Morgunblaðið - 12.06.1980, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ1980
Hámarksverð
á olíu ákveðið
AlgeirHborK. Alsír. 11. júni. AP.
EFTIR að tvær tilraunir til að ná
samkomulagi um oliuverð fóru út
um þúfur á árinu, komu Saudi-
Arabar þvi loks til leiðar i da(? að
hámarksverð á olíu var ákveðið
meðal samtaka oliuútflutninjís-
rikja, OPEC.
Tveggja daga verðjöfnunarfundi
samtakanna lauk í Algeirsborg í
dag og var þá út gefin samþykkt
þess efnis að Arabalöndin skyldu
halda sig við 32 dala hámarksverð
og væri engu hinna aðildarríkj-
anna heimilt að fara fram úr 37
dala hámarksverði á tunnu.
Fulltrúar munu hins vegar ekki
hafa komið sér saman um sameig-
inlega túlkun samþykktarinnar,
einkum með tilliti til þess hvort
einstök ríki gætu lagt á sérstakt
gjald vegna gæða eða fjarlægðar
milli olíulindar og markaðar.
Yfirmaður orkumála hjá Efna-
hagsbandalaginu, Guido Brunner,
hefur látð svo um mælt að hið
nýja hámarksverð sé „ýkt og
óréttlætanlegt".
Kommúnjstar
töpuðu á Italíu
ÚRSLIT byggðakosn-
inganna á Ítalíu urðu þau
að Kommúnistaflokkurinn
The Times
enn í vanda
London, 11. júni. AP.
THOMSON lávarður, formaður
útgáfufyrirtækis brezka stór-
hlaðsins The Times, skýrði frá því
i dag, að enn hefði ekki tekizt að
taka i notkun mikilvægt tölvu-
kerfi vegna mótstöðu prentara og
skoraði eindregið á þá að taka
jákvæða afstöðu til hagnýtingar
þess.
Þegar kerfinu var komið upp
1978 var það ein af ástæðunum til
hinnar flóknu deilu, sem leiddi til
þess að útgáfa blaðsins og fylgi-
blaðsins Sunday Times var stöðvuð
i tæpt ár.
Utgáfa blaðanna hófst aftur 13.
nóvember sl þegar samkomulag
hafði tekizt við prentara, en frestað
var ákvörðunum um hverjir ættu
að stjórna tölvunum.
hlaut 31,5% atkvæða í stað
33,4% í kosningunum 1975.
Kristilegir demókratar
bættu við sig 1,5% atkvæða
frá sömu kosningum og
fengu 36.8%. Sósíalista-
flokkurinn, þriðji stærsti
flokkur ítaliu, fékk 12,7%,
en hafði verið með 12%
1975. Repúblíkanaflokkur-
inn hélt fylgi sínu og fékk
3%.
Auðir seðlar og ógildir hafa
aldrei verið jafn margir frá
stríðslokum en yfir 12,7% at-
kvæða féllu á þann veg. Er þetta
túlkað sem óánægja með þá kosti
sem voru í boði.
Úrslit kosninganna eru í heild
túlkuð sem stuðningsyfirlýsing við
samsteypustjórn kristilegra
demókrata og sósíalista undir
forsæti Francesco Cossiga, en
einnig sem persónulegur sigur
Cossiga, því hann hafði verið
sakaður um að koma í veg fyrir
handtöku ungs sonar stjórnmála-
manns úr Kristilega Demókrata-
flokknum, sem grunaður var um
að vera meðlimur í hryðjuverka-
samtökum.
Hækkunin hvarf
MEÐALTEKJUR vestur-þýzkra launþega hækkuðu
úr 1000 mörkum í 2369 mörk á mánuði á bilinu 1969
til 1979. Sáralítill hluti hækkunarinnar rann þó í
vasa launþegans sjálfs eða fór í sparibókina. Af
þeirri 1369 marka upphæð er bættist við launaseðil-
inn hurfu 266 mörk vegna hærri skatta, 214 fóru í
hækkaða líftryggingu og 669 mörk gleypti hærra
verðlag. Eftir sat launþeginn með raunverulega
meðaltalshækkun að upphæð 253 mörk á mánuði á
heilum áratug.
Upplýsingar þessar komu nýlega fram í blaðinu
Journal of Commerce Special.
