Morgunblaðið - 12.06.1980, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 12.06.1980, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ1980 Kerholakámbur Íp Hs juberg*> .‘-ilBÍllinn skilinn eftir — —"'ff-T- “ Gengiö á Kerhólakamb Ótrúlegt er, að nokkur sem kominn er til vits og ára og á heima hér við sunnanverðan Faxaflóa, þekki ekki Esjuna. En hve margir eru þeir, sem hafa gengið á hana, og notið þess útsýnis, sem þaðan er að fá? Ekki veit ég um neinn, sem getur svarað þeirri spurningu, en ef þú lesandi góður, hefur ekki gengið á fjallið, en hefur hug á því, ætti þessi greinar- stúfur að geta orðið þér einhver leiðarvísir. Tvær leiðir munu vera fjöl- farnastar á Esjuna að sunnan, önnur frá Mógilsá og upp á Þverfellshorn en hin frá Esju- bergi og upp á Kerhólakamb, en svo heitir brún fjallsins vest- ast. Að þessu sinni förum við upp frá Esjubergi og á Kerhóla- kamb. Við skulum leggja bíln- um við gamla veginn hjámalar- gryfjunum austan við Esju- berg. Þar er þurrt og gott að athafna sig í næði. Grónir götuslóðar liggja vestur með hlíðinni. Þetta eru leifarnar af þeim vegi, sem hér lá fyrrum og var troðinn af fótum manna og hesta, allt þar til akvegurinn var lagður um flóann fyrir neðan. Það gerðist fyrir um það bil hálfri öld. Þá var flóinn blautur og illfær yfirferðar, en nú hefur allt það land verið þurrkað. Við höldum göngunni áfram vestur götuna í áttina að Grundaránni, sem kemur úr Gljúfurdal, fyrir austan Esju- berg. Fyrir ofan okkur gnæfa þverhníptir klettar. Eru þeir vestasti hlutinn á Langahrygg, en hann nær upp að Þverfells- horni. Hér fyrir ofan er ein- hversstaðar Búahellir, sem frá er sagt í Kjalnesingasögu, en nú er þar mikið líf og amstur, því fýllinn sinnir þar bústörf- um af fullum krafti. Við stikl- um yfir Grundarána á steinum. Hún lítur sakleysislega út núna, en einhverntíma hefur hún sýnt afl sitt, þegar hún þeytti fram þessari skriðu, sem Spölkorn úlí buskann er fyrir framan gilkjaftinn. Við göngum yfir urðina og upp í grasbrekkuna fyrir utan. Fyrr- um voru hér tvö smábýli í túnjaðrinum á Esjubergi, Grund, við ána, en ÁrvöHur út með hlíðinni. Nú eru rústir þeirra jafnaðar við jörðu. Árið 1977 efndi Ferðafélag Islands til margra gönguferða á Esju. Þá var gengin þessi leið og þá myndaðist svo giögg slóð hér í brekkuna og upp klettana að hún er auðrakin. Við höldum því ótrauð áfram. Þótt klett- arnir virðist vera dálítið glæfralegir að sjá héðan að neðan, er það sjónblekking, því þegar upp í þá er komið breyt- ist viðhorfið, og innan stundar stöndum við á brúninni fyrir ofan. Hér nemum við staðar um stund og litumst um, því útsýn- ið hefur víkkað allmikið. Býlið Esjuberg er beint fyrir neðan. Það er þekkt úr kirkjusögunni, því þar mun fyrsta kirkjan hafa verið reist hér á landi. Fyrir handan veginn eru Móar, en þar bjó Matthías Jochums- son um tíma og utar er Saltvík, sem margir þekkja. Við sjáum hvar Brimnesið gengur fram milli Kollafjarðar og Hofsvíkur og úti á firðinum eru eyjarnar Þerney, eins og stafurinn H í laginu og Lundey. Meira mætti telja upp af örnefnum, en hér læt ég staðar numið. Kortið, sem þú hefur meðferðis, mun fræða þig um þetta allt. Þá hefjum við gönguna upp fjallið. Við göngum eftir hryggnum milli Bolagils að vestan, en Auðagils eða Hestagils að aust- an. Brattinn er jafn en hvergi mikill. Þetta er nokkuð lýjandi, en ekki svo erfitt, ef hægt er farið af stað. Eftir klukku stundar gang þó með nokkrum hvíldum, náum við að topp- mynduðum hól, sem heitif Nýpuhóll. Hann er nokkru fyrir neðan Kambinn. Þar mun hæð- in á fjallinu vera um 600 m. Ca 250 m eru þá eftir. Venjulega taka menn hér upp nestið sitt og það gerum við líka. Að lokinni góðri hvíld leggjum við af stað í síðasta áfangann. Hægt og sigandi náum við brúninni fyrir neðan Kambs- hornið. Þar víkkar útsýnið skyndilega, því nú blasir Akra1- nes við og utanverður Hval- fjörðurinn, en fyrir neðan er Blikdalurinn. Þá er síðasta brekkan eftir upp á Kerhóla- kamb. Stór steinn er efst í brekkunni. Þar erum við í 800 m hæð. Frá steininum og upp að vörðunni, sem er í 852 m hæð er aflíðandi halli, léttur undir fæti, miðað við það, sem áður var. Hvert er þá útsýnið? Við sjáum Eldey út af Reykjanesi, Snæfellsjökul, fjallgarðinn