Morgunblaðið - 12.06.1980, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 12.06.1980, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ1980 tofgtmlilfifrifr Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baidvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, simi 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 5.000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 250 kr. eintakiö. Lítil stjórnviska Ríkisstjórnin hefur nú gert Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja gagntilboð, en í þá rúmu fjóra mánuði, sem ríkisstjórnin hefur setið, hafa menn beðið eftir þvj, að hún léti formlega frá sér heyra um kjaramál ríkisstarfsmanna. Fæðingahríðirnar hafa verð langar og strangar og á vormánuðum var helst á ráðherrum að skilja, að réttast væri, að þeir biðu með hugmyndir sínar, þar til ljósar lægi fyrir, hvernig viðræðum Vinnuveitendasambandsins og Alþýðusambandsins miðaði. Nú segist ríkisstjórnin hins vegar hafa misst þolinmæði sína. Heldur eru það ósannfær- andi rök, þegar litið er til þess, hve treg hún hefur verið til að koma til móts við aðilana á almenna vinnumarkaðnum, þegar þeir hafa sett fram óskir um svonefndar þríhliða viðræður. í þeim felst, að ríkisvaldið verði þátttakandi í úrlausn kjaramálanna. Tiilögur ríkisstjórnarinnar til BSRB bera þess merki, að vaxandi taugaveiklunar gæti innan ríkisstjórnarinnar yfir stöðunni í kjaramálunum. í Tímanum 31. maí sagði Ólafur Jóhannesson, utanríkisráðherra, að það væri „höfuðatriði að koma samningunum af“ og taka síðan öll efnahagsmálin til skoðunar „því það er ekki heldur hægt að grípa aðeins í einn þátt efnahagsmálanna heldur verður að líta á þau heildstætt." Óneitanlega er það lítil stjórnviska, þegar efnahagslífið allt er á öðrum endanum, að segja sem svo, að fyrst skuli samið um kaup og kjör og síðan ætli ríkisstjórnin að grípa til efnahagsráðstafana. Skynsamleg úrlausn mála felst þvert á móti í því, að ríkisstjórnin gefi aðilum vinnumarkaðarins tafarlaust til kynna, hvað fyrir henni vakir í efnahagsmálum almennt. Allar efnahagsráðstafanir hljóta að snerta kaup manna og kjör beint eða óbeint. Og það er til lítils fyrir aðila vinnumarkaðarins að ná einhverju samkomulagi, þegar við blasir, að ríkisstjórnin undirbýr ráðstafanir sem síðan ómerki allt, sem um hefur verið samið. Á þessu stigi er ótímabært a velta því fyrir sér til hvers gagntilboð ríkisstjórnarinnar mun leiða í samtölum fulltrúa hennar og BSRB. Niðurstaða þeirra mun ekki endilega ráðast af prósentutölum um kauphækkun eða breytingum á högum BSRB-forystunnar. Hitt er hins vegar ljóst, að á starfstíma sínum hefur ríkisstjórnin ekkert það aðhafst, sem vekur á henni traust meðal aðila vinnumarkaðarins. Ragnar Arnalds fjármálaráðherra ítrekar til dæmis, þegar hann kynnir gagntilboð sitt, að skattalækkanir komi alls ekki til greina til að liðka fyrir kjarasamningum og segir þær „fáránlegar" í því sambandi. En aðilar vinnumarkaðar- ins hafa einmitt sameinast um það sjónarmið, að með skattalækkunum væri unnt að gera mikið gagn í kjaravið- ræðunum. Afstaðan í kjaramálunum gefur til kynna, að ríkisstjórnin sé í engu sambandi við þróun mála í þjóðfélaginu. Sú stjórnviska, að fyrst þurfi að semja, svo að unnt sé að grípa inn í gerða samninga er angi af þessum sama meiði. Óg tillagan um vísitölu-fyrirkomulagið í gagntilboði fjármála- ráðherra gengur jivert á þær hugmyndir sem Vinnu- veitendasamband Islands hefur sett fram um svonefndan „kjarnasamning". Eins og menn muna ef til vill voru fyrstu viðbrogö Alþýðusambandsins við tillögunni um „kjarna- samning“ neikvæð en að loknum umræðum í samninganefnd þess var ákveðið að ganga til viðræðna um hann við vinnuveitendur. Þær viðræður hafa farið fram síðan og þótt ljós punktur í samningaþófinu. En með gagntilboði sínu virðist ríkisstjórnin ætla að spilla fyrir þeim viðræðum og hleypa þeim í gamla farið að nýju. Það er sannarlega mikið áhyggjuefni, þegar öll verk ríkisstjórnar í jafn viðkvæmum málaflokki og kjaramálun- um einkennast af fumi og fljótræði. Sé það vilji ríkisstjórn- arinnar að skynsamleg niðurstaða fáist í kjarasamningun- um, verður