Morgunblaðið - 12.06.1980, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ1980
5
Eimskip tekur á
leigu 2 Roro-skip
EIMSKIPAFÉLAG íslands hef-
ur tekið á leigu tvö systurskip i
Danmörku til tveggja ára. Eru
skipin tekin á ieigu með kaupa-
heimild til ákveðins tima á
föstu verði. Skipin munu verða
notuð til áætlunarsiglinganna
til austurstrandar Bretlands og
til meginlandshafna. Verða
skipin afhent Eimskip i ágúst
og september nk.
Skipin eru leigð af dönsku
skipafélögunum Atlas A/S, sem
er systurfyrirtæki DFDS A/S og
Mercandia. Skip fyrrnefnda fé-
lagsins ber nú nafnið Dana
Atlas, en hins síðara Mercandia
Importer II. Bæði skipin eru
smíðuð í Frederikshavn Værft í
Danmörku og voru þau afhent
eigendum sínum í nóvember og
desember 1978. Þau hafa að
undanförnu aðallega verið í
leigusiglingum til Miðjarðar-
hafsins og í Miðjarðarhafinu.
Fimmtán manna áhöfn er á
skipunum. Hafa þrjú önnur syst-
urskip verið smíðuð af þessari
gerð en samningar gerðir um
smíði sjö skipa til viðbótar á
næstu þremur árum.
Skipin eru byggð til almennra
flutninga og sérstaklega gerð
fyrir lestun og losun á hjólum
(RoRo-aðferð) og til gáma- og
einingaflutninga. Flutningageta
þeirra er 3.620 DW tonn, en
brúttórúmlestatala þeirra er
1599 tonn.
Mesta lengd skipanna er 105.5
metrar og breidd á þeim 18.8
metrar. Ganghraði er 15.5 mílur.
Aðalvél er af MAK-gerð, 4500
hestafla að stærð, en að auki eru
þrjár Mercedes Benz hjálparvél-
ar í skipunum. Skipin eru með
bógskrúfu. Þau eru byggð eftir
flokkunarreglum Det Norske
Veritas, styrkt til siglinga í ís.
í Reykjavík mun afgreiðsla
skipanna fara fram í Sundahöfn.
Standa yfir viðræður við hafnar-
stjórn Reykjavíkur um aðstöðu
vegna breyttrar tækni og útbún-
aðar. Þarf sérstaka flotbrú á
móti skutbrú skipanna, til þess
að afgreiðsla skipanna geti farið
fram án tillits til sjávarfalla. Þá
er einnig unnið að undirbúningi
aðstöðu í Straumsvík, til þess að
skipin geti lestað og losað iðnað-
arvöru og ál þar. Þessi skip
munu leysa önnur skip af hólmi
og hafa fjögur af núverandi
skipum félagsins verið sett á
sölulista.
Óvenju mikill stein-
bitur í afla linubáta
Togarar að vestan á grálúðu allan maímánuð
GÆFTIR voru góðar I Vestfirð-
ingafjórðungi i maí. bæði á linu
og í botnvörpu. Linuhátar fengu
ágætan afla á allri grunnslóðinni
út af nyrðri Vestfjörðunum,
þorsk og steinbit, sem er óvenju-
legt á þessum árstima. Togararn-
ir voru allan mánuðinn við Vik-
urálinn og var afli þeirra svo til
eingöngu grálúða. Nokkrir smá-
bátar voru byrjaðir veiðar, en
afli var ennþá tregur á færi.
Heildaraflinn í mánuðinum var
9.782 lestir og er heildaraflinn frá
áramótum þá orðinn 46.927 lestir,
en var í maímánuði í fyrra 6.801
lest og heildaraflinn í lok maí-
mánaðar í fyrra 40.722 lestir.
Línubátar héldu nú flestir áfram
veiðum fram eftir mánuðinum, en
nokkrir hættu þó á vertíðarlokum
þann 11. maí eins og venja er.
