Morgunblaðið - 02.04.1980, Page 1
64 SÍÐUR MEÐ 16 SÍÐNA ÚTSÝNARBLAÐI
78. tbl. 67. árg. MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Verður staðið við
forsjárskipti gísla?
WashinKton, Teheran 1. apr. AP.
CARTER Bandaríkjaforseti sagði
í kvöld að yfirlýsing íransstjórnar
varðandi forsjárflutning gislanna
í sendiráðinu benti til jákvæðrar
þróunar og hann myndi fresta að
grípa til frekari ráðstafana gegn
Iran. Fyrr í dag sagði Bani Sadr
forseti Irans á fjöldafundi í Teher-
an að stjórnin myndi taka að sér
vörzlu gislanna. En hann bætti þvi
við að það myndi ekki framkvæmt
fyrr en bandariska stjórnin hefði
gefið yfirlýsingu um að hún myndi
ekki taka til neinna fjandsamlegra
ráða gegn íran.
Bani Sadr tiltók ekki hvenær
þessi forsjárbreyting myndi eiga
sér stað. Viðstaddur manngrúi hóf
þá mikil reiðiöskur og flýtti forset-
inn sér þá að bæta því við að ekki
kæmi til mála að gíslarnir færu
fyrr en keisarinn fyrrverandi hefði
verið framseldur. Carter hefur ekki
sett neinn frest enn fyrir því
hvenær „námsmennirnir“ afhendi
gíslana og talsmaður Carters viður-
kenndi í kvöld að auðvitað væri
engin endanleg trygging fyrir því
að íranir myndu standa við heit sín
og „námsmennirnir" hafa ekki
kveðið upp úr með það hvort þeir
Finnland:
Stjórnin kom
sér saman
Heisinki 1. apríl.
Frá Ilarry Granber«:, fréttaritara Mbl.
FINNSKA ríkisstjórnin hefur kom-
izt klakklaust yfir þá erfiðleika
sem að henni steðjuðu pg urðu
henni næstum að falli. Á þriðju-
dagsmorgun féllst stjórnin á að
samþykkja samkomulagið um verð-
lagningu landbúnaðarvara. Það
þýðir að verð á mjólk, kjötvörum og
eggjum hækkaði frá og með degin-
um í dag. Verð á kornmeti hækkar
eftir páskana. Samtíma því sem
verðlag á þessum vörum var ákveð-
ið náðu ráðherrarnir einnig sam-
stöðu um hvernig stefnu skuli fylgt
í gjaldcyrismálum.
Ríkisstjórnin slapp því heil frá
hildi þessari, en verður nú að horfast
í augu við vaxandi verkfallsvanda.
Skógarhöggsmenn hafa verið í verk-
falli síðan 17. marz. ísbrjótar og
finnsk vöruflutningaskip stöðvuðust
í fyrri viku vegna sjómannaverkfalla
og er hin mesta ógnum við innflutn-
ings- og útflutningsmál. Erfiðleikum
verður og bundið fyrir fólk að
komast milli Finnlands og Svíþjóðar
um páskana vegna þessa.
hlýðnast fyrirmælum forsetans
fremur nú en fyrr í þessu efni.
Khomeini klerkur sendi frá sér
yfirlýsingu í dag sem var lesin upp
á fjöldafundi þeim í Teheran sem
áður er vikið að. Þar var hann
harðorður í garð Carters Banda-
ríkjaforseta og ítrekaði sem fyrr að
ekki kæmi til mála að aðrir kvæðu
upp úr með mál bandarísku
gíslanna en þeir sem löglega yrðu
kjörnir á nýtt íranskt þing.
Sjá „Staðan í íran“ bls. 23.
Formennska
Hua tíma-
skorðuð?
IIonK Konjí. 1. apr. AP.
BLAÐ í Hong Kong, sem er
fylgispakt kommúnistum,
skýrði frá því í morgun að
kínverski kommúnistaflokkur-
inn hefði ákveðið að takmarka
formennsku í flokknum við
þrjú fimm ára tímabil. Blað
þetta, Cheng Ming, sagði að
niðurstaða hefði náðst um
þetta á fundi miðnefndar
flokksins í febrúarmánuði sl.
og sagði að þetta væri „söguleg
ákvörðun".
Mao Tse Tung var flokks-
formaður frá 1943 til dauðadags
1976, eða í 33 ár.
Diplómatískar heimildir í
Hong Kong segja, að séu fréttir
blaðsins réttar megi búast við
því að á 12. þingi kínverskra
kommúnista, sem að líkindum
verður haldið snemma næsta
árs, verði endurskoðað hvort
Hua Kua-feng skuli áfram vera
formaður en hann mun þá hafa
verið í formannsstarfinu í hálft
fimmta ár.
Hua Kua-feng
Stálverkfallið í Bretlandi:
Boð sáttanefndar um
hækkun samþykkt
I.undúnum. 1. aprll — AP.
MIÐSTJÓRN annars tveggja verkalýðsfélaga stálverkamanna, sem
hafa verið í verkfalli, samþykkti í dag að ganga að tilboði
sáttanefndar og leggja til við félagsmenn sína að þeir aflýstu
verkfalli. Stálverkamenn hjá rikisrekna fyrirtækinu British Steel
hafa verið í verkfalli í 13 vikur. Atkvæðagreiðslan í miðstjórn
verkalýðsfélagsins fór þannig, að 41 greiddi atkvæði með því að snúa
ti! vinnu á ný en 27 á móti.
