Morgunblaðið - 08.01.1980, Qupperneq 30
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. JANUAR 1980
Drengurinn
lézt af
brunasárum
New York, 7. janúar. AP.
RÚMLEGA árs gamall drengur
sem var settur á heita eldarvél-
arhellu og inn í bokunarofn, svo
að særa mætti úr honum illa
anda, eins og móðir hans, sem
framkvæmdi verknaðinn, út-
skýrði, lézt í gærkvöldi á
sjúkrahúsi.
Læknar háðu árangursiausa
baráttu við að bjarga barninu,
sem varð fyrir hinni óvenjulegu
lifsreynslu sl. þriðjudag og hlaut
af svöðusár á svo til öllum
líkamanum. Er móðirin, Patricia
Abraham, en hún er 25 ára,
hafði stungið drengnum inn í
ofninn, hringdi hún á lögregluna
og bauð henni að vera viðstödd
þegar „djöfullinn yrði brennd-
ur“.
Móðurinni verður að öllum
líkindum gefið að sök manndráp
af gáleysi, að sögn fulltrúa
saksóknara Manhattan.
Þetta gerðist
8. janúar
1979 — Allt að 60 biðu bana í
mótmælum gegn íranskeisara í
tíu írönskum borgum.
1974 — Árásir á Phnom Penh úr
norðir og suðri.
1972 — Mujibur Rahman kemur
til London eftir að Pakistanar
slepptu honum og hvetur til viður-
kenningar Bangladesh.
1964 — Bretar rjúfa hafnbann
Bandaríkjamanna á Kúbu með því
að selja Castro 450 strætisvagna.
1959 — Charles de Gaulle verður
forseti Fimmta franska lýðveldis-
ins.
1945 — Ahmed Pasha forsætis-
ráðherra sigurvegari í kosningum
i Egyptalandi.
1926 — Ibn Saud verður konung-
ur Hejaz og breytir nafni landins í
Saudi Arabíu.
1923 — Hernám Frakka í Ruhr
hefst.
1918 — „Fjórtán punktar“ Wils-
ons forseta kunngerðir.
1917 — Þjóðverjar innleiða tak-
markalausan kafbátahernað.
1916 — Aðgerðum Bandamanna á
Gallipoli lýkur.
1915 — Harðir bardagar brjótast
út við Assee-skurð í Belgíu og
Soissons í Frakklandi.
1815 — Orrustan um New Or-
Ieans milli Bandaríkjamanna og
Breta.
1598 — Jóakim Friðrik verður
kjörfursti í Brandenburg við lát
Jóhanns Georgs.
1499 — Loðvík XII af Frakklandi
kvænist Önnu, hertogaynju af
Bretagne.
Afmæii: Samuel Pufendorf, þýzk-
ur lögfræðingur (1632—1694)
Craigavon lávarður, brezkur
stjórnmálaleiðtogi (1871—1940).'
Andlát. 1337 Giotto, listmálari —
1642 Galileo Galilei, stjörriufræð-
ingur — 1825 Eli Whitney, upp-
finningamaður — 1896 Paul Ver-
laine, skáld — 1941 Robert Bad-
en-Powell, stofnandi skátahreyf-
ingarinnar — 1976 Chou En-lai,
stjórnmálaleiðtogi.
Innlent: 1942 Gerðardómslögin —
1596 Skiptum við Englendinga
hætt — 1965 Sigríður Sigurðar-
dóttir „Iþróttamaður ársins" fyrst
kvenna — 1971 Fyrsta skóladag-
heimili í Reykjavík tekur til starfa
— 1975 „Mánafoss" fer á hliðina
— 1946. Tónlistarskóli á Akureyri
settur — 1889 f. Bernharð Stef-
ánsson alþm. — 1912 f. dr. Sigurð-
ur Þórarinsson.
Orð dagsins: Gleymdu aldrei því
sem maður segir við þig þegar
hann er reiður — H.W. Beecher,
bandarískur prestur (1813—1887).
\f/
ERLENT
Ofninn sem drengurinn var settur i er brenna átti kölska og særa
illa anda úr drengnum.
Tito vinnufær
þótt veikur sé
Belgrad, 7. janúar. AP.
