Morgunblaðið - 12.06.1980, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.06.1980, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ1980 Beið bana í dráttarvélarslysi SAUTJÁN ára piltur frá Bæ í Köldukinn í Þingeyjar.sýslu bcið bana i dráttarvélarslysi um mið- nætti i fyrrinótt, þegar dráttar- vélin valt við þjóðveginn i Aðal- dal, skammt sunnan við flugvöll- inn þar. Þegar menn komu á slysstað var Bjargaði eiginkonu og tengda- móður út úr bifreið í sjó .ÞEGAR ég kom að bílnum lá hann á hvolfi í sjónum og hálfur f kafi. Konan mín var komin úr beltinu og var að losa móður sína. en þurfti um leið að hjálpa henni að halda höfðinu upp úr sjónum. Ég varð svo að hrjóta aftari hliðarrúðu í biln- um og draga konurnar þar út. en þær urðu að fara i kaf til þess. Við klöngruðumst svo upp fjoruna aftur og heim að Fossá, þar sem við fengum alveg sérstakar móttökur.“ Þannig sagði Sveinn Teitsson málara- meistari á Akranesi Mhl. frá, er hlaðið spurði hann um þann athurð. er hann bjargaði eig- inkonu sinni og tengdamMur út úr bil, sem fór út af veginum á Hörgsnesi i fyrrakvöld. og valt út i sjó. Sveinn sagði í gærkvöldi, að konu hans, Ágústu Ágústsdóttur, liði ágæt- lega, en móðir hennar, Guð- munda Jónsdóttir, sem er 79 ára. marðist og var meira eftir sig eftir atburðinn. „Við vorum á leið fyrir Hörgsnesið á leið í Vatnsfjörð," sagði Sveinn. „Ég ók á verkstæð- isbílnum mínum á undan, en þær mæðgurnar óku í Mazda- fólksbifreið á eftir. Við höfum verið á þetta 50—60 kílómetra keyrslu, þegar ég sá allt í einu í speglinum, að ljósin fyrir aftan voru horfin. Ég snéri strax við og ók til baka og hugsa að það hafi tekið mig um mínútu. Þegar ég kom í beygjuna sá ég bara förin fram af vegarbrúninni og þá hafði bíllinn farið þar fram af og oltið 5—8 metra niður stórgrýti pg út í sjó. Ég varð að vaða í hné til að komast að bílnum, sem klesstist mikið saman í veltunum, en sennilega hefur sjórinn dregið úr högginu, þegar hann fór á toppinn.". Þær mæðgur voru svu fluttar í sjúkrahúsið á Patreksfirði og þar talaði Mbl. við Svein í gærkvöldi. dráttarvélin í gangi á hliðinni utan vegar, en pilturinn var lát- inn. Ekki liggur fyrir hvers vegna dráttarvélin valt, en aftan í henni var kerra. Ekki er unnt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu. Höín í Hornafirði: Tveir fram- bjóðendafundir á sama tíma Forsetaframbjóðendurnir Pét- ur Thorsteinsson og Vigdís Finn- bogadóttir héldu fundi á sama tima á Höfn i Hornafirði i gærkvöldi. Pétur í Sindrabæ og Vigdís i Gagnfræðaskólanum. Stuðningsmenn Péturs buðu upp á það að fundurinn yrði sameiginlegur, en að sögn Óskars Friðrikssonar á kosningaskrif- stofu Péturs í Reykjavík var því hafnað af stuðningsmönnum Vig- dísar í Hornafirði. Vikingaskipið örninn sem geymdur hefur verið i skýli Landhelg- isgæzlunnar í Nauthólsvik var sjósettur i gær eftir akstur um miðbæ Reykjavikur. Myndina tók Kristinn Ólafsson þegar búið var að sjósetja í Reykjavikurhöfn og vikingarnir voru að gera klárt til þess að hifa