Morgunblaðið - 20.01.1980, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.01.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1980 15 Sigurður Helgason íorstjóri Fiugleiða. DC-10 og þær munu þá koma til með að lækka kostnað eitthvað. Við búum hins vegar að því að eina vélin af eldri vélunum sem heldur velli er DC-8-63 þotan sem er óvefengjanlega hag- kvæmust af mjóþotunum. Eg hef því ekki trú á því að breyting á flugvélum næstu árin hafi sérstök áhrif á starf Flug- leiða.“ Tían leigð fyrir tæplega 5 milljarða kr. „Hvers vegna hafi þið leigt xnýjustu vél flotans, Tíuna?“ „Það er fyrst og fremst varn- araðgerð. Við erum búnir að byggj a upp eignaraðild í vélinni og höldum áfram að gera það á leigutímabilinu. Vélin var keypt á hagstæðu verði miðað við verð í dag og við teljum að það hafi verið skynsamlegt miðað við aðstæður að halda eignaraðild- inni á þennan hátt og að breið- þotan geti þá komið til okkar aftur með betri tíma þegar rofað hefur til óg aðstæður verða hagstæðari. Við höfum aðeins ráðstafað vélinni til tveggja ára.“ „Fyrir hvað leigið þið Tíuna?“ „Samningurinn byggist á því að leigan greiði öll okkar útgjöld og greiðsluskuldbindingar á Tíunni og heldur betur. Samn- ingurinn er upp á 11 milljónir dollara eða nær 5000 milljónir ísl. kr. Kaupverðið á Tíunni var um 42 milljónir dollara, en í dag kostar hún um 50 millj." Höldum öllum möguleikum opnum í rekstri „Ef veður skipuðust skyndi- lega til hins betra rekstrarlega séð, hafið þið þá ákveðin áform um aukinn vélakost eða endur- nýjaðan?" „Ekki liggja fyrir neinar fast- mótaðar hugmyndir um endur- hýjun, en við teljum að unnt sé að fá DC-8 eða DC-10 leigðar ef stórfelldar breytingar kæmu skyndílega til hins betra eða áður en leigutíminn á okkar Tíu rennur út.“ „Munu Flugleiðir leita áfram markaða í flutningi pílagríma?" „Það er óráðið með pílagríma- flug eins og stendur, það fer talsvert eftir því hvernig sam- setning Atlantshafsflotans þarf að vera og það mun skýrast á næstu mánuðum. Hins vegar höldum við öllum möguleikum opnum og pílagrímaflugið s.l. ár skilaði góðum árangri." Rætt við Sigurð Helgason forstjóra Flugleiða um næstu framtíðar- möguleika „Hyggið þið á samvinnu við erlenda aðila í flugrekstri?" „Það er ekkert fastmótað í sambandi við samvinnu við er- lenda aðila. Það eina sem er til athugunar nú eru hugmyndir aðila í Luxemburg um samvinnu í flugrekstri á langleiðum öðrum en þeim sem við sinnum í dag. Þetta er þó allt óljóst og ekkert er komið á blað í þeim efnum varðandi stærðargráðu, svæði eða slíkt. Þeir vilja bjóða okkur þátttöku í þessu vegna þekk- ingar okkar og reynslu og mark- aðstengsla. Þetta verður rætt á næstu vikum og mánuðum og skýrist þá af eða á.“ „Liggur fyrir hvort eða hvern- ig aðstoð Flugleiðir fá hjá íslenzkum stjórnvöldum og Lux- emburg í þeim rekstrarerfiðleik- um sem við er að glíma nú?“ „Flugleiðir vinna nú skýrslu þar sem skilgreint verður hvaða aðstoð eða fyrirgreiðslu við för- um fram á og er það í samræmi við niðurstöður viðræðna við rétta aðila um málið. Það sem við höfum farið fram á nú þegar er tímbundin niðurfelling lend- ingargjalda og annarra fastra gjalda. Luxemburg hefur haft mikið gagn af rekstri okkar í 25 ár. Nú eru þrengingar hjá okkur en reksturinn er ennþá til hagsbóta fyrir þá og því þykir okkur ekki óeðlilegt að einhver aðstoð komi til af þeirra hálfu." „Eiga Flugleiðir möguleika á því að hasla sér völl sjálfstætt í annars konar flugrekstri en tíðkast hefur eða á öðrum flug- leiðum?" „Allt okkar starf beinist að því að rétta af og komast upp úr þeim öldudal sem reksturinn hefur verið í, en við munum hafa vakandi auga á öllum möguleikum sem geta hjálpað til.“ „Eru uppi hugmyndir um samvinnu við finnska flugfélag- ið Finnair?" „Það hefur verið spjallað um hugsanlega samvinnu vestan hafs, en engar ákvarðanir tekn- ar. Það sem um hefur verið rætt er samvinna um afgreiðslu flugvéla, tækniþjónustu, vöru- afgreiðslu og fleira, en ennþá hefur ekkert verið ákveðið." „Hefur þú eða Flugleiðir ein- hver tengsl við Air Florida önnur en þau að leigja DC-10 þotuna?" „Það er ekki um nein tengsl að ræða við Air Florida. Þeir höfðu afnot í nokkra mánuði á s.l. ári af okkar skrifstofum í Wash- ington og búið.