Morgunblaðið - 02.04.1980, Síða 39

Morgunblaðið - 02.04.1980, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1980 39 Stjórnarliðið gegn átaki í vegamálum: Ríkið tekur 29 milljarða króna í benzínverði 1980 Risavaxin verkefni bíða fram- kvæmda í vegagerð og almanna- áhugi beinist i vaxandi mæli í þá átt, sagði Steinþór Gestsson (S) í framsöguræðu á Alþingi fyrir 3‘/2 milljarðs króna hækkun fjár- framlaga til nýframkvæmda í vegagerð 1980 — og samsvarandi sparnaði í öðrum þáttum ríkis- útgjalda. í ár er hlutur ríkisins í benzínverði áætlaður 29 miiljarð- ar króna, eða 20 milljörðum hærri en var 1978 á síðasta ári rikisstjórnar Geirs Ha- llgrímssonar. Þegar þessa tekj- uauka af umferðinni er gætt, sagði Steinþór Gestsson. þá er ekki óeðlilegt, að gerðar séu kröfur um umtalsvert átak í varanlegri vegagerð, en á því sviði erum við langt að baki öllum nágrannaþjóðum. Vegaáætlun og framkvæmdaþáttur fjárframlaga Steinþór Gestsson (S) vék að Vegaáætlun Alþingis, sem sam- þykkt var í maí 1979 — fyrir 11 mánuðum. Til að halda þar áætl- uðum framkvæmdamætti 1980 skorti 6 '/2 milljarð króna að sögn Vegagerðar ríkisins. Er því ekki vanþörf á, sagði StGe, að bæta um betur í vegaáformum núverandi ríkisstjórnar, enda er varanleg vegagerð talin með arðsamari framkvæmdum í samfélagsgeiran- um. Fjármagnsútvegun — sparnaður StGe sagði tillögu sjálfstæð- ismanna um aukið fjármagn til vegamála ekki koma fram í aukn- um sköttum heldur leggjum við til samsvarandi sparnað eða sam- drátt í ríkisútgjöldum í öðrum játtum ríkisútgjalda. Hann sagði Lögréttufrumvarp: Dómvextir á borði ráðherra Friðjón Þórðarson, dómsmála- ráðherra, mælti í fyrri viku fyrir stjórnarfrumvarpi um lögréttulög, sem nú er lagt fram í fjórða skiptið, er fjallar um nýjan dómstól (lögréttu). Lög- rétta skal fjalla um hin stærri mál sem fyrsta dómstig en um önnur mál sem annað dómstig. Ætti þá yfirleitt ekki að mega skjóta málum tii Hæstaréttar. Kostir frumvarpsins eru taldir þeir að hraða málum, einkum hinum smærri málum. gegnum dómkcrfið. Gallar eru taldir aukinn kerfiskostnaður vegna nýs dómsstigs. Frumvarp þetta var lagt fram í haust af fyrrver- andi dómsmálaráðherra, Vil- mundi Gylfasyni. Verðtryggðir dómvextir Vilmundur Gylfason (A) taldi frumvarpið miða til hinnar réttu áttar, að hraða málum í dómkerf- inu. Hann gat þess að í sinni ráðherratíð hefði hann sett hæfa menn í að semja frumvarp til laga um dómvexti (verðtryggingu dómvaxta), sem tryggja ætti hagsmuni þeirra, er brotið væri á í þjóðfélaginu og sækja þyrftu fjárkröfur til dómstóla. Lagði hann áherzlu á að það frumvarp fylgdi lögréttufrumvarpinu og næði lögfestingu samhliða því. Friðjón Þórðarson, dómsmála- ráðherra, sagði frumvarp þetta hafa komið á borð sitt í ráðuneyt- inu í dag. Myndi hann hraða skoðun þess eftir því sem föng væru svo það gæti fengið þing- lega meðferð. Framkvæmda- máttur vegafjár skertur Steinþór Gestsson launalið fjárlagafrumvarps gera ráð fyrir rúmum 95 milljarða útgjöldum, sem væri 77.3% hækk- un frá fjárlögum fyrra árs, eða mun meira en næmi verðlags- hækkun milli ára. Þennan lið viljum við lækka um 1.6 milljarða króna. í fjárlagafrumvarpi 1980 er framlag til Lánasjóðs námsmanna hækkað um 141.3%, á sama tíma og útgjöld vegna lífeyristrygginga hækka um 71%. Ef hækkun til Lánsjóðsins væri í sama hlutfalli og til lífeyristrygginga sparast 1 '/2 milljarðar króna. Til að