Morgunblaðið - 12.06.1980, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 12.06.1980, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ1980 Texti og myndir Jónas Egilsson Sumarið 1977 er „Gamla búð“ flutt á núverandi stað „austan þjóðvegar". Var það illa á sig komið enda flutt í tveimur hlutum á áfangastað. Húsið var uppruna- lega reist sem verslunarhús í Papóskaupstað 1864, en var flutt til Hafnar rétt fyrir aldamót þegar byggð var að rísa þar. Að sögn Gísla Arasonar, safn- varðar, var reynt við lagfæringu hússins að hafa innréttingar sem næst upprunanlegri mynd, en margt þurft viðgerðar við og jafnvel þurft að endursmíða sumt. „Gamla búð“ er tvílyft 320 fermetra timburhús með kjallara. Á annari hæð hússins eru tvö herbergi. í „Sýslumannsherbergi“, þ.e.a.s. fundarherbergi sýslu- nefndar, er vísir að náttúrugripa- safni, þar á meðal fiðrildasafn Halldórs frá Kvískerjum og nokkrir munir úr safni Gísla Arasonar. I hinu herberginu eru innanstokksmunir alls konar. Þar er m.a. að finna hefilbekk, sem Frakkar gáfu Eyjólfi Sigurðssyni frá Horni fyrir vasklega fram- komu hans við björgun sjómanna á strönduðu skipi þar um slóðir 1873. Einnig er þar rennibekkur smíðaður af Eymundi Jónssyni, en eftir hann eru margir smíðisgripir á safninu. Á fyrstu hæð eru aðallega verkfæri og áhöld sem notuð voru utanhúss. Þar mætti til taka svokallað nautajárn, en það var sérstakur fótaútbúnaður með skaflajárnum notaður um klaufir þeirra nauta sem flytja þurfti á milli bæja í hálku að vetrarlagi. í kjallara hússins er sjóminja- safn. Tveir bátar eru hafðir þar, annar innfjarðarbátur, Dvergur að nafni, smíðaður af Birni Ey- mundssyni. Er hann sérstaklega hannaður til siglinga á grunnsævi að sögn Gísla Arasonar safnvarð- ar. Stærri báturinn er útsjávar- bátur, einnig nefndur Sandabátur. Þarna er og fótstigin róðravél, gat þá ræðarinn róið bæði með hönd- um og fótum. Við opnun safnsins fluttu ræður auk Friðjóns Guðröðarsonar, sýslumanns, sem opnaði safnið fyrir hönd byggðasafnsnefndar og sýslunefndar, þeir Þór Magnússon þjóðminjavörður, Stefán örn Stef- Byggðasafn í Austur- Skaftafellssýslu opnað BYGGÐASAFN Austur-Skaftafellssýslu á Höfn í Horna- firði var opnað föstudaginn 6. júní í „Gömlu búð“. Forsaga málsins er sú að á stjornarfundi Kaupfélags Austur-Skaftafellssýlsu í nóvember 1964 var ákveðið að afhenda hinu fyrirhugaða byggðasafni „Gömlu búð“ enda myndi verslunarstarfsemi þar leggjast niður innan skamms. í bréfi til byggðasafnsnefndar 1971 mælir þjóðminjavörður, Þór Magnússon, eindregið með „Gömlu búð“ sem húsnæði fyrir hið væntalega byggða- safn, sem elsta verslunarhús staðarins. ánsson arkitekt, Oskar Helgason hreppstjóri Hafnarhrepps og Guð- mundur Þorsteinsson frá Lundi, en hann vann að viðgerð flestra þeirra muna safnsins sem viðgerð- ar J)urftu með. I hófi, sem sýslunefnd efndi til, var eftirtöldum veitt sérstakt við- urkenningarskjal fyrir vel unnin störf í þágu safnsins: Stefáni Jónssyni arkitekt, Stefáni Erni Stefánssyni arkitekt, Þór Magn- ússyni þjóðminjaverði, Herði Ág- ústssyni fornhúsafræðingi, Elíasi Jónssyni bónda Rauðabergi, Þor- katli Sigurðssyni yfirsmið, Jó- hannesi Arasyni vegghleðslu- manni, Guðmundi Þorsteinssyni frá Lundi, Friðjóni Guðröðarsyni sýslumanni, Sigurbjörgu Jóns- dóttur frá Hoffelli, Hermanni Hanssyni Höfn, Hjörleifi Guttormssyni ráðherra, óskari Helgasyni oddvita, Einari Odds- syni Vík, Gísla Björnssyni Höfn, Jóhanni Albertssyni, Benedikt Stefánssyni Hvalnesi, Sigurborgu Jónsdóttur Hoffelli, Þorsteini Guðmundssyni frá Reynivöllum, Sigurjóni Sigurðssyni Horni, Sig- urði Filippussyni Hólabrekku, Sigurði Björnssyni Kvískerjum, Fjalari Sigurjónssyni Kálfafells- stað, Sævari K. Jónssyni Rauða- bergi, Helga Guðmundssyni Hof- felli, Ásgrími Halldórssyni fyrrv. kaupfélagsstjóra, Herði Runólfs- syni og Sigurlaugu Jónsdóttur Hraunkoti. í ræðu við opnun safnsins sagði Friðjón Guðröðarson m.a.: „Ég hef sannfærst um það sl. tvö ár, að hús þetta er mikið og gott mann- virki, vandað að allri gerð og mun þjóna miklu hlutverki hér í sýslu, jafnt til ánægju sem fróðleiks. Húsið á m.a. að vera kennslustað- ur skólanna og fundahús fyrir starfsemi sýslufélagsins, sem er mikil og fer vaxandi." Hér sjást 19 þeirra 32 sem veitt voru sérstök viöurkenningarskjöl ffyrir vel unnin störf í þágu Byggöasafns Austur-Skaftafellssýslu. .Gírahjól smíöaö af Siguröi Filippussyni kringum 1940, en auk þessa reiöhjóls er á safninu töluveröur fjöldi smíðisgripa eftir hann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.