Morgunblaðið - 02.04.1980, Side 30

Morgunblaðið - 02.04.1980, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1980 Páll H. Kristjánsson: Er hagkvæmara að flytja skoð un bifreiða inn á verkstæðin? Þann 6. nóvember 1979 kom opinberleKa út skýrsla um skipan Bifreiöaeftirlits ríkisins, unnin af starfshópi, skipuðum af þáverandi dómsmálaráðherra, Steingrími Hermannssyni. Áður hafði fjárlaga- og hag- sýslustofnun látið gera frumkönn- un á því að skoðunarverkefnið yrði flutt frá Bifreiðaeftirlitinu til almennra bifreiðaverkstæða. Könnun þessi, sem var gerð af ráðgjafarfyrirtækinu Hannarri s/f, benti til þess að mun hag- kvæmara væri að Bifreiðaeftirlit- ið annaðist skoðunina áfram í stað þess að fela hana bifreiðaverk- stæðum. Þrátt fyrir að ráðgefandi fyrir- tæki, valið af Fjárlaga- og hag- sýslustofnun, skilaði af sér skýrslu sem sýndi árlegan kostn- aðarauka upp á 120—130 milljónir á núgildandi verðlagi, dró stofn- unin þær staðreyndir í efa og lagði til, að hafin yrði skipulegur undir- búningur að því, að flytja skoðun- arverkefnið frá Bifreiðaeftirlitinu. Til marks um það, hvernig að þessum málum var staðið, má geta þess að Fjárlaga- og hagsýslu- stofnun hafði ekki samband við neinn þann aðila sem hagsmuna hafði að gæta og málið snerti. Því verður að draga þá ályktun, að þar hafi komið til persónulegar hug- renningar þeirra pólitíkusa og embættismanna sem um málið fjölluðu. Hver einasti fulltíða Islending- ur hlýtur að fordæma slík vinnu- brögð, sérstaklega hjá stofnun sem sér um ríkisfjármál. í starfshópi þeim, sem dóms- málaráðherra skipaði, sátu Eiður Guðnason, alþingismaður, Guðni Karlsson, forstöðumaður Bifreiða- eftirlits ríkisins, Jón E. Böðvars- son, skrifstofustjóri í Fjárlaga- og hagsýslustofnun, Þórir Jónsson, forstjóri og stjórnarmaður í Bílgreinasambandinu og Eiríkur Tómasson, þáverandi aðstoðar- maður dómsmálaráðherra. Áður hef ég getið þess að Fjárlaga- og hagsýslustofnun hafi falið Hannarri s/f að gera könnun á starfsemi Bifreiðaeftirlitsins, en hafnað niðurstöðum þeirrar könn- unar. Starfshópur þessi fól ráð- gjafarfyrirtækinu Hagvangi h/f að gera tímamælingu á skoðunar- verkefninu. Könnun þessi fór fram að sumri til þegar flestir bifreiða- eftirlitsmenn voru í sumarleyfi og auglýst hafði verið að Bifreiðaeft- irlitið tæki ekki bifreiðar til aðal- skoðunar. Flestar skoðanir voru því „endurskoðanir“ sem taka að jafnaði mun skemmri tíma en aðalskoðanir. Til þessa atriðis tók tímamælingamaðurinn ekkert til- lit. Það er erfitt að trúa því að svo vandað fyrirtæki sem Hagvangur h/f hafi sent frá sér jafn villandi upplýsingar og getið er um í fylgiskjali 6, sem ber heitið „Lauslegir útreikningar á sparn- aði í krónutölu o.fi. hjá Bifreiða- eftirliti ríkisins". Þar segir: „Talið er, að hver starfsmaður skili af sér 1906 vinnustundum á ári, sé reiknað með því að hver skoðun taki að meðaltali 20 mín. gæti hver starfsmaður sinnt 5718 skoðunum á ári.“ Við skulum athuga þetta nánar. Bifreiðaeftirlitið er opið 8.25 klst. á dag, 5 daga vikunnar. Af þessum tíma er hver starfsmaður 0.50 klst. í mat og 0.25 klst. í kaffi = 0.75 klst. Virkur tími hvers starfsmanns er því 7.5 stundir x 5 dagar x 52 vikur, eða 1950 vinnu- stundir. Hagkvæmnisútreikningar starfshópsins hljóta því að gera ráð fyrir þrælahaldi, því að til sumarleyfa, páskahátíðar, hvíta- sunnu og jólahalds svo eitthvað sé nefnt, fá Bifreiðaeftirlitsmenn heilar 44 stundir eða u.þ.b. 5.8 daga, að ekki sé nú kvartað yfir því að margir starfsmenn þurfa að aka allt að 160 km til að sinna vinnu sinni. Skýrsla þessi skiptist í sex- megin kafla, þar sem fjallað er um núverandi starfsemi Bifreiðaeft- irlitsins, síðan skiptast á hugrenn- ingar meirihluta starfshópsins um breytingar og mat á hagkvæmni. Þegar hér er komið, klofnar nefndin og ljóst er að sá aðili í starfshópnum, Guðni Karlsson, sem einn getur með réttu fullyrt að hann hafi tæmandi þekkingu á bifreiðaskoðun, er andsnúinn breytingum og skilar sér áliti. í skýrslu þessari eru rakin þau verkefni sem Bifreiðaeftirlitið á að sinna samkvæmt núgildandi lögum. 