að gera þá kröfu til hennar, að hún fylgi þeim vilja fram með skynsamlegum aðgerðum. Einar Ólafsson, formaður Starfsmannafélags ríkisstofnana: Ríkið vill gera upp á milli Jóns og séra Jóns „TILBOÐ? Ég heíi ekki orðið neins tilboðs var,“ sagði Einar ólafsson, formaður Starfsmanna- félags rikisstofnana. eins stærsta félagsins innan BSRB, er Morg- unblaðið spurði hann, hvað hann vildi segja um tilboð f jármálaráð- herra til BSRB. „Hins vegar hef ég áþreifanlega orðið þess var, að fjármálaráðherra hefur lagt fram kröfu um að kjör okkar, sem við búum við í dag, verði stórlega rýrð, samningurinn frá 1977“ Morgunblaðið spurði Einar,. hvað það væri, sem honum þætti verst við „tilboðið". „Það versta er, að þeir skuli ætla að setja þak á vísitöluna. Á það má benda að við erum ekki eini aðilinn á launa- markaðinum, þar er einnig Banda- lag háskólamanna, sem sam- kvæmt kjaradómi nýtur áfram þeirra verðbótaákvæða, sem gilt hafa eftir setningu Ólafslaga — en nú er verið að klípa af þessu gagnvart okkur. Annað mikilvægt atriði í þessu sambandi er, að nú virðist eiga að gera upp á milli Jóns og séra Jóns. Séra Jón, félaginn í BHM, virðist eiga að fá forréttindi gagnvart Jóni, félaganum í BSRB. Þetta vísitölukerfi mun valda enn breikkun á þeim launamun, sem er milli BSRB og BHM og í því efni virðist ríkisvaldið ætlazt til, að við fórnum einhverju." Helga Gunnarsdóttir, talsmaður „áhugasamra félaga“: Smánarleg svör við kröf ugerð okkar „VIÐ fengum tilboðið í hendur í gærkvöldi og höfum farið yfir þau atriði er varða kaupliði og visitölu,“ sagði Helga Gunnars- dóttir, talsmaður „Ahugasamra félaga“ innan BSRB, „og er augljóst, að þetta eru smánarleg svör við kröfugerð okkar.“ „Ragnar Arnalds mun hafa sagt í sjónvarpi í gær, eftir að hafa verið stillt upp við vegg, að þetta væri nú bara byrjunin — þeir ættu eftir að tala saman. Það lítur ekki út fyrir að þeir séu yfir sig hreyknir af þessu, en hins vegar virðist eitthvað gengið til móts við okkur í samningsréttarmálinu, en hvað varðar kaup- og vísitölumál- in, þá er tilboðið alveg út í hött og hlýtur að verða svarað á þann hátt.“ Helga kvað „áhugasama félaga" halda fund fljótlega eftir helgina og yrðu félagarnir þá búnir að brjóta tilboðið til mergjar. Myndi fundurinn þá ákveða, hvort „áhugasamir félagar" hefðu ein- hverjar aðgerðir. „Eigum við ef- laust eftir að láta í okkur heyra," sagði Helga Gunnarsdóttir. r * Guðmundur Arnason, varaformaður Kennarasambands Islands: Vísitöluþak tilboðs- ins er fráleitt „ÉG verð nú að segja. að við höfum aldrel fengið sem fyrsta boð neitt gylliboð,“ sagði Guð- mundur Árnason, varaformaður nýstofnaðs Kennarasambands ís- lands, er Morgunblaðið ræddi við hann um boð fjármálaráðherra. „Það er ekkcrt nýtt að fá tilboð í algjöru lágmarki sem fyrsta boð.“ „Almennt vil ég ekki ræða tilboðið á samningastigi sem þessu," sagði Guðmundur, „en sérstaklega finn ég þó vankanta á vísitöluákvæðum þess, sem mér finnst ábótavant. Sérstaklega er það vísitöluþakið, sem er raunar fráleitt. Felur það í sér kjara- skerðingu fyrir þá hópa, sem það nær til og rýrir þannig gildandi samning, ekki bara meðal okkar heldur einnig meðal BHM-manna. Hins vegar er ýmislegt jákvætt við tilboðið og er það einkum í sambandi við réttindamálin. Þetta vil ég þó ekki ræða frekar að svo stöddu, þar sem ég tel óeðlilegt að ræða tilboð meðan á samningavið- ræðum stendur." Ágúst Geirsson, formaður Félags ísl. símam Launahækkuniii núlli og upp í 1,1 „MÉR finnst tilboðið mjög lélegt og algjörlega óviðunandi,“ sagði Ágúst Geirsson, formaður Félags íslenzkra simamanna, er Morg- unblaðið ræddi við hann í gær. „Boðið er upp á launahækkun, sem er frá núlli og upp í 1,98% á sama tima og útreikningar sýna, að til þess að ná gildi samning- anna frá 1977, vanti 22% hækkun launa.“ „Ymis mjög neikvæð atriði eru í tilboði Ragnars," sagði Ágúst, „og vil ég þar t.d. nefna það ákvæði, að ríkið geti einhliða ákveðið vinnu- tilhögun, sem það getur ekki nú. Þá má nefna vísitöluskerðinguna, sem er meiri samkvæmt tilboðinu en hún er í dag, tilboðið^skerðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.