Morgunblaðið - 12.06.1980, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ1980
Gert er ráð fyrir að unnið verði næstu þrjár vikur að framkvæmdum
við undirbygginKU Skeiðavegarins. Mbi. Si*. SiKm.
6 km af Skeiðavegi
undirbyggðir í sumar
AÐ UNDANFÖRNU hefur verið unnið að vegaframkvæmdum á
Skeiðavegi i Árnessýslu eða nánar tiltekið á kaflanum frá
Suðurlandsvegi upp undir Borgarkot. Alls eru þetta 6 kiiómetrar, sem
að sögn bórðar Tyrfinnssonar, tæknifræðings hjá Vegagerðinni á
Selfossi, verða undirbyggðir í sumar og sett á þá malarslitlag. Áður
hafa 2 kilómetrar af Skeiðaveginum, frá Borgarkoti og að
Ólafsvallavegi, verið undirbyggðir, en malarlagið á þessum kafla
þarfnast nú endurnýjunar og hefur jafnvel verið um það rætt að
leggja svokallaða klæðningu á þennan hluta Skeiðavegarins i sumar,
að sögn Þórðar.
Þórður sagði að fé hefði verið
veitt til framkvæmda við Skeiða-
veginn síðustu þrjú ár, og áform-
aðar væru fjárveitingar árin 1981
og 1982 til þessa verkefnis. „Við
ætlum að ljúka við að undirbyggja
þennan 6 kílómetra kafla í ár, þó
fjárveitingin, sem til umráða er
dugi ekki til þess. Ástæðan er
fyrst og fremst hversu illa Skeiða-
vegurinn fór í vor og við hefðum
hvort sem er þurft að gera meiri-
háttar lagfæringar á honum.
Fjármagn verðum við væntanlega
að taka að láni úr viðhaldsfé
Vegagerðarinnar," sagði Þórður.
Gert er ráð fyrir að þessar
framkvæmdir við Skeiðaveginn
standi yfir næstu þrjár vikur en
verkið gengur hægt að sögn Þórð-
ar, vegna mikillar umferðar, sem
þarna fer um. Bæði væri Vega-
gerðin með um 10 vörubíla, sem
væru í stöðugum malarflutningum
og einnig færu um veginn flutn-
ingabílar, sem væru að flytja
vikur ofan úr Þjórsárdal og efni
inn að virkjuninni við Hrauneyj-
arfoss, auk venjulegrar umferðar
íbúa sveitanna í nágrenninu og
ferðamanna. „Það eru vitanlega
margir vegir á Suðurlandi, sem
væri ástæða til að setja varanlegt
slitlag á og Skeiðavegurinn er einn
þeirra. Reyndar er umferðarþungi
á Skeiðaveginum með þí mesta
sem gerist á Suðurlandi utan
Suðurlandsvegarins sjálfs, en við
getum tekið sem dæmi umferðar-
talningu árið 1979. Þá fóru 500
bílar um Skeiðaveginn, það er
kaflann frá Suðurlandsvegi að
Ólafsvallavegi, á sólarhring og um
kaflann frá Ólafsvallavegi að
Skálholtsvegi fóru 488 bílar. Til
samanburðar má nefna Þorláks-
hafnarveginn, sem mjög hefur
verið til umræðu undanfarin ár og
fyrirhugað er að setja svonefnda
klæðningu á í sumar. Um þann
veg fóru 600 bílar á sólarhring í
fyrra,“ sagði Þórður.
Guðrún Egilson:
Þá er hún opin í báða
enda og hol aðinnan
Vegna greinar minnar „Konur
og komík í heimspressunni" í
Morgunblaðinu sl. laugardag, hafa
þrír stuðningsmenn Vigdísar
Finnbogadóttur séð sig tilknúna
að svara mér. Gunnar Stefánsson í
Morgunblaðinu 10. júní og Kjart-
an Ragnarsson og Lilja Ólafsdótt-
ir í dag 11. júní. Er helzt á þeim að
skilja, að ég hefði af meinfýsi og
öðrum illum hvötum ruðzt fram á
ritvöllinn til þess að kasta rýrð á
kennara og leikhúsfólk og konur.
Það er alrangt. Ég er sjálf kona,
hef menntun sem kennari og hef
miklar mætur á leikhúsi. En þótt
reynt sé að nálgast sannleikann
frá þessum þremur hliðum, virð-
ast þremenningarnir allir leiða
hjá sér, að greinin átti sér tilefni,
og það var skýrt tekið fram. Hún
var svar við grein Svölu Thorlaci-
us, sem bar heitið „Ætla konur að
bregðazt?" Þar var brýnt fyrir
konum að kjósa konu í forseta-
embætti, ekki vegna þess að hún
væri kona, heldur vegna þess að
hún væri kona, og helztu rökin
með þessari rökleysu voru, að slíkt
myndi vekja heimsathygli. Ég
leyfði mér að sýna í ofurlitlum
stríðnistón dálítið brot af þeirri
heimsathygli, sem ég hafði orðið
vitni að. Það er nefnilega hægt að
geta sér frægðar á ýmsan hátt.
