Morgunblaðið - 20.01.1980, Page 14

Morgunblaðið - 20.01.1980, Page 14
X 4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1980 „t>á verður auðveldara að fikra sig áfram á ný“ Flugleiðir hafa verið í sviðsljósinu um nokkurt skeið í sambandi við mikla rekstrarörðugleika og harðandi samkeppni í flugheiminum. Fjallað hefur verið um vandamálin og aðgerðir þar að lútandi í fjölmiðlum að undanförnu, en í eftirfarandi samtali við Sigurð Helgason forstjóra er farið inn á þá, möguleika sem framtíðin ber í skauti sér, hvert skuli stefna og við hvað miðað. í viðtalinu kemur fram að Flugleiðamenn munu berjast fast og ákveðið gegn þeim vandamálum sem við er að glíma, berjast með raunsæi í fararbroddi og mikla þekkingu og reynslu í flugmálum í kili. „Hafið þið í huga afmarkaða stærð á fyrirtækinu með þeim aðgerðum sem ákveðnar hafa verið?" „Það er erfitt að svara því nú. Það sem við erum að reyna að átta okkur á nú er hvað umfang Norður-Atlantshafsflugsins eigi að vera til þess að við getum komið í veg fyrir áframhaldandi tap. Við ætlum að rétta skipið af. Það sem við verðum að tryggja í þessari stöðu er nauð- synin á samgöngum til og frá landinu í báðar áttir, austur og vestur, og til þess að hafa næga tíðni í Ameríkufluginu verðum við að tengja flugið við Evrópu. Þar er Luxemburg ennþá rök- rétti staðurinn, því að þar erum við búnir að vinna upp markað." Óviðunandi ferða- f jöldi með Islend- inga eingöngu „Kemur til greina að byggja þessar flugsamgöngur eingöngu á íslenzkum farþegum?" „Ef um flug til Ameríku væri að ræða eingöngu miðað við þarfir til og frá íslandi myndi ferðafjöldi vera algjörlega óviðundandi, því þá yrði hugs- anlega um að ræða eina ferð í viku. Okkar aðgerðir miða ekki að slíku og það hefur einnig komið sterklega fram að undan- förnu að Luxemborgarmenn leggja megináherzlu á áfram- hald farþegaflugs okkar yfir Norður-Atlantshafið. Þeir hafa mikilla hagsmuna að gæta í þeim efnum og hafa gífurlegar áhyggjur af þeim erfiðleikum sem við hefur verið að glíma á þessari leið að undanförnu. Þeir hafa í 25 ár, eða frá því að íslendingar byrjuðu þetta flug, verið að byggja upp aðstöðu í flugþjónustu og það tengist margs konar framkvæmdum, fjármálum og viðskiptum al- mennt." Reynum að hafa vaðið fyrir neðan okkur „Hvað verður flugið viðamikið eins og staðan er í dag?“ „Við erum nú að vinna að áætlun um reksturinn og ferða- fjölda. Við höfum haft vaðið fyrir neðan okkur að undan- förnu með tilliti til uppsagna og miðað við það er um að ræða það þröngan stakk að um lágmark er að ræða vegna ástæðna og ástands á markaðnum. Það verður þá auðveldara að fikra sig áfram á ný með útþenslu og aukna starfsemi ef grundvöllur verður fyrir slíkt. Við förum mjög varlega nú í öllum ákvörð- unum og áætlunum og leggjum höfuðáherzlu á raunsæi. Við teljum það skyldu okkar að komast út úr þeim taprekstri sem hefur verið. Við verðum að nýta möguleikana og markaðinn í dag eins vel og unnt er til þess að fyrirtækið nái styrkri stöðu og það höfum við orðið að gera með samdrætti, en teljum að sú stefna sem hefur verið ríkjandi í leiðaskiptingu sé enn hagkvæm- ust og vænlegust til árangurs. Ferðafjöldi á Norður- Atlantshafsleiðinni hefur verið upp í 12—15 ferðir á viku a.m.k. og þótt dregið verði þó nokkuð úr ferðafjölda er engu að síður um umfangsmikið flug að ræða. í þeim áætlunum sem verið er að vinna er gert ráð fyrir allt að daglegum ferðum um Island á Norður-Atlantshafsleiðinni. 5 mán. jöfnuðu 7 mán. taprekstur „Meginástæða tapreksturs- ins?