Morgunblaðið - 12.06.1980, Side 1

Morgunblaðið - 12.06.1980, Side 1
44 SÍÐUR 130. tbl. 67. árg. FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Óvinir Khadafy skotnir Róm, 11. júní. AP. LÍBÝSKUR kaupsýslumaður var drepinn í járnbrautastöð- inni í Milanó og annar Libýu- maður særóist i skutárás á heimili sinu i Róm i dag þenar frestur sá sem Moammar Khadafy ofursti hafði sett líbýskum útlóKum til að hverfa aftur heim eða hætta á „útrým- ingu“ rann út. Lögregla á Ítalíu, Bretlandi, Vestur-Þýzkalandi og víðar í Evrópu hefur hert á öryggis- ráðstöfunum til þess að vernda líbýska útlaga sem eru um 800 talsins. Fyrra fórnarlambið, Azedin Lahderi, var myrtur með sex skambyssuskotum þegar hann blaðaði í símaskrá í símaklefa í járnbrautastöðinni í Mílanó. Morðinginn hvarf í mannfjöld- ann og fleygði skambyssunni frá sér í aðalbiðsalnum. í Róm skaut Líbýumaður, sem hrópaði „Khadafy, Khadafy", tveimur skotum að Mohamed Bygte. Önnur kúlan hæfði hann í kviðinn, en hin straukst við gagnauga hans. Tilræðismaður- inn var handtekinn þar sem hann sat hjá rakara skammt frá járnbrautastöðinni í Róm. Bygte liggur í sjúkrahúsi og líður vel eftir atvikum. Ohira látinn Tokyo, 11. júní. AP. FORS/ETISRÁÐHERRA Japans. Masayoshi Ohira, lézt i kvöld, 70 ára að aldri. Hann var fluttur i sjúkrahús 31. mai, daginn áður en haráttan fyrir þingkosningarnar i Japan hófst. Ohira boðaði til kosn- inganna þegar samþykkt hafði ver- ið tillaga um vantraust á ríkis- stjórn hans 16. maí. Ohira tilkynnti að hann mundi taka þátt í kosningabaráttunni þótt hann lægi í sjúkrahúsi, en læknar hans sögðu að hann yrði að dveljast í sjúkrahúsinu vegna hjartveiki fram yfir kosningarnar 22. júní. Lát Ohira kemur á óvart. Flestir Japanir töldu að hann kæmi aftur til valda eftir kosningarnar. Ohira er fyrsti forsætisráðherra Japans sem andast í embætti. Masa- yoshi Itoh, ritari ríkisstjórnarinnar, verður forsætisráðherra þar til nýtt þing kemur saman. Vegna stöðug- leika í japönskum stjórnmálum er ekki talið að lát Ohira hafi alvarleg áhrif á dagleg störf stjórnarinnar. gildi í tveimiir í Af ganistan Herlög í borgum Washinxton. 11. júní. AP. RÚSSAR HAFA lýst yfir herlögum í tveimur borKum í Afghanistan, Kandahar og Ilerat. að sögn bandaríska utanríkisráðuneytisins í dag. Ráðuneytið sagði að Rússar virtust hafa gripið til þessarar ráðstöfunar vegna harðrar mótspyrnu, þar á meðal allsherjarverkfalls í Kandahar í síðustu viku. Talsmaðurinn sagði, að fjöldi sovézkra hermanna í landinu væri enn um 85,000. Hann sagði að samkvæmt opinberum og óopin- berum heimildum hefðu minnst 11 og kannski fleiri embættismenn Amin-stjórnarinnar verið teknir af lífi nýlega. Moskvu-útvarpið sagði í dag að „stigamenn" hefðu laumast inn í Kabul og ráðizt á borgarbúa með „stríðsgasi og 150 hefðu verið fluttir í sjúkrahús". Sjaldgæft er að sovézkir fjölmiðlar viðurkenni að ókyrrð sé i landinu. Áður sagði Tass að afganskur hershöfðingi hefði rætt við sovézka herforingja um aukna samvinnu. Vestrænir diplómatar segja að I