Morgunblaðið - 02.04.1980, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 02.04.1980, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1980 23 PÁSKAUNGARNIR í tilefni páskahátíðarinnar hefur verzlunin Stúdíó á Laugavegi komið fyrir tugum hænuunga í glugga verzlunarinnar til skemmtunar fyrir ungu kynslóðina. Ljósmynd Mbi. Emílía. Sandgerði: Yfir 100% aflaaukning miðað við marz í fyrra HEILDARAFLINN í Sandgerði í marz var 6271 tonn en var í fyrra 3063 tonn og er það liðlega 100% aflaaukning. Þess ber þó að geta að í fyrra voru nánast engar landanir hjá togurum en nú hafa þeir landað 965 tonnum. Að sögn fréttaritara Morgun- blaðsins í Sandgerði, Jóns Júlíus- sonar, er aflaaukning mest vegna betri gæfta auk þess sem aflaaukn- ing hefir orðið. Aflahæsti báturinn í marz er Grunnvíkingur sem fékk 310 tonn. Þetta er 53 tonna bátur og er skipstjóri Haukur Guð- mundsson. Frá áramótum hafa 11.395 tonn borist á land en á sama tíma í fyrra var aflinn 7352 tonn. Aflahæsti báturinn á vertíðinni er Arney sem hefir fengið 646 tonn. Skipstjóri er Óskar Þórhallsson. Menningar- vika á Höf n Höfn, Hornafirði. 1. apríl. MENNINGARVIKA Austur- Skaftfellinga hófst hér á Pálma- sunnudag 23. marz og stendur til annars í páskum. Menningarmótið hófst með setningarræðu sýslu- manns Austur-Skaftafellssýslu, Friðjóns Guðröðarsonar, og kom fram í ræðu hans, að aðdragandinn að þessum menningarmótum hefði verið sá, að 5. maí 1926 kom saman nefnd í Hólmi á Mýrum, sem hafði verið kosin á bændanámskeiði sama ár. Verkefnið var að stofna félag sem næði yíir allan hreppa sýsl- unnar og átti að glæða áhuga á framfara- og menningarmálum al- mennt. Félagið hlaut nafnið Menn- ingarfélag Austur-Skaftafells- sýslu. 12. desember sama ár var haldin almenn samkoma og stofn- fundur félagsins i kirkjusalnum i Laxá á Nesjum, en í þá daga þjónaði kirkjan við Laxá tvenns konar hlutverki. Á efri hæð kirkj- unnar var guðshúsið, en i kjallara hennar var almennur samkomusal- ur fyrir fundi og dansleikjahald. Þetta fyrsta menningarmót hófst klukkan 15.00 að degi með fjöl- breyttri dagskrá og endaði samkom- an með dansleik fram eftir nóttu í kirkjukjallaranum. Næsta dag hófst mótið klukkan 13.00 með formlegum stofnfundi menningarfélagsins. Af merkum málum sem rædd voru á stofnfundinum má nefna, að Þór- leifur Jónsson alþingismaður frá Hólum í Nesjum flutti erindi um menningarástandið og framfarir. Stefán Sigurðsson kennari á Reyð- ará í Lóni ræddi um nýjar andlegar hreyfingar og rannsóknir. Sigurður Jónsson í Staðarfelli ræddi um væntanlega Alþingishátíð 1930, og Einar Eiríksson í Hvalnesi flutti fyrirlestur um þjóðfélagsbölið, þ.e. fátæktina, tóbakið og brennivínið. Þetta fyrsta menningarmót endaði svo með dunandi dansi. Síðan sagði Friðjón sýslumaður að þessi mót hefðu verið haldin nær óslitið til 1957 er þau lögðust af. Fyrir um tíu árum var kirkjuhús- ið brotið niður, jafnað við jörðu, þar sem steypan í húsinu var orðin mjög léleg. Ymsum fannst það tiltæki í meira lagi vafasamt. Árið 1968 var þetta samkomuhald svo endurvakið af hreppsnefnd Hafnarhrepps og var það nefnt MenningarVika, en frá þessu ári hefur sýslunefndin séð um sam- komuhaldið og hefur til þess kjörið sérstaka menningarnefnd, sem i eiga sæti Þorsteinn Þorsteinsson, formaður, sér Gylfi Jónsson í Bjarn- arnesi og Ingunn Jensdóttir leik- kona. Menningarvika 1980 býður upp á margvíslegt efni s.s. myndlistasýn- ingar þar sem sýnd verða bæði málverk og grafík eftir ýmsa kunna listamenn. Einnig verða tískusýn- ingar á ullarfatnaði, sem fram- leiddur hefur verið hér í sýslunni. Síðan má nefna tónlistarvöku, sem aldin var í Hafnarkirkju. Þá verða tvær Skaftfellingavökur með fjöl- breyttu blönduðu efni og eru ræðu- menn þeir Einar Bragi og Rafn Eiríksson. Fyrirhugað var að Leik- félag Hornafjarðar frumsýndi leik- ritið Landkrabbar, en vegna óvið- ráðanlégra orsaka getur ekki orðið af því. —Einar Stefnir í kosningar í Danmörku í maí? Kaupmannahöfn. 