Morgunblaðið - 02.04.1980, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.04.1980, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1980 Umræður um aðalskipulag Reykjavíkur Síðari hluti Ofrávíkjanlegt framtíðarmarkmið að hér þróist gróskumikið athafnalíf Ilér fer á eftir framhald frásagnar af umræðum í borgarstjórn um skipulagsmál — og hefst á síðari hluta ræðu Markúsar Arnar Antonssonar. Hin dauða hönd vinstri meirihlutans Allt er þetta ósköp einfalt og liggur beint við ,að mati þeirra sem ábyrgð bera á afturhaldinu, sem svo augljóslega skín í gegn í stefnu núverandi borgarstjórn- armeirihluta. Það er glæst fram- tíðarsýn, sem verið er að kynna Reykvíkingum eða hitt þó heldur. Það eru heldur betur tilþrif og þróttur í vinstri flokkunum og embættismönnum þeirra eftir tæpt hálft kjörtímabil í meiri- hlutaaðstöðu í borgarstjórn Reykjavíkur. Það á heldur betur að láta hendur standa fram úr ermum til að Reykjavík dragist ekki aftur úr öðrum byggðarlög- um, — að hér verði ungu fólki búin lífvænleg framtíðarskilyrði, — að það fái þörfum sínum fullnægt í húsnæði, samkvæmt_sínum eigin óskum, og val á fjölbreyttum kostum í atvinnumálum. Nei. Þetta er greinilega alls ekki á stefnuskrá meirihlutans. Hin „dauða hönd“ vinstri manna hefur lagzt á öll góð áform um að tryggja Reykjavíkurborg eðlileg skilyrði til að veita viðnám gegn byggðaröskun síðustu ára, þegar straumarnir hafa legið frá höfuð- borginni og snúa þeirri vörn í sókn með því að efla hér atvinnutæki- færi, gefa fólki kost á byggingar- lóðum á nýjum svæðum í borgar- landinu. Ef þeirri stefnu, sem meirihluti sjálfstæðismanna markaði um framtíðaruppbyggingu borgarinn- ar á hinu svonefnda Úlfarsfells- svæði og nágrenni yrði fylgt, og væri farið að tillögum okkar um eflingu atvinnustarfsemi í borg- inni þyrfti enginn að kvíða því að Reykvíkingum fækkaði á næstu fimmtán árum eða að mannfjöld- inn stæði algjörlega í stað. Er það annars kappsmál að Reykjavík vaxi? Greinilega ekki í augum núverandi meirihluta, sem hefur sett upp stöðvunarmerkið og hefur það eitt að leiðarljósi. En fyrir okkur hin, fyrir allan þorra Reykvíkinga, er það ófrávíkjan- legt framtíðarmarkmið að hér þróist gróskumikið athafnalíf, vaxandi og blómlegt mannlíf og menning um ókomin ár. Þetta hlýtur að vera metnaðarmál allra sannra Reykvíkinga, — að borgin geti skapað börnum sínum og öðrum ekki síðri skilyrði — helzt betri — en önnur byggðarlög í Iandinu gera. Staðfesting á aðal- skipulaginu er eitt af frumskilyrð- unum til að þessum markmiðum verði náð. Lóðaskortur af völdum meirihlutans Reykjavík er orðin gömul og Iúin, einhvers konar ólæknandi langlegusjúklingur, ef marka má umsagnir skipulagsfræðinganna. Eða hvernig ber að skilja þessa afsökun þeirra: „í borginni í dag er hlutfallslega mikið af eldra fólki og einhleypingum, en þessir hópar hafa ekki sóst mikið eftir byggingarlóðum?" Þetta er sett fram í því skyni að afsaka aðgerðaleysi í lóðamálum og til að sanna tilgangsleysið í öflun nýbyggingarsvæða. Hlutfall aldraðra er að sönnu hátt í Reykjavík. En eru ekki allir sam- mála um að breyta því eftir megni? Er það ekki stefna okkar að leiðrétta vægið á milli aldurs- flokka eftir