Morgunblaðið - 20.01.1980, Qupperneq 1
64 SÍÐUR
16. tbl. 67. árg.
SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
bíla við. Um 15 mínútum síðar
stöðvaði hann lögreglubíl. Hann
sagði lögreglumönnunum hvað
gerst hefði en þeir ætluðu ekki að
trúa honum. „Við hefðum vísast
Hellti
Vodka
West Haven, 19. jan. AP.
CHARLES nokkur Woodland,
vínbúðareigandi í Connecticut,
mótmælti innrás Sovétmanna
og íhlutun þeirra í Afghanistan
með því að hella niður fjórum
gallonum, eða um 17 lítrum, af
rússnesku Vodka.
Vodkanu, af Stolichnaya
gerð, hellti Woodland niður um
bleikt klósett sem hann tyllti
fyrir ofan niðurfall í jaðri
götunnar fyrir framan verzlun
sína. Andvirði veiganna var um
200 dollarar.
ekið framaf brúnni hefði Jan ekki
stöðvað okkur,“ sagði annar lög-
regluþjónanna.
Hrakti ís
skipið af leið?
Enn er á huldu af hverju
skipið sigldi á brúarstöplana.
Reyndur lóðs var um borð í
skipinu, sem var að fara inn til
Uddevalla. Skömmu áður en
komið er að brúnni þarf að taka
S-beygju en hún hefur hingað til
ekki verið talin erfið. Alls hafa
2500 skip farið inn sundið árlega.
Skipið var ekki hlaðið og tals-
verður ís lá á sundinu og einna
helst er talið að ís og straumar
hafi hrakið skipið af leið.
Missir brúarinnar er mjög
bagalegur fyrir íbúa Tjörneyju.
Alls fara um 12 þúsund bílar um
brúna daglega og nú er eins og
skorið á slagæð, því 3500 manns
hafa sótt vinnu úr eyjunni og
upp á meginlandið.
Almobrúin er hluti af þjóð-
brautinni frá Gautaborg til
Uddevalla og þaðan áfram til
Óslóar. Talið er að það taki 2—3
ár að endurbyggja brúna, sem
var tekin í notkun 1960.
Sir Beaton látinn
London, 18. jan. AP.
SIR Cecil Beaton, helzti ljós-
myndari kóngafólks og hefðar-
manna um áratugi í Bretlandi og
frægur leikmynda- og búninga-
hönnuður, lézt aðfaranótt föstu-
dags. Hann varð 76 ára gamali.
Hann fékk hjartaslag fyrir
nokkru og hafði verið sjúkur um
hríð.
Sir Cecil Beaton aflaði sér
mikils orðstírs fyrir ljósmyndir
sínar af brezku konungsfjölskyld-
unni eins og fyrr segir og varð
eftirsóttur sem slíkur víðar. Hann
vann tvívegis Öscarsverðiaun
fyrir leikmyndir í kvikmyndunum
Gigi og My Fair Lady. Hann gaf
út nokkrar bækur með ljósmynd-
um sínum og úrval úr dagbókum
hans frá 1926 til 1974 kom út í
september sl. með titlinum „Self
Portrait with Friends".
Fregnum um liðs-
flutninga mótmælt
Islambad — 19. janúar — AP
HÁTTSETTUR embættis-
maður í Pakistan sagði í
dag að ekkert væri hæft í
fréttum um mikla liðs-
flutninga Pakistana að
landamærum Afghanistj
ans. Fregnir frá Indlandi
hermdu að Pakistanar
væru að styrkja stöðu sína
við landamærin og að
sendar hefðu verið sjö her-
deildir til liðs við þær
sveitir sem fyrir væru.
Fylkis- og hershöfðingi norð-
vesturhéraðsins sem liggur að
landamærum Afghanistans sagði
hins vegar að í héraðinu væru
menn úr fjórum herdeildum, alls
um 40.000 manns, en að ekki stæði
fyrir dyrum að fjölga í herliðinu.
Ferðamenn sem verið hafa á
svæðinu segjast ekki hafa orðið
varir við liðsflutninga þar.
Indversk stjórnvöld brugðust
hart við óskum Zia Pakistansfor-
seta um að Pakistan og Indland
gerðu með sér varnarsáttmála og
sögðu að slíkur sáttmáli yrði
einungis til að koma af stað
vopnakapphlaupi í þessum heims-
hluta.
ósagt skal látið hvort teikn eru á lofti yfir Bessastöðum, en dans norðurljósanna
yfir kirkjunni lokkaði Ólaf K. Magnússon til að taka þessa mynd, er hann var þar
fyrir skömmu í sambandi við stjórnarmyndunarviðræður.
Talið að níu bílar hafi
steypst fram af brúnni
Skipverjar skutu blysum til að
reyna að vara bílstjóra við hættunni
Frá Sigrúnu Gísladóttur. fréttaritara Mbi. i Sviþjóð. 19. janúar.
