Morgunblaðið - 30.03.1980, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.03.1980, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐ’ SUNNUDAGUR 30. MARZ 1980 70 ára: Jónas Geir Jóns- son íþróttakennari Það er ágætur siður hjá okkur íslendingum, þótt misjafnlega takist til, að fara nokkrum orðum um hvern annan, þegar merkisaf- mæli ber að höndum. Ég ætla að freista þess að segja nokkur orð um vin minn, Jónas Geir, íþróttakennara hér á Húsa- vík, en hann verður 70 ára núna 31. mars. Svo ég byrji á byrjuninni þá er Jónas Geir fæddur að Rifkels- stöðum í Öngulstaðahreppi í Eyja- fjarðarsýslu. Að honum standa sterkir stofnar. Hann er Eyfirð- ingur í móðurætt, en í föðurætt er hann Þingeyingur, — af Skútu- staðaætt. Afi hans, Hallgrímur Hall- grímsson var hreppstjóri í Öngul- staðahreppi í áratugi. Að Kaup- angi í Eyjafirði dvelur Jónas Geir ungdómsár sín, eða frá því hann er 6 ára til 18 ára aldurs, en þá leggur hann land undir fót og fer til Akureyrar. Hann stundar nám í Gagnfræðaskóla Akureyrar og vinnur fyrir sér við verksmiðju- störf í Krossanesi, hjá norskum, og í síldarvinnu á Siglufirði. Og ef ég fer fljótt yfir sögu þessara ára, enda þekki ég lítið til þess hvernig honum vegnaði í lífsbaráttunni fyrr en hann flytur hingað til Húsavíkur, þá er það, þegar hann er 22ja ára að hann ákveður lífsstarf sitt. Og það lífsstarf sem hann valdi sér hefur vérið okkur Húsvíking- um giftudrjúgt. Hugsandi mönnum á þeim tíma hefur sjálf- sagt ekki litist alltof vel á að ætla að leggja fyrir sig kennslu í íþróttum, en árið 1932 fer Jónas Geir til náms í íþróttaskólann að Laugarvatni. Björn Jakobsson frá Narfastöðum í Reykjadal hefur það ár stofnsett þennan skóla. Nemendur eru aðeins tveir þetta fyrsta ár, en auk Jónasar Geirs kemur þangað Ólafur Pétursson núverandi garðyrkjubóndi að Ökr- um í Mosfellssveit. Þessir tveir ungu menn útskrifast svo vorið 1933 og eru þarmeð fyrstu heima- menntuðu íþróttakennararnir á íslandi. Um þetta leyti er mikill áhugi hér á Húsavík fyrir öllum greinum íþrótta. í.f. Völsungur er stofn- aður 1927 og hefur að aðal mark- miði iðkun fótbolta. Frjálsar íþróttir eru lítt þekktar, sundiðk- un á við erfiðleika að stríða sökum aðstöðuleysis, skíði lítið stunduð og glíma líklega bara í heimahús- um. En eins og áður segir, áhuginn var fyrir hendi og potturinn og pannan í í.f. Völsungi er Jakob Havsteen, formaður, ásamt bróð- ur sínum, Jóhanni og fleiri ungum mönnum. Þeir bræður eru ekkert feimnir við hlutina og gangast fyrir því strax þegar Jónas Geir hefur lokið námi að hann er ráðinn hingað sem íþróttakennari félagsins og um leið við Barna- skóla Húsavíkur. Þar kennir hann einnig önnur fög í forföllum. Koma hans hingað varð í stuttu máli mikil lyftistöng fyrir íþrótta- líf staðarins og fór árangur að koma í ljós fljótlega í hinum ýmsu greinum íþrótta. Þeir Húsvíkingar, sem voru í leikfimikennslu hjá honum í gamla samkomuhúsinu, en kennsl- an fór fram í „litla salnum" niðri, minnast þeirra ánægjustunda enn þann dag í dag. Ferskur blær fylgdi honum, andrúmsloft, sem ekki var þekkt hér áður. Vel menntaður íþróttakennari var kominn til starfa og hugsaði sér gott til glóðarinnar. Jónas Geir hafði meðal annars kynnt sér handknattleik á Akureyri áður en hann kom hingað og komst hann fljótt að því að hér var góður efniviður til þerrar íþróttar, einkanlega leist honum vel á kvenfólkið. Og hann hóf að æfa kvennalið um vorið 1934 og gef ég honum sjálfum nú orðið um hvernig það gekk fyrir sig í stórum dráttum. „Hinn gamli handknattleikur var að mínum dómi skemmtilegri bæði að horfa á og vera með í. Þá lék maður á mann, en mörkin urðu að vísu færri. Núna fer leikurinn fram á öðrum hvorum vallarhelm- ingi, ýmist allir í sókn eða allir í vörn. Ein þvaga upp við mark, bitist, barist og fórnað höndum. En hvað gerðu þessar fyrstu valkyrjur Völsungs annað