föngum, meðal annars með fjölbreyttara atvinnulífi og úrlausnum í húsnæðismálum? Fyrir kosningar var ekki annað að skilja á núverandi meirihluta- flokkum en að þeir væru sammála okkur sjálfstæðismönnum um nauðsyn þessa. En það kveður við annan tón nú. í stað þess að gera ungu fólki kleift að festa búsetu hér með eðlilegum lausnum í húsnæðismálum hefur aðgerða- leysi meirihlutans í lóðamálum skapað öngþveiti. Það virðist vera úr sögunni að ungt fólk geti byggt RJorxvln Sixurður GudmundsHon Tómasson sjálft litlar íbúðir í fjölbýlishúsum til að byrja búskap eða tekið við slíkum eigin íbúðum og fullgert þær. Þetta var fyrsta skrefið sem flestir af minni kynslóð stigu til að leysa húsnæðismál sín. Þessir kostir eru naumast fyrir hendi lengur. íbúðaverð fer stöðugt hækkandi þannig að það er ofviða ungu fólki, sem er að hefja búskap að eignast húsnæði. Af völdum núverandi meirihluta hefur mynd- ast hér lóðaskortur, sem ýtir stöðugt undir verðhækkanir á fasteignamarkaði. Ungt fólk mun því gera auknar kröfur um ein- hverjar „félagslegar úrlausnir" í húsnæðismálum, af því að aðrar leiðir út úr vanda þess eru ekki færar. Kannski stefnir meirihlut- inn að því að kynda undir kröfu- gerðinni um hin sósíalísku úrræði í húsnæðismálum. Einbýlis- og raðhúsalóðir eru svo að segja allar búnar í borgar- landinu. Þetta kropp í svokölluð þéttingarsvæði, sem Borgarskipu- lag hefur ástundað að undanförnu, með því að finna stað fyrir nokkra tugi íbúða inni á milli eldri byggðasvæða, skapar ekki það framboð sem til þarf. Þó að skipulagsfræðingar haldi því fram að Reykvíkingar séu sv.o aldnir og einmana að þeir vilji ekki byggja, sýna tölur um lóðaumsóknir I þeirri úthlutun, sem nú er verið að undirbúa hjá Reykjavíkurborg, allt annað. Inni við Rauðagerði á nú að byggja 12 einbýlishús af stærri gerðinni. Umsóknir um þau eru 331. Við Tómasarhaga er ein lóð. Um hana sóttu 39. í Hólahverfi verður úthlutað 50 einbýlishúsa- lóðum. Það eru 162 umsóknir um þær. Á Eiðsgranda er úthlutað 35 einbýlishúsalóðum. Umsóknir eru 155. í Seljahverfi verður úthlutað 10 raðhúsalóðum. Umsóknir eru 75. Hvað eru þetta annað en dæmi um mikla eftirspurn, sem núver- andi meirihluti virðist alls ekki ætla að mæta? Hyað er líklegra en að þeir mörgu umsækjendur, sem ekki fá úthlutun, leiti í nágranna- byggðirnar eða í önnur landshorn? Með þessu áframhaldi á húsnæð- ismálum gæti núverandi meíri- hluti að sjálfsögðu stuðlað að verulegri fólksfækkun í Reykjavík til að fá dæmin í mannfjöldaspám sínum til að ganga upp. Það er full ástæða til að líta sérstaklega á hagsmuni ungs fólks í þessu sam- bandi. Hið nýja „punktakerfi", sem meirihlutinn notar við lóðaút- hlutun sína, bitnar mjög harka- lega á ungu fólki. Við þá lóðaút- hlutun, sem nú er í undirbúningi, er líklegast alveg útilokað að hjón fái úthlutun nema þau séu 29 ára eða eldri. Yngra fólk, hversu harðduglegt sem það kann að vera og efnilegt, á ekkert upp á pall- borðið hjá núverandi meirihluta. „Punktakerfið" nýja, sem boða átti jafnrétti í lóðamálum, útilok- ar að jafnaði fólk upp að þrítugu. Einu eðlilegu viðbrögðin við alkunnri eftirspurn eftir lóðum í Reykjavík er að fara að ráðum okkar sjálfstæðismanna og