Morgunblaðið - 02.04.1980, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1980
21
Þórður Þ. Þorbjarnarson borgarverkfræðingur:
Guðrúnu Helgadóttur svarað
Inngangur:
Guðrún Helgadóttir, borgar-
fulltrúi, skrifar grein í blaðið s.l.
laugardag undir yfirskriftinni
„Höfðabakkabrú eða önnur brú.“
Eg legg það ekki í vana minn
að fjalla um borgarmálefni á
síðum dagblaða. Grein borgar-
fulltrúans er hins vegar þess
eðlis að ekki verði hjá því komist
að ég svari henni að því leyti,
sem greinin vegur að mér persó-
nulega á þann veg, sem telja
verður einsdæmi í opinberri um-
ræðu. En ennfremur ber grein
borgarfulltrúans þess vott að
hún er illa upplýst um þau atriði
sem hún gerir að umtalsefni og
um sumt fer hún sannanlega
með ósannindi.
Borgarverkfræðings-
embættið og stjórn-
kerfi borgarinnar
Borgarverkfræðingur er fram-
kvæmdastjóri framkvæmdaráðs.
Uiidir ráðið heyra m.a. málefni
gatnagerðarinnar. í ráðinu sitja
7 menn kosnir af borgarstjórn.
Borgarráð er æðsta stjórnvald í
þessu tilviki á eftir borgarstjórn
og fjallar m.a. um fjármál borg-
arsjóðs. Tillaga okkar gatna-
málastjóra um hvernig verja
skyldi fjárveitingu til þjóðvega í
þéttbýli fékk því umfjöllun bæði
í framkvæmdaráði og síðar í
borgarráði. Undir þennan mála-
flokk heyrir m.a. Höfðabakkinn,
bú og vegur. Þegar málefni
Höfðabakkans voru til umræðu í
framkvæmdaráði lagði ég fram
tillögu þeirra verkfræðingá sem
hjá embættinu vinna um það
hvernig fjármunum til þjóðvega
í þéttbýli skyldi varið, og skýrði
frá því í hverjum atriðum okkur
greindi á hvað hvað snerti
Höfðabakkann. Það eru því end-
urtekin ósannindi hjá borgar-
fulltrúanum að ég hafi leynt
borgarfulltrúa einhverju, og
gerði borgarstjóri sjálfur grein
fyrir því á fundi borgarstjórnar
þegar málefni Höfðabakkans
voru afgreidd fyrir rúmlega viku
síðan. Það voru hins vegar verk-
fræðingarnir sjálfir sem kusu að
gera störf sín kunn í fjölmiðlum
og er það þeirra mál.
Málefni Höfðabakkans voru á
síðari stigum tekin fyrir að nýju
í umhverfisráði og skipulags-
nefnd og þar kynntu þessir
verkfræðingar embættisins
sjónarmið sín einnig. Borgar-
stjórn sjálf afgreiddi síðan málið
með atkvæðum 10 borgarfull-
trúa gegn 5 svo sem kunnugt er.
Það er mikill misskilningur hjá
Guðrúnu að ástæða sé til að
spyrja hvort borgarverkfræðing-
ur hafi öðlast atkvæðisrétt í
borgarstjórn. Eitt er rétt að
upplýsa að borgarverkfræðingur
hefur tillögurétt og málfrelsi
bæði í borgarráði, framkvæmda-
ráði, skipulagsnefnd og um-
hverfisráði, og væri ég hreinlega
að bregðast embættisskyldum
mínum ef ég gerði ekki grein
fyrir skoðunum mínum á þessum
vettvangi. Borgarfulltrúa Guð-
rúnu Helgadóttur er mikið
kappsmál að koma því á fram-
færi að ég sé sjálfstæðismaður
ráðinn af sjálfstæðismönnum og
vinni leynt og Ijóst gegn meiri-
hluta borgarstjórnar. í ljósi
þessara alvarlegu ásakana er
rétt að ég geri grein fyrir
sjálfum mér.