upp segl. Huga að til- boði í ein- vígi Hiibners og Portisch STJÓRN Skáksambands tslands fjallaði á fundi sínum i gær um möguleika á því að bjóða í áskor- endaeinvígi Hiibners og Portisch en ekkert tilboð barst i einvigið. Friðrik Ólafsson forseti Alþjóða skáksambandsins bað Spánverja að kanna hvort þeir gætu haldið einvíg- ið, en i samtali við dr. Ingimar Jónsson forseta Skáksambands ís- lands kom fram að stjórn Skáksam- bandsins mun kanna málið nánar ef Spánverjar taka einvígið ekki að sér. Kvað dr. Ingimar áhuga fyrir hendi, en slíkt mót væri dýrt og hyggja þyrfti að mörgu í því sambandi. Þá kom fram í samtalinu við dr. Ingimar að útlit er fyrir að Karpov komi hingað til lands í haust og mun Skáksambandið leita aðstoðar Frið- riks Ólafssonar við að það mál nái fram að ganga, en Karpov var boðið hingað til lands s.l. haust. Amnestibasar á Lækjartorgi FJÁRÖFLUNARNEFND íslands- deildar Amnesty International verð- ur með basar á útimarkaðnum á Lækjartorgi á föstudag, 13. júní. Þar verða m.a. á boðstólum heimabakaðar kökur sem félagsmenn hafa bakað og tízkubolir úr baðmull. Aðalfundur Sambands ísl. samvinnufélaga: Tekjuafgangur 1.322 millj. kr. AÐALFUNDUR Sambands ísl. samvinnufélaga hófst í morgun. í skýrslu Erlendar Einarssonar forstjóra kom m.a. fram að heild- arvelta sambandsins nam 107.534 millj. kr. og jókst hún um 71% frá árinu á undan. Útflutningur var 53.716 millj. og jókst um 82%. Tekjuafgangur var 1.322 millj. Pálmi Jónsson í Hagkaup: Neytendur kveði sjálfir upp dóminn MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í gær til Pálma Jónssonar for- stjóra Hagkaups vegna um- mæla i leiðara Ákureyrarblaðs- ins Dags, að fyrirtæki hans reyndi nú fastar en nokkru sinni áður að sækja ágóða i hendur Eyfirðinga. Pálmi sagði: Manni hefur skilist að smá- söluverzlun KEA hafi verið rek- in með halla undanfarin ár. Hvernig getur Dagur því gengið út frá því sem sjálfsögðum hlut að stórgróði verði af verzlun Hagkaups á Akureyri? Hins vegar er það rétt hjá blaðinu að Hagkaup hefur engan áhuga á verzlun, þar sem taprekstur er fyrirsjáanlegur, hvorki við Eyja- fjörð eða nokkurs staðar annars staðar. Ég hef engu við þetta að bæta öðru en því að mér finnst rétt að neytendur á svæðinu kveði sjálfir upp dóm í þessu máli. Hin nýja verzlun Ilagkaups á Akureyri. Ljósm. Mbi. Sv.P. Guðmundur J. Guðmundsson um ályktun Hlífar: Fljótræði að nefna ákveðnar dagsetningar VERKAMANNAFÉLAGIÐ Hlíf í Hafnarfirði ályktaði nýlega. að verði ekki komin hreyfing á samningamálin milli Alþýðu- sambands íslands og vinnuveit- enda fyrir 20. júní, krefðist félagið þess, að Verkamannasam- band íslands hefði samningsgerð vjð vinnuveitendur. Morgunblaðið ræddi í gær við Hallgrím Pétursson, formann Hlífar og spurði hann nánar út í þessa ályktun. Hallgrímur sagði, að með ályktuninni hefði Hlíf viljað ýta á sambandið um að eitthvað færi að gerast í samning- amálunum. Hann kvað félags- menn í Hlíf þeirrar skoðunar að tíminn hefði verið illa nýttur og ástand samningamálanna