Morgunblaðið - 02.04.1980, Page 15

Morgunblaðið - 02.04.1980, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1980 15 Aflahrota Eyjum: Skólafólki gef ið f rí til fiskvinnslu Og skólafólkið tekur einnig til hendinni í saltfiskinum. því það hefur mikið verið saltað í vetur. LANDBURÐUR hefur verið af fiski í Vestmannaeyjum að und- anförnu og hafa allt upp í 900 tonn borist á einum degi. Hefur jafnvel orðið að grípa til þess að senda Eyjatogarana til annarra verstöðva með fullfermi af þorski. Mikil vinna hefur verið í frystihúsunum og öðrum fisk- vinnslustöðvum af þessum sök- um og starfsfólk hefur ekki haft undan við að vinna aflann. Segja má að allir sem vettlingi geta valdið taki þátt í vertíðar- vinnunni og leggi hönd á plóg- inn við að bjarga verðmætum. Hefur því verið ríkjandi mikil vertíðarstemmning í Eyjum, en vinnudagurinn er langur og þessi hrota hefur staðið óvenju lengi á þessum árstíma. Um langt árabil hefur ekki borizt á land í Eyjum annar eins afli. Var því gripið til þess ráðs sem löngum hefur reynzt vel í Eyjum, en það er að gefa skóla- fólki frí í nokkra daga til þess að taka þátt í atvinnulífinu og hjálpa til við að bjarga verð- mætum afla frá skemmdum. Hefur nokkrum tugum nemenda úr Grunnskólanum, 40—60 í einu, verið gefið frí til fisk- vinnslu og hefur skólafólkið löngum reynzt drjúgur starfs- kraftur. Þá hefur reyndin ekki síður orðið sú að starf skóla- fólksins í önnum vertíðarinnar hefur verið þeim góður skóli og þroskað vilja þeirra og mann- dóm. Þannig hafa aflahroturnar brúað bilið milli skólanna og atvinnulífsins. Það hefur verið ævintýri fyrir skólafólkið að fá að taka þátt í vetrarvertíðinni með þessu móti, en góður skóli að því leyti að það gerir sér betur grein fyrir því að lífið utan skólans er ekki leikur einn, heldur alvara þar sem menn verða að leggja sitt af mörkum í vinnudeginum til þess að allir endar fái notið sín, en auðvitað hefur það ekki þótt verra að þéna eins og efni standa til. —á.j. Og hér eru skólastrákarnir að hamast í ýsumokstrinum, enda goggarnir á fullri ferð. Vinnslustöðinni, en hann hafði það hlut- Fjórir hressir Eyjapeyjar úr Gagganum Siddý kann greinilega vel til verka þótt Sigurdis, nemandi í Gagnfræðaskólanum, verk að kasta fiski á færiband fyrir að búa sig undir ýsuat. hún sé ennþá nemandi i Gagnfræðaskól- vandar vel pökkunina á ýsuflakinu sem flökunarvélarnar. Ljósmyndir: Sigurgeir Jónasson. anum, en þarna er hún hins vegar í H-30. hún er að bjástra við. Aðalfundur íslend- ingaf élagsins í Ósló SHP — ÓSLÓ 25. mars. — íslendingafélagið í Ósló hélt aðal- fund sinn í gærkveldi í ToIIbugat- an 26. Voru mörg mál á dagskrá. I skýrslu stjórnar var sagt frá blómlegu starfi á liðnu ári, 'en ágóði af rekstri félagsins varð kr. 8.250,58, þrátt fyrir rekstrartap á húseigninni, íslendingahúsinu Norrefjell, 13.378,58. Litlar umræður urðu um skýrslu stjórnar og reikninga, sem bæði voru samþykkt samhljóða. Árgjöld verða óbreytt áfram eða 50,00 fyrir aðalfélaga og kr. 25,00 fyrir aukafélaga. Þá verða hús- gjöld óbreytt eða 20,00 fyrir nótt- ina og ferðagjöld þeirra er fara heim í hópferðum félagsins verða lækkuð í 10,00 á mann, til að bera uppi upplýsingamiðlun um ferð- irnar. Það kom greinilega fram að stundum veldur það vanda, að utanfélagsmenn sækja í íslend- ingahúsið á Norrefjell, en það er eign félagsins og aðeins félögum heimilt að dvelja þar og þá gestum þeirra. Er t.d. húsið svo vel sótt af félögum um páskana, að skammta verður dvalartímann, og getur hver gestur, félagsmaður, aðeins fengið að gista þar í 5 daga. Skulu utanfélagsmenn aðvaraðir um að gera ekki áætlun um að dvelja þar, eins og sumir virðast hafa gert og talið sjálfsagt. Þetta hús er eign félagsins hér í Ósló og fyrir félaga þess. Elsa Þórðardóttir gekk úr aðal- stjórn eftir 13 ára setu í henni, en í aðalstjórn eru nú: Ingibjörg Eiriíksdóttir Sorby, formaður, Elínborg Reynisdóttir, Jón Gísla- son, Sigurjón Jóhannsson og Kristinn Erlingsson. í hússtjórn eru: Elín Finnborud, Kjartan Hreinsson, Helga Guðmundsdóttir og Gísli Þór Sigurþórsson. í skemmtinefnd eru: Þórarna Jón- asdóttir, Ragnheiður Þórarins- dóttir, Halldór Júlíusson og Sig- urður Jónsson. Niðurstöðutölur reikninga voru: 228.658,31 á efnahagsreikningi, en kr. 54.220,31 á rekstrarreikningi. Hópferðir heim á vegum félags- ins verða dagana 10., 15., 22. og 29. júní. Einnig 6. og 27. júlí.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.