1. apríl. Frá Erik Larsen. fréttaritara Mbl. NÚ virðist stefna í að kosningar verði i Danmörku í maí. Ríkis- stjórnin hefur lagt fram áætlanir um hvernig bregðast skuli við vaxandi efnahagsvanda Dana en þær hafa sætt mikilli gagnrýni. í Sjómanna- verkfalli aflýst Þórshöfn. 1. apr. Frá Jogvan Arge, fréttaritara Mbl. FULLTRÚAR sjómanna og útvegsmanna komu saman til samningafundar í dag og að fundi loknum tilkynntu aðil- ar að þeir hefðu orðið ásáttir um að framlengja samkomu- lagið milli þeirra. Þetta þýðir að verkfállinu er aflýst og mun nú allur færeyski flot- inn geta látið úr höfn og hafið veiðar á ný. áætlunum stjórnar Ankers Jörg- ensen er gert ráð fyrir, að rikisútgjöld verði skorin niður um 12 milljarða danskra króna, lagður verði aukinn tekjuskattur á einstaklinga en mestar verði álögurnar á bifreiðaeigendur. Samkvæmt áætlunum verður þungaskattur aukinn um 25%, bensínlítrinn hækkaður um 12 aura og aukin gjöld lögð á brennsluolíu og rafmagn. Hins vegar verður gasverð lækkað um 20%. Ríkisstjórnin hafði á prjón- unum að verja 2 milljörðum danskra króna til almannatrygg- inga en samkvæmt hinum nýju tillögum stjórnarinnar verður hætt við þau áform. Þessar ráðstafanir miða að því Jafntefli Moskva 1. apr. AP. STÓRMEISTARARNIR Tal og Polugayevsky sömdu um jafntefli í fjórðu skák sinni að loknum þrjátíu og sex leikjum. Þetta gerðist 2. apríl 1964 — Jemenar saka Breta um loftárásir. 1951 — Herstjórn NATO í Evrópu stofnuð. 1947 — Öryggisráðið felur Banda- ríkjunum umboðsstjórn á eyjum Japana á Kyrrahafi — Bretar vísa Palestínu-málinu til SÞ. 1917 — Woodrow Wilson forseti kallar þingið saman til aukafundar til að segja Þjóðverjum stríð á hendur. 1903 — Bretar og Frakkar neita að styðja lagningu Bagdad-járnbraut- arinnar. 1871 — Viney og MacMahon setjast um París. 1801 — Sjóorrustan við Kaup- mannahöfn: Sigur Horatio Nelsons eftir aðgerðir Dana á Saxelfi. 1774 — Herlið Warren Hastings tekur Rohilkand, Norðvestur- Indlandi, af Rohilla-ættflokknum. 1667 - Loðvík XIV af Frakklandi undirritar samninginn um Rínar- varnarbandalagið við Munster, Neu- burg, Brúnsvík, Hessen-Kassel, Bæj- araland og Svíþjóð. 1595 — Filippus II af Spáni heitir að styðja uppreisn jarlsins af Tyrone á írlandi. Svisslendingar ganga í Heilaga bandalagið gegn Frökkum. 1340 — Niels Ebbesen myrðir svarta greifann Gert í Randers og Danir endurheimta frelsi sitt. Afmæli — Karl mikli keisari (742— 814) — Hans Christian Andersen, danskur rithöfundur (1805—1875) — Léon Gambetta, franskur stjórn- málaleiðtogi (1838—1882) — Emile Zola, franskur rithöfundur (1840— 1902) — Sir Alec Guiness, brezkur leikari (1914 — ). Andlát — 1416 Fredinand I konung- ur af Aragóníu — 1791 Mirabeau greifi, stjórnmálaleiðtogi — 1865 Richard Cobden, stjórnmálaleiðtogi — 1974 Georges Pompidou, stjórn- málaleiðtogi. Innlent — 1871 Stöðulögin — 1725 Eldgos hefst austur og suðvestur af Heklu — 1273 d. Brandur Andrésson — 1764 Undirritun samninga um iðnfyrirtæki — 1908 Tólf menn fórust í lendingu við Stokkseyri — 1953 Tveir fórust í snjóflóði í Svarfaðardal — 1959 Biskupskjör sr. Sigurbjarnar Einarssonar — 1968 íshella frá Horni að Tjörunesi — 1958 d. Magnús Jónsson ráðherra. Orð dagsins. Treystu engum sem talar vel um alla — John Churton 1512 — Maximilian keisari I og Collins (1848—1908). að minnka mikinn halla á við- skiptum við útlönd, sem er um 77 milljarðar danskra króna, og hall- ann, sem er á fjárlögum. Ríkis- stjórnin lagði þessar tillögur fyrir danska alþýðusambandið í gær en Thomas Nielsen, formaður danska alþýðusambandsins, sagði að auk- ið atvinnulýðræði og þátttaka verkafólks í fyrirtækjum yrði að vera í áætlunum stjórnarinnar ef alþýðusambandið ætti að veíta tillögum stjórnarinnar blessun sína.