Morgunblaðið - 16.03.1980, Blaðsíða 1
Sunnudagur
16. marz
Bls. 33—64
” Fjórtán
gamlir menn
hafa
heimsfriðinn
í hendi sér 44
” Bifreiðar
þeirra hafa af-
not af miðak-
greininni44
”Þeir vita
mjög lítið um
veröldina 44
” Enginn
hefur eftirlit
með þeim 44
Jurij, sonur Brósnéffs. Til marks um
peningaráð hans er sagt aö hann hafi
gefið þjóni á næturklúbb í París 100
Bandaríkjadali í þjórfé, sem eru hálf
mánaðarlaun verkamanns í Sovétríkj-
unum.
Miðakreinm á breíðstrætum Moskvu, sem öldungarnir hafa einir afnot af ásamt
slökkviliði og lögreglu.
Sjá nœstu
síðU—^^|
OLDUNfiAVELOIfi I
SOVETRÍKJUNUM
Sovétríkjunum er stjórnað af 14 gömlum
I mönnum. Þeir njóta forréttinda, sem þekkjast
1 hvergi annars staðar í heiminum. Bifreiðar
j þeirra hafa afnot af miðakreininni á breiðstræt-
um Moskvu, sem ætlaðar eru lögreglu og
j slökkviliði. Þegar þeir eru á ferð fær umferðar-
j lögreglan aðvörun um útvarp, stillir öll umferð-
I arljós á grænt og beinir öðrum vegfarendum út á
. vegarbrún.
Yfirstéttarfólkið í Sovétríkjunum býr í hverj-
I um, sem eru einangruð með járngirðingum og
undir eftirliti varðmanna. Það hefur yfir að ráða
ríkisbifreiðum og þjónum, hefur sérstakar
verzlanir með varning frá Vesturlöndum og
hefur vegabréf, sem gerir því kleift að ferðast til
útlanda.
Þetta er sagan um öldungaveldið í Sovétríkj-
unum, öldungana 14, sem öllu ráða og aðra þá,
sem byggja upp valdakerfið þar í landi og
margir eru af sömu ættum og stjórnuðu þessu
víðlenda ríki fyrjr byltinguna.