Morgunblaðið - 16.03.1980, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MARZ 1980
51
skáka einvígi um þriðja sætið. Sú
keppni fór fram í Búdapest og eins
og flestir bjuggust við tók Ribli
strax örugga forystu og hafði tvo
vinninga yfir eftir þrjár skákir.
En þá virtist sem andinn frá Riga
rynni á Adorjan enn á ný. Hann
vann tvær næstu skákir og þótt
þeirri síðustu lyki með jafntefli
komst hann áfram vegna hag-
stæðari Sonneborn-Berger stiga á
mótinu í Riga.
Það verður að segjast eins og er
að möguleika Adorjans í einvíginu
við Hiibner verður að telja mjög
litla ef skákferill beggja er tekinn
með í reikninginn. En Adorjan
hefur þegar sýnt að viljinn getur
stundum flutt fjöll og þegar öðr-
um eru öllum sund lokuð, er hann
fyrst að hefja keppni.
Robert
Htibner
Þeir tímar virðast nú vera liðnir
er öflugustu skákmennirnir voru
venjulega hámenntaðir menn sem
auk þess að taka þátt í einu eða
tveim skákmótum á ári voru
uppteknir í háskólum eða við
önnur störf er kröfðust flókinnar
tæknimenntunar. Nú er skáklistin
orðin svo krefjandi að hún hlýtur
að taka tíma skákmannsins
óskiptan, svo framarlega sem
hann hyggst keppa um æðstu
metorð. Að vísu bera nokkrir
stórmeistarar doktorsnafnbætur
en slíka menn er auðvitað ekki að
finna í áskorendakeppninni, þó
með einni undantekningu, en það
er vestur-þýzki stórmeistarinn dr.
Róbert Hbner.
A meðan flestir aðrir stórmeist-
arar hafa látið sér nægja að ljúka
menntun sinni, oft á næsta yfir-
borðskenndan hátt, er dr. Hubner
einn af lærðustu mönnum í sinni
fræðigrein, en það er ráðning
eldfornra papýrushandrita.
Robert Hubner, sem nú er 31
árs, þótti snemma efnilegur skák-
maður í heimalandi sínu. Hann
var t.d. sendur til þátttöku á
heimsmeistaramóti unglir.ga árið
1967 og þótti þar sigurstranglegur
því að austantjaldsþjóðirnar
sendu ekki fulltrúa. Hubner varð
þó að sjá á bak Kaplan frá Puerto
Rico og eftir þetta tók hann ekki
þátt í fleiri unglingamótum.
Á næstu árum tók hann ótrú-
lega skjótum framförum og strax
árið eftir varð hann efstur á
alþjóðlegu móti í Busum í Vestur-
Þýzkalandi. Árið 1969 var hann
sæmdur alþjóðlegum meistaratitli
og sama ár tókst honum öllum að
óvörum að komast áfram í milli-
svæðamót af svæðamótinu í
Aþenu, þar sem hann lenti í öðru
til þriðja sæti ásamt Hort á eftir
Matulovic.
En þó að þessi frábæri árangur
hafi komið mörgum á óvart rak
menn í rogastans árið eftir er þeir
fylgdust með gengi Húbners á
millisvæðamótinu á Mallorca. Á
tímabili ógnaði hann jafnvel sjálf-
um Fischer og hann endaði í öðru
til fjórða sæti ásamt þeim Larsen
og Geller. Þetta var svo sannar-
lega óvæntur árangur hjá alþjóð-
legum meistara, enda var
Alþjóðaskáksambandið ekki lengi
að veita Húbner stórmeistara-
nafnbót. Eftir áramótin 1970/71
tók Húbner þátt í hinu geysiöfluga
Wijk aan Zee skákmóti og hafnaði
í 6—9. sæti sem var mjög sóma-
samlegur árangur.
Um vorið fékk hann síðan
eldskírn sína í áskorendakeppn-
inni. Andstæðingur hans var engu
minni maður en Petrosjan, sem
tveimur árum áður hafði tapað
heimsmeistaratitlinum til Spassk-
ys. Fáir bjuggust við því að róður
Petrosjans yrði þungur gegn þjóð-
verjanum unga, en það fór þó að
mörgu leyti á annan hátt. sú
leikaðferð heimsmeistarans fyrr-
verandi að svæfa andstæðinginn
með jafnteflum virtist ekkert bíta
á Hubner og í sex fyrstu skákun-
um hafði hann sýnt af sér síst
lakari taflmennsku. Húbner var
hins vegar mjög óánægður með
aðstæður á keppnisstað, þar sem
skákstaðurinn var beint undir
járnbrautarstöð. Þegar lestir
komu eða fóru var hávaðinn
hreint óþolandi að áliti Húbners.
Engin kvörtunarbréf bárust aftur
á móti frá Petrosjan. Hann er
heyrnardaufur og fann einfalda
lausn á vandanum, hann tók bara
heyrnartækið úr sambandi.
