Morgunblaðið - 20.01.1980, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.01.1980, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1980 fltaqpisifrlafeifr hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4.500,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 230 kr. eintakið. Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Við erum flest stolt af þeirri miklu upp- byggingu, sem orðið hef- ur hér á landi síðan um aldamót. Þegar þessi saga er rifjuð upp, sjáum við, að fyrstu skrefin eru jafnan stigin af stórhuga einstaklingum, sem sáu leiðir til þess að nýta þau nýju tækifæri, sem aukið athafnafrelsi og batn- andi efnahagur þjóðar- innar gáfu. Upphaf tog- araútgerðar á 1. ára- tugnum er sígilt dæmi um þann kraft, sem býr í einstaklingsframtakinu. Og stofnun Eimskipafé- lags íslands sýnir okkur, hverju má fá áorkað, ef þjóðin finnur að framlag hvers einstaks getur skipt máli fyrir afkomu heildarinnar. Við stöndum nú frammi fyrir því, að lífskjör okkar hafa farið versnandi á sl. ári og enn hallar undan fæti á þessu, ef marka má þjóð- hagsáætlun. Það er áreiðanlega ekki tilvilj- un, að þetta gerist á sama tíma sem kröfu- gerð ríkisvaldsins á hendur atvinnuvegunum hefur orðið æ skefjalaus- ari með margvíslegum kvöðum, fáránlegri skattalöggjöf og ýmsum öðrum ótímabærum af- skiptum og tilskipunum, sem stappað hafa nærri eignaupptöku eða jafn- gilt henni. Afleiðingin er svo sú, að eigin fé fyrir- tækja fer hraðminnk- andi og enginn óvitlaus maður leggur sparifé sitt í atvinnurekstur. Póli- tísk misbeiting verka- lýðshreyfingarinnar hef- ur stuðlað að þessari óheillaþróun og þar með valdið því að lífskjör eru hér verri en ella. I útvarpsviðtali í gærmorgun lét ritstjóri Þjóðviljans svo ummælt, að blað hans hlyti að beina spjótum sínum sérstaklega að Eim- skipafélagi íslands, Flugleiðum og Sölumið- stöð hraðfrystihúsanna af því að það væri „mál- gagn sósíalisma, þjóð- frelsis og verkalýðs- hreyfingar", en til þess- ara félaga væri einatt vitnað til að sýna fram á ágæti einstaklingsfram- taksins. Ekki var rit- stjórinn um það spurður, hvort hann teldi, að þessi fyrirtæki hefðu gert þjóðinni gagn og stuðlað með beinum og óbeinum hætti að því að við byggjum í betra landi en ella. Það var líka þarf- laust. Orð hans urðu ekki skilin öðru vísi en svo, að frjálst framtak, — frelsi til athafna og umsvifa, —■ væri eitur í hans beinum og annarra þeirra, sem Þjóðviljan- um stjórna, — sem fara með forystu í Alþýðu- bandalaginu. Við erum alin upp í náinni sambúð við landið og náttúruöflin, sem hef- ur alið af sér einstakl- ingshyggju með okkur flestum. Þegar við höf- um verið frjálsust orða okkar og athafna hefur okkur vegnað bezt; — hvers konar hömlur og höft hafa lamað starfs- þrekið og dregið úr framförunum. Ummæli ritstjóra Þjóðviljans lýsa viðhorfi, sem er and- stætt eðli og uppruna okkar íslendinga. Þau lýsa ótrúlegu afturhaldi og ofstæki. Það getur ekki leitt til annars en ófarnaðar og upplausn- ar, ef þau sjónarmið verða ofan á. Framtak eða aftur hald ? ( Reykjavíkurbréf 19. janúar1 Er „síldar- ævintýrinu“ á Atlantshafi lokið? Flugi okkar íslendinga með út- lendinga milli Evrópu