Ekki veit ég, hver viðbrögð
granna okkar í Finnlandi voru
eftir forsetakosningarnar 1968. Þá
var ég nefnilega önnum kafin við
að hrósa sigri eftir glæsilegt kjör
Kristjáns Eldjárns, sem ég hafði
stutt með ritstörfum, ræðuhöldum
og almennri kosningavinnu. Þetta
hygg ég að þremenningarnir viti,
enda hef ág áður látið það koma
fram. Ekki hef ég orðið vör við
annað en að Norðurlandabúar beri
almennt mikla virðingu fyrir for-
seta íslands, eins og hann hefur
fyllilega verðskuldað. Hins vegar
eru ýmsir sem gera sér ljóst, að
það árar dálítið öðruvísi hér á
landi en fyrir 12 árum. Þá hafði
um langt skeið ríkt friður á
stjórnmálasviðinu og ekki annað
fyrirsjáanlegt en svo yrði áfram.
Nú veit enginn hvað er framundan
í þeim efnum, og ég vil taka það
fram til þess að forðast óþarfa
hártoganir, að ég tel það á engan
hátt sök dr. Kristjáns Eldjárns,
Guðrún Egilson
sem hefur með sóma uppfyllt þær
vonir, sem við hann voru bundnar.
Gunnar Stefánsson segir, að
Finnum henti að hafa áhrifa-
mikinn forseta, en íslendingum
ekki. Hvergi munu þó vera til
staðlaðar uppskriftir af forsetum.
Hér á landi hafa verið þrír
forsetar með mismunandi reynslu
og mismunandi atkvæðamiklir og
allir hafa þeir notið vinsælda og
virðingar. Að miklu leyti hefur
það ráðizt af ástandi innan-
landsmála, hver hefur verið kjör-
inn. Það sem þjóðinni hentar á
einum tíma, getur henni hentað að
hafa á annan veg síðar. Finnan-
um, sem ég vitnaði tl fannst
spaugilegt, að við núverandi að-
stæður í íslenzku þjóðlífi, teldum
við okkur hafa ráð á að tefla fram
forsetaefni, sem hefði enga stjórn-
arfarslega reynslu, og ekkert er
bogið við slíkt skopskyn, — betur
að fleiri hefðu það. (Hann var ekki
að borða súpu,. heldur síld í
kryddlegi.)
En hvað með jafnréttismálin?
Eins og ég hef skilið þau, er þar
megininntakið, að konur eigi að
hafa sömu réttindi og skyldur og
karlmenn. Það á ekki að mismuna
konum vegna kynferðis síns, en
ekki á heldur að nota það þeim til
framdráttar. Ástæðan fyrir því,
að ég stakk upphaflega niður
penna um þetta mál (í Þjóðviljan-
um í maí sl.) var sá málflutningur
stuðningsmanna eins forseta-
frambjóðandans, að kjör hans yrði
mikill ávinningur í jafnréttisbar-
áttunni, — sérstaklega þar sem
viðkomandi frambjóðandi væri
sérlega glæsilegur í útliti. Þessi
málflutningur hefur síðan glumið
við sí og æ, og náði hámarki í
umræddri grein Svölu Thorlacius.
Ég segi enn og aftur, hvernig
getur það verið ávinningur í jafn-
réttisbaráttu, ef þjóðin kýs konu í
valdastöðu, sem hún getur ekki
beitt, — reynsluleysis vegna — á
tímum, er öll rök hníga að því, að
forseti þurfi að láta að sér kveða?
Og erum við þá ekki að viðhafa
sömu gömlu lummurnar, sem ég
hélt að jafnréttisfólk hefði fyrir
löngu lagt fyrir róða, — það að
konur eigi að vera upp á punt? Ef
það er jafnréttisbarátta, á hún
lítið skylt við þá raunsæju og
einlægu afstöðu til kynjanna, sem
fram kemur í leikritum Kjartans
Ragnarssonar. Ef þetta er jafn-
réttisbarátta, er hún opin Báða
enda og hol að innan.
Steindór Steindórsson fyrrv. skólastjóri:
Gæfumark þjóðarinnar
Brátt göngum vér til forseta-
kosninga. Mörgum, en því miður
ekki öllum, er það ljóst, að mikið
liggur við að vel takist til um þær.
Forsetinn er ekki aðeins tignar-
heiti, þótt völd hans séu takmörk-
uð. Hann er, ef svo mætti að orði
kveða, andlit lands og þjóðar
gagnvart umheiminum, og dómar
verða um þjóðina felldir eftir
framkomu hans, en inn á við á
hann að vera einskonar kjölfesta
sem með persónulegu áhrifavaldi
sínu getur lægt ófriðaröldur og
beint fjöldamörgum málefnum til
betri vegar. Ef til vill ríður þó
mest á, að hann sé staðfastur og
hafi þá kunnáttu og yfirsýn, sem
þarf til þess að vera leiðtogi.
