Morgunblaðið - 30.03.1980, Page 29

Morgunblaðið - 30.03.1980, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MARZ 1980 29 Minning: Pétur Valgarð Jóhanns- son, Bíldudal í dag, 22. marz, er þessar línur eru skrifaðar, fer fram minn- ingarathöfn í Isafjarðarkirkju um ísfirsku rækjusjómennina fjóra, sem fórust á ísafjarðardjúpi í mannskaðaveðrinu, er gekk yfir landið 25. feb. sl. Á föstudaginn langa, 4. apríl n.k., minnast Bild- dælingar sinna manna tveggja, er fórust þennan sama dag á Arnar- firði. Með hörmulegu fráfalli þessara sex vösku drengja er enn eitt skarð höggvið í raðir vestfirskra sjómanna. Það hefur oft skeð áður, að þeir hafi beðið lægri hlut í hetjulegri baráttu við ofurefli hamslausra náttúruafla, sem eng- inn mannlegur máttur fær staðist. Þannig hefur það ávallt verið — og verður, — hlutskipti sjómanns- ins: Vonin um góða lífsbjörg, erfiði og áhætta, sem höfða til hreysti og manndóms. Og þeir eru fleiri, sem hér eiga hlut að máli og deila með sjómanninum hlutskipti hans. Fjölskylda hans í landi, konan hans og börnin heima, foreldrar, systkini og aðrir ástvin- ir, sem bíða í von og bæn, að hverri sjóferð ljúki farsællega með fögnuði og feginleik við heim- komuna. Við vitum öll, að vonin og tilhlökkunin er oft blandin ótta og kvíða. íslensku vetrarveðrin eru hörð og mislynd, áhlaupin sneggri en við verði séð, jafnvel inni á fjörðunum okkar vestfirsku, þar sem kyrrð og fegurð er mest á íslandi á lognværum vor- og sumarkvöldum. Við þekkjum það vel, hve aðstæður sjómannskon- unnar hafa gert henni eiginlegt að bregðast við því, sem að höndum ber af kjarki og æðruleysi. Kannski veit hún og þekkir það betur en nokkur annar, hve „ör- stutt er bil milli blíðu og éls og brugðist getur lánið frá morgni til kvelds." Það er vel, að við búum í dag við betri og mannúðlegri þjóðfélags- aðstæður, heldur en áður var, þegar skipstapar leiddu iðulega til örbirgðar og upplausnar sjó- mannsfjölskyldnanna, sem eftir stóðu í sárum. Nógu mikill er samt missir þeirra, nógu sár harmur þeirra við snöggt og fyrirvara- laust fráfall nánustu ástvina. Á slíkum örlagastundum sameinast allir Islendingar í djúpri hryggð og einlægri samúð með þeim, er um sárast eiga að binda. Ég þekkti meira og minna til allra þessara sex ágætu ungu sjómanna, sem við nú höfum misst langt fyrir aldur fram. Með bræðrunum Ólafi og Valdimari Össurarsonum fékk ég í nóv. sl. far inn í Djúp, er þeir héldu- þangað á Gullfaxa sínum til rækjuveiða og lögðu mig af í Vigur í leiðinni. Ég var þeim þakklát fyrir greiðvikni þeirra og mér er í fersku minni, hve bæjarljósin á ísafirði spegluðust fallega í lá- dauðum sjávarfletinum, er við sigldum út Sundin snemma um morguninn. Pétur Valgarð Jóhannsson, er fórst ásamt Hjálmari Einarssyni með vélbátnum Vísi frá Bíldudal þennan skelfilega febrúardag, þekkti ég mjög vel. Pétur var einn af þessum mönnum, sem maður mat því meir, sem kynni við hann urðu lengri, yfirlætislaus, traust- ur og raungóður. Hann var fæddur á Bíldudal 17. ágúst 1935, sonur Jóhanns Jóhannssonar og Kristín- ar