Morgunblaðið - 12.06.1980, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 1980
17
Guðrún Flosadóttir:
Asdís Erlingsdóttir:
Að kjósa Pétur
Thorsteinsson
Ég ætla að kjósa Pétur Thor-
steinsson í n.k. forsetakosningum.
Að athuguðu máli er hann hæfasti
frambjóðandinn til að sinna þessu
virðingarembætti þjóðinni til
handa. Það gladdi mig að Pétur á
vitnisburð trúarinnar og þegar ég
las um þann vitnisburð hans í
Mbl. 24. maí sl., þá kom mér í hug
þessi Ritn. orð: Orðskv. 22k. Fræð
þú sveininn um veginn sem hann á
að halda og enda á gamalsaldri
mun hann ekki af honum víkja.
Það er líka mikilvægur kostur
sem Pétur Thorsteinsson hefir
fram yfir hina frambjóðendurna.
Sá kostur er að hann er elstur og
hefir lengstan starfsaldur. Það er
ekki hagkvæmt fyrir þjóðina að
fólk á góðum starfsaldri hætti að
sinna sínum skyldustörfum. Þær
gjörðir verða tap fyrir samfélagið
nema að forsetaembættíð væri
valdameira, þá gæti það jafnvel
orðið nauðsynlegt. Þess vegna er
það mitt álit, að það sé ekki
kominn tími fyrir Albert Guð-
mundsson alþm. og bæjarfulltrúa
að hætta að sinna kjósendum
sínum og núverandi störfum, einn-
ig er það of snemmt að hætta fyrir
Guðlaug Þorvaldsson, nýskipaðan
sáttasemjara ríkisins, en í því
mikilvægara embætti gæti ein-
mitt hann látið gott af sér leiða.
Og það er heldur ekki kominn tími
til að hætta fyrir yngsta fram-
bjóðandann, frú Vigdísi Finnboga-
dóttur leikhússtjóra, sem hefir
lagt drjúgan skerf til leiklistar-
mála og fl. menningarmála.
tekið eftir henni, æðstu konu
þjóðarinnar.
Að lokum
Allir þessir háttvirtu frambjóð-
endur hafa staðið í ströngu og lagt
á sig mikið erfiði og einnig
nánustu fylgismenn þeirra. Þess
vegna er það ekki létt verk fyrir
kjósendur að hafna hinum stór-
huga Alberti Guðmundssyni, hin-
um prúðmannlega Guðlaugi Þor-
valdssyni og hinni brosmildu fríð-
leikskonu frú Vigdísi Finnboga-
dóttur.
En þeir sem kjósa Pétur Thor-
steinsson gefa þjóðinni lengri
tíma til að þiggja starfskrafta
þeirra og sérkunnáttu samfélag-
inu til eflingar og velfarnaðar.
„Ef Guð lofar og þjóðin vill“ þá
verður Pétur Thorsteinsson næsti
forseti íslands.
Ásdis Erlingsdóttir
Kjarkur og kærleikur
Nú þegar líður að forsetakosn-
ingum verður mér oftar og oftar
hugsað til þess manns sem er sá
langhæfasti vegna mannkosta
sinna, og þess kærleika sem hann
á. Sá maður er svo sannarlega-
maður fólksins.
Hvað er fólkið?
Það er almenningur í landinu,
það erum við, hinn almenni laun-
þegi, það eru þeir mörgu, sem
lífsbaráttan hefur farið höndum
um.
Það er fólkið, sem vegna slysa,
veikinda og margskonar erfið-
leika, hefur orðið undir í lífsbar-
áttunni. Þar hefur Albert Guð-
mundsson oftast komið við sögu,
og þar og fyrir það hefur Albert
Guðmundsson barist manna mest.
Er það ekki það sem við þörfn-
umst, manns sem þekkir lífsbar-
áttu fólksins í landinu, manns sem
þekkir líka baksvið stjórnmál-
anna.
Enginn sem þekkir og hefur
heyrt um þá atvinnu, sem hann
hefur lagt af mörkum fyrir fólkið
efast um að hann vinni áfram að
líknar- og mannræktarmálum
sem forseti.
Hann hættir aldrei við hálfnað
verk.
Ég vona svo sannarlega fyrir
fólksins hönd að þið, góðir íslend-
ingar, hafnið ekki manni, se^n
hefur kjark og ber kærleika til
okkar.
Gleymið ekki verkum hans.
Guðrún Flosadóttir
* '_ ~ ....
^*&®£*S* „
Nú stendur yfir hér á landi fundur norrænna vélaverkfræöiprófessora. Slíkir fundir eru
haldnir annað hvert ár og er þetta 10. fundurinn, en sá fyrsti var haldinn árið 1960.
Þessir fundir hafa ekki áður verið haldnir hérlendis. Þátttakendur, sem eru 45 að tölu
ræða um sérfræðileg málefni og fara í skoðunarferðir í verksmiðjur og orkuver. Myndin
var tekin af hópnum í gær fyrir utan Hótel Sögu. • ,júsm. Mbl. Kmilík.
BMW 518 A NORÐURLANDI
Kynnum BMW 518 á eftirtöldum stööum á Norðurlandi
dagana 14,—16. júní:
Blönduós: laugardag 14. júní kl. 10—12 hjá Vélsmiðju
Húnvetninga.
Sauðárkrókur: laugardag 14. júní kl. 2—5 hjá bifreiða-
verkstæði K.S.
Akureyri: sunnudag 15. júní kl. 1—6 hjá bifreiðaverk-
stæði Bjarnhéðins Gíslasonar, Fjölnisgötu 2a.
Húsavík: mánudag 16. júní kl. 1—5 hjá bifreiðaverk-
stæði Jóns Þorgrímssonar.
Þjóðin verður ábyggilega færari
að dæma um hæfni þeirra seinna
meir, ef þau sinna störfum sínum
lengur samfélaginu til handa.
Konur í sviðsljósi
Allar þær konur sem eru í
sviðsljósinu vegna forsetakosn-
inganna taka sig vel út, bæði
forsetaframbjóðandinn og eigin-
konur frambjóðendanna.
Þær eru blátt áfram og vina-
legar en hafa þó reisn til að bera.
Og eitt er sameiginlegt með þeim
öllum, þær eru snyrtilegar og vel
til fara.
Það álít ég ekki hégómaskap
enda væri annað móðgun við
íslenskar alþýðukonur, þar sem
margar hverjar höfðu varla til
hnífs og skeiðar og strituðu oft
myrkranna á milli m.a. til að seðja
svanga munna. En þær héldu sér
til eftir bestu getu og tóku það
sem sjálfsagðan hlut að vera vel
til fara á almannafæri. Forseta-
frúin getur ekki látið sig hverfa
inn í fjöldann eins og það væri
ekki eftir henni tekið. Þó að það sé
sjálfsagt að henni sé sýnd kurteisi
og tillitssemi hvað einkalíf snert-
ir, þá er og verður tekið eftir
forsetafrúnni og það á að vera
Af sérstökum ástæðum getum við boðið þennan
gæðabíl BMW 518 á mjög hagstæðu verði.
KRISTINN GUÐNASON HF.
BMW er óskabíll allra sem vilja eignast bíl með góða
aksturseiginleika, vandaðan frágang, velhönnuð sæti,
þægilega fjöðrun og góða hljóðeinangrun.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SIMI 86633
AKUREYRARUMBOÐ: BÍLAVERKSTÆÐI BJARNHÉÐINS GÍSLASONAR SÍMI96-22499