Morgunblaðið - 02.04.1980, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 02.04.1980, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. APRIL 1980 Launþegasamtök mót- mæla nýjum álögum TVÖ stærstu launþegasamtök landsins mótmæla „nýjum stór- felldum álögum" ríkisstjórnar- innar, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og Alþýðusam- band íslands. Ilafa bæði sam- böndin sent fjárhags- og við- skiptancfndum Alþingis mót- mæli sín og BSRB mótmælir jafnframt starfsaðferðum ríkis- stjórnarinnar við ákvörðun efnahagsráðstafana hennar, þar sem engin samráð hafi verið höfð við bandalagið, svo sem kveðið væri á um í lögum. Ályktun stjórnar BSRB er Sáttafundur fram á nótt á ísafirði SÁTTAFUNDUR ,milli fulltrúa Sjómannafélags ísfirðinga og Útvegsmannafélags Vestfjarða hófst í gærdag klukkan rúmlega 13 og í gærkveldi. þegar Morg- Lönduðu erlendis ÝMIR landaði í býzkalandi í gær- morgun að sögn Ágústs Einarsson- ar hjá LÍÚ og fékk 76,1 milljón króna. eða sem svarar til 440 króna fyrir kílóið af karfa. Þá landaði ísleifur í Fleetwood í Bretlandi 80 tonnum af þorski og fékk fyrir hann 34 milljónir króna, eða 425 krónur fyrir kílóið. unblaðið fór í prentun stóð fundurinn enn. Var jafnvel búizt við að hann stæði eitthvað fram eftir nóttu. Samningamenn vörð- ust allra frétta af gangi mála. Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið aflaði sér, mun talsvert samningahljóð komið í menn, en verkfall var boðað á ísfirzku skuttogurunum fjórum hinn 20. marz síðastliðinn og hjá þremur línubátum hófst verkfall 30. marz. Við fiskverðsákvörðun munu aðilar hafa nálgast nokkuð á skiptaprósentunni, en þar bar í milli aðila 1V2 % áður en fiskverð var ákveðið, en bilið milli deilu- aðila minnkaði í % % eftir ákv- örðunina. Sáttasemjari í deilunni er Guð- mundur Vignir Jósepsson. AÐ SÖGN Þóris Jenssonar fram- kvæmdastjóra Bílaborgar, sem flytur inn Mazdabifreiðar, munu venjulegar japanskar bifreiðar hæ\ka um 200—300 þúsund krónur vegna 3% gengisfell- ingarinnar um sl. helgi og 2% söluskattsaukans, sem ákveðinn hefur verið. Þá sagði Steinn Lárusson, fram- kvæmdastjóri Ferðaskrifstofunn- ar Úrvals, að venjuleg sólarlanda- ferð hækkaði um nálægt 5%, þ.e. um 15—20 þúsund krónur. svohljóðandi: „Stjórn BSRB mót- mælir þeim starfsaðferðum ríkisstjórnarinnar við undirbún- ing efnahagsráðstafana, að hafa ekki samráð við samtök launa- fólks um heildarstefnu í þessum málum. í lögum er gert ráð fyrir samráði við samtök launafólks og slík samráð eru einnig boðuð í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar. En engin samráð hafa verið höfð við launþega- samtökin. Þær nýju stórfelldu álögur á almenning, sem þegar hafa verið samþykktar á Alþingi eða fyrir- hugaðar eru samkvæmt stjórnar- frumvörpum, þ. á m. um orku- jöfnunargjald, eru olía á verð- bólgueldinn, sem enn hlýtur að magnast við gengislækkanir, sem sífellt eru framkvæmdar. Því mótmælir stjórn BSRB eindregið þessum nýju álögum.“ Ályktun ASÍ er svohljóðandi: „Á fundi viðræðunefndar Al- þýðusambands íslands í dag var fjallað um þær auknu álögur, sem boðaðar eru í formi út- svarshækkunar og hækkunar tekjuskatts og söluskatts. Al- þýðusambandið minnir á að þetta gerist á sama tíma og kaupmáttur launa minnkar stöð- ugt. Aðgerðir stjórnvalda nú hljóta að auka dýrtíðina og rýra almenna kaupgetu. Aðgerðirnar eru þannig sízt til þess fallnar að greiða fyrir kjarasamningum og mótmælir viðræðunefndin þeim því harðlega." Meðalstór bíll hækk- ar um 2—300 þúsund tti viðskípti þín \ið ferðaskrifetofuiia íJtsýn? i styrkja li.stir og mpnningarmál á Islandi? SÉRSTAKT aukablað Ferðaskrifstofunnar Út- sýnar fylgir Morgunblað- inu í dag. en ferðaskrifstof- an er 25 ára á þessu ári. í inngangsorðum segir Ing- ólfur Guðbrandsson for- stjóri m.a., að saga Útsýnar og ferðasaga Islendinga síðasta aldarfjórðunginn séu órjúfanlega samtvinn- uð. Hayek með islenzka útgáfu bókar sinnar, Leiðinnar til ánauðar, en það var Hannes H. Gissurarson sem islenzkaði hana. Ljósmynd Mbl. Kristján. Hayek hér í boði frjálshyggjumanna Bók hans, Leiðin til ánauðar, komin út i íslenzkri útgáfu HINN heimskunni hagfræðingur og nóbelsverðlaunahafi Friedrich A. Hayek er staddur hér á landi í boði Félags frjálshyggjumanna í tilefni þess, að út er komin bók hans, Leiðin til ánauðar, i íslenzkri þýðingu Hannesar H. Gissurasonar sagnfræðings. Á