“ „Hvaða áhrif hafa rekstrar- erfiðleikar Flugleiða á þróun innanlandsflugsins?“ „Staðan hefur haft þau áhrif að innanlandsflugið er rekið með tapi s.l. 5 ár. Nú fer fram að nokkru leyti endurnýjun og stöðlun á innanlandsfluginu. I því sambandi verðum við að treysta á það að við njótum skilnings á því hjá yfirvöldum hér að það er ekki hægt að ætlast til þess að við rekum þessa starfsemi með halla.“ Aukinn ferða- mannastraumur lykillinn að umheiminum „Rekstur hótelanna er í góðu formi, en við teljum að það þurfi að efla hótelstarf og þjónustu hér, auka hótelrýmið til þess að hægt verði að efla ferðamanna- strauminn. Af hverju þarf að efla ferðamannastrauminn kann þá einhver að spyrja? Jú, við þurfum góðar samgöngur og tíðar til og frá landinu í allar áttir og aðeins með því að auka ferðamannastrauminn getum við treyst góðar samgöngur og samband við umheiminn og þar skipta hótelin miklu máli.“ Minni áhætta með afmörkuðu rekstrarsviði „Margir velta því fyrir sér hvort það sé eðlilegt að rótgróið fyrirtæki eins og Flugleiðir eigi í þeim rekstrarerfiðleikum sem raun ber vitni á sama tíma og Arnarflugi virðist ganga tiltölu- lega vel og veltir jafnvel fyrir sér kaupum á nýrri flugvél." „Hér áður í samtali okkar hef ég lýst helztu ástæðunum fyrir þessum rekstrarerfiðleikum og það er ekki raunhæft að bera þessi fyrirtæki saman nema að litlu leyti. Stærðarmunur fyrirtækjanna er gífurlegur og umsvif Arnar- flugs eru mjög takmörkuð. Af- markað svið þýðir miklu minni áhættu þannig að það hefur meiri möguleika á að sigla milli skers og báru, en félagið hefur verið mjög farsællega rekið að mínu mati. Það hefur farið saman að við höfum aflað Arn- arflugi talsvert umfangsmikilla verkefna á s.l. ári, en við höfum samvinnu um markaðsstörf á sviði leiguflugs erlendis. Þetta samstarf hefur verið jákvætt fyrir bæði félögin." Von um árangur innan tíðar „Hvað telur þú að það taki langan tíma að snúa þróuninni í rekstrinum við miðað við stöð- una í dag?“ „Þetta er spurningin sem allt snýst um, en því miður get ég ekki svarað henni með rökum. Allt sem við gerum í dag beinist að því að rétta við, en því er ekki lokið og ég sé fram á áframhald- andi erfiðleika á næstu mánuð- um. Vonandi er að árangur náist innan tíðar. Raunsæi er það sem skiptir mestu máli í stöðunni og óhófleg bjartsýni gerir ekkert gagn. Ég tel að við höfum hjá fyrirtækinu gott starfsfólk sem hefur einbeitt sér að lausn aðkallandi og knýjandi verkefna sem er aðlögun að breyttum aðstæðum og ég vona og trúi að okkur takist að fullkomna það verk og koma því í kring snuðru- lítið. Ég held að meginhluti starfsfólksins skilji þetta og ég treysti því að það fylki sér um þær aðgerðir sem um er að ræða. Það eru þeirra hagsmunir ekki síður en fyrirtækisins sjálfs að dæmið snúist við og hagsmunir þjóðarinnar í heild.“ Grein: Árni Johnsen AKAI I % í 1-^3» Verktakar — Útgeröarmenn — Vinnuvéla- eigendur o.fl. Slöngur — Barkar — Tengi. Renniverkstæöi — Þjónusta — Háþrýstilagnir Státröratengi — Fjö|tæknj s f Nýlendugötu 14, Reykjavik. Sími: 27580. Skiptilokar Mælalokar i VÆ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/A Innilegar þakkir til allra vina, kunningja og fjölskyldna sem glöddu mig mikið, meö heimsóknum, gjöfum, skeytum og blómum á 70 ára afmæli mínu þ. 14. janúar. Kærar kveöjur. Tove Engilberts. Félag járniðnaðarmanna Félagsfundur veröur haldinn þriöjudaginn 22. janúar 1980 kl. 8.30 e.h. í Félagsheimili Kópavogs, uppi. Dagskrá: 1. Félagsmál 2. Kjaramál 3. Önnur mál Mætiö vel og stundvíslega. Stjórn Félags járniönaöarmanna. Volvo station 78 Til sölu mjög vel meö farinn Volvo Station bifreiö, árg. 1978, ekinn 35 þús. km litur blá sanseraður. Verö 7.5 millj. Bíll í toppstandi. Uppl. í síma 41187. Verzlunin Eðall auglýsir Erum meö úrval kristal- vara á góöu verði. s.s. handskorin kristalglös og blómavasa frá Vestur-Þýzkalandi. Einnig úrval af furubús- áhaldavörum frá Finn- landi. Verzlunin Eðall, Austurstræti 8.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.