Morgunblaðið - 02.04.1980, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. APRIL 1980
5
Kaupmannahöfn 1. apríl.
Frá Gunnari Rvtgaard
RITHÖFUNDURINN Bjarni M.
Gíslason lczt í dag, tveimur dög-
um lyrir 72. afmælisdag sinn.
Hann var búsettur í Ry á Jót-
landi, en hann hafði haft tengsl
við lýðháskólann þar síðan 1937.
Bjarni M. Gíslason var fæddur á
Stekkjarbakka í Tálknafjarðar-
hreppi, var sjómannssonur og
stundaði sjó á æskuárum. Hann
leitaði sér síðan frekari menntun-
ar og nam við Danebod-lýðháskól-
ann á Suður-Jótlandi í tvo vetur.
Um svipað leyti eða árið 1933 kom
út fyrsta ljóðabók hans, „Eg ýti úr
vör“. Hann var síðan við nám tvo
vetur á Askov og þar tengdist
hann sterkum böndum tveimur
mönnum kennurum þar, sem var
norræn samvinna einkar hugleik-
in, þeir voru Jörgen Bukdahl og
Bjarni M. Gísla-
son lézt í gœr
Poul Engberg. A Askov komst
hann í kynni við þjóðarbaráttuna
gegn nazismanum og hann helgaði
sig henni á eindreginn og marg-
víslegan hátt á þessum árum.
Hann gaf út fjölda bóka á dönsku,
bæði ljóðabækur og ritgerðir, og
meðal meiri háttar verka hans er
„De Gyldne Tavl“ sem kom út í
tveimur bindum árið 1944 og 1945.
Hann settist að í Ry árið 1937
eins og fyrr segir og auk ritstarfa
stundaði hann kennslu við lýð-
háskólann þar. Þegar hinir tveir
þekktu lýðháskólamenn, Jörgen
Bukdahl og C.P.O. Christiansen,
höfðu að því frumkvæði árið 1947
að Danir færðu íslendingum
handritin sem þjóðargjöf gekk
Bjarni heils hugar til liðs við þá.
Hann gerðist mjög ötull tals-
maður þess og hrakti fullkomlega
röksemdir danskra vísindamanna,
sem mæltu gegn því að íslending-
um yrði afhent handritin, með bók
sem kom bæði út á dönsku og
íslenzku. Með þessari bók lagði
hann fram einn stærsta skerf til
þess að stjórnmálamennirnir gætu
komið handritamálinu heilu í
höfn. Þetta var bókin „De is-
landske haandskrifter" og síðan
sendi hann frá sér fleiri bækur um
þetta mál, auk ótal greina sem
hann ritaði í dönsk blöð og hann
flutti fyrirlestra vítt og breitt um
Danmörku til að kynna málið. Það
sem fyrir honum vakti var að
gagnkvæmur skilningur yrði á
milli þjóðanna sem hefði þau áhrif
að gjöfin yrði gefin og að vináttan
milli þjóðanna tveggja styrktist og
efldist.
Þó að hann byggi í Danmörku
mestan hluta ævi sinnar var
ísland honum hugfólgið alla tíð.
Þess vegna varð hann með árun-
um góður fulltrúi íslands, þegar
hann sem fyrirlesari og sagna-
maður fór á milli skóla og fyrir-
lestrasala um gervalla Danmörku
til að kynna ættland sitt.
Islenzka ríkið heiðraði Bjarna
með árlegu heiðursframlagi frá
því að Danir hófu að senda
handritin heim.
Kirkjukvöld Bræðra-
félags Dómkirkjunnar
BRÆÐRAFÉLAG Dómkirkjunnar heldur sitt árlega kirkjukvöld á
morgun. skirdag kl. 20.30.
Marteinn Hunger Friðriksson mun leika á orgel, séra Þórir Stephensen
dómkirkjuprestur flytur ávarp. Kristinn Hallsson óperusöngvari mun syngja
með undirleik Marteins Hunger Friðrikssonar dómorganista. Þá flytur Esra
S. Pétursson læknir ræðu er hann nefnir Friðsæld. Loks flytur séra Hjalti
Guðmundsson dómkirkjuprestur hugvekju og bæn.
STEINGRÍMUR í Fiskhöllinni 85
ára — Steingrímur Magnússon,
sem á sínum tíma rak Fiskhöllina,
er 85 ára í dag. Hann verður að
heiman.
Rokktónleikar
STÚDENTARÁÐ gengst á miðviku-
dagskvöld, 2. apríl kl. 20.30 fyrir
rokktónleikum.