Fóturinn
ALLS ER nú talið að níu bílar — átta fólksbilar og einn flutningabíll,
hafi ekið fram af Almobrúnni við Tjörneyju eftir að brúin hrundi á
stórum kafla. Norska skipið Star Clipper sigldi á brúnna í fyrrinótt.
„Við skutum eins og óðir blysi eftir blysi til að reyna að vara fólk við.
Alls sáum við 3 fólksbíla steypast fram af brúnni og falla 40 metra
áður en þeir skullu á ísköldum sjónum. t>á kom flutningabíll og við
skutum þremur blysum að honum. Einhver þeirra hæfðu hann en allt
kom fyrir ekki, hann hvarf í hafið,“ sagði einn skipverja um borð í
norska skipinu. Bremsuför flutningabílsins sáust glögglega en hann
var á of mikilli ferð og bílstjórinn náði ekki að stöðva hann áður en
hann steyptist fram af í hyldýpið.
Belgrað, 19. janúar. AP.
HÁTTSETTIR júgóslavn-
eskir embættismenn sögðu í
einkaviðtölum í dag að ef
eina leiðin til að bjarga lífi
Títós forseta væri að taka af
honum vinstri fótinn, yrði
fóturinn tekinn af.
Frestað var um nokkra
klukkutíma að gefa út hina
venjulegu tilkynningu um
líðan forsetans. Orðrómur
var á kreiki um að læknar
hefðu gert aðra skurðaðgerð
á forsetanum og að ekki yrði
gefin út yfirlýsing fyrr en
ljóst væri hvort hún hefði
tekist eður ei. Sögðu áreiðan-
legar heimildir að ef sú
skurðaðgerð tækist ekki væri
ekkert eftir nema að taka
fótinn af, þar sem ella væri of
mikil hætta á að forsetinn
fengi blóðtappa fyrirvara-
laust.
Að minnsta kosti 11 manns er I að vinna í morgun en mjög erfitt
saknað. Kafarar voru þegar farnir I er um allar björgunaraðgerðir.
Miklir straumar og kuldi hafa
hindrað kafara í að komast lengra
en 20 metra niður en dýpi er 40
metrar. Þá er allt eins víst að
bílarnir, sem steyptust fram af
hafi borist langar leiðir því að
straumhart er í sundinu. í dag er
fyrirhugað að fara með sérstakar
sjónvarpsvélar niður.
Lögreglan sætir
gagrirýni
Lögreglan hefur sætt mikilli
gagnrýni hér í Svíþjóð. Það hefur
komið á daginn, að veginum að
brúnni var ekki lokað fyrr en 45
mínútum eftir að brúin féll niður.
Lögregluyfirvöld bera því við, að
ekki hafi verið tilkynnt um að
brúin hafi hrunið heldur einungis
að skip hafi siglt á hana. Jan
Rosenberg, vöruflutningabílstjóri
náði að stöðva bíl sinn skammt frá
hyldýpinu. Hann ók mjög hægt
vegna dimmviðris og þoku og er
það talið hafa bjargað honum, en
skyggni var rétt 15 metrar. Hann
sá bíla steypast fram af brúnni
hinum megin. Síðan gekk hann
aftur fyrir bíl sinn til að vara aðra
Njósnuðu fyrir
Rússa í Japan
Tókýó, 19. janúar. AP.
FYRRVERANDI hershöfðingi í landher Japans og tveir undirfor-
ingjar hafa verið hnepptir í varðhald þar sem ljóstrað hefur verið
upp að þeir hafi afhent a.m.k. tvermur starfsmönnum sovéska
sendiráðsins upplýsingar og skýrslur um hernaðarleyndarmál.
Sovésku sendiráðsmennirnir
eru sagðir vera Pyotr I. Rybalkin
hershöfðingi, fyrrverandi her-
málafulltrúi sendiráðsins, og
eftirmaður hans, Yurii N. Kozlov
ofursti.
Lögreglan skýrði frá því í dag
að Kozlov hefði haldið til
Moskvu ásamt eiginkonu sinni
með flugvél flugfélagsins Aeoro-
flot á laugardag. Tilraunir til
þess að fá Kozlov til yfirheyrslu
hefðu reynst árangurslausar,
sovézka sendiráðið hefði ávallt
visað til ákvæða um friðhelgi
diplómata.
Við leit á heimilum japönsku
foringjanna fundust ýmis skjöl
með leynilegum upplýsingum,
bók með dulmálslyklum og fjar-
skiptabúnaður. Hershöfðinginn
hafði aðgang að hernaðarleynd-
armálum, um varnaráætlanir
Japana á eynni Hokkaido. Hann
var yfirmaður leyniþjónustunn-
ar þar og næst æðsti maður
herskóla japanska hersins, —
þeirri deild þar sem leyniþjón-
ustumenn eru þjálfaðir. Málið
hefur vakið reiði í Japan og
stjórnvöld hyggja á hefndarað-
gerðir gegn Rússum.