þar austur af, Skarðsheiði, Akra- fjall, Hvalfell, Botnssúlur, Ok, Þórisjökul, Heklu, Tindfjalla- jökul og Eyjafjallajökul, svo eitthvað sé nefnt af því, sem við blasir. En sjón er sögu ríkari, og kortið hjálpar til við að átta sig á öðrum kennileitum. Eftir góða dvöl á fjallinu höldum við sömu leið til baka og náum bílnum eftir 5—6 klst. rólega ferð. KOM Leikrit ÞRJÁR SYSTUR Höfundur: ANTON TSJÉKHOV Leikið af KOM-LEIKHÚSINU HELSINKI Tónlist: ERRO OJANEN Leiktjöld og búningar: MÁNS HEDSTRÖM Leikstjóri: KAISA KORHONEN ÞRJÁR SYSTUR eða TRI SESTRI eins og leikritið heitir á frummálinu var fyrst tekið til sýningar í Listaleikhúsinu í Moskvu 31. janúar 1901. í þessari sýningu lék Olga Knipper er sama ár giftist höfundinum An- ton Tsjékhov. Ekki tengdist leik- ritið þó á neinn hátt þessum gleðiatburði í lífi Tsjékhovs, því hann kallar það ,drama“ til aðgreiningar frá MÁFINUM og Kirsuberjagarðinum (sem sýnd- ur var hjá L.R. fyrr í vetur sællar minningar). En tvö síðast töldu stórverk merkir Tsjékhov „Kómedíur". Það er e.t.v. við hæfi að finnskt leikhús færi okkur þenn- an grátbroslega harmleik. Marga skráveifuna hefur finnska þjóðin hlotið frá Risan- um í austri. En sloppið þó með bakið næstum beint. Sterk þjóð Finnar. Víkjum nú nánar að KOM leikhópnum sem sýnir okkur ÞRJAR SYSTUR á LISTAHÁTÍÐ 1980. Hópurinn stofnaði leikhús síðla sumars 1969 er leikstjórinn Kaisa Kor- honen fékk það verkefni að setja upp sjálfstæðar sýningar á litla sviði Sænska Leikhússins í Hels- inki. Gekk sú starfsemi í eitt ár. En þá rann samningurinn við leikstjórann út og 1971 kom KOM-leikhúsið fram sem „.. .frjáls finnskumælandi leik- hópur.“ Nú er... „Athugun hóps- ins á heimsmynd verkalýðsins Tveir af eigondum Flugfélags Norðurlands. flugmennirnir Torfi Gunnlaugsson (t.v.) og Sigurður Aðalsteinsson fyrir framan Twin Otter vél féiagsins. Myndin er tekin í Grímsey, en þangað heldur félagið uppi áætlunarflugi. Ljósm. Mbl. SS. Flugfélag Norðurlands: Leigir flugvél til Grænlands þriðja sumarið í röð UM þessar mundir er verið að búa aðra Twin Otter flugvél Flugfélags Norðurlands hf. til sumardvalar á Norður-Grænlandi. þar sem hún verður til þjónustu við umfangsmiklar jarð- og landfræðirannsóknir á þeim slóðum. Þetta er þriðja sumarið. sem Norðurflug hefur staðsetta Twin Ottervél í Grænlandi. en sem kunnugt er brann slík vél þar í fyrra. Það kom fram hjá forráða- mönnum Flugfélags Norðurlands, þegar blaðamaður Mbl. hafði tal af þeim í vikunni að Grænlandsflugið er mjög ábatasamt og það gerir félaginu raunar kleift að bjóða ýmsa þjónustu hér innanlands, sem það hefði að öðrum kosti ekki efni á að veita. Segja má, að Flugfélag Norður- lands byggi á gömlum merg, þar sem var Norðurflug Tryggva Helga- sonar. Tryggvi hætti flugrekstri haustið 1974 og seldi fyrirtækið starfsmönnum sínum sex, sem héldu áfram rekstrinum, unz féiagið var gert að hlutafélagi með núverandi nafni 1. maí 1975. Auk sexmenning- anna eiga Flugleiðir h.f. 35% hluta- fjárins. Við stofnun félagsins átti fyrir- tækið 3 Beechcraft flugvélar og eina Piper Aztec, sem samtals rúmuðu 34 farþega. Nú á félagið tvær Twin Otter flugvélar, eina Navajo Chief- tain og svo Aztec véiina með samtals 52 farþegasætum. Flotinn hefur ekki aðeins verið stækkaður, heldur líka endurnýjaður verulega. Auk þessa á F.N. og rekur kennslu- flugvél, Piper Tomahawk, sem keypt var ný fyrir tæpum tveimur árum. Verkefnum félagsins má skipa í tvo meginflokka: Áætlunarflug og leiguflug. Áætlunarflug er til 10 áfangastaða út frá Akureyri: Isa- fjarðar, Siglufjarðar, Grímseyjar, Húsavíkur, Mývatns, Kópaskers, Raufarhafnar, Þórshafnar, Vopna- fjarðar og Egilsstaða. Ferðir eru frá tveimur til sjö í viku til hvers staðar. Póst- og símamálastjórn greiðir hluta kostnaðar af einni til tveimur ferðum í viku til sex áætlunarstaðanna samkvæmt sér- stökum samningi um póstflug. Fé- lagið nýtur styrks til Grímseyjar- ferða af fjárveitingu til flóabáta. Að öðru leyti greiða farseðlar og farm- gjöld kostnað við áætlunarflugið. Hjá Flugfélagi Norðurlands vinna nú 8 flugmenn, 6 flugvirkjar og tveir menn við stjórnsýslu. FLugleiðir h£. sjá um afgreiðslu farþega og varn- ings i áætlunarflugi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.