skipu- leggja ný, stór byggingarsvæði Ólafur B. Kristján Thors Benediktsson fyrir framtíðarútvíkkun borgar- innar. íbúðar- hús á flug- vellinum I stað þess að nema nýtt land við ytri mörk borgarinnar hafa starfsmenn Borgarskipulags bent á það snjallræði að byggja íbúð- arhús á flugbrautunum í Vatns- mýrinni. Ekki er það í fyrsta skipti, sem augu Reykvíkinga hafa beinzt að þessu girnilega landrými í næsta nágrenni miðborgarinnar. En nú sem fyrr munu menn fljótlega gera sér grein fyrir að flutningur flugvallarstarfseminn- ar frá Reykjavíkurflugvelli er ekki á dagskrá, jafnvel þótt hægt sé að benda á að nýjan flugvöll í Kapelluhrauni fyrir sunnan Hafn- arfjörð megi tæknilega fullgera innan fimm ára. Það er talað um þjóðhagslegan ávinning af slíkri framkvæmd með ótal flóknum útreikningum. En raunveruleiki dagsins í dag er ekki sá og verður ekki á morgun, að byggður verði nýr flugvöllur í Kapelluhrauni. Önnur þjóðhags- leg markmið, stefnumið í flugmál- um, eru allt önnur. Miðað við ástandið í flugöryggismálum á landinu almennt er aðstaðan á Reykjavíkurflugvelli mjög viðun- andi. Áhersluþunginn er á úrbæt- ur í öryggismálum flugvalla á áfangastöðum úti um landið. Þar er geysilega mikið verk óunnið eins og fram hefur komið í greinargerðum flugmálastjóra og flugmanna. Sem Reykvíkingur og flugfarþegi hlýt ég að taka undir þau sjónarmið að brýnna sé að uppfylla öryggiskröfur og fullgera flugvelli úti um land, áður en ráðist er í gerð nýs flugvallar við höfuðborgina. Það er að mínu mati ákaflega slæmur kostur að flytja allt inn- anlandsflug til Keflavíkur. Þó að starfsmenn Borgarskipulags segi atvinnutækifærin „ekki meiri" en 300 sem við það flyttust úr borginni, er það 300 of mikið. Borgarverkfræðingur hefur dregið þessa tölu í efa og telur hana of lágt áætlaða. Ég tel mjög ósenni- legt að Reykvíkingar gegndu þess- um stöðum á Keflavíkurflugvelli til lengri tíma. Búseta myndi flytjast burt með atvinnumögu- leikunum og ekki er annað fært í þessu sambandi en að taka mið af einum veigamesta þættinum í utanríkisstefnu núverandi ríkis- stjórnar, — það er varðandi at- vinnuuppbyggingu fyrir Suður- nesjamenn. Enginn getur fullyrt að Reykja- víkurflugvöllur verði óbreyttur um aldur og ævi þó að gert hafi verið ráð fyrir honum út skipu- lagstímabilið, til 1995. Ef til vill yrði ný flugbraut með strand- lengjunni í Skerjafirði framtíðar- lausn fyrir nýjar gerðir af flugvél- um, sem þyrftu minna athafna- Magnús L. Sjðtn Sig- Sveinsson urbjðrnsdóttir svæði en þær gerðir sem nú eru í notkun. Rekstrarkostnaður innanlands- flugsins stóreykst með flutningi til Keflavíkurflugvallar og það er því ekki fýsilegur kostur í náinni framtíð. Hagræðið af legu flug- vallarins, þar sem hann er nú, vegur áberandi þyngra en hávaði og mengun eða slysahætta, sem er í lágmarki. Hér á ég að sjálfsögðu við óbreytta starfsemi á flugvell- inum í meginatriðum, — að hann sé notaður til innanlandsflugs, að þotuflug verði ekki leyft um hann og öll flugumferð bönnuð að næt- urlagi, nema í neyðartilfellum. Ég hef hér að framan gert fáein veigamikil atriði í skipulagsmál- um að umtalsefni. Aðrir úr hópi okkar sjálfstæðismanna fjalla um aðra þætti og efalaust væri