Morgunblaðið - 02.04.1980, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. APRIL 1980
V
MORöJh/-
RAFF/NU
GRANI GÖSLARI
I>ú hefur snúið teikningunni maður — Þetta á að vera kirkjugólf,
maður!
Ég á enga hreina skyrtu, sokka-
plöggin öll götug og skítug og
öll matarílátin eru óuppþvegin.
Ég held að það hljóti að vera
um mánuður síðan hún fór að
heiman!
Ilér er ckkert sem getur bilað,
hvorki raflagnir né vélahlutir
og svo viðráðanlegt og einfalt
— nú á tímum allrar þessarar
vélvæðingar!
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Væri spilinu í dag gefið nafn
yrði það eflaust „Frekjan lengi
lifi“ eða eitthvað í þeim dúr.
Hreint ótrúlegt hverju má ná,
með hálfgerðri ósvífni eins og
spilið sannar en það kom fyrir í
Spnday Timcs tvímenningsmót-
inu í janúar. Vestur gaf.
Norður
S. ÁK4
H. 93
T. G97
L. G10753
Vestur
S. -
H. Á1062
T. Á106432
L. D96
Suður
S. D10632
H. K854
T. K5
L. 84
Austur
S. G9875
H. DG7
T. D8
L. ÁK2
COSPER
Mamma, við eru að ieika Kaupmanninn í Feneyjum!
Skal hugsa málið
Þeim sem efast um vald forseta
íslands ráðlegg ég að lesa 24., 25.
og 26. grein stjórnarskrárinnar.
En eins og allir vita, eru pólitíkus-
arnir, sem fléttast hafa saman
vegna hagsmuna sinna, búnir að
koma á þeirri hefð, að það eru þeir
sem segja íorsetanum fyrir verk-
um. Þess vegna hef ég lítið sem
ekkert að gera í það embætti.
Samt vil ég þakka „stuðnings-
manni“ mínum í Velvakanda sl.
laugardag, fyrir það traust, sem
hann sýnir mér með því að skora á
mig að gefa kost á mér til
forsetakjörs. Honum til huggunar
er hann ekki sá eini sem það hefur
gert. Jú, jú, ég hef og skal hugsa
málið.
Vandamálið er aðeins það, að
eins og „stuðningsmaður" segir
hef ég mínar ákveðnu skoðanir
bæði í sambandi við forsetaemb-
ættið og önnur þjóðmál. Ég hef
kynnt mér álit fólks í mörg ár á
hugmyndum mínum og er orðinn
viss um, að mikill meirihluti
kjósenda er þeim fylgjandi. Þó er
ekki hægt að ganga algjörlega frá
því sem vísu, nema kjósendur fái
að kjósa um þær.
Hér skal ég segja í stuttu máli
hvaða breytingar, að mínu áliti
eru æskilegar.
1. Að á meðan forsetaembættið er
í þeirri mynd sem það er í nú,
ætti forsetinn að gegna því sem
hjáverki. Með góðu skipulagi er
það auðvelt. Vinna að því að
forsætisráðherraembættið
verði sameinað forsetaembætt-
inu og til þess þjóðkjörið. Þann-
ig fengi þjóðin að velja hæfasta
manninn til að leysa vandamál
þjóðarinnar. Hann yrði þannig
beinlínis ábyrgur gagnvart
kjósendum og hefði þar með
nauðsynlegt aðhald. Einnig
yrði embættið þá sterkt, en ekki
veikt sameiningartákn þjóðar-
innr, sbr. í Finnlandi, Frakk-
landi og Vestur-Þýzkalandi. Já,
ég veit ekki hvort ég þori að
segja það en einnig í Bandaríkj-
unum.
2. Vera ólaunaður og láta sem
mest af þeim 100 milljónum
(verð 4—5 íbúða, eða 100 lóða í
Mosfellssveit) sem embættið
kostar á ári hverju, renna til
barna- og unglingauppeldis. Því
það þjóðfélag sem hugsar vel
um unglinga og börn sín verður
gott þjóðfélag.
3. Að forsetinn vinni að bættu
lýðræði á Islandi, t.d. í sam-
bandi við hugmyndir hugsjóna-
hreyfingarinnar Valfrelsis.
4. Að neita að skrifa undir lög
sem eru óréttlát gagnvart al-
menningi og láta kjósendur
skera úr ágreiningnum, sam-
kvæmt 26. gr. stjórnarskrár-
innar.
5. Að hafa almenna upplýsinga-
aðstoð fyrir alla landsmenn.