Verða þeir haldnir í Tjarnarbíói
og koma þar fram rokkhljómsveit-
irnar Snillingarnir og Utangarðs-
menn og flytja frumsamin lög og
erlend. Hugsanlegt er einnig að fleiri
hljómsveitir komi fram á tónleikun-
um.
Jakob Haf-
stein sýnir í
Reykjalundi
JAKOB Hafstein listmálari opnaði
í fyrradag myndlistarsýningu í
Vinnuheimilinu í Reykjalundi og
verður sýningin opin fram yfir
páska.
*
Þorsteinn Pálsson framkvæmdastjóri VSI:
Þessar efnahagsráðstafanir ganga
þvert gegn stefnu ríkisstjórnar-
innar í verðlags- og kjaramálum
„VIÐ sendum fjárlaga- og
viðskiptanefndum beggja deilda
Alþingis mótmæli við þessum
skattahækkunarráðstöfunum".
sagði Þorsteinn Pálsson. fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands íslands. er Mbl. spurði hann
í gær álits á nýjustu efnahags-
ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar.
„í fyrsta lagi hafa þessar hækk-
anir veruleg áhrif á afkomu at-
vinnufyrirtækja, þar sem þlr
hækka rekstrarkostnað þeirra.
Við tcljum það varhugavert í
þessari stöðu.“ sagði Þorsteinn. „í
öðru lagi hafa þessar hækkanir
áhrif í þá veru að auka verðbólg-
una. Bráðabirgðaútreikningar
hagfra'ðinga Vinnuveitendasam-
bandsins benda til þess að hækkun
framfærsluvísitölu 1. maí næst-
komandi geti orðið 14 til 15%.
Það er ljóst, að þessar ákvarðanir
ganga þvert gegn stefnu ríkis-
stjórnarinnar i verðlagsmálum og
að allir möguleikar á niðurtaln-
ingaráformum ríkisstjórnarinnar
eru endanlega úr sögunni. Ríkis-
stjórnin verður eftir þetta að fella
úr gildi samþykkt sína um niður-
talningu verðlags, ella hlýtur að
koma til verulegs samdráttar í
atvinnustarfseminni. Af þessum
sökum hlýtur það að vera skýlaus
krafa, að þessi samþykkt falli úr
gildi þegar í stað.
lTALSKIR SPORTIAKKAR
í fjórða lagi tel ég, að þessar
ráðstafanir hafi mjög mikil áhrif á
þá kjarasamninga, sem standa fyrir
dyrum, og gangi þvert gegn þeirri
stefnumörkun, sem sett hefur verið,
,að endurnýja kjarasamninga án
grunnkaupshækkana.
Ríkisstjórnin býður þeirri hættu
heim, að verðbólguáhrif þessara
ráðstafana geti orðið mun meiri en
sjá má fyrir nú.“
Mbl. spurði Þorstein, hvort ríkis-
stjórnin hefði haft samráð við VSÍ
við undirbúning þessara ráðstaf-
ana: „Nei, engin,“ svaraði Þor-
steinn. „Þvert á móti lögðum við
áherzlu á það á fundi með ríkis-
stjórninni, sem haldinn var að
okkar ósk á föstudaginn, að ríkis-
stjórnin greiddi fyrir kjarasamn-
ingum með skattalækkunum. Á
þessum fundi fórum við einnig fram
á þríhliða viðræður til að finna
lausn á kjaramálavandanum.
Þessar ráðstafanir nú benda ekki
til jákvæðra undirtekta. Reyndar
tel ég það sameiginlegt hagsmuna-
mál okkar og verkalýðshreyfingar-
innar að mótmæla þeim.“
Hljómar koma
fram í Stapa
HLJÓMLEIKAR verða haldnir í
Stapa í Keflavík ir.k. laugardag
klukkan 11 og eru þeir óvenju-
legir að því leyti að þar koma
fram í upprunalegri mynd
nokkrar hljómsveitir, sem hættar
eru störfum fyrir löngu, og eru
Illjómar þar fremstir í flokki.
Hljómsveitirnar sem fram
koma eru Hljóman, Óðmenn,
Júdas, Geimsteinn, Astral og Rut
Reginalds söngkona. Eru hljóm-
leikarnir liður í menningarvik-
unni á Suðurnesjum, sem kallast
fiskur undan steini.
Aðgöngumiðar verða seldir í
íþróttavallarhúsinu í Keflavík kl.
13—19 á miðvikudag og fimmtu-
dag og frá klukkan 10 á laugardag,
svo framarlega sem ekki verður
uppselt þá þegar.