I sjöundu skákinni fékk Húbner
ágæta stöðu, en þá fannst honum
hávaðinn keyra um þverbak. Hann
fór fram á það við dómarann að
taflið yrði flutt, en ekki var orðið
við þeirri ósk hans. Hann lék
nokkru seinna gróflega af sér og
tapaði skákinni. Hann ákvað síðan
að hætta við frekari keppni og
tapaði því einvíginu með fjórum
vinningum gegn þremur auk þess
sem hann varð af því verðlaunafé
sem komið hefði í hans hlut.
Næstu árin tefldi hann lítið,
enda upptekinn við nám sitt, en
1972 náði hann þeim ágæta ár-
angri að verða efstur fyrsta borðs
manna á Ólympíumótinu í Skopje.
Sætasti sigurinn þar hefur vafa-
laust verið er hanrí felldi Petrosj-
an á tíma í jafnteflisstöðu, en það
mun vera eini ósigur Petrosjans á
Ólympíumóti frá upphafi og hefur
hann þó teflt í ófáum slíkum.
Á millisvæðamótinu í Len-
ingrad árið eftir stóð Húbner sig
ágætlega og lenti í 5—6. sæti
ásamt Larsen og hann var sá eini
sem tókst að koma Karpov í
taphættu, þó að ekki kæmist hann
áfram. Húbner varð síðan efstur á
alþjóðlegu skákmótunum í Ósló og
Houston árið eftir en sem áður
tefldi hann lítið miðað við flesta
aðra stórmeistara.
Á millisvæðamótinu í Biel 1976
vegnaði honum framan af mjög
vel, allt þar til undir lokin að hann
mætti gömlum kunningja, Tigran
Petrosjan. Húbner fékk gjörunnið
tafl eftir byrjunina, fékk tvö peð
yfir og sókn. En á úrslitastundu
sást honum yfir þvingað mát,
hann lék hroðalega af sér og
skyndilega var það kóngur hans
sjálfs sem lenti í mátneti. Hann
varð því að sætta sig við 5—7.
sætið á mótinu, hálfum vinningi
lægri en þeir sem tefldu til úrslita
um tvö sæti.
Húbner var að vonum sár yfir
þessum málalokum og einbeitti
sér nú 'að fræðigrein sinni. Hann
fékk styrk frá þýzka ríkinu til
rannsókna og því gafst lítill tími
til skákiðkana.
1977 tók hann þó þátt í tveimur
öflugum skákmótum í Bad Lauter-
berg og Tilburg og stóð sig mjög
frambærilega í bæði skiptin. Svip-
að er að segja um árangur hans í
Bugojno og Tilburg 1978. Á því ári
hóf hann aftur að stunda skákina
af krafti og árangurinn lét að
sjálfsögðu ekki á sér standa.
Hann kom tvíefldur á svæða-
mótið í Luzern í sumar eftir að
hafa tekið þátt í risamótinu í
Montreal. Þar stóðst honum held-
ur enginn snúning að hann vann
bæði undanrásariðil sinn, svo og
úrslitin með geysilegum yfirburð-
um.
Á millisvæðamótinu í Ríó var
hann í svipuðu formi og náði
fyrsta til þriðja sæti ásamt þeim
Petrosjan og Portisch. Sem kunn-
ugt er var Guðmundur Sigurjóns-
son aðstoðarmaður hans á því
móti og mun einnig verða aðstoð-
armaður hans í einvíginu við
Adorjan svo framarlega sem að
það rekst ekki á við Reykja-
víkurskákmótið í febrúar. Það er
því ekki laust við að við íslend-
ingar eigum nokkurn þátt í vel-
gengni Húbners og getum verið
stoltir af, því hann hefur sýnt að
hann er til alls vís svo framarlega
sem hann gefur sér tíma til þess
að sinna skákinni fyrir alvöru.
Segja má að hann hafi verið
mjög heppinn með andstæðing í
fyrstu umferð áskorendakeppn-
innar, þar sem Adorjan er, því að
Ungverjinn er langstigalægstur
allra þátttakendanna auk þess
sem hann er eini nýgræðingprinn í
áskorendakeppninni að þessu
sinni.
Westinghouse
hitavatnsdunkar
Höfum fyrirliggjandi Westinghouse
hitavatnsdunka í 4 stæróum:
TR 221 20 gallon - 80 lítrar
TL 522 52 gallon - 200 lítrar
TL 622 66 gallon - 250 lítrar
TL 822 82 gallon - 300 lítrar
Vandlátir velja Westinghouse
KOMIÐ-HRINGIÐ-SKRIFIÐ
vió veitum allar nánari upplýsingar.
Kaupfélögin um allt land
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reyk/avik Simi 38900
Gjöfin
sem gleður
Kodak EKTRA
vasamyndavél með handfangi
KodakEKTRA
vasamyndavélarnar
eru í tösku, sem myndar
handfang þegar hún opnast.
Þú nærð þannig trausti taki
á vélinni og hún verður
stöðugri og þú tekur betri
og skarpari myndir.
Skemmtileg gjöf
sem á eftir aö veita
ómældar ánægjustundir.
Verð frá
kr. 18.180 —43.920
UMBOÐSMENN UM ALLT LAND
HANS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI
S: 20313
AUSTURVER
S: 36161
GLÆSIBÆR
S: 82590