óhlýðniaðgerðir færist í aukana í Kabul og að aðgerðir skæruliða og gagnárásir Rússa norðan við borg- I ina hafi aukið spennu meðal íbúanna. Gripið hefur verið til setuverk- falla og annarra ráðstafana til að mótmæla hernámi Rússa og kvaðningu í herinn þótt allsherj- arverkfall færi út um þúfur í síðustu viku samkvæmt fréttum frá Islamabad. Vopnaðir hópar lögreglumanna og flokksstarfsmanna hafa farið um göturnar til að neyða menn í herinn og fjölmiðlar hafa varað við því að menn undir 21 árs aldri, sem skrái sig ekki til herþjónustu verði leiddir fyrir herrétt. Brezkt herlið á vettvang London. 11. júní. AP. BREZKA stjórnin ákvað i dag að senda sveit 250 landgöngu- liða til Nýju-Suðureyja á Kyrra- hafi til að bæla niður uppreisn, sem innfæddir skilnaðarsinnar vopnaðir bogum og örvum hófu fyrir hálfum mánuði með stuðn- ingi franskra plantekrueig- enda. Peter Blaker aðstoðarutanrík- isráðherra tilk.vnnti í Neðri málstofunni, að 42. víkingasveit konunglega landgönguliðsins, sem er þaulreynd úr átökunum á Norður-írlandi, yrði send til eyjanna um Kanada, Bandaríkin og Fiji-eyjar og kæmi þangað á laugardag. Franska stjórnin sendi fyrr í dag 55 herlögreglumenn frá bækistöðvum þeirra í Noumea, Nýju-Kaledóníu, til að hjálpa yfirvöldum á Nýju Suðureyjum. Jafnframt lýsti brezki utan- ríkisráðherrann, Carrington lá- varður, yfir því, að töf gæti orðið á því að eyjarnar fengju sjáif- stæði, ef uppreisnin yrði ekki bæld niður fyrir 30. júlí. Upp- haflega var gert ráð fyrir að eyjarnar fengju sjálfstæði þann dag. Bretar og Frakkar hafa stjórnað eyjunum í sameiningu í 74 ár. Kúrdpr trufla uinferð milli Irans og Evrópu Teheran, 11. júni. AP. UPPREISNARMENN Kúrda hafa sprengt upp Ghottor-brúna nálægt landamærum Tyrklands og þar með rofið einu samgönguleiðina til Evr- ópu á landi að sögn tals- manna Kúrda, Jalil Ghad- ani, í dag. Hann sagði að árásin á brúna væri svar við „hörð- um þrýstingi“ íranska hersins á Kúrda. Fyrir tveimur dögum hefði íranski landherinn og flugherinn ráðizt á „varn- arlaus“ þorp Kúrda. í gær hefði íranski flugherinn ráðizt í misgripum á íranska liðssveit og fellt 80 hermenn. Hópur vopnaðra manna hefur jafnframt sprengt upp olíu- geymslu í Vestur-Iran og ráðizt á brautarstöð íran-Evrópu-járn- brautarinnar að sögn Teheran- útvarpsins. Lögregla elti árásarmennina, en þeir náðust ekki og ekki er vitað hverjir þeir voru. Þetta gerðist í Salmas í Azerbaijdan, nálægt írak og Tyrklandi, þar sem skemmdar- verkamenn hafa verið athafna- samir á undanförnum mánuðum. Teheran-útvarpið skýrði einnig frá því, að vopnaðir menn hefðu ráðizt á varðflokk byltingarvarða í Jaydasht-skarði í sunnanverðu Mið-íran, fellt tvo og tekið þrjá aðra til fanga. Skömmu áður hafði byltingar- leiðtoginn Ayatollah Ruhollah Khomeini varað við innbyrðis ófriði og sagt, að stjórn hans gæti tortímt sjálfri sér ef harðlínu- menn, sem ráða lögum og lofum á þingi, hættu ekki pólitískum ófriði sínum gegn Abolhassan Bani- Sadr forseta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.