Morgunblaðið - 02.04.1980, Side 48

Morgunblaðið - 02.04.1980, Side 48
Síminn á afgreiðslunni er 83033 2Hor0iwtitnííit> MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1980 Sími á ritstjórn -j n -j AA og skrifstofu: IvlUU Átökin í þingliöi ríkisstjórnarinnar: Söluskattshækkunin minnkuö úr 2 í 1,5% IIÖRÐUM átökum í þing- liði ríkisstjórnarinnar í gær lauk á þann veg, að fyrirhuguð 2% söluskatts- hækkun var lækkuð í 1,5%. Uingfundum var í gær frestað meðan stjórnarlið- ar komu sér niður á þessa breytingu, fyrst frá klukk- an 14 til 15, síðan til klukkan 16 ;>g loks til klukkan 17. í þingflokki Alþýðubandalagsins hafði Guðmundur J. Guðmunds- son mótmælt 2% söluskatt- shækkun og í þingflokki framsóknarmanna greiddu Guðmundur G. Þórarins- son atkvæði gegn hækkun- inni og Halldór Ásgríms- son Ólfur Þórðarson sátu hjá. í gærmorgun bárust svo nýjar upplýsingar frá Þjóð- hagsstofnun þess efnis, að hækkun söluskatts myndi ekki gefa ríkissjóði 6—7 milljarða sem innheimtust á þessu ári, heldur 8 til 9 milljarða. Magnaðist þá and- staðan gegn 2% söluskatt- shækkun í þingliði stjórnar- innar, þannig að ljóst var að stjórnin hefði ekki þingmeiri- hluta fyrir málinu. Hófust síðan miklar samn- ingaviðræður, sem lauk loks þannig, að stjórnarliðar sam- þykktu 1,5 % söluskatts- hækkun. Geir Gunnarsson mælti svo í gær fyrir breyt- ingartillögu meirihluta fjár- veitinganefndar við fjárlaga- frumvarpið, þar sem kom fram, að í stað 7 milljarða tekna af orkujöfnunargjaldi 2 % söluskattshækkunarinn- ar eru tekjur ríkissjóðs vegna 1,5% söluskattshækkunar áætlaðar 6 milljarðar króna það sem eftir er þessa árs. Vor í lofti Ljósm. Mbl. RAX. Áætluð hækkun F-vísitölu hinn 1. maí er rúmt 12 V-i % SAMKVÆMT áætlun, sem Hanstofa fslands hefur gert á hækkun vísi- tölu framfærslukostnaöar frá febrúar til maí og reist er í veigamiklum atriðum á þckktum verðbreytingum á ýmsum vörum og þjónustu hækkar framfærsiuvisital- an um tæp 12% hinn 1. maí. í þessari tölu er þó ckki innifalin hækkun á gjaldskrám Hitaveitu, Rafmagnsveitu og Strætisvagna Reykjavíkur. en ákvarðanir hafa ekki verið teknar um breytingar á þessum gjaldskrám. Samkvæmt áætlun, sem hagdeild VSÍ hefur gert mun hækkun framfærsluvísi- Tryggingaeftirlitið: Bílatryggingar hækki um 58% töiunnar þó nokkuð hærri eða á bilinu 14 til 15%. Miðað við óbreyttar reglur um greiðslu verðbóta á laun, gæti hækk- un verðbóta hinn 1. júní orðið á bilinu 10% til 11% (án áhrifa viðskiptakjara), en um þessa áætlun verður að gera þann fyrirvara, að margt er enn óráðið, sem þar gæti haft áhrif, m.a. hækkanir á gjald- skrám opinberra fyrirtækja. Taki menn tillit til frumvarps ríkisstjórnarinnar um hækkun sölu- skatts um tvö stig, þ.e. að söluskatt- ur hækki úr 22% í 24%, veldur það 0,9 prósentustiga hækkun fram- færsluvísitölunnar. Að þessum áhrifum meðtöldum yrði hækkun F-vísitölunnar rúmlega 12%%, en þó enn meiri miðað við að gjaldskrár áðurnefndra fyrirtækja hækki fyrir 1. maí. í áætiuninni eru hins vegar metin áhrif gengisbreytinga til aprílloka. Samkvæmt giidandi lögum um útreikning verðbótavísitölu verður búvörufrádráttur 1. júní um 0,5% og frádráttur vegna áfengis- og tób- akshækkunar 0,6%, en að svo stöddu mun erfitt að áætla annan frádrátt. Verði söluskattur hækkaður, m.a. til þess að hækka olíustyrki, mun frá- dráttur vegna greiðslu olíustyrks hækka eitthvað frá því sem nú er. Um viðskiptakjaraáhrif á vísitöluna 1. júní er erfitt að segja að svo stöddu. ÚTSÝN breytt í sjálfseignarfélag „SÚ BREYTING verður nú á rekstrarformi fyrirtækisins, að því vcrður breytt í sjálfseignarfélag og öllum hagnaði af rckstrinum varið til uppbyggingar lista- og menn- ingarstarfsemi á Islandi, verði viss- um skilyrðum fullnægt af hálfu stjórnvaída,“ segir Ingólfur Guð- brandsson eigandi og forstjóri Ferðaskrifstofunnar Útsýnar m.a. I inngangsorðum í sérstöku auka- blaði Útsýnar sem fylgir Mbl. í dag. „Hagsmunir Útsýnar eru þar með ykkar hagsmunir og hagsmunir þjóðarinnar allrar, þar sem ekki verður einungis unnið að hag- kvæmni og sparnaði á ferðalögum, heldur jafnframt að sköpun menn- ingarverðmæta, sem hafa varanlegt gildi fyrir land og þjóð,“ segir Ingólfur ennfremur. SVAVAR Gestsson, trygginga- málaráðherra. sagði í samtali við Mbl. í gær, að Tryggingaeftirlit ríkisins hefði lagt til 58% hækkun iðgjalda ábyrgðartrygginga bif- reiða frá og með 1. mars. ' Einnig kvaðst ráðherra hafa falið Tryggingaeftirlitinu að at- huga möguleika á sameiningu áhættusvæða á landinu, en iðgjöld eru sem kunnugt er mishá eftir áhættusvæðum og hæst á höfuð- borgarsvæðinu. Sagðist ráðherra mundu afgreiða málið í þessum mánuði. Þá minnti Svavar á, að fyrir Alþingi lægi frumvarp um hækkun ábyrgðartryggingar bifreiða úr allt að 24 milljónum króna í allt að 120 milljónir. Verða bara fjárlög afgreidd fyrir páska? RÍKISSTJÓRNIN óskaði í gær eftir því, að deildarfundir yrðu í Alþingi að lokinni þriðju umræðu um f járlög í sameinuðu þingi, sem búist var við að lyki seint í gærkvöldi eða í nótt. Þingforsetar úrskurðuðu að deildarfundir skyldu hefjast klukkan 10 árdegis í dag, en margir þingmenn efuðust í gær- kvöldi um að dagurinn í dag dygði til afgreiðslu fleiri mála en fjár- laga og töldu að tími ynnist ekki til að afgreiða lækkun olíugjalds vegna fiskverðsákvörðunar fyrir páskahlé Alþingis. í frumvarpi ríkisstjórnarinnar um söluskatts- hækkun er ákvæði um gildistöku 8. apríl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.