Aflahæsti línubáturinn í mán-
uðinum var Orri frá ísafirði með
121.8 lestir, en aflahæstur togar-
anna var Dagrún frá Bolungarvík
með 977.8 lestir í 5 löndunum. í
fyrra var Páll Pálsson frá Hnífs-t
dal aflahæstur í maí með 702.3
lestir í 4 löndunum.
Þjóðveldisbærinn í Þjórsárdal verður meðal viðkomustaða í Varðar-
ferðinni hinn 13. júli nk.
Víða komið við í Varðarferð
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Vörður
mun gangast fyrir eins dags ferð
um Suðurland sunnudaginn 13.
júli nk.
Verður fyrst komið við á
Stokkseyri, síðan haldið áfram
meðfram sjónum að Þjórsárósum.
Síðan verður ekið sem leið liggur
upp Skeið og þaðan í Þórsárdal
með viðkomu í Sögualdarbænum.
Að lokum verður ekið yfir Sám-
staðamúla og að Hrauneyjarfoss-
virkjun. Að því búnu verður haldið
að Sigölduvirkjun og þaðan í
Galtalækjarskóg, segir í frétta-
tilkynningu frá Verði.
Göngudagur
J'erðafélags
íslands sunnu-
daginn 15. júní
SUNNUDAGINN 15. júni verður
göngudagur Ferðafélags íslands
í annað sinn. í júni sl. sumar var
efnt til slikrar fjöldagöngu, og að
sögn forráðamanna Ferðafélags-
ins tókst hún vel.
Gönguleiðin, sem farin verður,
er um Hellisskarð kringum
Skarðsmýrarfjall og er leiðin ca.
12 km. Fólk getur valið um þrjá
mismunandi brottfarartíma frá
Umferðamiðstöðinni að austan-
verðu þ.e. kl. 10 f.h., 11.30 og kl. 13
e.h. Ennfremur geta þátttakendur
ekið á eigin farartæki að Kolviðar-
hóli og komið í hópinn þar og
fengið kort og merki. Fararstjórar
verða með hverjum hóp.
Allgott verð fyr
ir ísfisk í Hull
LÖNDUN lauk í Hull í Bretlandi í
gær úr skuttogaranum Ársæli
Sigurðssyni og var þá landað 76.8
tonnum og fengust 35.7 milljónir
fyrir þann hluta aflans, meðalverð
464 krónur. Samtals seldi Ársæll
151.9 tonn fyrir 69.7 milljónir
króna, meðalverð 459 krónur.
Landshappdrætti Sjálfstæðisflokksins:
Dregið á
laugardag
DREGIÐ verður í landshappdrætti Sjálfstæðisflokksins á laugar-
dag og verður aðeins dregið úr seldum miðum.
Afgreiðsla happdrættisins er í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Verður
hún opin til kl. 22 i kvöld og annað kvöld, sími 82900, og geta
menn látið senda eftir greiðslum og einnig er hægt að fá miða
heimsenda. Þeir, sem fengið hafa senda miða úti á landi, eru beðnir
að gera skil til umboðsmanna þar strax.
í Bandaríkjunum
manuði
„í heild má segja aö hér sé
um mjög athyglisveröa og
hressa plötu aö ræöa og sú
bezta frá Bob Seger enn.“
(H.A. Morgunbl.)
„Bob Seger er kraftmikill
og góður rokksöngvari og
er Against The Wind mjög
þætileg og skemmtileg
plata.“
(K.R.K. Víair)
„Lögin á Against The
Wind eru hvort ööru betra
og platan sjálf ein sú bezta,
sem út hefur komiö á þessu
ári.“
(E.S.E. Tíminn)
Á toppnum
í tvo
ii
FÁLKIN N
Suðurlandsbraut 8 — sími 84670
LauKavetjri 24 — sími 18670
Vesturveri — sími 12110
Austurveri — sími 33360.