kápu bókarinnar segir m.a. svo: Hayek er fæddur í Vínarborg 1899. Hann lauk doktorsprófi í lögfræði og hagfræði og varð forstjóri Hagrannsóknastofnunar Austurríkis 1927. Hann hefur síðan verið prófessor í hagfræði í London School of Economics í siðfræði við Chicago-háskóla, hag- fræði í Freiburg-háskóla í Þýzka- landi og Salzburg í Austurríki. Kunnustu rit Hayeks auk þessa fyrrgreinda eru Individualism and Economic Order, The Constistu- tion of Liberty and Law, Legisla- tion and Liberty. Hann fékk nób- elsverðlaunin í hagfræði árið 1974. Hayek varð í einu vetfangi heimskunnur, þegar bókin Leiðin til ánauðar kom út árið 1944. Hann færir rök fyrir því í bókinni að einstaklingsfrelsið týnist, ef atvinnulífið sé skipulagt af valds- mönnum, en fái ekki að vaxa sjálft. Hann bendir ennfremur á, að þjóðernisstefna fasista og sam- eignarstefna sósíalista séu greinar á sama meiði. Bók hans er um brýnasta stjórnmálavanda Vesturlandabúa, verkaskiptingu ríkis og einstakl- inga, markaðsbúskap og áætlun- arbúskap, og boðskapur hennar á ekki síður við nú en fyrir 36 árum. í dag mun Hayek flytja fyrir- lestur í boði viðskiptadeildar Há- skóla íslands í Hátíðarsal Háskól- ans. Fyrirlestur sinn nefnir Hayek „Principles of Monetary Policy" og hefst hann klukkan 17.00. Dæmdur fyrir að notfæra sér ölv- unarástand konu NÝLEGA var kveðinn upp í sakadómi Reykjavíkur dómur í máli, sem í fréttum á sínum tima var kallað „alvarlega nauðgun- armálið“, en í málinu var m.a. Matthías Á, Mathiesen um skattaálögur ríkisstjórnarinnar: Fjórar krónur af hverjum fimm renna til ríkisins „ÞAÐ er ljóst, að allar aðgerðir núverandi ríkisstjórnar eru með sama sniði og vinstri stjórnarinn- ar og verða til þess að auka enn á verðbólguna.“ sagði Matthías Á. Mathicsen. alþingismaður og fyrrverandi fjármálaráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær. „Framfærsluvísitalan, eftir því sem fróðustu menn segja, mun hækka hinn 1. maí a.m.k. um 13%, en það þýðir á milli 63 og 65% verðbólgu á ári.“ „Á sama tíma og þessi þróun á sér stað, gengur ríkisstjórnin fram fyrir skjöldu í auknum skattaálög- um, hækkar beina skatta og óbeina til ríkissjóðs og hækkar útsvör til sveitarfélaganna. Mér reiknast til, að beinir skattar hækki um 25% og óbeinir einnig um 25% frá því sem var í tíð ríkisstjórnarinnar, sem Sjálfstæð- isflokkurinn átti aðiid að. Hjá þeim, sem greiða hámarksskatta og útsvar, komast í hæstu skatt- þrep, fara 4 af hverjum 5 krónum til ríkisins eftir að 24% söluskatt- ur er kominn á, eða á milli 75 og 85% af tekjum manna. Auk þess hækka eignaskattar um 50% frá þeim lögum, sem ég beitti mér fyrir og álögur á atvinnurekstur- inn hafa verið stórþyngdar á sama tíma og vitað er um mjög slæma afkomu atvinnuveganna." „Allt þetta sýnir," sagði Matt- hías, „að störf og stefna núverandi ríkisstjórnar er þvert á stefnu Sjálfstæðisflokksins og það verður ljósara með degi hverjum, hver var ástæða þess, að meirihluti þingflokks sjálfstæðismanna, hafði ekki áhuga á slíku stjórnar- samstarfi. Ég held, að ég geri útlitið ekki dekkra en það er í raun og veru, en í huga mínum leynist sá ótti með tilliti til stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahags-, peninga- og ríkisfjármálum — að útkoman verði sízt betri en á síðastliðnu ári, sem sló öll fyrri met vinstri stjórna." auglýst eftir bílstjóra á grænum Skoda. Ákærði i máiinu, ungur maður, var sýknaður af ákæru um nauðgun en dæmdur fyrir brot á 195. grein almennra hegn- ingarlaga fyrir að hafa haft samræði við konu, sem vegna ástands síns gat ekki spornað við samræðinu eða gat ckki skilið þýðingu þess. Var maðurinn dæmdur í 10 mánaða fangelsi, þar af skilorðsbundið að hluta. Atburður þessi gerðist í október 1978. Umræddur maður tók kon- una upp í Volkswagen-bifreið fyrir utan veitingastaðinn Glæsi- bæ og ók síðan að Elliðaám, þar sem hann hafði samfarir við konuna í aftursæti bifreiðarinnar. Setti hann konuna síðan út úr bílnum í Vogahverfi og þar tók bílstjórinn á græna Skódanum konuna upp í og ók henni heim. Eftir nokkra eftirgrennslan hafðist uppi á manninum í Volks- wagenbilnum. neitaði hann að hafa nauðgað konunni en viður- kenndi að hafa notfært sér ölvun- arástand hennar. Hins vegar mundi konan sjálf mjög lítið. Var framburður hennar óljós og reik- ull og lítið á honum byggjandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.