Morgunblaðið - 20.01.1980, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1980
21
Áttræður:
Haraldur Aðalsteins
son Seyðisfirði
Nokkur afmælisorð langar mig
að senda austur yfir fjöll til
Haralds vinar míns Aðalsteins-
sonar á Seyðisfirði, sem er áttræð-
ur í dag, til hans Halla á Gerði,
eins og hann var einatt kallaður
og er enn af sumum. Hann var
kenndur við Vestdalsgerði, þar
sem hann sleit barnsskónum og
unglingsflíkum í skjóli Aðalbjarg-
ar móðursystur sinnar og Einars
sonar hennar, sem kom upp
greiðasölu á Eyrinni og verzlaði í
Rósuhúsi og síðar í Grúðabúð.
Það er gott að hlusta á Harald
segja frá þessum tímum á sinn
kankvísa hátt, spjalla um húsin og
mannlífið á Eyrinni, enda er hann
minnugur vel og aðalheimildar-
maður um það, sem sagt er um
Vestdalseyri í Sveitum og jörðum í
Múlaþingi II, og oftar hefur verið
leitað til hans um upplýsingar um
hana.
Það var nóg við að vera á
Eyrinni í þá daga og ósköp vel
hægt að hugsa sér Halla á Gerði
rölta um þessar slóðir, upp til
fjalls, niður í fjöru, beygja sig
eftir steini og fléygja út á fjörð-
inn, snudda kringum Gránufélags-
húsið eða slangra út fyrir Vest-
dalsá og sveima um bryggjustúfa
og sjóhús. Það gat allteins verið,
að hann kæmi við í Grúðahúsum,
þar sem kínalífselexírinn var lag-
aður í eina tíð og Valdimar
Petersen átti heima, eða hann liti
t>etta geröist
20. janúar
1977 — Jimmy Carter vinnur eið
sem 39. forseti Bandaríkjanna.
1969 — Nixon vinnur eið sem 37.
forseti Bandaríkjanna.
1961 — John Kennedy vinnur
eið sem 35. forseti Bandaríkj-
anna.
1953 — Eisenhower vinnur eið
sem 34. forseti Bandaríkjanna.
1941 — Franklin D. Roosevelt
verður fyrsti bandaríski forset-
inn sem er kjörinn þriðja kjör-
tímabilið.
1936 — Georg V. konungur
Bretlands deyr.
1926 — Landkönnuðurinn
Charles Doughty andast. Ný lög
eru sett í Tyrklandi undir for-
ystu Kemals Ataturks.
1925 — Rússar og Japanir gera
bandalag. Bretar og Kínverjar
skrifa undir samstarfssamning í
Peking.
1839 — Chile vinnur bardagann
við Yungay gegn Perú-Bólivíu-
sambandsríkinu, og verður úr að
bandalagið splundrast síðan.
1265 — Enska þingið kemur
saman fyrsta sinni.
Afmæli — Jean Jacques Bar-
thelemym, franskur höfundur,
1716—1795 — Paul Cambon,
franskur stjórnmálamaður,
1834—1924 — Patricia Neal,
bandarísk leikkona, 1926.
Innlent — F. Benedikt Sveins-
son 1826 — Englendingum heim-
ilað að sigla til íslands til
verzlunar samkvæmt samningi
víð ■ Dani 1490 — D. Stefán
Stefánsson skólameistari 1921 —
Pétur Jónsson ráðherra frá
Gautlöndum 1922 — Formaður
verkalýðsfélags Keflavíkur tek-
inn með valdi um nótt og fluttur
til Reykjavíkur 1932 — Sorpbíll
ekur á Snarfara 1972 — F. Jakob
Jónsson, dr. theol. 1904.
Orð dagsins — Gerðu það, sem
þér finnst í hjarta þínu að sé rétt
— þú verður gagnrýnd hvort
sem er — Elenor Roosevelt
(1884-1962).
inn í Smiðju hjá Oddi beyki, sem
hafði svarta bletti á handarbökun-
um eftir beykishöggin, og ef til vill
hefur hann staldrað við hjá Guð-
nýju á Grund og hlustað á hana
kalla kiða-kið á eftir geitunum
sínum, er þær leituðu til fjalls.
Það gat jafnvel verið ómaksins
vert að skjótast eftir skrohönk
fyrir Elíeser í Litlu-Pétursborg og
fá vísu í staðinn:
Haraldur er heiðursmaður.
heppinn. ungur. vænn og glaður.