JOSIP Broz Tito forseti ræddi í dag við Lazar Kolisevski varaforseta
að sögn fréttastofunnar Tanjug og fréttin virðist þjóna þeim tilgangi
að sýna að Tito sé vinnufær og góður til heilsunnar að öðru leyti en því
að hann hefur orðið að leita sér
fótum.
Tito hefur verið í einangrun í
fjallakofa í Slóveníu þar sem hann
ræddi í gær við bandaríska
hjarta- og blóðrásarsérfræðinginn
dr. Michael DeBakey og sovézka
sérfræðinginn dr. Marat Knyaz-
hev. Þótt ekkert sé látið uppi um
sjúkdóm Titos er hann ekki talinn
lífshættulegur.
Kolisevski er einn níu manna
sem skipa ríkisráð og þeir skiptast
á um að gegna starfi varaforseta
sem tekur sjálfkrafa við völdum ef
Tito deyr. Kolisevski og tveir
flokksstarfsmenn aðrir sem voru
með honum, Stefan Doronjski og
Dusan Drago, ræddu meðal ann-
lækninga við blóðaæðasjúkdómi í
ars innrás Rússa í Afghanistan að
sögn Tanjug.
Tito var útskrifaður frá sjúkra-
húsi í Lubljana á laugardag eftir
tveggja daga læknisskoðun. Lækn-
ar sögðu aðeins að Tito þjáðist af
blóðæðatruflunum í fótunum og
að frekari læknisaðgerð væri ráð-
gerð. Síðan hefur daglega verið
skýrt frá heilsufari Titos og í gær
var dreift mynd af honum ásamt
Debakey og öðrum læknum.
Diplómatar í Belgrad segja að
júgóslavneskir embættismenn
virðist ekki hafa alvarlegar
áhyggjur af heilsu Titos, jafnvel
ekki eftir fund hans í gær með
sérfræðingunum. Áður en Tito fór
í skoðun hafði hann dvalizt í einn
mánuð í veiðikofa í Norður-Júgó-
slavíu og gestir hans sögðu að
hann væri hress og virtist vera
heilsuhraustur. Hins vegar átti
hann erfitt með að rísa á fætur
þegar hann horfði á sjónvarp á
gamlárskvöld í veiðikofanum.
Bilið
eykst
New York, 7. janúar. AP.
CARTER Bandaríkjaforseti vinnur
stöðugt á í skoðanakönnunum á
kostnað helzta keppinautar síns um
útnefningu demókrata við næsta
forsetakjör, Edward Kennedy, sam-
kvæmt skoðanakönnun sem Gall-
up-stofnunin gerði fyrir tímaritið
Newsweek. Segir blaðið að Carter
eigi það ekki aðeins framgöngu
sinni í íransmálum að þakka, heldur
einnig aukinni óánægju almennings
með framgöngu Kennedys er
bílslysið við Chappaquiddick átti sér
stað.
Samkvæmt skoðanakönnuninni
nýtur Carter stuðnings 39 af hundr-
aði demókrata og óháðra, 21 af
hundraði styður Kennedy og fimm
af hundraði Edmund Brown fylkis-
stjóra Kaliforníu, en 31 af hundraði
var óákveðinn.
Bandaríkin fá boð um
aðstöðu í Egyptalandi
Aswan, 7. janúar. AP.
Skömmu fyrir komu Begins
sagði landvarnaráðherra Egypta,
Kamal Hassan Aly, að Egyptar
mundu veita Bandaríkjamönnum
aðstöðu fyrir herskip og herflug-
vélar til að verja þennan heims-
hluta. En hann lagði mikla
áherzlu á að bera til baka frétt úr
ísraelska sjónvarpinu um að Eg-
yþtar hefðu boðið Bandaríkja-
mönnum varanlegar herstöðvar og
undirstrikaði að Bandaríkjamenn
hefðu engin slík tilmæii borið
fram.
Aðstaðan sem Aly átti við var
réttur til að flugvélar geti tekið
eldsneyti, flug í egypzkri lofthelgi
og réttur handa herliði til að fara
um egypzkt yfirráðasvæði.