fróð- legt að ræða nánar ýmsar stað- hæfingar í greinargerð Borgar- skipulags, sem ef til vill ber ekki á góma í þessum umræðum. Það hefur undarlegt sjónarspil verið sett á svið í allri meðferð þessara skipulagsmála. I gegn skín sá undarlegi ásetningur nú- verandi meirihluta að tína til allar mögulegar mótbárur gegn því aðalskipulagi sem bíður fullunnið eftir staðfestingu. Einhverjar furðulegar hvatir búa þar að baki. En framferði meirihlutans sýnir ljóslega að hann lætur ofstæki sitt og einhver persónuleg tilfinn- ingamál hamla öllum framgangi byggðaþróunar í Reykjavík, borg- arbúum til óbætanlegs tjóns,“ sagði Markús. Fyrrverandi meirihluti lét atvinnu- lífið drabb- ast niður Er Markús hafði lokið ræðu sinni kom í ræðustól Björgvin Guðmundsson (A). Björgvin sagði að tillaga meirihlutans fjallaði um endurskoðun á þeim þætti aðal- skipulagsins sem fjallaði um ný byggingarsvæði. Björgvin sagði að forsendur skipulagsins hefðu breyst verulega og væri samkv. nýjum athugunum talið að íbúum borgarinnar muni lítið fjölga. Björgvin sagði það ekki kappsmál meirihlutans, eins og sumir vildu vera láta, að íbúafjöldi borgarinn- ar standi í stað. Hinsvegar hafi fyrrverandi meirihluti ekki hlúð að atvinnulífinu sem skyldi, en látið það drabbast niður. í máli Björgvins kom og fram að að mati Borgarskipulags komist ekki fyrir nema um 25000 manns á Úlfars- fellssvæðinu, en þar hafi Sjálf- stæðisflokkurinn gert ráð fyrir 50000 manna byggð. Björgvin sagði fulla ástæðu til að endurskoða skipulagið hvað varðaði ný byggingarsvæði. Þá gat Björgvin þess að forráðamenn Borgarskipulagsins teldu, að þeir gætu lokið endurskoðun þessa þáttar í maí nk. og þá væri hægt að taka ákvörðun um þetta mál. Þá ítrekaði Björgvin þá skoðun sína að ekki væri verið að varpa skipulaginu fyrir róða, aðeins væri verið að endurskoða hluta þess. Varið ykkur á helv... kommunum Að máli Björgvins loknu tók til máls Sigurður Tómasson (Abl). Hann sagði að Sjálfstæðisflokk- urinn legði mikið upp úr því að tillagan næði ekki fram að ganga. Sigurður sagði að inntakið í ræðu Markúsar Arnar hefði verið í stuttu máli: „Varið ykkur á helvít- is kommunum," en hann sagðist hafa búist við faglegri umræðu um þetta mál. Þessu næst velti hann því fyrir sér hvað ylli þeirri áherslu sem að Sjálfstæðisflokk- urinn legði á þetta mál. Hann sagði að núverandi minnihluti ætti sök á lóðaskorti þeim sem nú væri í Reykjavík. Þá vék Sigurður máli sínu að Birgi ísl. Gunnars- syni og sagði að hann væri ósammála því áliti hans að pól- itíkusar ættu ekki að vera fag- menn, en Sigurður sagðist þeirrar skoðunar. Sigurður sagði að mikið hefði verið fjallað um vatnsverndun- armörkin. Hann sagði, að í máli Birgis hafi það komið fram að endanleg geta svæðisins í Heið- mörk lægi ekki fyrir, en það taldi hann vera fullljóst. Sigurður sagðist sammála því að öll þróun á Reykjavíkursvæð- inu færi fram með hagsmuni heildarinnar í huga. Sigurður gat þess að lokum að hann teldi að orsakir þess ofurkapps sem að Sjálfstæðisflokkurinn legði á það að tillagan væri felld, væri það að hann vildi breiða yfir mistök sín. Davífl Oddsson SigurjAn Pétursson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.