Þetta gerðist
1976 — Herinn í Uruguay steypir
Juan Bordabey forseta af stóli.
1975 — Indira Gandhi forsætisráð-
herra hundsar hæstaréttarúrskurð
um að hún hafi unnið þingsæti
ólöglega og verði að afsala sér því.
1970 — Palestínskir skæruliðar
kveikja í sendiráði Jórdaníu í Beir-
út.
1964 — Nelson Mandela og sjö aðrir
dæmdir í ævilangt fangelsi fyrir
skemmdarverk í Rivonia-réttar-
höldunum í Pretoria.
1944 — Fljúgandi sprengjur Þjóð-
verja falla á London.
1940 — Japönsk loftárás á Chunk-
ing, Kína.
1937 — Hreinsanir rússneskra
hershöfðingja hefjast.
1934 — Stjórn'málaflokkar bannað-
ir í Búlgaríu.
1917 — Konstantín Grikkjakonung-
ur leggur niður völd í Grikklandi og
Alexander sonur hans tekur við.
1901 — Kúba verður raunverulegt
bandarískt verndarríki með samn-
ingi.
1900 — Önnur þýzku flotalögin;
stefnt að smíði 38 herskipa á 20
árum.
1882 — Óeirðir gegn útlendingum
brjótast út í Alexandríu.
1798 — Frakkar taka Möltu.
1691 — Ahmed II verður Tyrkja-
soldán í stað Súleiman III.
1683 — Rúghússamsærið um morð
á Karli II og bróður hans, Jakob
hertoga af Jórvík, afhjúpað.
1672 — Franskur her sækir yfir Rín
við Tolhoys.
Afmæli. Charles Kingsley, brezkur
rithöfundur (1819—1875) — Sir
Anthony Eden, brezkur stjórnmála-
leiðtogi (1897-1977).
brímastra barkskip bandarísku strandgæzlunnar siglir að ráslínu ásamt systurskipunum
Gorch Fock II og Eaglcs frá Kiel til þess að hefja þátttöku í kappsiglingu yfir Atlantshaf
frá Boston til Kristiansand í Noregi. Kappsiglingin er síðasti liðurinn í 350 ára afmæli
Boston borgar.
Ófriðsamt á norð-
austur-Indlandi
Nýju Delhi, Indlandi. 11. júní, AP.
STÓRFELLDIR loftflutningar
standa nú yfir á hersveitum og til
norðaustur fylkisins Tripura á
Indlandi, þar sem opinberar
heimildir herma að 300 manns
hafi látið lifið og 5000 særzt i
blóðugum átökum siðastliðna
fjóra daga. Mun ófriðurinn snú-
ast um búsetu utanaðkomandi i
fylkinu.
I Nýju Delhi sökuðu þingmenn
kommúnistaflokksins bandarísku
leyniþjónustuna um að hafa
hrundið vandræðunum af stað í
Tripura og öðrum fylkjum í norð-
austurhluta landsins, þar sem
uppþot gegn innflytjendum hafa
kostað 500 manns lífið síðan á
síðari hluta ársins 1979. Forsætis-
ráðhera Indlands, Indira Gandhi,
og stjórn hennar hafa iðulega
kennt „útlendum" öflum um við-
sjár í þessum hluta landsins, án
þess þó að benda á þau með nafni.
Frú Gandhi, sem nú á í fyrsta
skipti í kröppum dansi síðan hún
tók við völdum fyrir fimm mánuð-
um, skýrði þinginu svo frá í dag að
fylkisstjóri norðausturríkjanna
fimm hefði beðizt lausnar. Ríkis-
stjórinn, L.P. Singh, hefur verið
fulltrúi stjórnarinnar í Nýju Delhi
á svæðinu.
Finnland:
Flestir velja Koivisto
Frá Thomas Romantschuk fréttaritara
Mbl. í HelsinKÍors.
YFIRGNÆFANDI meirihluti
finnskra kjósenda hefur hug á
því að velja Mauno Kovisto for-
sætisráðhcrra úr flokki jafnaðar-
manna sem næsta forseta lands-
ins i forsetakosningunum sem
fram fara árið 1984 að þvi er
fram kemur i Gallup-skoðana-
könnun sem hirtist i vikublaðinu
Soumen Kuvalethi.