Ég gekk í þjónustu borgarinn-
ar í árslok 1963. Gegndi ýmsum
störfum hjá borgarverkfræðingi
þar til ég tók við núverandi
starfi 1. janúar 1973. Allan
þennan tíma hef ég átt ánægju-
leg samskipti við borgarfulltrúa
í öllum flokkum og geri ekki upp
á milli manna í ólíkum flokkum í
því efni. Embætti borgarverk-
fræðings var auglýst eins og
vera ber. Borgarstjórn sam-
þykkti síðan með 13 samhljóða
atkvæðum ráðningu mína á
fundi sínum þ. 7. desember 1972.
Það er því ljóst að það voru ekki
sjálfstæðismenn einir sem stóðu
að ráðningu minni.
Ásökunum svarað
Borgarfulltrúinn gerir að sér-
stöku umtalsefni seinagang við
byggingu tveggja viðbótaríbúða í
dvalarheimili aldraðra að
Lönguhlíð 3, og tekur það sem
dæmi um það hversu leynt og
ljóst ég vinni gegn ákvörðunum
meirihluta borgarstjórnar. I
upphafi er rétt að upplýsa að
bygginganefnd stofnana í þágu
aldraðra stýrir framkvæmdum í
þessu málaflokki. í nefndinni
sitja 7 kjörnir borgarfulltrúar
undir forustu Alberts Guð-
mundssonar. Langahlíð 3 er 3ja
hæða bygging þar sem íbúðir og
setustofur eru á annari og þriðju
hæð. Þegar húsið hafði verið í
notkun um nokkurt skeið var
ljóst að notkun þessara setustofa
var í lágmarki, og samþykkti
borgarráð því þ. 27. nóv. s.l. að
bæta við 2 íbúðum í setustofu á
2. hæð. Byggingarnefnd aldraðra
hefur skipt með sér verkum
þannig að undirnefnd undir for-
sæti Kristjáns Benediktssonar,
borgarfulltrúa hefur umsjón
með framkvæmdum í Lönguhlíð
3. Það var nokkuð álitamál hvort
taka skyldi setustofu á 2. og 3.
hæð til fyrrgreindra nota, og
lokaákvörðun um það var ekki
tekin fyrr en 30. janúar á þessu
ári. Þar með var málið komið í
hendur byggingadeildar borgar-
verkfræðings. Þann 2. febrúar
barst tilboð verktaka í verkið.
Þann 15. febrúa varð að semja
við annan undirverktaka um
innréttingasmíði þar sem verk
taki sá sem samið hafði verið við
hafði þá hætt störfum. Var þetta
til að tefja málið nokkuð. Þann
18. marz hóf verktaki fram-
kvæmdir á staðnum og er ætlað
að þeim ljúki að fullu þ. 18. apríl
n.k. Ég hygg að hér með sé
fengin eðlileg skýring á gangi
þessa máls, enda hafði borgar-
fulltrúanum verið gerð grein
fyrir stöðu þessara mála áður en
grein hennar birtist í Morgun-
blaðinu. í mínum augum felst í
því ótrúleg rætni af hálfu borg-
arfulltrúans, þegar hún tekur
þetta mál sem dæmi um það
hvernig ég þvælist fyrir ákvörð-
unum meirihlutans.
Annað ádeiliefnið er að ég sé
ákaflega andvígur hugmyndum
þeirra nefnda sem um skipu-
lagsmál fjalla og' ekki síður
hugmyndum þróunarstjóra um
framtíð skipulags borgarinnar.
Eins og áður segir hefur borgar-
verkfræðingur tillögurétt og
málfrelsi á fundum skipulags-
nefndar. Ég hef þar óhikað sett
fram þær skoðanir sem ég tél
réttastar í þessum efnum og tel
það embættisskyldu mína, og tel
reyndar nauðsynlegt að ólík
sjónarmið manna komi fram og
verði innlegg í málefnalega um-
fjöllun. Þetta hef ég alltaf gert
og má nærri geta hvort menn
hafi alltaf verið sammála. Það er
ekkert einsdæmi að menn greini
á en menn verða að láta af
upphrópunum um að alltaf sé
verið að vinna á móti meirihlut-
anum þótt slík skoðanaskipti
fari fram.