Reynir hvað mest á þá eiginleika,
þegar um stjórnarmyndanir er að
ræða. Þótt forsetinn grípi ekki inn
í rás viðburðanna með valdboði,
skiptir miklu máli að hann kunni
að stjórna.
Forsetavalið er mikilvægt
hverju sinni, en aldrei hefir enn í
hinni stuttu sögu lýðveldisins ver-
ið meiri þörf en nú, að vel takist,
þar sem nálgast upplausnarástand
í þjóðfélaginu, og viðsjár og
vopnabrak hvarvetna úti í heimi.
En svo vel vill til, að þjóðin á nú
völ þess manns til forseta, sem
uppfyllir þær kröfur, sem- vér
gerum fyllstar til forseta landsins,
sá maður er Guðlaugur Þorvalds-
son.
Þegar líða tók á kjörtímabil
núverandi forseta varð mér oft um
það hugsað, hvern kjósa mætti
eftirmann hans. Reynsla langrar
ævi og starf mitt á fimmta tug
ára, hafði gefið mér tækifæri til
að kynnast öllum þorra framá-
manna þjóðarinnar, ýmist per-
sónulega eða af verkum þeirra og
framkomu. I hvert sinn er ég
hugsaði til þessa, staðnæmdist ég
að lokum við sama manninn,
Guðlaug Þorvaldsson. Ég þekki
hann allt frá skólaárum hans, sem
hið ljúfa prúðmenni, sem hvar-
vetna lagði hið besta til málanna.
Síðan hefi ég fylgst með starfs-
ferli hans þrep af þrepi, og alltaf
hefir hann reynst sami trausti
maðurinn. Vinnusamur, svo af
ber, snjall að miðla málum og
skjótur til að finna lausn á
vandamálum. Komu þar til með- I
fæddir eðlisþættir og mikil þekk-
ing og reynsla, á flestum sviðum
þjóðlífsins. Ég efast um að nokkur
samtíðarmanna hafi eins fylgst
með því, sem kalla mætti hjart-
slátt þjóðfélagsins og Guðlaugur,
hvort heldur sem var á vettvangi
atvinnu- og fjármála, eða á sviði
andans og menntamála. Hann
hefir farið með tvö af vandamestu
embættum þjóðarinnar, verið
rektor Háskóla íslands á mjög
miklum umbrota- og óróatímum,
og leyst það af hendi með ágætum,
og nú síðast sáttasemjari ríkisins,
en þó fengist mjög við þau mál
árum saman við óskorað traust
þeirra, sem mest hafa að þeim
málum staðið. Fyrir nokkrum
dögum var einn af andstæðingum
Guðlaugs til forsetakjörs að mæla
gegn honum, og fann það eitt til
gegn honum sem væntanlegs for-
seta, að ekki mætti missa hann úr
starfi sáttasemjara. Það er að vísu
rétt, að vandfundinn mun maður í
það sæti. En er hægt að bera
meira hrós á nokkurn mann, en að
hann sé ómissandi úr vandamikilli
stöðu, og er hægt að gefa Guðlaugi
sterkari meðmæli en þetta til hins
Steindór Steindórsson
virðulega forsetaembættis? Ég
held ekki. Sáttasemjarastarf Guð-
laugs gaf honum einstakt tæki-
færi til að sýna tvo mikilvæga
þætti persónuleika síns. Annars-
vegar, að hann var mannasættir í
raun, ekki eingöngu af kunnáttu
heldur einnig að honum var það í
blóð borið, og hinsvegar, að hann
er maður alþýðu landsins. Þekkir
kjör hennar frá barnæsku og
skilur manna best vandamál
hennar.
Stjórn hans á Háskóla íslands
sýndi þetta sama, og þar kom
einnig fram að hann er maður
æskunnar, þótt kominn sé á miðj-
an aldur og við gamlingjarnir
vitum einnig, að hann er okkur
líka haukur í horni. í stuttu máli
sagt, allir aldursflokkar og allar
stéttir þjóðfélagsins eiga í honum
skilningsríkan og góðviljaðan fé-
laga.
Meðan Guðlaugur var háskóla-
rektor, þurfti hann mjög að taka á
móti gestum og koma fram fyrir
hönd Háskólans. Þá kom best í
ljós að hann stóð ekki einn. Kona
hans Kristín Kristinsdóttir stóð
þar við hlið hans með þeirri prýði
að sæmd var að, og sýndi þá að
hún væri kjörin til að verða
húsfreyja á Bessastöðum.
Oft hvarflar að manni nokkur
uggur um framtíð lands og þjóðar.
Vitanlega ræður forseti landsins
ekki miklu um, hvernig hún ræðst.
En eitt er víst, það væri þjóðar-
ógæfa, ef hún bæri ekki hamingju
til að kjósa sér traustan forseta.
Og öruggari mann til að stjórna
því sem stjórnað verður úr stóli
forseta en Guðlaug Þorvaldsson
fáum vér ekki. Gerum því sigur
hans sem mestan 29. júní. Það er
gæfumark þjóðarinnar að svo
verði.
Steindór Steindórsson frá Hlöðum
fyrrv. skólameistari.