnámskeið
er aó byrja kvöldnámskeiö í
vefnaöi. Uppl. í síma 34077 kl.
4—7 Guðrún Jónasdóttir
Verðbréf
Fyrirgreiösluskrifstofan Vestur-
götu 17, sími 16113.
Vefnaðarnámskeið
Er aö byrja kvöldnámskeið í
vefnaði. Uppl. í síma 34077 kl.
4—7. Guðrún Jónasdóttir.
Mercedes Benz
vörubifreiö
til sölu. Árg. 1973 nýsprautaöur,
lítlö keyröur. Uppl. í síma 93—
6370 og 93—6621.
RÓSARKROSSREGLAN
A M e R c
Vv -t—
V ATLANTIS PRONAOS
□ 813332820
IOOF 7 = 161198% =
IOOF 8=161198%= Fl. árssk.
IOOF Rb. 1 = 129188% =
□ HAMAR 5980187=2
D Edda 5980187-1, Frl.
Kvikm. eftir fund
Fimir fœtur
Templarahöllin 12. janúar
— og áfram nú —
Fíladelfía
Almenn bæn hvert kvöld vikunn-
ar kl. 20.30.
Enskunámskeið
(talæfingar)
hjá félaginu Anglia byrja aftur
mánudaginn 21. janúar kl. 7 aö
Aragötu 14. Kennt verður tvisvar
í viku, mánudaga og miöviku-
daga frá kl. 7—9 á kvöldin.
Innritun verður laugardaginn 12.
janúar kl. 4—6 aö Aragötu 14,
(enginn sími). Upplýsingar hjá
Áslaugu Boöcher í síma 13669
daglega frá kl. 9—11 f.h.
Stjórnin.
KRisnLeor .MBRf
Biblíulestur í kvöld kl. 20.30 að
Auöbrekku 34, Kópavogi. Allir
hjartanlega velkomnir.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SIMAR 11798 og 19533.
Myndakvöld
þriðjudag 8. jan kl. 20.30
á Hótel Borg
Á fyrsta myndakvöldi ársins sýn-
ir Þorsteinn Bjarnar myndir m.a.
frá Baröastrandasýslu, Látra-
bjargi, Dyrfjöllum, gönguleiöinni
Landmannalaugar — Þórsmörk
og víöar. Allir velkomnir meöan
húsrúm leyfir. Feröaté|ag js|ands