Um Höfðabakkabrúna
Ég minnist þess varla að
nokkur mál sem borgarstjórn
varðar hafi fengið jafn rækilega
umfjöllun og Höfðabakkinn. Ég
vildi nota þetta tækifæri til þess
að koma nokkrum atriðum á
framfæri:
1. Nauðsynlegt er að það komi
önnur þverun á Elliðaárnar.
Hvar svo sem henni verði valin
staður er þetta öryggis mál fyrir
höfuðborgarsvæðið í heild.
2. Um leiðarval hafa 3 kostir
verið nefndir, Höfðabakkinn,
tenging neðar í dalnum hjá
Kermóafossum og svo að lokum
Ofanbyggðavegur. Frá umhverf-
issjónarmiði er Kermóafossa-
leiðin síst. Hún klýfur útivistar-
svæðið á Ártúnsholti þ.e. frá
Árbæjarsafni og niður að raf-
stöð í tvennt. Sárafáir myndu
eiga eðlilega leið um Ofan-
byggðaveg og ekki verður með
sanni sagt að sá vegur verði
lagður án umhverfis spjalla.
Höfðabakkinn hefur þann kost
að hann bætir úr brýnni þörf
tengingar á milli Breiðholtsins
og suðursvæðanna við svo nefnd
austursvæði í Ártúnshöfða og
Borgarmýri, sem eru atvinnu-
svæði, svo og þeirra svæða sem
eftir eiga að rísa í austurjaðri
borgarinnar. Höfðabakkabrúnni
hefur verið valinn staður þar í
dalnum sem af manna höndum
eru þegar fyrir mannvirki sem
kljúfa dalinn í tvennt en það er
Árbæjarstíflan. Brúin verður
105 m. löng í tveimur höfum og
er haldið hátt yfir dalbotninum.
Sú tilhögun skerðir minnst úti-
vistarsvæðið, veldur minnstri
hljóð og sjómengun niður í
dalinn og gerir fært að göngu og
reiðleiðir liggi á eðlilegan hátt
undir brúna og vegarstæðið.
3. Höfðabakkabrúin mun
stytta verulega aksturslengdir
fyrir íbúa á höfuðborgarsvæðinu
og þá ef til vill sérstaklega þá
sem búa í Breiðholti. Áætlað
hefur verið að þegar brúin er
komin í gagnið 1982 verði um-
ferð um hana ca. 5.000 bílar/
sólarhr. og aksturssparnaður á
núvirði um það bil 350 millj. kr.
á ári. Þetta eru fjármunir sem
verða eftir í vösum skattborg-
anna en myndu eyðast ef þessi
tenging kæmi ekki.
4. Áætlanir um Höfðabakk-
ann byggjast ekki á því að
Fossvogsbraut komi. Höfða-
bakkatengingin krefst ekki þess
að Höfðabakkinn sé framlengd-
ur til suðurs í brekkuna milli
Breiðholts I og Breiðholts III.
Lokaorð
Höfðabakkinn hefur verið
hluti af aðalskipulagi síðan 1965.
Hann er liður í stofnbrautaneti
höfuðborgarsvæðisins. íbúar í
Árbæjarhverfi hafa tekið sig til
og mótmælt framkvæmdinni, og
hafa fært fram rök máli sínu til
stuðnings. Önnur rök sem draga
mið af hagsmunum heildarinnar
mæla með framkvæmdinni.
Borgarstjórn hefur tekið þau rök
gild.