Þessar kröfur eru ekki í tillögum stjórnarinnar. Anker Jörgensen verður að fá verkalýðs- hreyfinguna til að fallast á tillög- urnar áður en hann leggur þær fyrir þingið í frumvarpsformi þann 13. apríl. Takist honum það ekki þá má búast við nýjum kosningum í Danmörku í maí. Veður Akureyri 0 alskýjaó Amsterdam 12 skýjaó Aþena 20 heiðskírt Barcelona 15 heiðskírt Berlín 14 heiðskírt BrUssel 10 rigning Chicago 8 skýjað Denpasar 32 skýjað Dublin 14 heiöskírt Feneyjar 15 heíðskírt Frankfurt 12 rigning heiðskírt Genf 14 Helsinki 4 skýjað Hong Kong 20 skýjað Jerúsalem 19 heiðskírt Jóhannesarborg 23 heiöskírt Kaupmannahöfn 6 heiðskírt Las Palmas 22 heiðskírt Lissabon 26 heiðskírt London 13 skýjað Los Angeles 22 skýjað Madríd 23 heiðskírt Mallorca 21 léttskýjað Miami 32 skýjað Montreal 10 skýjað Moskva 3 snjókoma Nýja Delhi 30 heiðríkt New York 5 heiðríkt Ósló 7 heiðríkt Parfs 16 skýjað Reykjavík 3 skýjað Rio de Janeiro 31 rigning Rómaborg 15 skýjaö San Francisco 15 skýjað Stokkhólmur 2 þungbúið Sydney 30 heiðríkt Tel Aviv 22 bjart Tókýó 17 skýjað Toronto 3 rigníng Vancouver 9 bjart Vínarborg 11 bjart F orkosningarnar: Ný staða í íran get- ur haft áhrif á úrslit Washington 1. apríl Frá fréttaritara Mbl. Önnu Bjarnadóttur. JIMMY Carter hefur verið spáð sigri í forkosningum demókrata í Wisconsin og Kansas i dag. Starfsmenn hans segja að hann hafi átta prósent meira fylgi í Wisconsin en Edward Kennedy. Jerry Brown er spáð þriðja sæti. Staðan í íran gæti haft áhrif á kjósendur i dag og hjálpað Cart- er eða kostað hann fylgi. Carter lýsti því yfir síðdegis að hann væri ánægður með ákvörðun stjórnarinnar í íran að taka gíslana til sín, en þess ber að geta að „stúdentarnir" í sendi- ráðinu hafa ckkert sagt um málið og með öllu er óljóst hvort eitthvað verður úr framkvæmd- um í þessu frekar en fyrr. Um helgina kom í ljós að Carter skiptist á orðsendingu við stjórn- ina í Teheran í síðustu viku og gaf henni frest fram til mánudags (31.3) til að taka gíslana úr sendiráðinu, en þeir hafa nú verið þar í 150 daga, og flytja í vörzlu stjórnarinnar. Hann kvaðst mundi grípa til sinna ráða, ef stjórnin verður ekki við kröfum hans. Þó svo að Bani Sadr írans- forseti hafi í ræðu í dag sagt að gíslarnir verði fluttir úr sendiráð- inu, sló hann ýmsa varnagla, sem gæti þýtt að ekkert verði úr því að sinni. Carter mun þá væntanlega grípa til efnahagsráðstafana gegn Iran og senda hluta sendiráðs- starfsmanna í Washington heim. Hinir frambjóðendur bandarísku flokkanna hafa allir gagnrýnt viðbrögð Carters við handtöku gíslanna í íran, undanfarið og gætu unnið atkvæði á því ef almenningur sættir sig ekki við þær ráðstafanir sem Carter gerir. Forkosningar beggja stjórn- málaflokkanna í Wisconsin eru opnar öllum. Ronald Reagan óg John Anderson, frambjóðendur repúblikana hafa báðir reynt að höfða til demókrata í kosninga- baráttu sinni þar. Reagan höfðar til Ihaldssamra demókrata, en Anderson til frjálslyndra. Þeir geta því báðir gengið á fylgi Carters og Kennedys. Anderson tókst ekki að sigra í heimaríki sínu, Illinois fyrir hálfum mánuði og það hefur kostað hann nokkuð fylgi í Wisconsin. George Bush er spáð þriðja sæti í Wisconsin. Athygli fjölmiðla hefur svo til eingöngu beinzt að forkosningun- um í Wisconsin, en þar kjósa demókratar 75 fulltrúa á lands- þing flokksins í sumar og repú- blikanar 34. í Kansas kjósa demó- kratar 37 fulltrúa á landsþingið og repúblikanar 32. Carter og Reagan er spáð sigri í Kansas. Stuðningsmenn Carters hafa sagt að stór sigur í Kansas sé mikil- vægur fyrir Carter, en Kennedy vonast til að munurinn á honum og Carter verði ekki of stór. Anderson og George Bush berjast um annað sætið í Kansas.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.