Til óeirða kom eftir samþykkt
miðstjórnarinnar. Herskáir félags-
menn undu niðurstöðunum illa og
til handalögmála kom. Þeir réðust
á fréttamenn og hröktu þá út úr
byggingunni og þegar miðstjórn-
armenn komu af fundi þá réðust
þeir að þeim. Lögregla var kvödd á
vettvang til að skakka leikinn.
Þegar stjórnarmenn gengu út úr
byggingunni spörkuðu hinir her-
skáu í átt til þeirra og hræktu að
þeim.
Samtök starfsmanna við járn-
blendiofna — hin meginsamtökin,
sem hafa staðið að verkfallinu —
eiga eftir að taka afstöðu til tilboðs
sáttanefndar. Leiðtogi þeirra,
Hector Smith, var hlynntur sam-
komulagi á grundvelli sáttatillög-
unnar en hann sagði að óljóst væri
hvort miðstjórn verkalýðsfélagsins
samþykkti tillöguna.
Tilboð sáttanefndar hljóðaði upp
á 15,9% launahækkun. Bill Sears,
leiðtogi stálverkamanna, lýsti því
yfir að þegar allt væri talið, svo
sem eftirlaun, þá mætti meta
tilboðið upp á 17%. Verkfallsmenn
hafa krafist 19,7% launahækkun-
ar. Verkfall stálverkamanna hjá
British Steel hefur ekki haft eins
víðtækar afleiðingar og í fyrstu var
óttast. Einkum vegna þess, að stál
hefur verið flutt til landsins, þrátt
fyrir tilraunir til að koma í veg
fyrir innflutning. Þá höfnuðu flest
verkalýðsfélög hjá stálfyrirtækjum
í einkaeign að ganga í lið með
verkfallsmönnum en þeir hafa 20%
meiri laun en verkamenn hjá
British Steel. Hver verkfallsmaður
hjá British Steel hefur tapað að
meðaltali 1300 pundum vegna verk-
fallsins.
2300 manns hjá
KGB á íslandi
Aðgerðir gegn
heilahimnubólgu
Sleaford, Englandi. 1. apríl. AP.
FYRIRSKIPUÐ var
skyndibólusetning á
börnum í bænum Slea-
ford, 150 km norður af
London, aðfararnótt
þriðjudags, eftir að sex
ára gamall drengur hafði
látizt úr heilahimnu-
bólgu og þrjú önnur voru
fársjúk á spítala.
Voru sextíu börn flutt með
hraði til bólusetningar til að
reyna að koma í veg fyrir að
veikin breiddist út. Dr. Kenneth
Jones, heilbrigðisfulltrúi í Slea-
ford, sagði að ákveðið hefði verið
að bíða ekki boðanna þar sem
ella hefðu fleiri börn getað dáið í
dag eða á morgun og væri nú
aðeins hægt að biðja og vona að
nægilega skjótt hefði verið
brugðist við. Dr. Jones sagði að
vírus sá sem veldur heilahimnu-
bólgu væri einhver mest bráð-
drepandi allra og gætu menn
dáið innan fárra klukkustunda
frá því fyrstu einkenni kæmu í
ljós.
SJÓNVARPIÐ sagði í gærkvöldi í
frétt frá Magnúsi Guðmundssyni.
fréttaritara sinum í Kaupmanna-
höfn, að sovézkur fyrrv.kapteinn
Alexei Miakov hefði sagt að milli
200 — 300 manns væru starfandi
fyrir KGB-sovézku leyniþjónust-
una á íslandi. Ilefði Miakov sagt
þetta á fréttamannafundi. sem var
haldinn fyrir tilstilli Alþjóðlegu
Sakharov nefndarinnar. Miakov
flýði til Vesturlanda 1974. í frétt-
inni var haft eftir honum að um
5000 manns störfuðu fyrir KGB í
Danmörku.
Miakov sagði að leyniþjónustan
réði fólk til starfa með ýmsum
aðferðum hvarvetna á Vesturlönd-
um og það kæmi úr röðum stjórn-
málamanna, blaðamanna og aðila
úr viðskiptalífinu. Mismunandi
ástæður lægju til þess að þeir féllust
á að starfa fyrir KGB, réði þar
ýmist fjárþörf, þvinganir eða
„misskilin hugsjónamennska". Mia-
kov sagði það hlutverk þessara
manna að styðja hvers kyns undir-
róðurstarfsemi á Vesturlöndum og
gera borgara viðkomandi lands hlið-
hollari Sovétríkjunum, svo að þeir
uggi síður að sér.
Dole varaforseta-
efni Reagans?
Wichita, Kansas, I. apr. AP.
BANDARÍSKI öldungardeildar-
þingmaðurinn Robert Dole, sem var
varaforsetaefni Geralds Fords í
síðustu forsetakosningum og keppti
um hríð að útnefningu Repúblikana-
flokksins nú, sagðist ekki útiloka
þann möguleika að hann yrði vara-
forsetaefni Ronalds Reagans nú ef
Reagan yrði útnefndur.
Dole lýsti fyrir skömmu yfir því
að hann hefði ákveðið að keppa ekki
lengur að útnefningu heldur styðja
Reagan af fullum krafti.