Morgunblaðið - 12.06.1980, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ1980
13
Rann-
sóknir á
hunangs-
flygum
á Islandi
Blaðinu hefur borist eftirfar-
andi:
Síðastliðið sumar hófust rann-
sóknir á hunangsflugum hér á
landi, en þær voru unnar af
Kristjáni Kristjánssyni líffræði-
nema, sem prófverkefni við Há-
skóla íslands, í samvinnu við
Erling Ólafsson á Náttúrui'ræði-
stofnun íslands og Oliver Prys-
Jones við Háskólann í Cambridge i
Englandi.
Hunangsflugur eru vel þekktar
manna á meðal, en þær vekja
einkum á sér athygli á vorin, er
drottingarnar vakna af vetrar-
dvala. Þær eru mjög stórar og
fyrirferðarmiklar og leita gjarnan
inn í hús í leit að stað fyrir bú.
Hunangsflugur eru oft ranglega
nefndar randaflugur og eru lík-
lega einna þekktastar undir því
heiti á meðal almennings. Þær eru
auðþekktar, allt að 2 cm langar,
bústnar og kafloðnar. Liturinn er
einnig afar áberandi, en bolurinn
er svartur með gulum þverröndum
og hvítan afturenda. Talsvert hef-
ur borið á því upp á síðkastið, að
menn hafi ruglað hunangsflugum
saman við geitunga, sem þó eru
töluvert frábrugðnir, miklu mjó-
slegnari og lítt hærðir. Auk þess
er það litur háranna á hunangs-
flugunum, sem gefa þeim lit, en á
geitungum er það sjálf skelin, sem
er lituð svart- og gulröndótt.
Sitthvað markvert hefur komið
í ljós við athugun á hunangsflug-
unum. Það hefur löngum verið
talið, að hér byggi aðeins ein
tegund, en við nánari athugun
síðastliðið sumar varð ljóst, að hér
búa a.m.k. þrjár tegundir. Um
útbreiðslu tegundanna hér á landi
vitum við lítið, og varð það tilefni
þessara skrifa. Til að freista þess
að spara okkur mikla fyrirhöfn,
ákváðum við að leita aðstoðar
almennings og óska eftir því, að til
okkar væri hugsað, þegar menn fá
hunangsflugur upp í hendurnar.
Við höfum mikinn áhuga á að fá
hunangsflugur sem víðast að af
landinu og yrðum því þakklátir
allri aðstoð. Það skal tekið fram,
að til þess að geta greint flugurn-
ar til tegunda þurfum við að fá
eintökin í hendur, en lýsing á þeim
dugar skammt. Það getur verið
örðugt að veiða hunangsflugur, ef
menn hafa ekki undir höndum þar
til gerð áhöld, eins og t.d. háf. En í
mörgum tilfellum eru þær mjög
rólegar við fæðuöflun á blómum
og má þá skella yfir þær plast-
poka, krukku eða hverju öðru
tiltæku. Öðru máli gegnir um
flugur sem flækjast inn í hús, en
þær leita venjulega út í gluggana,
áður en langt um líður og verða
þar auðveldlega handsamaðar.
Um ýmsa möguleika er að ræða
um meðhöndlun, eftir að flugurn-
ar hafa verið handsamaðar. Ein-
faldast er, að setja þær í frysti í
nokkurn tíma. Eftir um eina
klukkustund er óhætt að taka þær
út, án þess að eiga það á hættu, að
þær vakni til lífsins á nýjan leik.
Einnig má varðveita þær lengur í
frystinum, eða þar til tækifæri
gefst til að senda þær áleiðis til
undirritaðra. Þess má geta, að það
er skordýrum eðlilegt að kólna
niður og því er frysting tiltölulega
mannúðleg aðferð til að aflífa
hunangsflugur. Síðan er best að
koma flugunum fyrir í litlu og
traustu íláti og senda þær með
pósti. Það er mjög áríðandi, að
hunangsflugunum fylgi ákveðnar
upplýsingar, hvar þær eru veidd-
ar, hvaða dag og helst við hvaða
Alþýðubandalagið í Reykjavík:
Skorar á dómsmála-
ráðherra að veita
Gervasoni hæli hér
EFTIRFARANDI ályktun var
samþykkt einróma á aðalfundi
Alþýðuhandalagsins í Reykjavik
29. maí sl. segir í frétt frá
bandalaginu.
„Aðalfundur Aiþýðubandalags-
ins í Reykjavík, haldinn 29. 5.1980
í Lindarbæ, beinir þeirri ein-
dregnu áskorun til dómsmálaráð-
herra að beita sér fyrir því að
Frakkanum Patrick Gervasoni
verði veitt hæli á íslandi, sem
pólitískum flóttamanni. Aðal-
fundurinn telur að ekki ætti að
vera neitt því til fyrirstöðu að
veita Patrick Gervasoni hæli sem
pólitískum flóttamanni á íslandi.
Þjóð sem státar sig af því að
kunna ekki vopnaburð og þekkir
ekki það form helsis, sem nefnist
herþjónusta, ætti að* vera sómi að
því að veita friðarsinna, sem berst
gegn her og herskyldu, hæli.“
22480
aðstæður (t.d. á hvaða plöntuteg-
und þær eru veiddar, ef um það er
að ræða). Þá skal nafn og heimil-
isfang finnanda fylgja. Hunangs-
flugurnar skal síðan senda til
Erlings Ólafssonar eða Kristjáns
Kristjánssonar, Náttúrufræði-
stofnun íslands, pósthólfi 5320,
125 Reykjavík. Við vonumst til, að
fólk bregðist vel við þessari beiðni
okkar og leggi þannig þessum
rannsóknum lið.
Erling ólafsson
Kristján Kristjánsson
„Vandar-
högg“sýnt
í Noregi,
Svíþjóð og
Danmörku
Efnisskoðunarfundur
leiklistardeilda norrænu
sjónvarpsstöðvanna var
haldinn í Helsinki nú um
mánaðamótin og var af
hálfu íslands boðið fram
leikritið „Vandarhögg“
eftir Jökul Jakobsson.
Verkið verður sýnt í Dan-
mörku, Noregi og Svíþjóð
auk þess sem Finnar
sýndu því áhuga.
Vinnu við verkið er ekki að
fullu lokið, en frumsýning er
fyrirhuguð í septemberlok.
Leikstjóri er Hrafn Gunn-
laugsson, kvikmyndatöku-
maður Sigurliði Guðmunds-
son, en í aðalhlutverkum eru
Benedikt Árnason, Bryndís
Pétursdóttir og Björg Jóns-
dóttir.
PeysufÖt“ í miklu úrvali.
Bankastrarti 7
Aóalstræti4
...hér er rétti sta&urínn!