Morgunblaðið - 20.01.1980, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.01.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANUAR 1980 23 „Guð sjálfur og bænin til hans sam- einar allar greinar kristinnar kirkjn" — segir séra Ágúst Eyjólfsson sem verður fyrstur kaþólskra presta til að prédika í lúterskri kirkju á Islandi Séra Ágúst Eyjólfsson, ný- vígður prestur við Dóm- kirkju Krists konungs Landakoti. stígur í stól og prédikar við guðsþjónustu í Dómkirkjunni við Austur- völl í dag sunnudag, þar sem fulltrúar fjögurra stærstu freina kristinnar kirkju á slandi sameinast um guðs- þjónustu. Er það í fyrsta skipti, sem það gerist á íslandi, að kaþólskur prest- ur prédikar í lúterskri kirkju. „Ég er mjög ánægður með að þessi guðsþjónusta sé að verða að veruleika, og fagna þessari þróun hér,“ sagði séra Ágúst í stuttu spjalli við Mbl. „Ég kynntist fyrirkomulagi af þessu tagi á námsárum mínum í V-Þýzkalandi, en guðsþjónustur sem þessar hafa lengi farið fram víða um heim, og kirkjudeildir bein- línis verið hvattar til að taka þátt í slíkri guðsþjónustu. Og þótt við höfum margar Séra Ágúst Eyjólfsson kirkjudeildir þá er eitt sem sameinar þær allar, Guð sjálfur og bænin til hans. Ekki er hægt að segja að um messu sé að ræða, öllu heldur guðsþjónustu þar sem þarna skiptast á söngur, bæn og prédikun. Tildrögin að þessu eru þau að á síðastliðnu sumri var sett á laggirnar samstarfsnefnd kristinna trúfélaga á íslandi. Nefndin hefur unnið að undirbúningi bænaviku, sem er alþjóðleg, en jafnframt var ákveðið að efna til þessarar guðsþjón- ustu í tengslum við vikuna og hefur á sama tíma verið unnið að undirbúningi þessa viðburðar, og ég er ánægður með hvað við skulum vera komin langt áleiðis og fagna þessari guðsþjónustu. Ég veit ekki hvort þessi guðsþjónusta, eða aðrar sam- svarandi í útlöndum, eigi eft- ir að leiða alla kristna menn í eina kirkjudeild. Jesús bað þó fyrir því áður en hann dó, að öll yrðum við eitt. Og það eru áreiðanlega margir sem mundu vilja vinna að því. Það er margt sem tengir kristna menn, en að vísu mikið sem að skilur," sagði séra Ágúst, sem starfar sem aðstoðar- prestur sóknarprestsins í Landakoti, að lokum. Fyrirlestr- ar um ör- eindafræði KNÚTUR Árnason B.S. flyt- ur almenna fyrirlestra um öreindafræði síðustu ára, á morgun, mánudaginn 21. og þriðjudaginn 22. janúar kl. 17.15 í stofu 157 í húsi verkíræði- og raunvísinda- deildar við Hjarðarhaga. Fyrirlestrarnir eru opnir öll- um áhugamönnum. Þar verður fjallað um þær hugmyndir sem fram hafa komið í öreindafræði á síðustu árum. Meðal þessara hug- mynda er ímynd eða módel Weinbergs og Salams sem færði þeim Nóbelsverðlaun á síðasta ári. Einnig verður fjallað um svonefnda poka- ímynd um vist kvarka í ör- eindum. Tengsl öreindafræð- innar við stjarneðlisfræði og heimsmyndafræði verða ennfremur tekin til umræðu. Maímánuður sá annasamasti hjá Slökkvilið- inu á sl. ári FJÖLDI útkalla og sjúkraflutn- inga hjá slökkviliðinu í Reykjavík árið 1979 var svipaður og árið á undan eða alls 10.755 sjúkra- eða slysaflutningar og 474 útköll vegna eldsvoða. Flest urðu útköll- in í maímánuði eða 126, nærri 100 fleiri en flesta aðra mánuði. í skýrslu sem Slökkvistöðin í Reykjavík hefur sent frá sér kemur fram að orsök eldsvoða er í langflestum tilvikum íkveikja, eða alls 220 á s.l. ári. Herstöðvaandstæð- ingar mótmæla harð- lega innrásinni i Afganistan „MIÐN'EFND Samtaka herstöð- varandstæðinga mótmælir harð- lega hernaðaríhlutun Sovétríkj- anna í Afghanistan," segir í upp- hafi ályktunar frá Herstöðvarand- stæðingum. Harmað er í ályktun- inni, að enn einu sinni skuli stórveldi beita hervaldi til að skipa máium smáþjóðar. Verö: Ca. 3.130. þús Verö: Ca. 3.495. þús Verö: Ca. 5.320. þús *iVerö: Ca. 3.750. þus Verö:Ca. 3.570 Síðastliðið ár og það sem af er þessu ári, er LADA mest seldi bíllinn. Það er vegna þess að hann er á mjög hagstæðu verði, og ekki síst, að hann er hannaður fyrir vegi sem okkar Nú eru allir LADA bílar með höfuðpúðum, viðvörun- arljósum ofl. ofl. LADA station er hægf að fá með 1200 sm3 eða 1500 sm3 vél. BIFREIDAR & LANDBUNAÐARVELAR Suðurlandsbraut 14, simi 38600 Söludeild sími 312 36 er mest sekti bíllinn" Góöir greiösluskilmálar Li m i í, ~\É—zxa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.