og Ameríku má líkja við „síldarævintýri". Við duttum í lukkupott fyrir þremur áratugum, þegar Loftleiðumenn hófu þetta flug. Framsýni þeirra, dirfska og dugnaður svo og að- stæður á þessari flugleið réðu mestu um það, að umfangsmikill atvinnurekstur var byggður upp í kringum þetta flug. Forsendurnar fyrir því, að þetta „síldarævintýri“ í flugi á N-Atl- antshafi hófst voru nokkrar. Loft- ferðasamningur okkar við Banda- ríkin var gerður á heppilegum tíma og var hagkvæmari en loft- ferðasamningar milli Bandaríkj- anna og flestra annarra Evrópu- landa. Bandarísk stjórnvöld höfðu vinsamlega afstöðu til okkar íslendinga og voru í upphafi og jafnan síðan reiðubúin til að greiða götu þessa flugs. Loftleiðir tóku þann kost að fljúga með hæggengari vélar, sem millilentu á íslandi en á lægri fargjöldum. Á þessum grundvallaratriðum byggðist þetta flug í upphafi svo og á útsjónarsemi stjórnenda Loftleiða. Það var t.d. snilldar- bragð að taka upp samstarf við Luxemborg í fluginu, þegar Loft- leiðum var smátt og smátt þrýst út af Norðurlandamarkaðnum. í kringum þetta flug hefur orðið til mikil atvinna bæði hér á íslandi og í öðrum löndum. Loft- leiðamenn byggðu upp flugflota sinn og síðan margvíslega iðstöðu hér heima fyrir svo cg' mjög víðtækt sölukerfi út í heimi. Þegar bezt gekk voru söluskrifstofur Loftleiða á hinum ótrúlegustu stöðum víðs vegar um heiminn. Þessi starfsemi Loftleiða og Flug- félags Islands á þeim vettvangi, sem það starfaði á þ.e. í innan- landsflugi og Evrópuflugi og síðar Flugleiða eftir sameininguna, hef- ur orðið til þess, að við íslendingar búum nú yfir mikilli þekkingu í flugrekstri. Við eigum hóp manna, sem kunna að reka flug. Við eigum fjölmenna sveit vel menntaðra flugliða, sem hafa mikla reynslu í flugi á N-Atlantshafi. Við eigum þjálfað starfsfólk, sem kann vel til verka á hinum ýmsum starfssvið- um, sem tengjast fluginu. Við eigum sem sagt stóran hóp fólks, sem með menntun og starfs- reynslu hefur aflað sér sérþekk- ingar í flugsamgöngum. Nú bendir margt til þess, að „síldarævintýrinu" í Atlantshafs- fluginu sé lokið — um sinn a.m.k. Breyttar aðstæður á þessari flug- leið valda því. Um nokkurt árabil hafa Flugleiðir notað sams konar vélar á þessari flugleið og önnur flugfélög. Jafnframt hefur verð- samkeppni farið harðnandi sér- staklega hin síðari ár, þegar fargjöld hafa lækkað verulega. Um skeið gerðu menn sér vonir um, að íslenzkt flug yfir Atlants- hafið hefði náð svo öruggri fót- festu, að það gæti haldið áfram, enda þótt forsendurnar hefðu breytzt. Menn töldu hugsanlegt, að Flugleiðir gætu haldið þeim markaði, sem Loftleiðir höfðu byggt upp, þótt verðmunurinn væri horfinn að mestu eða öllu leyti. Harðnandi samkeppni og hækkandi verð á eldsneyti hafa valdið því, að þessar vonir hafa smátt og smátt dofnað. í nokkur misseri hafa Flugleiðir borgað með hverjum einasta farþega, sem félagið hefur flutt yfir Atlants- hafið. Það getur ekki verið mikil framtíð í því fyrir okkur íslend- inga að borga með hverjum far- þega, sem við flytjum milli Evr- ópu og Bandaríkjanna. „Síldin“ er því að hverfa, alveg eins og síldin hvarf 1947 og 1967. En gleymum því ekki, að síldin