Pétursdóttur, Bjarnasonar skipstjóra á Bíldudal, mestu ágæt- iskonu. Ólst Pétur upp hjá móður sinni og eiginmanni hennar, Kristni Péturssyni. Sjómennskan var Pétri í blóð borin, hans ævistarf og lífsköllun. Á yngri árum stundaði hann um alllangt skeið sjóinn á ýmsum togurum frá Reykjavík, en var alla tíð heimilisfastur á Bíldudal. Arn- arfjörðurinn var honum ávallt einkar kær og tryggð hans við sína heimabyggð traust og fölskvalaus. Bíldudalur hefur oft átt í vök að verjast. í sögu hans hafa skipst á skin og skúrir og vart mun nokkurt annað byggðarlag á Islandi hafa orðið fyrir öðru eins áfalli og Þormóðsslysinu í febrúar—mánuði 1943, er 31 maður fórst, þar af 22 frá Bíldudal, eða nánast tíundi hver þorpsbúi. Þeirra á meðal voru margir helstu máttarstólpar at- vinnulífs á staðnum. Og þar voru tveir móðurbræður Péturs. Við fráfall Péturs Jóhannssonar nú sjá Bílddælingar á bak einum sinna dugmestu og farsælustu aflamanna. Dugnaði hans og elju var við brugðið og sjómenn sóttust eftir skipsrúmi hjá honum. Bar þar hvorttveggja til, að Pétur var jafnan aflahæstur á rækjuvertíð- inni og ekki síður hitt, hve gott orð hann hafði á sér sem afbragðs sjómaður, gætinn og traustur skipstjóri og góður félagi. Hjá Pétri var alltaf allt í lagi, enda vakað yfir hverjum hlut af ein- stakri samviskusemi og árvekni. Báturinn hans, Vísir, 16 tonna eikarbátur, smíðaður hjá Marsel- íusi 1943, hafði reynst honum mikil happafleyta, og Pétur búinn að endurbæta hann og endur- byggja, svo að allir vissu, að hann gaf ekki hinum yngri eftir að traustleika og sjófærni. í síðustu sjóferð Péturs á Vísi mun hann hafa átt varla meira en steinsnar ófarið í höfn, þegar yfir lauk í trylltum veðurham og sortaéli. Þar mátti víst ekki sköpum renna. í samtali nú á dögum við Sigríði, eftirlifandi konu Péturs, rifjaði hún upp gamlan draum, er hún hafði sagt mér fyrir nokkrum árum, en ég var búin að gleyma. Það var Kristínu, móður Péturs, sem dreymdi þennan draum, þeg- ar hún ung stúlka um tvítugt stundaði nám hér syðra við Kvennaskólann í Reykjavík. Kristínu fannst hún stödd heima á + Utför móður okkar CLÖRU BIRGITTE ÖRVAR Auöarstræti 7, verður gerð frá Fríkirkjunni, þriðjudaginn 1. apríl kl. 3 e.h. Anna Sigrún Örvar, Jóhanna Kjartansdóttir, Björn K. örvar. Útför móöur okkar, LUISE WENDEL, fædd RICKERT fer fram frá Kristkirkju, Landakoti, þriöjudaginn 1. aprít kl. 10.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaö. Þeim, sem vildu mlnnast hennar, er bent á Karmelsystur í Hafnarfiröi eða líknarfélög. Adolf Wendel, Ragna Wendel, Svanhild Wendel, Kristjén Wendel. Bíldudal og sá þá allt í einu sortaský, á himni, er bar fyrir frá suðvestri í átt til norðurfjalla. í skýinu sá hún bregða fyrir tölunni 1980. Kristín sagði tengdadóttur sinni frá þessum draumi, þegar Sigríður gekk með yngsta son þeirra Péturs, sem nú er fimm ára og ber nafn föður síns, Pétur Valgarð, en Pétri eldra sögðu þær aldrei drauminn. Kristín gerði sér vissar hugmyndir um þýðingu þessa draums, sem þó tengdust ekki á neinn hátt þeim mikla sorgardegi 