Morgunblaðið - 16.03.1980, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.03.1980, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1980 53 Akranesbátar: Góður afli í þorskanet Ákranesi. 13. marz. TOGARINN Haraldur Böðv- arsson AK 12 landaði hér í gær 150 lestum af karfa. sem aflað var á 3—4 dögum. Nú hefur Síldar- og fiskimjöls- verksmiðjan hf. tekið á móti 25 þúsund lestum aí loðnu til vinnslu. Afli í þorskanet hefur verið mjög góður að undanförnu og hafa bátar fengið 15—36 lestir eftir sólarhringinn og hefur það ekki gerst hér í mörg ár. Þorskurinn er einnig stærri en áður og virðist stofninn vera vaxandi. Júlíus. Guðríður Ólafsdótt- ir-Minn- ingarorð Fædd 28. október 1924. Dáin 10. marz 1980. Við viljum með þessum línum votta minningu hennar, þakkir okkar og virðingu fyrir langt og gott samstarf. Það má með sanni segja að Guðríður Ólafsdóttir gróf ekki talentu sína í jörð, því það var undravert hve verkdrjúg og vandvirk hún var, þrátt fyrir langvarandi vanheilsu og skert líkamsþrek. Meðfætt glaðlyndi henna og velvild í garð okkar allra sem með henni unnum, bar þess vott hve miklu sálarþreki og skapstyrk þessi kona var gædd, því aldrei möglaði hún né kvartaði fyrir sjálfa sig, en lagði lítilmagn- anum liðsyrði og kom fram til góðs gagnvart þeim sem bágt áttu. Það er mikilsvert fyrir mann- margar stofnanir að hafa starfs- fólk sem er eins grandvart í orði sem Guðríður var, aldrei tók hún þátt í að baktala fólk eða niðra á nokkurn hátt. Hún var saungvin og virtist geta glaðst við allt sem gott er. Við viljum færa henni þakkir alls starfsfólks sem hún hefur unnið með, bæði í eldhúsi og á ræstingadeild Kópavogshælis. Einnig viljum við votta samúð okkar syni hennar, aldraðri móður og öðrum aðstandendum. Gyðríður Þorsteinsdóttir, Valgerður Guðjónsdóttir. hefur örugglega hlotið gott upp- eldi, því að bæði erfðir og uppeld- isáhrif, hljóta að hafa haft áhrif á mótun hennar eiginleika. Hún fór snemma að vinna fyrir sér við ýmis störf, en lengst af hefur hún unnið á sjúkrahúsum hér og í Danmörku. Gauja lætur eftir sig einn son, efnis þilt, Ingólf Þór Björnsson, sem varð 20 ára s.l. föstudag. Hann bjó með móður sinni og var hennar stolt. Það mætti vera okkur, sem teljumst hraust, mikill lærdómur að hafa kynnst Gauju. Að sjá þvílíka elju, lífsgleði og hetjulund hún sýndi alla tíð, þrátt fyrir skerta orku. Að leiðarlokum viljum við ættingjar hennar og vinir þakka henni fyrir að miðla okkur af ótrúlegum sálarkröftum, miðað við þá heilsu sem hún bjó við. Fjölskylda mín og mágkonu minnar, Elísabetu Elíasdóttur, þakkar henni fyrir trygglyndi og gæzku, sem hún sýndi okkur alla tíð. Við biðjum guð að styrkja son hennar Ingó og aldraða móður Sigríði í sorg þeirra. Við sendum innilegar samúðarkveðjur til systkina og annarra vandamanna. Guðmundur Snorrason. Guðrún Þorsteins- dóttir — Kveðja Frænka mín Gauja verður jarðsett á morgun. Hún lést skyndilega s.l. mánudagsmorgun, eftir að hafa kennt sér lasleika að undanförnu, en þó getað stundað sína vinnu á Kópavogshæli, þar sem hún hefur unnið um langa Fædd 6. júní 1911. Dáin 7. marz 1980. Hvað okkur finnst ótrúlegt að Gunna amma sé horfin okkur. Hún sem alltaf var reiðubúin að fórna tíma sínum fyrir okkur. Heimili hennar og afa stóð okkur alltaf opið, fullt af hlýju og yl. Hún passaði okkur þegar við vorum lítil, spilaði við okkur, lék sér og gerði að gamni sínu með okkur. Alltaf vildi hún gefa okkur það besta sem hún átti, án þess að krefjast neins í staðinn. Þegar við minnumst hennar munum við ávallt minnast hlýju hennar, kærleika, glaðværðar og óeigingirni. Við þökkum henni öll árin sem hún gaf okkur, hún elsku amma, og við óskum þess að öll börn ættu jafn góða ömmu og hún Gunna amma var okkur. Blessuð sé minning hennar. Kveðja frá barnabörnum. hríð og mat þann vinnustað mikils og fólkið, sem þar var. Við vorum saman ánægjulega kvöldstund á föstudaginn áður en hún dó og var hún þá hress og kát að vanda. Hún kvartaði þó ekki um heilsu sína eins og hennar var von og vísa. Hún var þannig gerð að hún vildi líkna öðrum, en ekki tíunda sína eigin erfiðleika. Gauja var dóttir hjónanna Sig- ríðar Tómasdóttur frá Vík í Mýr- dal, móðursystur minnar og Ólafs Bjarnasonar frá Hörgsdal á Síðu, þau eignuðust 14 börn og komust 12 af þeim til fullorðinsára. Gauja var alin upp hjá móðursystur okkar Ingibjörgu Tómasdóttur og manni hennar Þórði Þorlákssyni bónda að Hryggjum í Mýrdal. Hún 40-80% AFSLÁTTUR Á ÖLLUM VÖRUM VERZLUNARINNAR. KOMDU STRAX OG GERÐU REYFARAKAUP BANKASTRÆTI 14 — s. 25580

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.