kom aftur. Og spurning er, hvort þær aðstæður skapast á ný á þessari flugleið, að við getum rekið þar farþegaflutninga með nokkrum árangri. Nú er fremur talinn skortur á farþegaflugvélum í heiminum en að um offramboð sé að ræða. Hins vegar er því haldið fast fram í erlendum sérfræði- tímaritum um flug, að þetta muni breytast á næstu árum. Svo mikið af flugvélum er nú í smíðum, að talið er að um offramboð verði að ræða að nokkrum árum liðnum. Nú eru eldri þotur í háu verði, en um leið og mikið framboð verður á nýjum vélum er því spáð, að verð á gömlum þotum muni falla. Að vísu eru nýju vélarnar mun hagkvæm- ari í rekstri en þær gömlu en sérfræðingar segja, að verðið á þeim gömlu, verði svo lágt, að þótt rekstrarkostnaður þeirra verði til muna hærri, muni þetta skapa mönnum tækifæri til að kaupa gamlar þotur á lágu verði og hefja farþegaflug á enn lægri fargjöld en nú tíðkast í samkeppni við stóru flugfélögin, sem muni nota hinar nýrri vélar. Leiðir þessi þróun til þess, að „síldin komi aftur“ á flugleiðinni yfir N-Atl- antshafið? Leitum nýrra leiða Að vonum hafa vandamál At- lantshafsflugsins mjög verið til umræðu hér heima fyrir undan- farna mánuði. Flugleiðir hafa nú sagt upp um fjórðungi starfs- manna sinna og þarf ekki að hafa mörg orð um hvílík áhrif slíkar uppsagnir hafa í okkar litla sam- félagi. Þessi vandamál flugsins, sem eiga sér eðlilegar ástæður, sem menn hafa getað séð fyrir í mörg ár hafa orðið til þess, að Þjóðviljinn og Alþýðubandalagið halda uppi hatrömmum árásum á Flugleiðir og stjórnendur þeirra. Það er eftirtektarvert, að öll starfsorka þeirra Þjóðviljamanna og Alþýðubandalagsins í þessu máli fer í það að skapa tortryggni í garð stjórnenda fyrirtækisins. Því er haldið fram, að þeim hafi orðið á stórfelld mistök í rekstri fyrirtækisins, alið er á grunsemd- um um, að þeir hafi flutt stórfé úr landi (Hvaða fjármagn skyldi það vera? Milljarðatap síðustu ára?) og yfirleitt er öllum ráðum beitt til þess að gera þá tortryggilega. Þessi málflutningur kommún- ista er þeim mun athyglisverðari vegna þess, að Flugleiðir hafa ekki fengið nokkra fjárstyrki úr vösum skattgreiðenda. Fyrirtækið hefur ekki farið fram á það að tapið verði greitt úr ríkissjóði. Fyrir- tækið hefur heldur ekki farið fram á sérstakan fjárstuðning stjórn- valda. Alþýðubandalagsmenn geta því ekki haldið því fram að þeir séu að verja hagsmuni hins opin- bera eða skattgreiðenda. Tilgang- urinn er augljós. Flugleiðir og forverar þess, Loftleiðir og Flug- félag íslands hafa um langt árabil verið meðal öflugustu einkafyrir- tækja í landinu. Raunar er upp- bygging farþegaflugs milli íslands og annarra landa eitt glæsilegasta dæmið í okkar atvinnusögu á síðari árum um það, hvers einka- framtakið er megnugt. Nú þegar illa gengur og erfiðleikar steðja að, ætla þeir Alþýðubandalags- menn bersýnilega að nota tæki- færið og reyna að koma höggi á þetta einkafyrirtæki meðan það er í sárum og leggja grundvöll að því að það verði þjóðnýtt. Hér er ekki um það að ræða, að Alþýðubandalagið hafi svo miklar áhyggjur af atvinnu og lífsafkomu þess fólks, sem hefur starfað við

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.