Aðalsteins er arfinn knár.
viðmótsþýður. velskapaður.
af verkum dyggAa hvergi staður:
farsæld styðji’ hann öll hans ár.
Ég get ekki betur séð en vísan
lýsi Haraldi vel ungum sem göml-
um. Það er að minnsta kosti víst,
að hann var heppinn, er hann fékk
gjörvulega og lyndisprúða horn-
firska blómarós, Sigurbjörgu
Björnsdóttur, til þess að fylgja sér
á lífsbrautinni, fyrst á Gerði og
síðan yfir fjörðinn á kreppuárun-
um. Og það fóru smám saman
fleiri og fleiri, uns enginn varð
eftir og tómlegt varð á Eyrinni,
eins og Vilborg frá Hjalla hefur
ort um á sinn nærfærna hátt og
byrjar svona:
Tómlegt varð á Eyrinni
þegar íjölskyldurnar
hver af annarri
fluttu burt
sumar yfir fjörðinn
aðrar tii Reykjavíkur
húsin urðu eftir.
Og nú er Halli á Gerði orðinn
áttræður, hefur gengið lífsbraut
sína ótrauður, unnið eins og þjark-
ur og yppt öxlum við smámunum.
Hann er ennþá beinn í baki og
hnarreistur og göngulagið ákveð-
ið, svipurinn festulegur og um leið
kíminn, smáertinn í svörum.
Ég kynntist þeim hjónum, þegar
þau voru komin yfir fjörðinn. Þau
kynni hafa haldist ætíð siðan, þó
að áratugir liðu jafnvel milli
funda. Ég þakka Haraldi og Sigur-
björgu, þessari sívökulu baráttu-
konu í verkalýðsmálum, fyrir
þessi dýrmætu kynni, elskusemi
þeirra og hlýju og framar öðru
fyrir mjólkurglösin mörg og vel
full, sem rétt voru að mér forðum
tíð. Ég færi þeim báðum ham-
ingjuóskir á merkisdegi. Farsæld
styðji þau á ókomnum árum.
Grímur M. Helgason.
Haraldur Aðalsteinsson verka-
maður, Miðtúni 4, Seyðisfirði, er
áttræður í dag. Haraldur er fædd-
ur aldamótaárið hinn 20. janúar
að Vestdalsgerði á Vestdalseyri
við Seyðisfjörð.
Foreldrar Haralds voru þau
Þóra Einarsdóttir og Aðalsteinn
Jónasson, bæði ættuð úr Þingeyj-
arsýslum.
Barnungur var Haraldur tekinn
til fósturs hjá móðursystur sinni,
Aðalbjörgu Einarsdóttur, og syni
hennar, Einari Helgasyni, en þau
bjuggu á Vestdalseyri.
Á síðari hluta 19. aldar lá
straumur fólks úr harðbýlli sveit-
um norðaustan- og austanlands
einkum til Seyðisfjarðar, sem þá
var m.a. ein „aðalútflutningshöfn"
Ameríkufara. Mun svo hafa verið
um margt ættmenna Haralds,
m.a. móðurfólk hans.
Þá kom það og fyrir að fólk
ílentist í útflutningshöfnum með-
an beðið var skipskomu og er
getum að því leitt að svo hafi farið
um fósturfólk Haralds.
Haraldur ólst upp á Vestdals-
eyri, sem um þær mundir var
mjög upprennandi kaupsýslu-
staðúr, auk nokkurrar útgerðar,
sem þaðan var stunduð. Árið 1926
gekk Haraldur að eiga sína ágætu
konu, Sigurbjörgu Björnsdóttur
frá Hömrum á Mýrum í Horna-
firði.
Þau Haraldur og Sigurbjörg
hafa búið allan sinn búskap á
Seyðisfirði, fyrstu átta árin
bjuggu þau á Vestdalseyrinni, þar
fæddist eldri sonur þeirra, Aðal-
björn, 1929, en fluttust 1934 inn á
Búðareyrina að Austurvegi 48 (þá
hús Sigurðar Arngrímssonar, en
nú Gunnlaugs Jónassónar), þar
bjuggu þau í IV2 ár og þar fæddist
þeim síðari sonurinn, Leifur raf-
virkjameistari á Seyðisfirði.