en leika sér í handknattleik? Ekki gátu þær lifað á honum? Nei, en máske fyrir hann. Þær unnu flestar í beituskúrunum. Stóðu við balann frá morgni til kvölds. Stundum gafst varla tími til að hafa fataskipti áður en hlaupið var útá völl. En þær fundu ráð við því. Beitingapilsin vour látin falla og þá komu handknattleiksbuksurn- ar í ljós. Matur varð að bíða betri tíma. Stundum var líka skroppið á völlinn, ef bíða þurfti eftir báti. Allar stundir voru notaðar. Og hvernig stóð á því að þessar ungu stúlkur lögðu svona mikið á sig fyrir íþróttina? Varla var hægt að búast við mörgum keppnisferðum eða stórsigrum er gæfu frægð í aðra hönd. Ferð til Akureyrar var meira fyrirtæki þá en að fara á milli landa nú í dag. Hér réði mestu ánægjan af leiknum, — holl útivera frá stöðu við bala eða búrbekk, — góð kynni við margan keppinaut og félagsskapur, sem ætíð hefur haldist síðan. Þar kom að við skyldum reyna hvar við stæðum í leiknum. Afráðin var ferð til Akureyrar 17. júní 1935. Ég get í fáum orðum sagt frá ferðinni og talið upp þær stúlkur, sem tóku þátt í henni, en engin mynd er til af þeim fríða flokki. Þær voru: Anna á Melum, Áslaug á Hóli, Regína og Stína Bjarna- dætur, Stjana Fúsa, Stjana Kobba, Guðný á Helgastöðum, Gunna í Braut, Þórhildur Skarp- héðins, Kæja í Traðagerði, Sigrún Páls og Fríða Stjana. Knatt- spyrnustrákar voru með í þessari för. Safnast var saman í lautinni við sýslumannshúsið áður en lagt var upp. Frú Þórunn gaf öllum kaffi er vildu og sýslumannshjón- in óskuðu hópnum góðrar ferðar. Farkosturinn var kassabíll, sem Sveinbjörn Helga ók. Með þessari ferð hófust ánægjuleg samskipti á milli í.f Völsungs og Akureyrar- félaganna, sem hafa haldist til þessa dags.“ Jónas Geir, ásamt þeim nöfnum Þórarni Þórarinssyni og Þórarni Sveinssyni á Eiðum, komu á íþróttasamskiptum milli Austfirð- inga og Þingeyinga árið 1936. Þessi mót fóru fram í mörg ár. Keppt var til skiptis á Húsavík og Páskabrauð Sérstakt kynningarverð á Myllubrauði fyrir páskana Ef þú ætlar í ferðalag út á land eða vilt eiga nóg af góðu brauði í frystikistunni yflr hátíðarnar hringir þú í síma 85078 kl. 2-4 og talar við Viðar. Hann aðstoðar þig við val á brauði sam- kvæmt neðangreindum pöntunarlista og þú sækir síðan glænýtt brauðið vel pakkað þegar þér hentar. r PÖNTUNARLISTI — Slmi 85078 1 □ Franskbrauö 18 □ ... Birkibrauö 35 □ ... Snittubrauö 52 □ Toskakökur 2 □ Formbrauð 19 □ ... Rúsínubrauð 36 □ ... Rúnnstykki 53 □ ... Marsarínukökur 3 □ Formbrauö, skorin 20 □ ... Rúgbrauð 12 sn. 37 □ do. m/birki 54 □ ... Kryddkökur 4 □ Samlokubrauö 21 □ ... Rúgbraúð 7 sn. 38 □ ... Heilhveitihorn 55 □ ... Vínartertur 5 □ Heilhveitibrauð 22 □ ... Maltbrauö 7 sn. 39 □ ... Kúmenhringir 56 □ ... Brúntertur 6 □ do. form 23 □ ... Snúðar 40 □ Tvíbökur 57 □ ... Rúllutertur 7 □ ..... Kornformbrauö 24 □ ... Vínarbrauð 41 □ Brauöbotnar 58 □ ... Hunangsrúllutertur 8 □ Skólabrauð 25 □ ... Sérbökuö vínarbrauð 42 □ ... Marensbotnar 59 □ ... Glassúrtertur 9 □ ... 1—1 Munkabrauð 26 □ ... Bollur 43 □ ... Svampbotnar 60 □ ... Sveskjutertur 10 □ r—1 do. skorin 27 □ ... r—i Butter-vlnarbrauð 44 □ Marenstoppar 61 □ Fimmlagatertur 11 □ ... Munchenarbrauö 28 □ ... Lengjur 45 □ Maccarónur 62 □ ... Djöflatertur 12 □ Bóndabrauö 29 □ ... Hringir 46 □ Sandkökur 63 □ ... .... Gráfíkjutertur 13 □ ... Maltbrauð 30 □ ... Smjörkökur 47 □ Marmarakökur 64 □ .... Gráfikjulengjur 14 □ Sigtibrauö 31 □ Vínarbr.lengjur st. 48 □ Brúnkökur 65 □ .... Tebollur 15 □ Hafrabrauö 32 □ ... Ávaxtalengjur 49 □ Jólakökur 66 □ .... Tartalettur 16 □ Heilkorns-rúgbrauö 33 □ ... Pylsubrauð 50 □ Möndlukökur 67 □ .... Rasp 17 □ ... Kúmenbrauö 34 □ ... Hamborgarabrauö 51 □ ... Hunangskökur 68 □ ... .... Rúgkex 4 HíuiicLn Verið velkomin Sértilboð sem gildir til 1. apríl BRAUÐ HF. - SKEIFUNNI11 - SÍMI 83277

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.