“ „Það sem hefur skeð á þessari leið er fyrst og fremst það að fargjöld eru ekki í samræmi við tilkostnað. Orsakirnar eru auk- inn fjöldi flugfélaga á leiðinni, hömlulaus samkeppni og niður- boð, gífurlegar eldsneytishækk- anir sem hafa verið tíðari og meiri en nokkurn gat grunað og svo eru tilfallandi atvik eins og til dæmis missir Tíunnar í tvo mánuði á s.l. sumri, afkasta- mesta tækis Flugleiða. Almenn regla á undanfn aum árum hefur verið sú að fyrir hækkanir hefur verið rekið með tapi í 7 mánuði, en 5 mánuðir hafa jafnað metin, þ.e. manuð- irnir maí, júní, júlí, ágúst og september. Á s.l. ári hins vegar náðist ekki sá árangur sem gert hafði verið ráð fyrir á þessum 5 mánuðum. Það má heldur ekki gleyma einu veigamiklu atriði í þessum fjárhagserfiðleikum og tap- rekstri og það er verðbólgan á íslandi. Samfelld óðaverðbólga eins og hér er kippir stoðunum undan öllum eðlilegum rekstrar- grundvelli og atvinnufyrirtækin ráða hreinlega ekki við þessa tilflutninga á verðmætum. Lausafé fyrirtækja brennur upp í sífellu og það kostar mikið starf og erfitt að afla þess lausafjár sem þarf við slíkar kringumstæður." „Hvað þyrfti fargjaldið að hækka mikið til þess að það gæti talist eðlilegt að þínu mati?“ Fargjöld á Atlantshafinu 10-15% of lág „Það þyrfti að hækka um 10—15% og ef það hefði verið það þá væri staðan í dag önnur en raun ber vitni.“ „Er ekki þróunin heldur í þá átt að fargjöldin hækki þrátt fyrir gífurlega samkeppni?" „Við erum að vona að þetta ástand verði ekki viðloðandi áfram og sjáum viss merki um þróun í átt til hækkaðra far- gjalda, en við höfum enga trygg- ingu fyrir því og sama er að segja um eldsneytishækkanirn- ar. Síðast í fyrradag fengum við hækkunartilkynningu. Út frá þessu m.a. reynum við nú að halda í horfinu á meðan staðan er neikvæð. Ymsir spyrja hvers vegna við séum að flytja fólk og það útlendinga á of lágum fargjöldum. Því er til að svara, að ef flug með útlendinga myndi leggjast niður þá yrði rekstur fyrirtækisins ekki eins hagkvæmur og áður. Fasti kostnaðurinn hjá félaginu myndi þá lenda óskiptur á þessum rekstrarþáttum sem eft- ir yður, jafnvel þótt allar ráð- stafanir yrðu gerðar til þess að skera hann niður í lágmark. Við höfum haft hagræði af því að dreifa fasta kostnaðinum á fjölda eininga. Gott dæmi er Keflavíkurflugvöllur þar sem það skiptir ekki meginmáli hvort eitt eða fleiri flug fara í gegn á sama morgni, því að það þarf lágmarksfjölda fólks til þess að koma einu flugi gegn. Fyrirtækið býr yfir slíkri þekkingu og reynslu í flugþjón- ustu að um mikil verðmæti er að ræða. Við miðum við það að nýta þessa reynslu þannig að það borgi sig og eigi vaxtar- möguleika á þeim grunni og stefna fyrirtækisins í dag bygg- ist fyrst og fremst á þessu." 5,8 millj. kr. meðal- laun hjá Flugleið- um á sl. ári „Nú eru það ekki aðeins hags- munir starfsfólks, félagsins og þeirra sem ferðast að fyrirtækið standi traustum fótum, heldur einnig þjóðfélagsins í heild. Hvað greiða Flugleiðir t.d. í almenn gjöld?“ „Á s.l. ári má nefna sem dæmi um greiðslur, 550 milljónir kr. til ríkis og bæjarfélaga, launa- skatta, í lífeyristryggingasjóði, aðstöðugjöld og fleira og aðrar 550 milljónir kr. í ýmsa sjóði starfsmanna, 280 millj. kr. hefur fyrirtækið skilað í söluskatt, 681 millj. kr. í flugvallaskatt og þeim 1300 starfsmönnum sem voru á launaskrá á s.l. ári voru greiddar 7600 milljónir króna í laun, 7,6 milljarða króna, eða 5,8 millj. kr. að meðaltali á starfs- mann. Það lætur nærri að Flug- leiðir hafi greitt 3,5 millj. kr. á dag í bein gjöld á s.l. ári.“ „Með olíukreppunni 1973 drógu margar flugvélaverk- smiðjur úr framleiðslu og nú á næstu árum eru þær aftur að ná upp fyrri afköstum en með nýjum vélum og tiltölulega ódýrari í rekstri m.a. vegna hagstæðari nýtingar eldsneytis. Með tilkomu nýrra véla munu gamlar vélar mögulega falla í verði, en telur þú að þessi þróun muni hafa mikil áhrif á rekstur Flugleiða?" Vélar Flugleiða af hagstæðri gerð „Það er engin stökkbreyting á næsta leiti í gerð flugvéla. Síðasta stökkbreyting varð með tilkomu breiðþotnanna. Að vísu eru í sjónmáli vélar af minni gerð sem eru sparneytnari eins og t.d. Boeing 757 og 767, en þær taka í kring um 200 farþega og þar yfir. Það er einnig líklegt að breiðþoturnar eigi eftir að stækka eftir 1985, bæði 747 og Með leigu Tíunnar um sinn hafa Fiugleiðir tryggt sér áframhaldandi eignaraðild. Ljósm. Mbl. Ragnar Axelsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.