1. Skoðun ökutækja (aðalskoðun bifreiða og aukaskoðanir). 2. Skráning ökutækja (nýskrán- ing, umskráning og eigenda- skipti). 3. Álestur ökumæla (vegna inn- heimtu á þungaskatti og eftirlit með mælum). 4. Prófdómarastörf (próf á létt bifhjól, próf á dráttarvélar, minnapróf bifreiðastjóra, meirapróf bifreiðastjóra, próf á bifreiðar sem flytja mega fleiri en 16 farþega og ökukennara- próf). Áður en rætt verður nánar um þann hluta skýrslunnar, sem meirihluti starfshópsins leggur til að stefnt sé að, er ekki úr vegi að gera grein fyrir núverandi starfs- aðstöðu bifreiðaeftirlitsmanna. í dag er aðeins hægt að skoða bifreiðar innanhúss á tveimur stöðum á landinu, í Keflavík og á Blönduósi. Á þessum tveimur stöðum eru skráðar 5994 bifreiðar af 84652 sem á skrá eru. 5 af 62 starfsmönnum Bifreiðaeftirlitsins hafa því viðunandi starfsaðstöðu. í stuttu máli er ekki hægt að tíunda starfsaðstöðu allra bif- reiðaeftirlitsmanna á landinu en ljóst er að 78.658 bifreiðar og rúmlega 100.000 skoðanir fara fram við vægast sagt mjög lélegar aðstæður. I sárafáum tilfellum er steypt eða malbikað plan til þess að lyfta bílum á. Skiptast þá í hinni óblíðu veðráttu, moldrok og rigningar, snjór og skafrenningúr eða aur- bleyta og rigningarpollar. Áf þessu má sjá að ef það á að skapa bifreiðaeftirlitsmönnum viðunandi starfsaðstöðu, þarf að koma til verulegt fjármagn og engum skal ofbjóða þær 20 mínút- ur sem ætlaðar eru til skoðunar og áður er getið í sparnaðarhugleið- ingum starfshópsins. í skýrslu meirihluta starfshópsins er gert ráð fyrir að bifreiðaverkstæðin taki að sér verulegan hluta skoð- unarverkefnisins þannig að: Bif- reiðar á 1., 2., 3. og 5., 6. og 7. aldursári verði skoðaðar ýmist hjá bifreiðaverkstæðum eða bifreiða- eftirliti, en á 4. og 8. aldursári og eftir það hjá Bifreiðaeftirliti. (Það vantar ekki, að Bílgreinasam- bandið skal halda sínu.) Þegar annars er rætt um sparn- að þá er að dómi þessara „vísu manna" besta lausnin að taka upp tvöfalt skoðunarkerfi, þannig að Bifreiðaeftirlitið skoði hluta af bifreiðunum, en verkstæðin hluta. Síðan eiga verkstæðin að skila hluta af skoðunargjaldi því sem þau innheimta til Bifreiðaeftir- litsins, til þess að standa straum af eftirliti með verkstæðunum. Máltækið segir „sjaldan er ein báran stök“ og takið nú vel eftir. Þessir postular finna nú upp snilldarráð, enda ráðgjafar starf- andi ríkisstjórnar. Nú skal vitnað til hluta úr skýrslunni. Á bls. 6 í því merka riti stendur: „Verkstæðin þ.e. þau sem til greina kemur að veita löggildingu til skoðunar geta að vísu tekið við nokkuð fleiri bifreiðum til skoðun- ar en þau annast viðgerðir á sem stendur, en útilokað er að þau geti skoðað allar bifreiðar lands- manna einu sinni á ári“. Á næstu síðu er vandamál Bifreiðaeftirlits- ins leyst þannig (á bls. 7), þegar starfshópurinn sér þörf bifreiða- eftirlitsins fyrir bættri skoðunar- aðstöðu: „Annars staðar mætti hugsa sér að bæta úr skoðunaraðstöðu með færanlegri skoðunarstöð eða með því að fá leigða skoðunaraðstöðu hjá viðurkenndum og vel búnum bifreiðaverkstæðum. (EÍríkur Tómasson hefur væntanlega ekki verið í skóla, þegar skólanemar þrömmuðu niður í menntamála- ráðuneyti með kröfuspjald sem á stóð: Er hægt að rúma 50 kýr í 10 kúa fjósi?). I skýrslu starfshópsins er getið um helstu rök með breytingu á skoðunarverkefninu. Meðal ann- ars: „Ódýrast verði að láta bifreiða- verkstæðin annast skoðunina.