í mínum huga er ekki mikill
munur á stofnbraut sem sýnd
hefur verið í aðalskipulagi í 15
ár og nú á að ráðast í fram-
kvæmd á og þeim sem þegar eru
gerðar. •
Hvernig verður málum okkar
komið ef menn heimta Miklu-
braut, Elliðavoginn og Sætún
eða Hringbrautina lagðar niður?
w
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MARZ1980
Guðrún Helgadóttir, borgarfulltrúi:
Inngangur
Fyrri helmingur kjörtímabils
núverandi borgarstjórnar er senn
á enda. Morgunblaðið hefur tæp-
lega sinnt þeirri sjálfsögðu skyldu
sinni við lesendur sína að skýra
þeim frá störfum hinnar nýju
verið i nánari tengslum við stjórn-
málamenn en einmitt þá, sem
sveitarstjórnarmál annast, þó að
vissulega ættu þessi tengsl einnig
að vera við stjórnendur lands-
mála. Ég skal svara þvi strax,
hverjir réðu þessari fáránlegu
ákvörðun um Höfðabakkabrúna.
Höfðabakkabrú
eða önnur brú
sínum — menn hafi einfaldlega
hugsað til reísins ogsúruberj-
Alþýðubandalagsmenn gætum
haft góða samvisku og sagt sem
klippi, skulu lesendur Morgun-
blaðsins ekki halda að þetta gildi
eVk'i einrfiR tnti WAVríi S.ýtttaVR&'
isflokksins, jafnt í borgarstjórn
sem á þingi
sem um skipulagsmál fjalla, og
ekki síður hugmyndum þróunar-
stjóra um framtiðarskipulag borg-
arinnar, og hann hefur veruleg
áhrif með setu sinni á fundum
borgarráðs, sem þróunarstjóri
hefur yfirleitt ekki aðgang að Það
er því miður allt of algengt að
kjörnir fulltrúar treysta sér ekki
til að hafa við sérmenntuðum
tæknimönnum, sem kunna þess
utan að flytja mál sitt vel og
skipulega. Og tæknimennimir eru
ekki síður haldnir þeirri áráttu en
stjórnmálamenn að eiga erfitt
með að víkja frá röngum ákvörð-
unum, hafi þeir ejnu sinni tekið
hana Þar er borgarverkfræðingur
•na>in imdnntpknina.
sæmandi. Þessir fulltrúar vilja
gefa sér tíma til að snúa við
(áránlegri ‘próun skipuiagsmáia i
borginni til þessa, sem sýnir sig í
yfirfullum skólum á einum stað en
að erfðagóssið í embættismanna-
stétt tekur illa endurhæfingu.
Það er þess vegna fengur að
stuðningi á borð við skrif Þóris
Einarssonar Mér er ljóst, að hann
er ekki endilega stuðningsmaður
núverandi borgarstjórnarmeiri-
hluta, en hann ber yelferð sína og
sambúa sinna I Árbæjarhverfi
meira fyrir brjósti en svo, að hann
falli í þá gryfju, sem t.d. fyrrver-
andi borgarstjóri heldur til í, að
stunda tilgangslaust skítkast,
heldur skrifar málefnalega og
rétta grein um mál, sem hann vill
vinna. Og ég er sannfærð um að
það vinnst, ef Árbæingar Uka
höndum saman. Og það væri
gaman ef Framfarafélag Breið-
vinstrimanna — ef menn hafa
uppburði til að segja satt öðru
■wwtýi. StýteúJt
að vísu sjaldan enda telur Þórir
Einarsson lítið trúnaðartraust
rikia milli beirra og umbióðenda
Þórunn Eiríksdóttir listmálari og myndlistarkennari opnaði sl.
laugardag myndlistarsýningu í Gallerí Háhól á Akureyri. Þar
sýnir hún 20 málverk auk nokkurra vatnslitamynda. Aðsókn
hefur verið góð og nokkrar myndir hafa selst. Sýningin verður
opin þangað til að kveldi páskadags, kl. 20—22 virka daga og
15—22 helga daga. Sv.P.
Lítið við i nœstu blómabuð
oma