jafna metin leggjum við svo til lækkun á óvissum útgjöldum og jafnaðar- tölu fjárlaga. Lánsfjáráætlun Matthías Á. Mathiesen, fv. fjár- málaráðherra, hafði frumkvæði að því að framkvæmda- og lánsfjár- áætlun fylgdi fjárlagafrumvarpi, svo heildstæð mynd fengist af ríkisfjármálum. Þá var slíkt ekki lagaskylda, eins og nú er. Engu að síður urðu alþýðubandalagsmenn háværir í gagnrýni, ef framlagn- ing lánsfjáráætlunar varð fáum dögum seinna á ferð en framlagn- ing fjárlagafrumvarps. Þó lagask- ylda sé nú, samkvæmt Ólafslög- um, að lánsfjáráætlun fylgi fjár- lagafrumvarpi, er sú lagakvöð brotin er Alþýðubandalag á fjár- málaráðherra. Og það sem meira er: Sýnt þykir að hún verði ekki iögð fram fyrr en eftir að fjárlög hafa verið afgreidd. Greinargerð Eggerts Haukdal Tillögu sjálfstæðismanna um átak í varanlegri vegagerð 1980 var felld af stjórnarliðinu. Eggert Haukdal gerði svohljóðandi grein- argerð fyrir atkvæði sínu: „Sú vegaáætlun fyrir árið 1980 sem samþykkt var í fyrra er að sjálfsögðu marklítið plagg ef ekki á að standa við raungildi hennar. Til þess er talið vanta 6.5 millj- arða sem verður að koma á lánsfjáráætlun. Ekki liggur enn fyrir af ríkisstjórnarinnar hálfu hve miklu verði varið til vegamála í lánsfjáráætlun eða hvort við raungildi verði staðið, en'þeirrar ákvörðunar er að vænta. Að mínum dómi kemur fyrir- huguð benzínhækkun ekki til greina nema þeim hluta hennar sem gengur beint til ríkisins verði varið til vegamála. I trausti þess að við afgreiðslu lánsfjáráætlunar eða á annan hátt verði a.m.k. staðið við raungildi núverandi vegaáætlunar, segi ég nei.“~ _____________ Sigrún Magnúsdóttir Sigrún Magnúsdóttir um iðnaftaruppbygginKu: „Hjálpar okkur enginn ef við ger- um það ekki sjálf46 Sigrún Magnúsdóttir, vara- þingmaður Framsóknar- flokks úr Reykjavík, flutti jómfrúrræðu í umræðu um „innkaup opinberra aðila á íslenzkum iðnaðarvörum“, þingmáli Eggerts Haukdals. Hún sagði dæmigert fyrir afstöðu til íslenzks iðnaðar, að þetta sama mál hefði hlotið góðar undirtektir f í orði á síðasta þingi, en ekki af- greiðslu á borði. „Það er algjör nauðsyn,“ sagði SM, „að þessi atvinnugrein, sem á að vera vaxtarbroddur atvinnulífsins í framtíðinni, fái að njóta sömu skatta- og lánakjara og land- búnaður og sjávarútvegur. Hún sagði atvinnuleysi og landflótta fylgifisk einhæfs atvinnulífs. Efling iðnaðar skipti því miklu máli. SM vék að ýmsum þáttum iðnaðar, m.a. ullariðnaði ennfremur fiskeldi, en aðstæð- ur til slíkrar starfrækslu væru góðar hér. Rakti hún frum- kvæði þeirra manna, er nú væru að vinna að stofnun fyrirtækis á þeim vettvangi. „Hið opinbera getur stuðlað að því að efla ýmsar iðngrein- ar,“ sagði þingmaðurinn, „með því að beina innkaupum sínum til þeirra. Og það verðum við að skilja að það hjálpar okkur enginn ef við gerum það ekki sjálf." Heilbrigðisstofnanir á Vestfjörðum: Stjórnarliðar fella fjárlagatillögur Matthías Bjarnason, fv. heil- brigðisráðherra, flutti ásamt fleiri þingmönnum nokkrar hækkunartillögur framlaga til sjúkraskýla og sjúkrahúsa á Vestfjörðum: Hómavík, Bol- ungavik, Flateyri og á ísafirði. — Þær vóru allar felldar við aðra umræðu, utan ein. sem dregin var til baka við þriðju umræðu, — og stóðu stjórnarþingmenn allir gegn þeim. Matthias Bjarnason (S) gagn- rýndi harðlega hlut Vestfjarða, er frumvarp til fjárlaga var til um- ræðu á Alþingi, einkum að því er varðar heilbrigðismál: sjúkrahús, heilsugæzlustöðvar og læknabú- staði. Sagði hann sýnt að Vest- fjarðakjördæmi ætti ekki fulltrúa í þeirri háttvirtu nefnd: fjárveit- inganefnd Alþingis. MBj rakti heildarfjárveitingar til þessa ríkisútgjaldaliðar á liðnum árum og hlutfall Vestfjarða þar af. Nú væri heildarfjárveiting hækkuð verulega, eða um 1213 m.kr. frá fyrra ári (þegar ríkissjúkrahús væru undanskilin), en samtímis lækkaði hlutur Vestfjarða um 80 m.kr. MBj ræddi framkvæmdir við byggingu heilsugæzlustöðvar á ísafirði, sem fokheld varð 1978. Fjárveiting 1979 liggur enn ónot- uð, sagði hann, ekkert gert í framkvæmdum fyrir en verk var boðað út í haust. Peningarnir brenna upp á báli verðbólgunnar og verða smáir í sniðum er loks nýtast. Hann gagnrýndi „sam- starfsnefnd um opinberar fram- kvæmdir", sem legið hefði á fram- kvæmdum og þannig skaðað bæði ríkissjóð og viðkomandi sveitar- félög, og mætti glöggt rýrnun ónýttra fjárveitinga um bygg- ingárvísitölu. MBj vék síðan að lögum um heilbrigðisþjónustu; þeim ákvæð- um, er fjalla um byggingu heil- brigðisstofnana (14.—24. gr.) og röðun framkvæmda eftir því, hvern veg viðkomandi sveitarfélög eða landshlutar séu settir í þessu efni. í því sambandi ræddi hann um nauðsyn heilzugæzlustöðvar á Hólmavík og baráttu fyrir því að fá fjárveitingar til framkvæmda þar. Hólmavík væri einn afskekkt- asti staður á landinu og óverjandi væri, að láta hann bíða árum saman eftir aðstöðu sem þessari. Aðstöðumunur á Hólmavík og samsvarandi þorpi að stærð en í meiri nánd heilbrigðisþjónustu, eins og t.d. Hvolsvelli, væri mikill. Ekki hefi ég á móti heilsugæzlu- stöð á Hvolsvelli, sagði MBj, en samkvæmt anda heilbrigðislag- anna ætti Strandasýsla að hafa forgang. Hér er mælt fyrir 20 m.kr. hækkun til að hrinda af stað þessu þurftarmáli fyrir héraðið. Matthías Bjarnason. „Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á“, sagði MBj, „að allur sá fjöldi rausnarmanna og höfðingja sem hér eiga sæti láti sig muna um að greiða atkvæði með þessari 20 m.kr. tillögu, af því að ekki er nú farið fram á mikið“. Þá mælti MBj fyrir 10 m.kr. fjárveitingu til Flateyrar, vegna endurbóta og tækjakaupa. Þar er um að ræða endurbætur á 40 ára gömlu sjúkraskýli. Enn mætli MBj. fyrir hækkun framlaga til heilsugæzlustöðva á Bolungarvík, til samræmis við óskir heimamanna. Þar er gamalt sjúkraskýli, sagði MBj, hvar ein- göngu dvelja ellisjúklingar. Þetta er ódýrt sjúkrahús með lágu daggjaldi. Naumast myndi hag- kvæmt fyrir ríkið að þurfa að flytja þá, er þarna dvelja, á sjúkrahús með 7 til 8 sinnum hærra daggjaldi. Hyggilegra er að ríkið standi frekar að sínum hluta undir nauðsynlegum endurbótum. MBj sagði tillögur um hækkun framlaga til Hómavíkur, Flateyr- ar og Bolungarvíkur smáar í sniðum. Nokkru hærri er tillaga okkar um hækkun til ísafjarðar, eða um 100 m.kr. Sjúkrahúsið á ísafirði sé að vísu ekki í stórum kaupstað (hátt í 4 þús. íb.) en að því standi fleiri' sveitarfélög þar vestra og það þjóni stærra svæði. MBj vék að þeim kostnaði, sem ísafjörður hefur tekið á sig, m.a. vegna uppfyllingar undir sjúkra- húsið (en þarna varð að fylla upp fram í sjó til þess að byggja heilsugæzlustöð og sjúkrahús) og hlutur sveitarfélagsins í því efni er orðinn mikill. Miðað við allar aðstæður er sú tillaga sem hér er flutt í senn hógvær og studd bæði hagkvæmnis- og réttlætiskröfum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.