25. feb. 1980. Með þeim mæðginum, Kristínu og Pétri var alla tíð mikið ástríki. Dvaldi hún löngum á sumrum með fjölskyldu hans heima á Bíldudal, eftir að hún fluttist búferlum til Reykja- víkur árið 1971. Kristín er látin fyrir þremur árum. Pétur var mikill hamingju- maður í sínu einkalífi. Árið 1959, 10. sept, gekk hann að eiga eftirlifandi eiginkonu sína, Sigríði Pálsdóttur, Hannessonar hrepp- stjóra á Bíldudal, af Vatnsfjarðar- ætt, og konu hans Báru Krist- jánsdóttur frá Húsavík, af þing- eyskum ættum. Sigríður er vel gefin mannkostakona og hjóna- band þeirra Péturs eins farsælt og hamingjuríkt og best varð á kosið, svo að þar bar aldrei skugga á. Pétur var einstakur heimilisfaðir og þau hjónin samhent í besta lagi, enda heimilisbragur allur til fyrirmyndar á hinu fallega og hlýlega heimili þeirra að Dalbraut 18 á Bíldudal. Þar liggur að baki þrotlaus vinna, ósérhlífni og um- hyggja fyrir heimili og fjölskyldu. Pétur Jóhannsson var hávaðalaus maður, hógvær og dagfarsprúður og lagði engum manni illt til. í vinahópi á góðri stund brá hanp þó gjarnan á glaðværð og glens og margar ánægjulegar minningar á ég, sem þessar línur skrifa um notalegt rabb að kvöldinu, þegar Pétur var kominn í land af sjónum, um menn og málefni, sjómennsku og aflabrögð og sitt- hvað fleira, er á döfinni var. Þau Pétur og Sigríður eignuðust fjögur falleg og mannvænleg börn. Þau eru: Páll Ægir 21 árs við nám í Stýrimánnaskóla Islands, mikill efnispiltur, með hugann allan við sjó og sjómennsku. Hann var ekki hár í loftinu, þegar hann hóf róðra með pabba sínum á Vísi. Hin þrjú yngri í föðurhúsum eru: Kristín 15 ára, Hannes Sigurður bráðum 10 ára, og svo litli Pétur Valgarð 5 ára. Pétur átti auk þess einn son, aður en hann kvæntist, Guðberg 27 ára, sem búsettur er á Tálkna- firði. Ég veit, að Sigríður hefur tekið þessu þunga áfalli eins og hetja, og víst á hún dýran auð í garði, þar sem er barnahópurinn hennar, sem nú nýtur styrks og huggunar undir verndarvæng kærleiksríkr- ar móður þessa sorgardaga. Ástríkir foreldrar hennar standa þeim öllum við hlið, sem og annað frændlið og vinir á Bíldudal. í svo litlu byggðarlagi á hvert manns- barn hlutdeild í sorg og söknuði ástvina hinna tveggja ágætis- manna, sem nú er séð á bak. Ég og fjölskylda mín vottum Sigríði vinkonu minni og hennar fólki öllu okkar innilegustu samúð og þökk fyrir elskulega vináttu á liðnum árum. Einnig Margréti Einarsdóttur, könu Hjálmars Ein- arssonar og ungu börnunum henn- ar fjórum. Sómamanninum Sigurði Gísla- syni frá Selárdal, heimilisvini þeirra Sigríðar og Péturs, sem búið hefur hjá þeim undanfarin ár að Dalbraut 18, sendi ég einnig einlægar samúðarkveðjur, vegna andláts Gests bróður hans, er fórst í bifreiðaslysi á Hálfdáni af völdum sama mannskaðaveðurs- ins, sem varð sjómönnunum sex að grandi. Góður Guð veiti ástvinum þeirra öllum huggun og styrk í sorg þeirra, kjark til að horfa vondjörf fram á veginn mót hækk- andi sól, — til vorsins í nánd. Sigurlaug Bjarnadóttir frá Vigur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.