Mikilvægt er talið að diplómat-
Forsætisráð-
herra ísraels,
Menachem Begin,
kom í dag til Asw-
an til f jögurra
daga viðræðna við
Anwar Sadat forseta
á sama tíma og
vaxandi kvíða
gætir um stór-
veldaárekstra í Mið-
austurlöndum.
ar í Kaíró segja að varanleg dvöl
bandarísks herliðs í Egyptalandi
geti skaðað náin samskipti land-
anna og haft öfug áhrif á sama
hátt og dvöl 15.000 sovézkra hern-
aðarráðunauta sem Sadat rak
1972.
Israelskur talsmaður sagði áður
en Begin kom að viðræðurnar
mundu aðallega fjalla um tilraun-
irnar til að færa sambúð landanna
í eðlilegt horf og samningaviðræð-
ur um heimastjórn Palestínu-
manna. Hann kvaðst ekki búast
við erfiðleikum en heldur ekki
úrslitaárangri og kvað viðræðurn-
ar lið í langri þróun.
Hann sagði að íhlutun Rússa í
Afghanistan og deila Bandaríkja-
manna og írana yrðu á dagskrá
viðræðnanna.
Veður
víða um heim
Akureyri 1
Amsterdam 3
Aþena 10
Barcalona 9
Berlín 0
BrOssel 4
Chicago 1
Frankfurt 11
Genf 7
Helainki -1
Jerúsalem 10
Jóhannesarborg 24
Kaupmannahöfn 0
Lissabon 13
London 7
Loa Angeles 14
Madríd 5
Malaga 15
Mallorca 14
Miami 16
Moakva -6
New York 0
Óaló -2
Parla 8
Reykjavík 2
Rio de Janeiro 33
Rómaborg 9
Stokkhólmur -1
Tei Aviv 18
Tókýó 12
Vancouver 1
Vínarborg -6
akýjaö
skýjað
heiöskírt
léttskýjað
snjókoma
rigníng
akýjað
rigning
akýjað
akýjað
heiöskírt
skýjaö
mistur
akýjað
heiöakírt
akýjað
skýjað
léttskýjað
léttskýjaö
heiðskírt
heiöskírt
rigning
skýjað
skýjaö
slydda
heiðakirt
breytilegt
miatur
heiðskírt
heiðskírt
snjókoma
akýjað
Frú Adamson var myrt
Nairobi, 7. janúar. AP.
LÖGREGLAN í Kenya yfirheyrði
i dag þrjá menn i sambandi við
dauða Joy Adamson, sem kunn er
fyrir baráttu sína fyrir umhverf-
isvernd og bækur og beið bana i
síðustu viku nálægt búðum
sinum i Mið-Kenya.
Ben Gethi, lögreglustjóri Kenya,
sagði í dag að ákveðið hefði verið að
líta á dauða frú Adamsons sem
morð, en fyrst var talið að ljón
hefði orðið henni að bana. Talið er
að mennirnir þrír sem hafa verið
handteknir og yfirheyrðir séu
fyrrverandi starfsmenn frú Adam-
sons.
Engin merki sáust þess að ljón
hefði drepið frú Adamson í búðum
hennar í Shaba-villidýragarðinum
28 km. norður af Nairobi. Talið er
að frú Adamson hafi verið myrt
með beittu vopni. Áreiðanlegar
heimildir herma að krufning muni
sýna að frú Adamson hafi verið
stungin í kviðinn og handleggina.
Frú Adamson var af austur-
rískum uppruna og fluttist til
Kenya 1937. Hún gerði þúsundir
málverka af blómum, plöntulífi og
ættflokkamönnum unz hún ein-
beitti sér að rannsóknum á atferli
dýra laust fyrir 1960. Bók hennar
„Borin frjáls" jók vinsældir baráttu
fyrir dýravernd.
Líbýa hættir
stuðningi við
Yasser Arafat
Tripoli, 5. janúar. AP.
LÍBYA sleit um helgina sambandi
sínu við A1 Fatah og Palestínu-
leiðtogann Yasser Arafat. Líbýska
fréttastofan sakaði hann um að
„víkja út af braut baráttunnar
gegn ísrael".
Jafnframt ákvað stjórn Líbýu
að slíta viðskiptasambandi við
Kína í hefndarskyni við hergagna-
sendingar Kínverja til Egypta.