“ Hvaða rök liggja hér að baki? Ég sat hluta af tveimur fundum starfshópsins. Á þeim fyrri lá aðeins fyrir ein kostnaðaráætlun unnin af Hannarri s/f fyrir Fjár- Iaga- og hagsýslustofnun sem áð- ur er vikið að. Á þessum fundi var það ljóst, að meirihluti nefndarmanna hafði þegar myndað sér ákveðna stefnu og við hana skyldi staðið. Fram- kvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda, Sveini Oddgeirssyni og undirrituðum sem fulltrúa bifreiðaeftirlits- manna, var boðið á fundinn svo að við vissum hvernig nefndarmenn ætluðu að haga bifreiðaskoðun- inni. Þetta sannar það að nefnd- armenn höfðu ekki samband við neinn þann aðila sem málið snerti og hagsmuna hafði að gæta. Innan Bílgreinasambandsins starfar nefnd sem fjallar um skoðunar- KRUKKAÐI FLUORINN Sverrir Einarsson, fyrrverandi form. tannlækna, skrifar 14. þ.m. grein í Mbl. um „Buddu tannlækn- is“. En ekki ætla ég að reka mitt nef ofan í buddu Sverris eða kollega hans. Enda kæmist það ekki ofan í fulla buddu. Svo og er ljóst, að hann ætlar Jóni Aðal- steini Jónassyni, í heilbrigðisráði borgarinnar, að ræða við sig um „budduna". Og þó ekki einungis Jóni. Hann segist vonast til, „að hið opinbera dragi sitt freðna nef upp úr buddunni hans“. Og mun engan furða. Hitt gegnir meíri furðu, að frost skuli vera í buddu- vasa læknisins. En við Sverrir eigum saman ósvikið áhugamál, blessaðan flúorinn, sem hann eðlilega minn- ist á í niðurlagi greinarinnar. Lítillega höfum við rætt þetta undraefni, sem þjónar jöfnum höndum sem rottueitur og tann- Iyf. En milli okkar er talsvert bylgjubil. Skoðanir okkar falla ekki sem best saman. Og ekki er ég þeirrar skoðunar, að „tannsjúkdómurinn sé sjálfur kjarni málsins". Ég held að orsak- ir sjúkdómsins, séu „kjarni máls- ins“. Orsökunum þarf að útrýma, til að útrýma sjúkdómnum. — Og hvergi hef ég séð þess getið, að skortur „natríumflúors", sé orsök tannskemmda. — Væri sú orsökin, væru tannskemmdir ekkert vandamál. En vandamálið er ekki skortur natríumflúors, heldur skortur réttra næringarefna, og ofgnægð rangra neysluefna. En Sverrir og trúbræður hans vilja ekki horfast í augu við þessa einföldu stað- reynd, og virðast ekki koma auga á annað en natríumflúor gegn tannátu, iítum því eilítið nánar á natríumflúorinn, blessaðan, eitt sterksta eitur, sem þekkist. En þetta eitur vill Sverrir og aðrir flúorpostutar gera að neysluþætti allra tandsmanna. Og sem einn þeirra svara ég og mótmæli — og spyr: Hvers vegna hafa hundruð borga í Bandaríkjunum horfið frá flúorblöndun að fenginni reynslu? Ég gat þess lauslega í einni fyrri greina, „Krukkað í flúorinn" að 6000 japönskum börnum, hefðu verið dæmdar skaðabætur vegna heilsutjóns, sem þau höfðu hlotið af flúor, sem reynt er að fá íslenska foreldra til að gefa börn- um, á viðkvæmasta skeiði ævinn- ar, frá fæðingu til 14 ára aldurs, segir yfirskólatannlæknirinn. Þessi 6000 börn voru öll í borginni Takarazuka. Og helming- ur þeirra hafði fengið undir hálf- um skammti þess, sem flúorpost- ularnir ráðleggja. Og þess er getið í flúorborginni Nishiyodo séu heilsutjónsdæmin ekki færri. Hvað hefði svo skeð, hefðu þessi börn fengið FULLAN ráðlagðan flúorskammt? Það er síst að furða, þótt hópur japanskra vísindamanna, sem ekki hefur setið aðgerðalaus hjá, hafi í undirbúningi, eða þegar gefið út „svarta bók“ um reynsl- una af natríumflúornum, sem Sverrir og trúbræður hans vilja blanda í drykkjarvatnið okkar. Prófessor Kosei Takahashi, rómaður fyrir lyfjarannsóknir sínar við háskólann í Tokíó, varar fólk mjög eindregið við flúornum í hvaða formi sem er og hvetur fólk til að banna að börn þess verði flúorpensluð. Próf, Takahashi segir: „Tilraun- um okkar er ekki lokið, en við teljum líklegt, að flúor orsaki krabbamein." Tel ég rétt að birta á ný Birmingham-línuritið, sem sýnir dánartíðni af krabbameini, fyrir og eftir flúorblöndun drykkj- arvatns borgarbúa. — Og beina nokkrum spurningum til Sverris. Ég hef áður beint sömu eða líkum spurnlngum til eftirmanns hans í Yfirlækninum svarað stjórn og yfirskólatannlæknis, Stefáns Finnbogasonar. En hvor- ugur hefur svarað. Þetta hefur margur undrast og ekki að ástæðulausu, því að háttsettir læknar geta ekki gerst skjald- sveinar natríumflúors, án þess að svara eðlilegum spurningum um

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.