46% kjósenda nefndu Koivisto
en aðeins 13% sögðust myndu
kjósa Uhro Kekkonen núverandi
forseta landsins ef hann byði sig
fram. Kekkonen verður áttræður á
hausti komanda. Hann hefur verið
forseti frá árinu 1956 en hefur,
samkvæmt skoðanakönnuninni,
enga möguleika á að sigra í næstu
forsetakosningum. Hann hefur
sagt að hann muni ekki bjóða sig
fram árið 1984 en það hefur hann
sagt áður fyrir forsetakosningar.
Hvernig sem á það er litið má
örugglega ætla að þessi yfirlýsing
Kekkonens hafi haft áhrif á af-
stöðu kjósenda í skoðanakönnun-
inni.
í þriðja sæti urðu þeir Kalevi
Sorsa flokksbróðir Koivistos og
flokksformaður og utanríkisráð-
herrann ungi, Paavo Vayrynen, úr
Miðflokknum sem stefnir að því
um næstu helgi að fella formann
flokksins, Johnnes Virolainen, á
flokksþingi í Abo. Hlutu þeir báðir
um 2% fylgi kjósenda í skoðana-
könnuninni.
E1A1 á uppleið?
12. júní
Andlát. 1759 William Collins, skáld.
Innlent. 1913 Fánatakan í Reykja-
víkurhöfn — 1926 Kristján X heim-
sækir ísland — 1931 Alþingiskosn-
ingar — 1934 Brottrekstur 20
manna úr kommúnistaflokknum
kunngerður — 1939 Jónas Hall-
dórsson setur 50. sundmetið á 10
árum — 1944 Hótel Borg tekin
leigunámi til veizlufagnaðar — 1950
„Brúðkaup Fígarós" flutt — 1957
Leiðangur frá Akureyri fer til Jan
Mayen — 1901 f. Kristinn E.
Andrésson — 1915 Bjarni Vil-
hjálmsson þjskjv.
Orð dagsins. Bankastjóri er maður,
sem lánar þér regnhlíf þegar sólin
skín og heimtar hana aftur um leið
og það fer að rigna — Mark Twain,
bandarískur rithöfundur (1835—
1910).
HINN nýi stjórnarformað-
ur ísraelska flugfélagsins
E1 Al, Avraham Shavit,
lýsti því nýlega yfir í New
York, að eftir fyrstu
harkalegu ráðstafanirnar
varðandi rekstur flugfé-
lagsins væri hann nú
„hóflega bjartsýnn“ um
framhaldið. Shavit kveðst
hafa lækkað rekstrar-
kostnað fyrirtækisins um
40%. Ætlun hans er tvö-
falda á næstunni tekjur E1
A1 af vöruflutningum, en
þær nema nú um 20%, auk
þess sem hann stefnir að
því að auka mjög leigu-
flug.
Á síðasta ári nam taprekstur E1
A1 jafngildi rúmlega 20 milljarða
íslenzkra króna, en léleg afköst,
óróleiki á vinnumarkaði og óða-
verðbólgan í ísrael hafa ekki síður
staðið flugfélaginu fyrir þrifum en
öðrum fyrirtækjum í landinu.
Orðrómur var á kreiki um að
ísraelsstjórn væri því ekki frábit-
in að láta flugfélagið verða gjald-
þrota ef það rétti ekki úr kútnum.
Þegar Shavít tók við stjórnar-
taumunum hjá E1 A1 í nóvember
sl. lét hann það verða sitt fyrsta
verk að reka 1500 af 6000 starfs-
mönnum félagsins, auk þess sem
hann samdi um 20% kauplækkun
við þá, sem eftir urðu. Hann
fækkaði þjónustuliði um borð í
flugvélum, lagði niður áætlunar-
ferðir á flugleiðum, sem ekki
skiluðu hagnaði, lokaði fimm
skrifstofum félagsins erlendis og
endurskipulagði röðun áhafna í
flugferðir.
Synjað
um áritun
CapoTown, II. júni — AP.
NORSKA stjórnin neitaði í
dag suður-afríska dómsmála-
ráðherranum, Alwyn Schle-
busch, um vegabréfsáritun,
þegar hann óskaði eftir að fá
að heimsækja Noreg á opin-
beru ferðalagi, sem fyrirhug-
að er á næstunni. Engin
ástæða var gefin fyrir synj- •
uninni.