6. Að skipa utanþingsstjórn, sem
getur hugsað um hag þjóðar-
Svíarnir Flodquist og Sundelin
voru með spil vesturs og austurs
en þeir eru nú í hópi fremstu para
Evrópu. Vestur opnaði á einum
tígli, austur sagði einn spaða og
stökk síðan í þrjú grönd eftir tvo
tígla vesturs. Og varð það loka-
sögnin.
Þar sem austur hafði sagt spaða
valdi suður að spila út hjarta-
fjarka og sagnhafi tók níu norðurs
með drottningu. Eðlilega reiknaði
Sundelin ekki með, að hægt yrði
að fríspila tígullitinn án þess að
gefa á hann slag. Og andstæð-
ingarnir yrðu þá ekki í vandræð-
um með að finna slagi sína í
spaðanum. Þannig var hann í
varnarstöðu strax eftir fyrsta slag
en sneri vörn í sókn þegar hann
spilaði spaðaáttunni næst frá
hendinni. Suður lét lágt, norður
tók slaginn og spilaði hjarta, sjöa,
átta og tía. Þvínæst var laufníunni
spilað frá blindum, tekin með
kóng og spaðanum aftur spilað. í
þetta skipti var það sjöan, sem
norður tók og var þá eiginlega á
vanda. Datt ekki í hug að spila
spaða en spilaði tígulsjöinu og
Sundelin valdi rétt þegar hann lét
_ áttuna. Hún kostaði kónginn og
spilið þar með í höfn. Tveir slágir
á tígul ásamt þrem á lauf og
fjórum í hjarta þýddi níu slagir.
Þetta má nú öllum gera. Og í
þetta sinn voru það engir smá-
guttar sem létu plata sig. Með spil
norðurs og suðurs voru Englend-
ingarnir Priday og Rodrique, fast-
ir liðsmenn Englands í áraraðir.
Vorvaka Vest-
ur-Húnvetninga
hefst á morgun
HvammstanKÍ 1. apri).
VORVAKA Vestur-Húnvetninga
1980 verður í félagsheimilinu á
Hvammstanga dagana 3.-5.
apríl.
Dagskráin verður þannig í stór-
um dráttum. Fimtudagur 3. apríl:
kl. 14. Vorvakan sett með ræðu
Helga Ólafssonar. KI. 21. Samfelld
dagskrá. Þorgeir Þorgeirsson les
upp úr bók sinni, „Yfirvaldinu".
Elinborg Sigurgeirsdóttir leikur á
píanó. Benedikt Axelsson les
frumort ljóð. Frásöguþáttur eftir
Bjarna Þorláksson fluttur af Sig-
urði Eiríkssyni. Þorrakórinn syng-
ur undir stjórn Ólafar Pálsdóttur,
við undirleik Elinborgar Sigur-
geirsdóttur. Þóra Eggertsdóttir
les ljóð eftir Gunnar Dal. Frá kl.
14—19 þennan dag verða opnar
málverkasýningar, þar sem sýnd
eru verk eftir Einar Helgason, Örn
Inga, Geir Magnússon, Magnús
Jóhannesson og Elísabetu Harðar-
dóttur. Kaffisala verður kl. 15 á
vegum Ungmennafélagsins. Ágóði
rennur til sundlaugarbyggingar á
Hvammstanga.
Föstudagur 4. apríl: Málverka-
sýningar verða opnar frá kl. 14—
17. Laugardagur 5. apríl: Mál-
verkasýningar opnaðar kl. 14.
Klukkan 16.30 verður samfelld
dagskrá. Vísnaþáttur, flytjandi
Ingþór Sigurbjörnsson, Einsöngur
Jóhann Jóhannsson. Eyjólfur R.
Eyjólfsson les frumort ljóð. Af
gömlum blöðum, Sigurður Eiríks-
son les. Kveðist á, Þóra Ágústs-
dóttir og Bjarni Aðalsteinsson.
Lionsklúbburinn Bjarmi og
Ungmennafélagið Kormákur
standa fyrir Vorvökunni og er
aðgangur ókeypis að öllum
dagskrárliðum. Er þetta orðinn
árviss liður í félagslífi Vestur-
Húnvetninga og hefur aðsókn und-
anfarin ár verið mjög góð.
- Karl.
FIDE flytur inn
FRIÐRIK ólafsson, forseti Alþjóðaskáksambandsins, er þessa
dagana að flytja inn í skrifstofuhúsnæði Fide á Laugavegi 51, en í
vikunni eftir páska verður haldinn hér á landi árlegur fundur
framkvæmda- og sambandsráðs Fide.