Morgunblaðið - 16.03.1980, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1980
53
Akranesbátar:
Góður afli
í þorskanet
Ákranesi. 13. marz.
TOGARINN Haraldur Böðv-
arsson AK 12 landaði hér í
gær 150 lestum af karfa. sem
aflað var á 3—4 dögum. Nú
hefur Síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjan hf. tekið á móti
25 þúsund lestum aí loðnu til
vinnslu.
Afli í þorskanet hefur verið
mjög góður að undanförnu og hafa
bátar fengið 15—36 lestir eftir
sólarhringinn og hefur það ekki
gerst hér í mörg ár. Þorskurinn er
einnig stærri en áður og virðist
stofninn vera vaxandi.
Júlíus.
Guðríður
Ólafsdótt-
ir-Minn-
ingarorð
Fædd 28. október 1924.
Dáin 10. marz 1980.
Við viljum með þessum línum
votta minningu hennar, þakkir
okkar og virðingu fyrir langt og
gott samstarf. Það má með sanni
segja að Guðríður Ólafsdóttir gróf
ekki talentu sína í jörð, því það
var undravert hve verkdrjúg og
vandvirk hún var, þrátt fyrir
langvarandi vanheilsu og skert
líkamsþrek. Meðfætt glaðlyndi
henna og velvild í garð okkar allra
sem með henni unnum, bar þess
vott hve miklu sálarþreki og
skapstyrk þessi kona var gædd,
því aldrei möglaði hún né kvartaði
fyrir sjálfa sig, en lagði lítilmagn-
anum liðsyrði og kom fram til
góðs gagnvart þeim sem bágt áttu.
Það er mikilsvert fyrir mann-
margar stofnanir að hafa starfs-
fólk sem er eins grandvart í orði
sem Guðríður var, aldrei tók hún
þátt í að baktala fólk eða niðra á
nokkurn hátt. Hún var saungvin
og virtist geta glaðst við allt sem
gott er. Við viljum færa henni
þakkir alls starfsfólks sem hún
hefur unnið með, bæði í eldhúsi og
á ræstingadeild Kópavogshælis.
Einnig viljum við votta samúð
okkar syni hennar, aldraðri móður
og öðrum aðstandendum.
Gyðríður Þorsteinsdóttir,
Valgerður Guðjónsdóttir.
hefur örugglega hlotið gott upp-
eldi, því að bæði erfðir og uppeld-
isáhrif, hljóta að hafa haft áhrif á
mótun hennar eiginleika. Hún fór
snemma að vinna fyrir sér við
ýmis störf, en lengst af hefur hún
unnið á sjúkrahúsum hér og í
Danmörku.
Gauja lætur eftir sig einn son,
efnis þilt, Ingólf Þór Björnsson,
sem varð 20 ára s.l. föstudag.
Hann bjó með móður sinni og var
hennar stolt. Það mætti vera
okkur, sem teljumst hraust, mikill
lærdómur að hafa kynnst Gauju.
Að sjá þvílíka elju, lífsgleði og
hetjulund hún sýndi alla tíð, þrátt
fyrir skerta orku. Að leiðarlokum
viljum við ættingjar hennar og
vinir þakka henni fyrir að miðla
okkur af ótrúlegum sálarkröftum,
miðað við þá heilsu sem hún bjó
við.
Fjölskylda mín og mágkonu
minnar, Elísabetu Elíasdóttur,
þakkar henni fyrir trygglyndi og
gæzku, sem hún sýndi okkur alla
tíð. Við biðjum guð að styrkja son
hennar Ingó og aldraða móður
Sigríði í sorg þeirra. Við sendum
innilegar samúðarkveðjur til
systkina og annarra vandamanna.
Guðmundur Snorrason.
Guðrún Þorsteins-
dóttir — Kveðja
Frænka mín Gauja verður
jarðsett á morgun. Hún lést
skyndilega s.l. mánudagsmorgun,
eftir að hafa kennt sér lasleika að
undanförnu, en þó getað stundað
sína vinnu á Kópavogshæli, þar
sem hún hefur unnið um langa
Fædd 6. júní 1911.
Dáin 7. marz 1980.
Hvað okkur finnst ótrúlegt að
Gunna amma sé horfin okkur.
Hún sem alltaf var reiðubúin að
fórna tíma sínum fyrir okkur.
Heimili hennar og afa stóð okkur
alltaf opið, fullt af hlýju og yl.
Hún passaði okkur þegar við
vorum lítil, spilaði við okkur, lék
sér og gerði að gamni sínu með
okkur. Alltaf vildi hún gefa okkur
það besta sem hún átti, án þess að
krefjast neins í staðinn.
Þegar við minnumst hennar
munum við ávallt minnast hlýju
hennar, kærleika, glaðværðar og
óeigingirni.
Við þökkum henni öll árin sem
hún gaf okkur, hún elsku amma,
og við óskum þess að öll börn ættu
jafn góða ömmu og hún Gunna
amma var okkur.
Blessuð sé minning hennar.
Kveðja frá barnabörnum.
hríð og mat þann vinnustað mikils
og fólkið, sem þar var. Við vorum
saman ánægjulega kvöldstund á
föstudaginn áður en hún dó og var
hún þá hress og kát að vanda.
Hún kvartaði þó ekki um heilsu
sína eins og hennar var von og
vísa. Hún var þannig gerð að hún
vildi líkna öðrum, en ekki tíunda
sína eigin erfiðleika.
Gauja var dóttir hjónanna Sig-
ríðar Tómasdóttur frá Vík í Mýr-
dal, móðursystur minnar og Ólafs
Bjarnasonar frá Hörgsdal á Síðu,
þau eignuðust 14 börn og komust
12 af þeim til fullorðinsára. Gauja
var alin upp hjá móðursystur
okkar Ingibjörgu Tómasdóttur og
manni hennar Þórði Þorlákssyni
bónda að Hryggjum í Mýrdal. Hún
40-80% AFSLÁTTUR
Á ÖLLUM VÖRUM VERZLUNARINNAR.
KOMDU STRAX OG GERÐU REYFARAKAUP
BANKASTRÆTI 14 — s. 25580