Þá fluttust þau á loftið, eins og
það var þá kallað, í Breiðabliki
(húsi Guðmundar Benediktssonar,
gullsmiðs). Eftir 1 ‘/2 árs búsetu í
Breiðabliki fóru þau að Hafnar-
götu 32 (hús Kristjáns Isfelds) og
nokkru síðar var ráðist í að kaupa
það hús. Að Hafnargötu 32 bjó
síðan fjölskyldan í 41 ár eða þar
tii þessi heiðurshjón réðust í það
stórvirki, bæði á áttræðisaldri, að
byggja nýtt hús. Og með þraut-
seigju og dugnaði tókst þeim að ná
markmiðinu, hinn 16. des. 1978
fluttust þau inn í nýtt og stór-
myndarlegt einbýlishús að Mið-
túni 4, þá var Sigurborg á 73.
aldursári og Haraldur á því 78., og
þó undirrituðum sé kunnugt um
dyggilega aðstoð sonar þeirra
Leifs við húsbygginguna, þá svall
þeim gömlu hjónum allan tímann
móður í brjósti og ekki var hægt
að unna sér hvíldar fyrr en að
þessu verki loknu. Slík framtaks-
semi er eftirtektarverð og gerir
jafnvel öðru og yngra fólki skömm
til.
Árið 1923—’24 sótti Haraldur
námskeið í skipstjórnarfræðum á
Eskifirði og var næstu árin þar á
eftir stýrimaður og skipstjórnar-
maður á bátum allt að 30 smálest-
um, gerði raunar sjálfur út slíka
báta á meðan þau hjón bjuggu á
Vestdalseyri.
Um haustið 1934 sigldu 4 nýir
bátar inn á Seyðisfjörð, svonefnd-
ir Samvinnubátar. Eftir þessum
bátum var víða tekið næstu árin,
enda miklar vonir við þá bundnar
en nöfn þeirra voru eftirfarandi:
Valþór, Vingþór, Sæþór, Gullþór
og Sindri nokkru siðar.
Við útgerð Samvinnubátanna
starfaði Haraldur næstu árin
bæði sem sjómaður og landmaður.
á vetrarvertíð frá Hornafirði og
Suðurnesjum og síldarvertíð fyrir
Norðurlandi.
Heimsstyrjöldin síðari skall á
og hefur líklega reynst Seyðisfirði
mestur bölvaldur í atvinnu- og
búsetulegu tilliti. í . stað heil-
brigðrar íslenskrar atvinnuupp-
byggingar til sjós og lands kom nú
bretavinna með hermangi og
gróðahyggju. Útgerð og fiskiðn
lögðust af að mestu og meðal
þeirra sem nauðugir sóttu breta-
vinnu sér og sínum til framfærslu
var Haraldur Aðalsteinsson. Eftir
að setuliðið yfirgaf Seyðisfjörð
starfaði Haraldur hjá Skipa-
smíðastöð Austfjarða um skeið,
síðan kom blessuð síldin að nýju
og meðan hún veiddist var Har-
aldur við störf hjá Síldarsöltun-
arstöð Sveins Benediktssonar í
Seyðisfirði, Haföldunni, síðan aft-
ur hjá Skipasmíðastöð Austfjarða
og loks frá 1969 við Fiskvinnsluna
h/f fram á þennan dag.
Vissulega mætti rita langt mál
um líf og starf Haralds Aðal-
steinssonar. Yfirlætisleysi og
strangheiðarleiki í orðum og gerð-
um ásamt vinnusemi eru aðals-
merki hans, en undir blundar
gáski og skopskyn, sem fyllir
frásagnir hans frá gömlum tíma
lífi og fjöri.
Ekki verður svo skilist við þessa
afmæliskveðju að Sigurbjargar sé
ekki getið að verðleikum. Hygg ég
með fullum sanni, að Haraldur
hafi verið gæfumaður í sínu einka-
lífi með Sigurbjörgu Björnsdóttur
sér við hlið.
Ég veit að ég mæli fyrir munn
allra Seyðfirðinga, þegar ég óska
þér og fjölskyldu þinni, Haraldur,
til hamingju með þessi tímamót
og vona að ævikvöldið megi verða
bjart og fagurt.
Jónas Hallgrímsson.
bæjarstjóri.
EF ÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al'GLYSINGA-
SÍMINN RR:
22480
í dag sunnudag
sýnum við nýju 1980 árgerðirnar af
Starlet, — Tercel — Corolla
og Cressida Hardtop og Corolia Liftback.
Toyota umboóið kynnir um leið Þjónustuverkstæði
Toyota, ásamt Söludeild notaðra bíla.
Sunnudag frá kl. 10.00 -17.00
Odýrari varahlutir
^TOYOTA
UMBOÐIO
NÝBYLAVEGi 8
KÖPAVOGi
SÍMI 44144
Betrl gæðl — og fljótari þjónusta -
það er elnkennl TOYOTA