væri enn þannig að langt væri í land. Hallgrímur kvaðst ekkert svar hafa fengið enn við þessari málal- eitan frá VMSÍ, en ályktunin hefði strax verið send sambandinu. „Staðreyndin er,“ sagði Hallgrím- ur, „að hver dagur sem líður felur í sér rýrnandi kaupmátt launa." Hallgrímur kvað Hlífar-menn ekki vera eina á báti í þessu máli og minnti á tillögu, sem komið hefði fyrir sambandsstjórn VMSÍ um viðræður við Landssamband iðnverkafólks um þessi mál. Morgunblaðið spurði í gær Guð- mund J. Guðmundsson, formann Verkamannasambands Islands um þetta mál. Hann kvaðst telja það full mikið fljótræði, er félög nefndu ákveðnar dagsetningar eins og Hlíf hefði gert, en af ályktuninni væri ljóst, að menn vildu greinilega hraða samnings- gerðinni. Hins vegar kvað hann viðræður VMSI og vinnuveitenda nú hafnar.Guðmundur tók sér- staklega fram að hann væri á engan hátt að víta félög fyrir að setja fram ákveðnar dagsetningar eins og Hlíf hefði gert. Fyrsti viðræðufundur VMSÍ og vinnuveitenda var í gær. Þar var farið yfir kröfur og gagnkröfur. Fundurinn hófst klukkan 13,30 og stóð fram yfir klukkan 18. kr. Starfsmenn voru 1.814 í árslok 1979 og hafði fjölgað um 73 á árinu, félagsmenn voru 41.639 og fækkaði þeim um 691 frá árinu á undan. Veltan skiptist á sex aðaldeildir og er hlutur sjávarafurðadeildar hæstur, eða 36.745 millj., þá inn- flutningsdeild 23.898 millj. og bú- vörudeild 23.605 millj. Af veltu Sambandsins var umboðssala 68.591 millj. eða 63.8%. Útflutn- ingur var 53.715 og jókst um 82% frá fyrra ári. Á árinu jukust brúttótekjur S.Í.S. um 66.4%, sem er nokkru minna en veltuaukningin. Almenn rekstrargjöld hækkuðu hins vegar aðeins um 62.3%, þar af hækkuðu launagreiðslur um 56.2%. Tekju- afgangur á rekstrarreikningi var 1.322 millj. kr. en var árið 1978190 millj., með vaxtagjöldum verður upphæðin 1.627 millj. Lokafærslur eru síðan endurgreiðslur til frysti- húsa, flýtifyrning fastafjármuna og jöfnunarhlutabréf færð á endurmatsreikning, þannig að endanlegur tekjuafgangur verður 465.9 millj., en var 83.6 millj. 1978. Fjárfestingar voru með minna móti á árinu, samtals fjárfesti S.Í.S. fyrir 2.072 millj. Starfsmenn voru 1.814 í árslok 1979 en voru 1.741 í lok árs 1978. Félagsmönn- um fækkaði um 691 á árinu og voru í árslok 1979 41.639, sam- bandskaupfélögin voru 48 í árslok 1979, og voru 25 þeirra gerð upp með hagnaði að upphæð samtals 766 millj., en 10 sýndu halla að upphæð 365 millj. Velta félaganna var samtals 152.849 millj. kr. og jókst um 59% á árinu. Fundinn sækja um eitt hundrað fulltrúar, gert er ráð fyrir að honum ljúki síðdegis í dag. Sameiginlegur forsetafram- bjóðendafundur? STUÐNINGSMENN Vigdísar Finn- bogadóttur í Árnesþingi hafa haft frumkvæði að því að efna til sameig- inlegs fundar með forsetaframbjóð- endunum á Selfossi og var fyrst vakið máls á hugmyndinni 27. maí sl. í dag, fimmtudag munu fulltrúar allra frambjóðendanna hittast £ Selfossi til þess að taka ákvörðun í málinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.